Fréttablaðið - 09.01.2021, Page 29

Fréttablaðið - 09.01.2021, Page 29
Ég er einstaklega hrifin af Better You vörulínunni en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum. Better You línan bíður upp á fjölbreytt úrval af víta- mínum og steinefnum og öll eru þau í munnúðaformi sem er afar þægileg og einföld leið til að taka inn bætiefni. Ekki skemmir það fyrir að munnúðarnir eru sérlega bragðgóðir og hentugir í notkun, en með því að úða þeim út í kinn eða undir tungu frásogast bæti- efnin í gegnum slímhúð í munni,“ segir Kristín Steindórsdóttir, nær- ingarþerapisti. D LUX 4000 er nýjung frá Better You Það hefur orðið mikil vitundar- vakning um mikilvægi D-víta- míns. Framan af var talið að eina hlutverk D-vítamíns væri fyrir beinheilsu og til að koma í veg fyrir beinkröm hjá börnum og beinþynningu hjá fullorðnum. Rannsóknir gefa til kynna að D-vítamín gegni mun víðtækara hlutverki en áður var talið og það sé í raun grundvallarefni fyrir mannslíkamann til að viðhalda heilsu og lífsþrótti. D-vítamín er ekki eins og önnur vítamín því við getum framleitt okkar eigið D-vítamín þegar UVB geislar sólarinnar fá að skína á húðina. Þrátt fyrir það hefur komið í ljós að allt of margir eru í skorti eða við skortsmörk. Ástæðan er sú að við verjum sífellt meiri tíma innandyra og þegar við erum úti klæðumst við gjarnan fatnaði eða berum á okkur sólarvörn til að verja okkur gegn skaðlegum geislum sólarinnar og útilokum um leið D-vítamín framleiðsluna í húðinni. Á Íslandi er staðreyndin sú að við fáum yfir- höfuð of litla sól yfir vetrarmánuð- ina og þar sem það er einnig erfitt að fá nóg af D-vítamíni úr fæðunni hefur Embætti landlæknis ráðlagt fólki að taka inn D-vítamín í formi bætiefna daglega. Það er aldrei of seint að spyrna fótum við D-vítamínskorti og besta leiðin til þess er að taka það inn í bætiefnaformi alla ævi. DLUX 4000 er nýjasta og sterkasta D- vítamínið í Better You línunni og eru 4000 AE í hverjum úða. C-vítamín er mikilvægt fyrir ónæmiskerfið og er undirstöðuefni fyrir myndun kollagens, sem er eitt af byggingar- efnum beina og húðar. Byltingarkennd vítamín sem sniðganga meltingarveginn Fyrir þá sem eiga erfitt með að nýta næringarefni úr fæðunni vegna undirliggjandi meltingar- vandamála eða eiga erfitt með að kyngja töflum koma munnúðarnir frá Better You sér sérlega vel. Kristín Stein- dórsdóttir nær- ingarþerapisti er einstaklega hrifin af Better You vöru- línunni. MYND/ AÐSEND Margir lenda í vandræðum með meltinguna við inntöku á járni, en þar sem járn- blöndurnar frá Better You eru í munnúðaformi sem frásogast beint frá slímhúð í munni og út í blóðrásina, eru maga- vandamál tengd járninn- töku því úr sögunni. Better You C- vítamín fyrir öflugt ónæmiskerfi Flestir þekkja hlutverk C-víta- míns fyrir ónæmiskerfið og taka það inn sem bætiefni til að efla viðnám líkamans gegn flensum og sýkingum, en C-vítamín er einnig mikilvægt fyrir meðal annars myndun kollagens, sem er eitt af byggingarefnum líkamans, fyrir betri upptöku og nýtingu á járni úr fæðunni og spilar stórt hlutverk sem verndandi andoxunarefni. C-vítamín munnúðinn frá Better You inniheldur einnig grænt te, B2 sem er gríðarlega mikilvægt víta- mín fyrir orkubúskap frumna og selen, sem er eitt hinna svokölluðu andoxunarnæringarefna líkam- ans. C-vítamín blandan frá Better You er frábrugðin flestum C-víta- mínum á markaðnum þar sem það er í munnúðaformi sem gerir það afar hentugt í notkun. Better You járn munnúði Better You býður upp á járn munn- úða í tveimur styrkleikum, 5 mg og 10 mg, sem valda ekki meltingar- vandamálum. Járn er mikilvægt snefilefni sem gegnir mörgum mikilvægum hlutverkum í líkamanum, en eitt af lykilhlutverkum þess er að flytja súrefni til vefja líkamans. Járn er einnig mikilvægt fyrir meðal annars ónæmiskerfið og fyrir vöxt og þroska barna og unglinga. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðis- stofnun er járnskortur algengasti næringarefnaskortur í heiminum. Ástæða járnskorts er oftast ónógt járn í fæðunni, blóðmissir, aukin járnþörf, sjúkdómar, meltingar- vandamál eða vegna lélegs frásogs. Konur á barneignaraldri, einkum konur sem fá miklar tíðablæð- ingar, þurfa í sumum tilfellum viðbótarjárn til að komast hjá járnskorti. Einnig er börnum og unglingum sérstaklega hætt við járnskorti, þar sem þau þurfa hlut- fallslega meira járn en fullorðnir til að styðja við vöxt og þroska. Einkenni járnskorts geta verið veikt ónæmiskerfi, þrekleysi, skert úthald, föl húð, svimi, mæði, óeðli- legur hjartsláttur og jafnvel hárlos. Járn er að finna í ýmsum mat- vælum en líkaminn nýtir sér það misvel. Nýtingu járns er hægt að auka með því að neyta C-víta- mínríkrar fæðu eins og ávaxta og grænmetis, eða að taka inn C-víta- mín samhliða járnríku fæði. Melt- ingarvandamál og hægðatregða er vel þekktur fylgikvilli þess að taka inn járn í bætiefnaformi. Járnið frá Better You frásogast gegnum slímhúð í munni. Þannig er alfarið sneitt fram hjá meltingarfærunum, upptakan er tryggð og magavand- ræði úr sögunni. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 9 . JA N ÚA R 2 0 2 1

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.