Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.01.2021, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 09.01.2021, Qupperneq 32
Sérfræðingur í alþjóða- og nýsköpunarteymi H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Rannís óskar eftir sérfræðingi í fullt starf. Starfið felur í sér aðstoð og ráðgjöf við íslensk fyrirtæki og stofnanir sem nýta sér þjónustu Enterprise Europe Network eða sækja um í Tækniþróunarsjóð og Skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna. Menntunar- og hæfniskröfur: l Háskólapróf sem nýtist í starfi l Þekking á íslensku rannsókna- og nýsköpunarumhverfi nauðsynleg. Reynsla af nýsköpun er kostur l Þekking á hugverkarétti og hagnýtingu rannsókna er æskileg l Mjög góð hæfni í greiningu og lausn vandamála l Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku bæði tal- og ritmáli l Kunnátta í Norðurlandamáli er kostur l Mjög góð færni í töflureikni er skilyrði ásamt færni í helstu Office forritum eða sambærilegu l Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni áskilin l Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu Nánari upplýsingar um starfið veitir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs, í síma 515 5830 eða netfanginu agust.h.ingthorsson@rannis.is. Umsóknarfrestur er til kl. 12:00, miðvikudaginn 20. janúar 2021. Sækja skal um á vefsíðu Rannís á www.rannis.is/starfsemi/laus-storf/. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um starfið. Rannís er líflegur vinnustaður með rúmlega 50 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknar- færum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu. Borgartúni 30, 105 Reykjavík, sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Frístundaheimilið Skjólið • Uppeldismenntaður starfsmaður óskast í 70-100% starf. Nánari upplýsingar um störfin og skil umsókna má finna á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar www.seltjarnarnes.is – Störf í boði Umsóknarfrestur er til 21. janúar 2021. Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga. Seltjarnarnesbær Laus störf seltjarnarnes.is Erum við að leita að þér? Steypustöðin hóf starfsemi árið 1947 og var frumkvöðull í Evrópu í því að framleiða steypu úr steypubifreiðum og varðaði þannig brautina í mannvirkjagerð á Íslandi. Í dag starfa tæplega 300 manns hjá félaginu, þar af 130 í Borgarnesi. Þjónustugeta félagsins spannar yfir stórt landssvæði og félagið getur þjónað stórum hluta landsmanna í steypu, hellum, múrvörum, einingum og öllu sem viðkemur burðarvirkjum í mannvirkjagerð. Verksmiðjan í Borgarnesi er í rúmlega 12.000 fermetrum og er öflugasta einingaverksmiðja landsins í forsteyptum einingum og rörum. Fyrirtækið er byggt á sterkum fjárhagslegum grunni og leggur mikla áherslu á nýsköpun. Stöðugt er unnið að vöruþróun og innleiðingu nýjunga í framleiðslu. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Framkvæmdastjóri - Steypustöðin í Borgarnesi Steypustöðin auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra einingaverksmiðju Steypustöðvarinnar í Borgarnesi. Starfið heyrir beint undir forstjóra fyrirtækisins og er viðkomandi hluti af framkvæmdastjórateymi Steypustöðvarinnar. Leitað er að framsæknum stjórnanda með reynslu af rekstri og stjórnun. Lögð er áhersla á að viðkomandi búi yfir umbótahugsun og hafi skilning á mikilvægi bestunar á framleiðsluferli og hámarksnýtingu þeirra tækifæra sem eru framundan í rekstri. Ábyrgðarsvið • Daglegur rekstur og stjórnun starfsstöðvar. • Mannauðsstjórnun. • Bestun framleiðsluferla. • Samskipti við viðskiptavini. • Tryggja að ferli frá pöntun til afhendingar sé skilvirkt. • Innleiðing breytinga og nýrra tæknilausna. • Greiningar og eftirfylgni lykilmælikvarða. • Ábyrgð og eftirfylgni á umhverfis-, gæða- og öryggismálum. Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Farsæl og árangursrík reynsla af stjórnun og rekstri. • Leiðtogahæfni og geta til að byggja upp sterka liðsheild. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. • Reynsla af verkefnastýringu og ferlavinnu. • Þekking og reynsla úr byggingariðnaði og skilningur á þróun tæknilausna er kostur. • Góð greiningarhæfni. • Framsýni, frumkvæði og metnaður til að ná árangri. Umsóknarfrestur er til og með 19. janúar nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is. Við hvetjum áhugasama einstaklinga af báðum kynjum til að sækja um. Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.