Fréttablaðið - 09.01.2021, Qupperneq 26
Ég fór að kaupa mér upp-skriftir og læra að hnýta og svo lagði vinkona mín til eftir að hafa keypt af mér hengi að ég myndi byrja að selja verkin.
Mér fannst þá tilvalið að safna
fyrir brúðkaupinu mínu og það var
alveg nóg að gera. Fólki fannst það
einhvern veginn skemmtilegra að
versla af mér af því að þau voru að
kaupa til að styrkja „málefnið“ ef
það má kalla það það,“ segir Guðný
og hlær.
Guðný hafði þá ekki hnýtt mac-
rame lengi. Aðeins í þrjá mánuði.
Hún segir að þannig hafi henni
tekist að safna nógu af peningum
og svo var brúðkaupið haldið í Tré-
kyllisvík á Ströndum sumarið 2019.
Á þeim tíma þegar Guðný og
Símon giftu sig var hún rekstrar-
stjóri Kaffibarsins og varði því
miklum tíma í miðbænum. Maður-
inn hennar, auk þess að vera sprútt-
sali hjá fyrirtækinu Mekka Wines
and Spirits, er plötusnúður og stýrir
meðal annars Funkþættinum sem
er alla fimmtudaga á X-inu 97,7. Því
segir Guðný það hafa verið þeirra
meginmarkmið að komast eins
langt frá miðbænum og hægt var til
að gifta sig.
„Við vildum komast eins langt
frá miðbænum og við gátum. Það
var markmiðið. Við vorum búin að
vera að leita í mörg ár að stað sem að
kostaði ekki hönd og fót og þar sem
við gætum verið með eigið áfengi,“
segir Guðný.
400 km akstur í brúðkaup
Hún segir að á endanum hafi þetta
verið um 100 manna brúðkaup og
margir gestanna hafi í fyrsta sinn
verið að ferðast svona langt frá mið-
bænum.
„Þetta var þvílíkt partí og það
var fullt af fólki úr miðbænum sem
hafði aldrei komið út fyrir Reykja-
vík nema til útlanda, en keyrði yfir
400 kílómetra á Strandir í brúð-
kaup. Þetta er fólk sem er alltaf til
í gott partí og það voru allir úti að
dansa og geggjað gaman,“ segir
Guðný.
Spurð hvernig þau hafi rambað
á þessa staðsetningu segir Guðný
að maðurinn hennar, Símon Guð-
mundsson, hafi verið á Ströndum í
söluferð og hún með og þau töluðu
við hótel Djúpavík en að þau hafi
þetta ár, 2017, ekki tekið við brúð-
kaupum. Þau hafi svo talað við
konur sem hafi séð um kaffihúsið
á Norðurfirði og enduðu einhvern
veginn svo í félagsheimilinu í fal-
legu Trékyllisvík.
Guðný hefur frá brúðkaupinu
haldið áfram að hnýta macrame en
segir þó að komið hafi smá pása.
„Það var mikið að gera í vinnunni
og svo skráði ég mig í fjarnám með
vinnu. En svo hætti ég að nenna að
henda fólki út af Kaffibarnum og
hætti alveg í vinnunni og hélt áfram
í náminu,“ segir Guðný en um jólin
útskrifaðist hún af viðskipta- og
hagfræðibrú í Keili.
Gömul list sem gengur í hringi
Guðný hafði starfað á Kaffibarnum
í um 11 ár og taldi því tímabært að
hætta þar. Hún stefnir á áframhald-
andi nám í viðskiptafræði en ætlar í
millitíðinni að einbeita sér að hnút-
ÉG HEF FENGIÐ SÉRPANT-
ANIR UPP Á STÓR VERK
OG ÞAÐ ER ÞAÐ SKEMMTI-
LEGASTA SEM ÉG GERI. ÞAÐ
TEKUR OFT TÍMA AÐ GERA
ÞAU, ENDA VERÐA ÞAU
SVOLÍTIÐ DÝR.
Safnaði fyrir
brúðkaupi
Guðný Jónsdóttir hefur undanfarin ár
hnýtt macrame, eða hnýtilist og hnýtti
meðal annars stór og lítil verk til að safna
fyrir sveitabrúðkaupi sem hún og Símon,
maðurinn hennar, héldu 2019 í Trékyllisvík
á Ströndum. Guðný útskrifaðist um jólin en
ætlar nú að einbeita sér að hnýtilistinni.
Í brúðkaupinu sem haldið var í Trékyllisvík á Ströndum. Að ofan má sjá
hengið sem Guðný gerði sjálf fyrir brúðkaupið MYND/BRYNJAR SNÆR
Hengið sem Guðný bjó til fyrir brúðkaupið. MYND/GUÐNÝ
Guðný einbeitir sér að hnýtilistinni eftir að hún hætti að nenna að henda fólki út af Kaffibarnum FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
unum. Hún segir að það hafi verið
mikil fjölgun macrame-hnýtara í
kórónaveirufaraldrinum
„Það eru allir að gera þetta núna.
En það er alveg frábært. Það eru
f leiri að f lytja inn efni því það er
ekki hægt að nota hvað sem er. Þetta
er auðvitað ekkert nýtt. Þetta er
gömul list og gengur í hringi,“ segir
Guðný.
Hún segir að það sé gaman að
finna eitthvað sem aðrir eru ekki
að nota og að hún taki vel eftir því
á Instagr am að það sé mikil keppni
meðal hnýtara um hver sé fyrstur
með uppskriftirnar eða að nota
þau efni sem eru til. Guðný segir að
hún sjálf fylgi sjaldan uppskriftum
heldur fái hún innblástur.
„Ég hef fengið sérpantanir upp
á stór verk og það er það skemmti-
legasta sem ég geri. Það tekur oft
tíma að gera þau, enda verða þau
svolítið dýr. En auðvitað eru litlu
verkin dýrmæt og skemmtileg líka.
Mér finnst skemmtilegast að fá
að leika lausum hala. Ég nefni því
verkin ekki neinu nafni heldur gef
þeim númer,“ segir Guðný.
Flókin verk taka margar vikur
Á Instagram má sjá að verkin eru
nærri 70 talsins en að sögn Guðnýj-
ar eru þau í raun um 200 sem hún er
búin að annað hvort selja eða gefa.
Hún segir að það fari eftir fjölda
hnúta hversu lengi hún er með
verkið en það taki allt frá þremur
til fjórum klukkustundum upp í
nokkra daga.
„Fyrir f lóknari verk þarftu alveg
tvær til þrjár vikur,“ segir Guðný.
Hægt er að fylgja Guðnýju á Face-
book og Instagram, undir nafninu
Vogahnútar.
Lovísa
Arnardóttir
lovisaa@frettabladid.is
9 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð