Fréttablaðið - 09.01.2021, Blaðsíða 16
KRAFTLYFTINGAR Kraftlyftinga-
samband Íslands var með það til
skoðunar að reyna að finna alþjóð-
lega dómara sem voru búnir að fá
kórónaveiruna í von um að geta
haldið mót með alþjóðlega vottun
í byrjun árs, en búið er hætta við
þær áætlanir. Þetta staðfesti Gry
Ek Gunnarsson, formaður Kraft-
lyftingasambandsins í samtali við
Fréttablaðið. Það er því stefnt að
því að halda innlent mót á Reykja-
víkurleikunum, ef þeir fá að fara
fram undir lok mánaðarins.
„Við vorum að láta okkur dreyma
um það að halda alþjóðlegt mót, til
þess þyrftum við að fá dómara að
utan, en erum hætt við það. Það er
enginn grundvöllur fyrir því þegar
verið er að setja hertar reglur í Evr-
ópu og veiran er í sókn að ferðast til
Íslands,“ segir Gry Ek.
„Við fundum fyrir miklum áhuga
erlendis. Það voru einstaklingar
sem voru mjög æstir að koma, til-
búnir að sitja í gegnum sóttkví
bara til þess eins að fá að keppa á
alþjóðlegu móti. Óþreyjan eftir því
að keppa er orðin það mikil innan
kraftlyftingahreyfingarinnar.“
Búið er að gefa leyfi fyrir keppn-
isíþróttum á nýjan leik undir
ákveðnum skilyrðum og er því
stefnt að því að innanlandsmót
í kraftlyftingum verði hluti af
Reykjavíkurleikunum í janúar.
„Miðað við upplýsingarnar sem
komu út í gær stefnum við að því
að halda mót á RIG. Allt okkar fólk
er búið að bíða spennt, enda allt of
langt liðið frá síðasta móti.“
kristinnpall@frettabladid.is
HANDBOLTI Íslenska karlalands-
liðið í handbolta mætir á morgun
Portúgal í öðrum leik liðanna af
þremur á stuttum tíma, en liðin
leiða saman hesta sína að Ásvöll-
um í undankeppni EM 2022. Liðin
áttust við ytra í miðri viku en þá
fór portúgalska liðið með tveggja
marka sigur af hólmi. Fréttablaðið
fékk Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfara
kvennaliðs Vals og aðstoðarþjálfara
íslenska kvennalandsliðsins, til
þess að rýna í leik liðanna og spá í
spilin fyrir framhaldið.
„Mér fannst tempóið svolítið
hægt í sóknarleiknum í fyrri hálf-
leik en það batnaði í seinni hálfleik
og þá var það aðallega slæm nýting
í dauðafærum sem varð okkur
að falli. Ég held að Guðmundur
[Þórður Guðmundsson, þjálfari
íslenska liðsins] sé aðallega að fara
yfir seinni bylgjuna í hraðaupp-
hlaupum milli leikja hvað sóknar-
leikinn varðar. Við erum að spila
þar krossblokk sem þarf að fínstilla
enn frekar,“ segir Ágúst Þór um
spilamennsku Íslands í Portúgal á
miðvikudagskvöldið síðastliðið.
„Ef við snúum okkur að varnar-
leiknum þá fannst mér hann heilt
yfir fínn í leiknum. Það er kannski
helst að við þurfum að fara yfir
hvernig við verjumst þegar þeir
spila sjö á sex. Við náðum að gera
það vel þegar við mættum þeim á
EM fyrr á þessu ári en það munaði
mikið um þegar Alexander [Peters-
son] fór meiddur af velli. Varnarleik-
urinn hægra megin var ekki nægi-
lega sterkur þegar hans naut ekki
við. Svo verðum við að fá stöðugri
markvörslu allan leikinn. Ágúst Elí
[Björgvinsson] hrökk í gang undir
lokin en við þurfum jafnari vörslu,“
segir þjálfarinn þrautreyndi.
„Mér fannst Elvar Örn [Jónsson]
eiga góðan leik í Portúgal og Viggó
Kristjánsson átti góða innkomu.
Bjarki Már [Elísson] skilaði prýði-
legu verki en hann þarf hins vegar
nýta færin sín betur. Sama má segja
um Sigvalda Björn [Guðjónsson] í
hinu horninu. Klúðrin af vítalín-
unni voru líka dýr.
Svo f innst mér Gísli Þorgeir
[Kristjánsson] mega fá aðeins meira
traust. Gísli Þorgeir þarf að skynja
það að hann þurfi ekki að sanna sig
þegar hann kemur inn. Mér fannst
hann fara full snemma í árásir og
klippingar og það vantaði aðeins
meiri ró í aðgerðir hans,“ segir
Ágúst. – hó
Þurfum að fá stöðuga
markvörslu allan leikinn
Ýmir Örn verst gegn Portúgal í fyrri leik liðanna í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR
UM LEIGUÍBÚÐIR
Í VOGABYGGÐ
Bjarg íbúðafélag hefur opnað fyrir umsóknir um leiguíbúðir
við Bátavog í Vogabyggð í Reykjavík.
Umsóknir og nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins
www.bjargibudafelag.is
Menntamálastofnun
óskar eftir samstarfi
Menntamálastofnun óskar eftir samstarfi við kennara um
þróun verkefna í málnotkun fyrir samræmd könnunarpróf
í 4., 7. og 9. bekk.
Hjá Menntamálastofnun eru samræmd könnunarpróf í
stöðugri þróun en þeim er ætlað að endurspegla áherslur í
aðalnámskrá grunnskóla. Við gerð prófatriða er beitt fag-
legum og öguðum vinnubrögðum og prófatriði markvisst búin
til þannig að þau reyni á tiltekna færni með tilteknum hætti.
Hugmyndin með samstarfinu er að fá nokkra reynda íslensku-
kennara í afmarkaða vinnu við gerð nýrra prófatriða.
Gert er ráð fyrir að verkefnið verði unnið í verktakavinnu og
ákveðinn sveigjanleiki er á því hvenær það er unnið.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Óskarsson, sviðsstjóri
matssviðs sverrir.oskarsson@mms.is og Inga Úlfsdóttir,
próffræðingur, inga.ulfsdottir@mms.is.
Innritun í framhaldsskóla á vorönn 2021
Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á vorönn 2021
verður dagana 1.-30. nóvember nk.
Fjar- og dreifnám og nám í kvöldskóla
Innritun í fjar- og dreifnám og í kvöldskóla fer fram samkvæmt fyrirkomulagi sem einstakir
framhaldsskólar auglýsa.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 514 7500 eða með því að svara ölvupósti sem send r er á
netfangið innritun@mms.is
Starfsfólk Menntamálastofnunar
Mikill áhugi að utan
Áhugi að utan varð til þess að Kraftlyftingasambandið skoðaði að fá erlenda
dómara á RIG með tilheyrandi sóttvarnaaðgerðum, en mótið verður innlent.
Júlían J. K. Jóhannsson með lyftu á RIG á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
9 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT