Fréttablaðið - 09.01.2021, Side 10

Fréttablaðið - 09.01.2021, Side 10
BRETLAND Netglæpamenn hafa nýtt sér upplýsingaóreiðu vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusam- bandinu til þess að svíkja fé út úr fólki. Þetta bætist við aukna net- glæpi í landinu samfara faraldr- inum. Aukningin í ár er 20 prósent. Eitt það helsta sem glæpamenn- irnir nýta sér er hið nýja heilbrigð- istryggingakort, GHIC, sem leysir af hólmi evrópska tryggingakortið, EHIC. GHIC gildir þó aðeins fyrir Evrópusambandslöndin 27 en ekki Ísland og önnur EFTA-lönd eins og EHIC gerði. Bretar geta sótt um GHIC-kort ókeypis hjá breska heilbrigðiskerf- inu en fjöldi vefsíðna rukkar fyrir að sækja um kortið og lýgur að fólki um umsóknarferlið. Google eyddi fjölda auglýsinga þessara síðna af leitarvél sinni eftir að bent var á þetta. „Þegar auglýsingar brjóta skil- yrði okkar fjarlægjum við þær,“ segir í yfirlýsingu Google. Síð- urnar eru þó enn sýnilegar á leitar- vélinni. Á síðunum er ranglega sagt að umsókn um GHIC sé f lókið og tímafrekt ferli og fólk er vanalega rukkað um 30 pund, eða rúmlega 5 þúsund krónur, fyrir þá „þjónustu“ að útvega kortið. Bankinn Barclays gaf í desember út viðvörun til fyrirtækja og ein- staklinga um að netglæpir myndu lík lega aukast til muna eftir útgönguna og fólk þyrfti að vera á varðbergi. Ætti þetta sérstaklega við um lítil fyrirtæki sem hefðu ekki burði til öf lugra netvarna. „Fyrirtækjaeigendur sem þekkja ekki þær nýju reglur sem taka gildi við útgönguna gætu átt í erfið- leikum með að gera greinarmun á raunveruleikanum og svindli,“ segir Jim Winters, yfirmaður svika- deildar Barclays. Winters segir algengt að net- glæpamenn nýti sér óvissu og leggi út f leiri net. Algengasta aðferðin sem glæpa- menn hafa notað í faraldrinum er beituárásir (e. phising), það er að villa á sér heimildir til þess að veiða bankaupplýsingar, lykilorð og f leira frá fólki. Af öllum net- glæpum árið 2020 voru þessir glæpir 42 prósent, og á síðasta hálfa ári hefur beituárásum fjölgað um 79 prósent. Fjórðungur glæpanna var falskar sölusíður þar sem fólki voru seldir hlutir sem voru ekki til. Bretar og bresk fyrirtæki eru ekki einu fórnarlömbin sem net- glæpamenn herja á. Þeir sem stunda mikil viðskipti við Breta eru einnig í hættu, til dæmis nágrannar þeirra Írar. Írlandsbanki gaf út viðvörun fyrir áramót vegna þessa. Vegna mikill- ar óvissu þyrftu fyrirtæki að vera sérstaklega á varðbergi. Algengt sé að glæpamenn þykist vera breskir birgjar eða viðskiptamenn og seg- ist vilja að greiðslur berist á nýjan reikning vegna útgöngunnar. kristinnhaukur@frettabladid.is Netglæpamenn herja á Breta eftir útgönguna Bankar í Bretlandi og fleiri ríkjum búast við mikilli aukningu netglæpa eftir að Bretland gekk úr ESB. Nýtt sé óvissa almennings og smárra fyrirtækja um nýjar reglur. Meðal annars hafa glæpamenn rukkað fyrir heilbrigðisþjónustuskírteini, sem eru ókeypis. Barclays og fleiri bankar hafa varað við netglæpum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Öryggisíbúðir Eirar til langtíma leigu Grafarvogi Reykjavík Eir öryggisíbúðir ehf. Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík.  522 5700 Hafið samband í síma 522 5700 milli 8 og 16 virka daga eða pantið gögn og nánari upplýsinar ásamt skoðun á netfangið sveinn@eir.is Tveggja og þriggja herbergja vandaðar öryggisíbúðir Eirar til leigu í Grafarvogi, Reykjavík. Eirborgir, Fróðengi 1—11, 112 Reykjavík. Eirarhús, Hlíðarhúsum 3—5, 112 Reykjavík. • Rólegt og notarlegt umhverfi með aðgengi að metnaðarfullri aðstöðu og þjónustu með það að markmiði að einstaklingurinn geti búið lengur heima. • Öryggisvöktun allan sólarhringinn. • Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð. • Góðar gönguleiðir í nágrenninu. Fyrirtækjaeigendur sem þekkja ekki þær nýju reglur sem taka gildi við útgönguna gætu átt í erfiðleikum með að gera greinarmun á raunveruleik- anum og svindli. Jim Winters, yfirmaður svikadeildar Barclays Þjóðleikhúsið auglýsir eftir samstarfsverkefnum Þjóðleikhúsið vill efna til skapandi samstarfs við leikhópa utan leikhússins í þeim tilgangi að efla sviðslistir í landinu. Þjóðleikhúsið auglýsir eftir hugmyndum að leiksýningum sem settar yrðu upp í samstarfi leikhússins við leikhópa, leikárið 2021-2022. Umsóknum skal skila fyrir 4. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar má finna á heimsíðu Þjóðleikhússins leikhusid.is Þjóðleikhúsið | Hverrsgötu 19 | 101 Reykjavík | 551 1200 | leikhusid.is TYRKLAND Fornleifafræðingar á vesturhluta Tyrklands hafa fundið hof frá sjöttu öld fyrir Krist helgað grísku frósemisgyðjunni Afródítu. Teymið sem uppgötvaði hofið fann hluta af styttu af konu, höggmynd af kvenmannshöfði og áletrun þar sem ritað er „Þetta er heilagt svæði“. „Þessi fundur bendir til að það hafi verið sértrúarsöfnuður á svæð- inu,“ segir Elif Koparal, fornleifa- fræðingurinn sem leiddi teymið, í viðtali við tyrkneska dagblaðið Hürriyet. „Söfnuðir tileinkaðir Afródítu voru vinsælir á þessum tíma.“ Teymi Koparal fann fyrst vís- bendingar um hofið árið 2016, þegar það vann að rannsóknum á leifum frá ýmsum byggðum frá síðasta árþúsundi. Mörg hof voru byggð til heiðurs Afródítu, einna helst á Kýpur og grísku eyjunni Kýtereu. Forna borgin Afródisías var nefnd eftir gyðjunni og stóð þar sem nú er Tyrkland. Borgin er í dag á heimsminjaskrá UNESCO. – atv Fundu ævafornt hof Afródítu Frá Afródisías í Tyrklandi. 9 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.