Fréttablaðið - 09.01.2021, Blaðsíða 2
LEIÐRÉTTING
Villa í myndagátu Fréttablaðsins
Við vinnslu á myndagátu
Fréttablaðsins sem birt var á
gamlársdag varð ein vísbendingin
röng. Við hlið myndar af geimveru
með heimþrá, voru þessi tákn
---. en þau áttu að vera -...
Vinningshafi verður dreginn út í
næstu viku og lausnin birt í næsta
helgarblaði.
Eldsvoði á Álfsnesi
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í urðunarstöð Sorpu í Álfsnesi í gær. Upptök eldsins voru sjálfsíkveikja á lífrænum
úrgangi í móttökustöð sem ekki er lengur í notkun. Starfsfólk Sorpu og verktakar á svæðinu unnu að því að kæfa eldinn undir verkstjórn slökkvi-
liðsins með því að moka efni yfir hann til að stöðva útbreiðsluna. Búið var að ráða niðurlögum eldsins um klukkan 10.30. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Undirbúningsstyrkir
Styrkir til sýningaverkefna
Útgáfu-, rannsóknastyrkir
og aðrir styrkir
M
yn
dl
is
ta
rs
jó
ðu
r
Veittir verða styrkir allt að 3.000.000 kr.
Umsóknafrestur er til miðnættis 18. febrúar 2021
Upplýsingar um myndlistarsjóð,
umsóknareyðublað, úthlutunar-
reglur ásamt leiðbeiningum má
finna á vefsíðu myndlistarsjóðs
myndlistarsjodur.is
Úthlutað verður í marsmánuði.
Um er að ræða fyrri úthlutun
úr sjóðnum árið 2021.
Opið er fyrir
umsóknir í
myndlistarsjóð
SAMFÉLAG Aldrei hafa f leiri fengið
aðstoð frá Hjálpræðishernum en
fyrir nýliðin jól en tæplega sjö
hundruð einstaklingar hlutu matar-
styrk frá samtökunum í desember.
Matarstyrkurinn var í formi gjafa-
korta í Krónuna og segir Linda Björk
Hávarðardóttir, verkefnastjóri hjá
Hjálpræðishernum, að þeim fjölgi
mikið sem leiti til þeirra.
„Við höfum aldrei séð tölur líkt og
þær sem við sáum núna í desember,“
segir Linda. „Mataraðstoðin er öll
greidd úr velferðarsjóði Hjálpræðis-
hersins en aðsóknin hefur verið slík
að sjóðurinn tæmdist í ágúst og þá
var allt haustið og jólin eftir,“ bætir
hún við.
Þá bendir Linda á að í desember-
mánuði sé vanalega úthlutað jafn
hárri upphæð úr velferðarsjóði
Hjálpræðishersins og alla hina
mánuði ársins samanlagt. Nú hafi
því verið hrundið af stað söfnun
þar sem safnað er fyrir þeirri starf-
semi sem fjármögnuð er af vel-
ferðarsjóðnum. „Allt sem safnast
fer í sjóðinn. Ekkert fer í daglegan
rekstur Hjálpræðishersins, hús-
næðisins eða slíkt,“ segir Linda.
„Það sem heyrir undir rekstur
velferðarsjóðsins er jólahjálpin og
matarkort fyrir þá sem eru þurfandi
og svo getur fólk komið til okkar og
þvegið af sér og farið í sturtu,“ segir
hún. „Svo erum við með heitan mat
í hádeginu,“ bætir Linda við en um
fimmtíu manns mæta í hádegis-
matinn á degi hverjum.
„Manni f innst ótrúlegt að á
Íslandi séu svona margir sem þurfi
á slíkri aðstoð að halda en það er
víst þannig. Til okkar koma bæði
einstaklingar sem eiga ekki í sig
og á en líka þau sem vantar félags-
skap, því að þú getur verið verald-
lega fátækur en þú getur líka verið
fátækur félagslega,“ segir Linda.
Hjálpræðisherinn hlaut undanþágu
frá samkomutakmörkunum vegna
COVID-19 svo hægt væri að sinna
gestum en Linda leggur áherslu á
að öllum sóttvörnum sé vel sinnt.
„Við erum í rúmu húsnæði svo
hér er vel hægt að skipta upp í sótt-
varnahólf og gæta vel að öllu,“ segir
hún og vísar til nýs húsnæðis sam-
takanna. „Það eru margir sem halda
að við séum að safna fyrir daglegum
rekstri og rekstri á húsnæðinu því
við byggðum auðvitað þetta hús
en það er ekki þannig. Þetta hús
var byggt fyrir gamla peninga, við
áttum risastórt hús í miðbænum
sem var selt og þetta nýja byggt fyrir
þá peninga,“ segir Linda.
Hún segir húsið rúma starfsem-
ina vel. „Áður en við fluttum hingað
vorum við í Mjóddinni þar sem við
gátum boðið upp á hádegismat
tvisvar í viku en nú getum við gert
það á hverjum degi,“ segir Linda.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá í
gær hefur borið á því hér á landi að
fólk fái símtöl frá íslenskum núm-
erum sem merkt eru sem „möguleg
svik“ og segist Linda hafa orðið vör
við þá umræðu undanfarna daga.
„Fólk hefur haft samband við okkur
til að athuga hvort um raunverulega
söfnun sé að ræða, það er greinilega
einhver umræða og misskilningur í
gangi en söfnunin er raunveruleg,“
segir hún.
Þá segir hún Símstöðina sjá um
söfnunina fyrir Hjálpræðisher-
inn, allt fari heiðarlega fram. „Þau
hringja út fyrir okkur og svo er
sendur reikningur í heimabanka til
þeirra sem vilja leggja okkur lið.“
birnadrofn@frettabladid.is
Um fimmtíu manns í
mat hjá Hernum á dag
Aldrei hafa fleiri hlotið matarstyrk frá Hjálpræðishernum en í desember.
Velferðarsjóður Hersins tæmdist í ágúst svo að hrundið hefur verið af stað
söfnun til að halda megi áfram. Hafa fengið undanþágu frá sóttvarnareglum.
Þrátt fyrir undanþágur er lögð mikil áhersla á sóttvarnir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Linda Björk
Hávarðardóttir
verkefnastjóri
JAFNRÉTTISMÁL Samtökin Trans
Ísland hafa gefið út yfirlýsingu þar
sem þau gagnrýna 9.000 króna gjald
við leiðréttingu á kyni og nafni hjá
Þjóðskrá Íslands. Þau segja óviðun-
andi að transfólk þurfi að borga
fyrir slíka leiðréttingu og það sé
mikið réttlætismál að transfólk
hafi óhindrað aðgengi að slíkum
breytingum.
Samtökin segja að Þjóðskrá sé
með þessu að leggja sérstakt gjald á
viðkvæman hóp sem leitast eftir að
fá leiðréttingu á sinni skráningu og
telja samtökin óviðeigandi að ríkis-
stofnun rukki fyrir slíka breytingu.
Ef gjaldið verði ekki fellt niður
hvetja Trans Ísland þá sem ekki
hafa efni á því að breyta kyni sínu í
Þjóðskrá, að hafa samband við sam-
tökin sem muni koma til móts við
fólk og sjá til þess að transfólk geti
fengið aðgang að þessari breytingu
óhindrað. – mhj
Mótmæla
gjaldtöku við
skráningu kyns
DÓMSMÁL Íslenska óperan var í gær
sýknuð í máli sem Þóra Einarsdóttir
söngkona höfðaði vegna samnings-
brota og vangoldinna launa.
Þóra stefndi Íslensku óperunni
fyrir brot á samningum við æfingar
og uppfærslu óperunnar Brúðkaup
Fígarós. Allir helstu söngvarar sem
léku aðalhlutverkin í sýningunni
hafa einnig leitað til stéttarfélaga
vegna samningsbrota af hálfu
Íslensku óperunnar.
Í samtali við Fréttablaðið sagði
Þóra að það væri gott að fá niður-
stöðu í málið, en niðurstaða héraðs-
dóms vekti hins vegar upp margar
spurningar. „Þetta er ekki gott mál
fyrir tónlistarfólk og söngvara,“
sagði hún.
Aðspurð um framhaldið segir
Þóra margar spurningar sem tón-
listarfólk þurfi að spyrja sig varð-
andi samninga við stéttarfélög og
stofnanir eins og Íslensku óperuna.
Í yfirlýsingu frá Íslensku óper-
unni um málið segir að dómurinn
staðfesti að auki að verksamningur-
inn kveði á um hærri heildargreiðsl-
ur til Þóru en leitt hefði af kjara-
samningi FÍH, ef hann hefði verið
látinn gilda. Þá hafi verið tekið fram
berum orðum í verksamningi að
hann væri tæmandi og endanlegur
um greiðslur til söngkonunnar, líkt
og gilt hafði um fyrri samninga
milli sömu aðila um árabil.
„Íslenska óperan telur mikilvægt
að horfa til framtíðar og hyggst á
komandi misserum efna til samtals
við fulltrúa söngvarastéttarinnar
um hvernig samningagerð verði
best háttað í tengslum við upp-
færslur Íslensku óperunnar,“ segir
í yfirlýsingunni. – ilk
Ólík viðhorf
um dóm í máli
Óperunnar
Þetta er ekki gott
mál fyrir tónlistar-
fólk og söngvara.
Þóra Einarsdóttir, söngkona
9 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð