Fréttablaðið - 09.01.2021, Qupperneq 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
SagaPro er alíslensk og rót-gróin vara, en hún var upp-runalega þróuð í Háskóla
Íslands af Sigmundi Guðbjarnar-
syni, fyrrverandi rektor, og kom
fyrst á markað árið 2005.
„Síðan þá hefur verið gerð ein
klínísk rannsókn á SagaPro og
þar kom í ljós að sá hópur innan
rannsóknarinnar sem var með
ofvirka blöðru hafði mikil not
fyrir SagaPro og næturþvaglátum
fækkaði,“ segir Lilja Kjalarsdóttir,
framkvæmdastjóri SagaNatura,
framleiðanda SagaPro, en hún er
með doktorsgráðu í líf læknisfræði
(e. biomedicine). „Áður var talið að
varan virkaði aðallega fyrir karla
og blöðruhálskirtil, en þessar
niðurstöður kollvörpuðu hug-
myndum okkar.
Þar sem við töldum vöruna
bara virka fyrir karla voru allir
þátttakendur í rannsókninni karl-
menn en það hefur komið í ljós að
þetta hefur sömu áhrif á ofvirka
blöðru hjá konum og í dag eru 50%
notenda konur,“ segir Lilja. „Það er
frábært að geta boðið upp á þessa
vöru því það er svo margt fólk sem
glímir við það vandamál að þurfa
að vakna oft á nóttunni til að pissa.
Það er ekki mikið rætt um þetta
vandamál, en talið er að tíu pró-
sent af mannkyni þjáist af tíðum
þvaglátum í einhverju formi og
þetta hefur áhrif á alla aldurshópa,
þó að tíðnin aukist með aldrinum.
Þetta getur haft mikil áhrif á svefn
og lífsgæði og til dæmis hindrað
fólk í útivist og öðru, þar sem er
ekki greiður aðgangur að klósetti.
Um þessar mundir erum við
að gera aðra klíníska rannsókn í
Madríd, þar sem við einblínum
á ofvirka blöðru hjá körlum og
konum, alls 200 manns,“ segir
Lilja. „Því miður hefur rannsóknin
tafist vegna COVID-19 en við von-
umst eftir niðurstöðu í vor og það
verður rosalega spennandi að upp-
lýsa um lokaniðurstöðurnar þegar
þar að kemur.“
Vistvæn og þægileg áskrift
„SagaPro er er stærsta varan í
KeyNatura-vörulínunni og fæst í
öllum apótekum og mörgum mat-
vælaverslunum, en á síðasta ári
höfum við einnig byggt upp öfluga
áskriftarleið,“ segir Lilja. „Fólk
getur einfaldlega fengið áfyllingar-
poka inn um lúguna sína til að
fylla á dósirnar sínar. Þá þarf fólk
ekki að hugsa um þetta eða muna
eftir þessu og þetta er vistvænna
en að kaupa alltaf nýjar dósir.
Þetta hefur gengið gífurlega vel
og viðskiptavinir eru allir mjög
ánægðir með þessa þjónustu.
Áskriftin er í boði fyrir alla sem
eru með kreditkort og áskrifendur
fá ekki bara fría heimsendingu
inn um lúguna, heldur líka 15%
afslátt,“ segir Lilja. „SagaPro er
undir KeyNatura vörumerkinu
en var áður undir SagaMedica
vörumerkinu. SagaPro hefur sér-
stætt útlit, en það er í áldósum. Við
höfum lagt mikið upp úr fallegri
hönnun á dósunum okkar, svo að
fólk sé ekki að fela þær inni í fæðu-
bótarefnaskápnum með hinum
plastdósunum, því þá gleymist
þetta. Ég er með mínar dósir við
kaffivélina og tek þetta alltaf á
morgnana og með því að fá þetta
sent heim er hægt að vera vist-
vænni og það verður auðveldara
að muna að taka alltaf skammtinn
sinn.“
Slakar á blöðruvöðvunum
„SagaPro er búið til úr íslenskri
ætihvönn sem er handtínd úti í
Hrísey og við fáum svo þurrkuðu
blöðin send til okkar hingað í
Hafnarfjörð þar sem við búum til
extrakt sem er svo þurrkað og úr
verður SagaPro innihaldsefnið,“
segir Lilja. „Í aðdraganda nýju,
klínísku rannsóknarinnar höfum
við gert rannsóknir á extraktinu
og greint öll lífvirku efnin og
prófað þau á þvagblöðrumódeli.
Þannig höfum við fundið
nokkur efni sem sýna áhrif á að
slaka á blöðruvöðvunum, en við
það verður meira rúm fyrir þvag
í blöðrunni. Fólk sem er með
ofvirka blöðru er ekki með neitt
minni blöðru en aðrir, hún er bara
viðkvæmari og fólki líður eins og
því sé mál þó að blaðran sé ekki
full. Þannig að SagaPro minnkar
ekki magnið sem fólk pissar,
heldur geta þau gert það sjaldnar
og þá meira í einu. Fólk spyr okkur
oft „hvert fer pissið eiginlega?“,“
segir Lilja kímin.
„Eitt af þeim efnum sem við
fundum er mjög óalgengt og
bara í fáeinum plöntum og því
hafði okkur yfirsést það í mörg
ár,“ útskýrir Lilja. „En það hefur
slakandi áhrif á blöðruvöðvana
og nú erum við búin að sækja
um einkaleyfi á að nota það fyrir
ofvirka blöðru. Það styrkir okkar
stöðu og sérstöðu fyrir útrás á
SagaPro, en við stefnum á stór-
felldan útflutning á ætihvönn í
formi fæðubótarefnis fyrir ofvirka
blöðru.“
Auðvelt er að skrá sig í SagaPro
áskrift á https://www.keynatura.
com/askrift-2/ eða með því að
hringja í síma 562 8872.
SagaPro er
stærsta varan
í KeyNatura
vörulínunni
og fæst í öllum
apótekum og
mörgum mat-
vælaverslunum,
en á síðasta ári
hefur einnig
verið byggð upp
öflug áskriftar-
leið. Nú geta
viðskiptavinir
fengið áfyll-
ingar sendar
inn um lúguna
mánaðarlega
með afslætti.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGURARI
SagaPro er alíslensk vara og búin til
úr íslenskri ætihvönn sem er hand-
tínd úti í Hrísey. MYND/AÐSEND
Svona gengur áskriftarkerfið fyrir sig. Í fyrstu sendingu fá viðskiptavinir
dós með 60 töflum og í framhaldi af því koma áfyllingar. MYND/AÐSEND
Framhald af forsíðu ➛
Talið er að tíu
prósent af mann-
kyni þjáist af tíðum
þvaglátum í einhverju
formi.
Lilja Kjalarsdóttir
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . JA N ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R