Fréttablaðið - 09.01.2021, Blaðsíða 35
Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til 15. janúar. Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
Markmið samstarfsins:
• Styðja við orkuskipti á svæðinu með
áherslu á orkuskipti skipa og báta,
í flutningum á landi og sjó
• Skapa vettvang fyrir alþjóðleg tilrauna-
og þróunarverkefni á sviði orkuskipta
• Starfa með fyrirtækjum og
frumkvöðlum á svæðinu að grænni
verðmætasköpun og nýsköpun í iðnaði,
samgöngum, flutningi og ferðaþjónustu
• Stuðla að grænni þróun Vestfjarða með
því að kortleggja og markaðssetja
orkuauðlindir með áherslu á fjölþætta
nýtingu og stuðla að bættri nýtingu
svæðisbundinna auðlinda
• Stuðla að bættum innviðum sem styðja
við orkutengda nýsköpun
• Stuðla að auknum rannsóknum á sviði
orkuskipta með öflugu samstarfi við
háskóla, rannsóknastofnanir og
atvinnulíf
• Vinna að möguleikum Íslands á að
verða leiðandi þegar kemur að samspili
orku, umhverfis og samfélags
Leitað er að drífandi og jákvæðum leiðtoga til að leiða samstarfsverkefnið Bláma næstu
árin. Leitað er að framúrskarandi einstaklingi með brennandi áhuga á sjálfbærnimiðaðri
verðmætasköpun og tækifærum í orkuskiptum til að þróa og fylgja eftir markmiðum
Bláma. Starfsstöð framkvæmdastjóra er á Vestfjörðum.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Helstu verkefni:
• Umsjón með daglegum rekstri Bláma
• Stefnumótun og áætlanagerð
• Koma fram fyrir hönd Bláma og kynna
starfsemi verkefnisins
• Samskipti og tengsl við hagaðila
• Halda utan um verkefni innan Bláma
• Leita tækifæra til að efla verkefnið
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólanám sem nýtist í starfi.
Meistaranám æskilegt
• Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg
• Leiðtogahæfni og drifkraftur
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði
• Góð tungumálakunnátta
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Blámi er nýtt samstarfsverkefni
á Vestfjörðum sem snýr að nýsköpun
og þróun tækifæra í vetni, orkuskiptum
og grænni verðmætasköpun tengdri
starfsemi á svæðinu. Að verkefninu standa
Landsvirkjun, Orkubú Vestfjarða og
Vestfjarðastofa.
Leitað er að öflugum einstaklingi til að halda utan um þátttöku Bláma í rannsókna-
og þróunarverkefnum. Rannsókna- og þróunarstjóri vinnur þétt með framkvæmdastjóra
Bláma og hefur frumkvæði að mótun og fjármögnun nýrra verkefna í samstarfi við
framkvæmdastjóra, stjórn og hagsmunaaðila. Starfsstöð rannsókna- og þróunarstjóra
er á Vestfjörðum.
RANNSÓKNA- OG ÞRÓUNARSTJÓRI
Helstu verkefni:
• Vinna að mótun og þátttöku Bláma í
innlendum og erlendum rannsóknaverkefnum
• Þróa öflugt samstarf við mennta- og
rannsóknastofnanir
• Aðstoð við að koma verkefnum Bláma á
framfæri
• Verkefnastjórn einstakra verkefna
• Samskipti og tengsl við hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistara- eða doktorspróf sem nýtist í starfi
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Reynsla af gerð styrkumsókna í innlenda
og erlenda sjóði
• Reynsla af rannsókna- og þróunarstarfsemi
• Reynsla af verkefnastjórn
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
og ensku