Fréttablaðið - 09.01.2021, Blaðsíða 29
Ég er einstaklega hrifin af Better You vörulínunni en fyrirtækið leggur mikið upp
úr gæðum. Better You línan bíður
upp á fjölbreytt úrval af víta-
mínum og steinefnum og öll eru
þau í munnúðaformi sem er afar
þægileg og einföld leið til að taka
inn bætiefni. Ekki skemmir það
fyrir að munnúðarnir eru sérlega
bragðgóðir og hentugir í notkun,
en með því að úða þeim út í kinn
eða undir tungu frásogast bæti-
efnin í gegnum slímhúð í munni,“
segir Kristín Steindórsdóttir, nær-
ingarþerapisti.
D LUX 4000 er nýjung frá
Better You
Það hefur orðið mikil vitundar-
vakning um mikilvægi D-víta-
míns. Framan af var talið að eina
hlutverk D-vítamíns væri fyrir
beinheilsu og til að koma í veg
fyrir beinkröm hjá börnum og
beinþynningu hjá fullorðnum.
Rannsóknir gefa til kynna að
D-vítamín gegni mun víðtækara
hlutverki en áður var talið og það
sé í raun grundvallarefni fyrir
mannslíkamann til að viðhalda
heilsu og lífsþrótti.
D-vítamín er ekki eins og
önnur vítamín því við getum
framleitt okkar eigið D-vítamín
þegar UVB geislar sólarinnar fá
að skína á húðina. Þrátt fyrir það
hefur komið í ljós að allt of margir
eru í skorti eða við skortsmörk.
Ástæðan er sú að við verjum
sífellt meiri tíma innandyra og
þegar við erum úti klæðumst við
gjarnan fatnaði eða berum á okkur
sólarvörn til að verja okkur gegn
skaðlegum geislum sólarinnar
og útilokum um leið D-vítamín
framleiðsluna í húðinni. Á Íslandi
er staðreyndin sú að við fáum yfir-
höfuð of litla sól yfir vetrarmánuð-
ina og þar sem það er einnig erfitt
að fá nóg af D-vítamíni úr fæðunni
hefur Embætti landlæknis ráðlagt
fólki að taka inn D-vítamín í formi
bætiefna daglega.
Það er aldrei of seint að spyrna
fótum við D-vítamínskorti og
besta leiðin til þess er að taka það
inn í bætiefnaformi alla ævi. DLUX
4000 er nýjasta og sterkasta D-
vítamínið í Better You línunni og
eru 4000 AE í hverjum úða.
C-vítamín er
mikilvægt fyrir
ónæmiskerfið og er
undirstöðuefni fyrir
myndun kollagens, sem
er eitt af byggingar-
efnum beina og húðar.
Byltingarkennd vítamín sem
sniðganga meltingarveginn
Fyrir þá sem eiga erfitt með að nýta næringarefni úr fæðunni vegna undirliggjandi meltingar-
vandamála eða eiga erfitt með að kyngja töflum koma munnúðarnir frá Better You sér sérlega vel.
Kristín Stein-
dórsdóttir nær-
ingarþerapisti
er einstaklega
hrifin af Better
You vöru-
línunni. MYND/
AÐSEND
Margir lenda í
vandræðum með
meltinguna við inntöku
á járni, en þar sem járn-
blöndurnar frá Better
You eru í munnúðaformi
sem frásogast beint frá
slímhúð í munni og út í
blóðrásina, eru maga-
vandamál tengd járninn-
töku því úr sögunni.
Better You C- vítamín fyrir
öflugt ónæmiskerfi
Flestir þekkja hlutverk C-víta-
míns fyrir ónæmiskerfið og taka
það inn sem bætiefni til að efla
viðnám líkamans gegn flensum og
sýkingum, en C-vítamín er einnig
mikilvægt fyrir meðal annars
myndun kollagens, sem er eitt af
byggingarefnum líkamans, fyrir
betri upptöku og nýtingu á járni
úr fæðunni og spilar stórt hlutverk
sem verndandi andoxunarefni.
C-vítamín munnúðinn frá Better
You inniheldur einnig grænt te, B2
sem er gríðarlega mikilvægt víta-
mín fyrir orkubúskap frumna og
selen, sem er eitt hinna svokölluðu
andoxunarnæringarefna líkam-
ans. C-vítamín blandan frá Better
You er frábrugðin flestum C-víta-
mínum á markaðnum þar sem það
er í munnúðaformi sem gerir það
afar hentugt í notkun.
Better You járn munnúði
Better You býður upp á járn munn-
úða í tveimur styrkleikum, 5 mg og
10 mg, sem valda ekki meltingar-
vandamálum.
Járn er mikilvægt snefilefni
sem gegnir mörgum mikilvægum
hlutverkum í líkamanum, en eitt
af lykilhlutverkum þess er að flytja
súrefni til vefja líkamans. Járn
er einnig mikilvægt fyrir meðal
annars ónæmiskerfið og fyrir vöxt
og þroska barna og unglinga.
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðis-
stofnun er járnskortur algengasti
næringarefnaskortur í heiminum.
Ástæða járnskorts er oftast ónógt
járn í fæðunni, blóðmissir, aukin
járnþörf, sjúkdómar, meltingar-
vandamál eða vegna lélegs frásogs.
Konur á barneignaraldri, einkum
konur sem fá miklar tíðablæð-
ingar, þurfa í sumum tilfellum
viðbótarjárn til að komast hjá
járnskorti. Einnig er börnum og
unglingum sérstaklega hætt við
járnskorti, þar sem þau þurfa hlut-
fallslega meira járn en fullorðnir
til að styðja við vöxt og þroska.
Einkenni járnskorts geta verið
veikt ónæmiskerfi, þrekleysi, skert
úthald, föl húð, svimi, mæði, óeðli-
legur hjartsláttur og jafnvel hárlos.
Járn er að finna í ýmsum mat-
vælum en líkaminn nýtir sér það
misvel. Nýtingu járns er hægt að
auka með því að neyta C-víta-
mínríkrar fæðu eins og ávaxta og
grænmetis, eða að taka inn C-víta-
mín samhliða járnríku fæði. Melt-
ingarvandamál og hægðatregða er
vel þekktur fylgikvilli þess að taka
inn járn í bætiefnaformi. Járnið
frá Better You frásogast gegnum
slímhúð í munni. Þannig er alfarið
sneitt fram hjá meltingarfærunum,
upptakan er tryggð og magavand-
ræði úr sögunni.
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 9 . JA N ÚA R 2 0 2 1