Fréttablaðið - 09.01.2021, Síða 40
EMBASSY CHAUFFEUR
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu einkabílstjóra lausa
til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 17. janúar 2021. Frekari
upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins: https://
is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Umsóknir skulu sendar í gegnum Electronic Recruitment
Application (ERA)
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual
for the position of Chauffeur. The closing date for this
postion is January 17, 2021. Application instructions and
further information can be found on the Embassy’s home
page:https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Applications must be submitted through Electronic Recruit-
ment Application (ERA)
Sunnulækjarskóli
Vegna forfalla leitar Sunnulækjar-
skóli eftir kennara í tímabundna
ráðningu til vors.
Í skólanum eru um 735 nemendur og þar er lögð áhersla
á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklings-
miðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða
samvinnu allra sem að skólastarfinu koma. Laun og starfs-
kjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitar-
félaga og Kennarasambands Íslands. Starfið hentar jafnt
konum sem körlum.
Leitað er að umsækjendum með kennsluréttindi og sér-
hæfingu á grunnskólastigi, góða íslenskukunnáttu, áhuga
og reynslu af teymiskennslu og góða samskiptahæfni.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu skólans:
http://www.sunnulaekjarskoli.is og hjá skólastjóra
í síma 480-5400.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2021.
Sækja þarf um stöðurnar á vef Sveitarfélagsins Árborgar,
http://starf.arborg.is.
Skólastjóri
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Sjálandsskóli
• Stuðningsfulltrúi
Urriðaholtsskóli - leikskólastig
• Deildarstjóri
• Leikskólakennari
Leikskólinn Sunnuhvoll
• Leikskólakennari
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar 2021.
Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt
rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Pétur J. Lockton fjármálastjóri í síma 525 6700. Um
framtíðarstöðu er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga
og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
Aðalbókari óskast í fjármáladeild Mosfellsbæjar
VIÐ LEITUM AÐ DRÍFANDI OG METNAÐARFULLUM EINSTAKLINGI Í STARF AÐALBÓKARA
Fjármáladeild Mosfellsbæjar er stoðdeild sem sér um umsýslu fjármála bæjarins. Deildin sinnir bókhaldi, greiðslu
reikninga, innheimtu og álagningu gjalda. Fjármáladeild hefur með höndum verkstjórn við fjárhagsáætlanagerð,
árshlutauppgjör og gerð ársreiknings. Í deildinni starfa fjármálastjóri, verkefnastjóri, innheimtufulltrúi,
aðalbókari og bókari. Aðalbókari ber ábyrgð á bókhaldi Mosfellsbæjar, stýrir bókhaldsvinnu sveitarfélagsins og
gerð uppgjörs. Fjárhagskerfi fjármáladeildar er Microsoft Dynamics 365 Business Central (NAV).
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru
leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Viðskiptafræðimenntun af fjármála- eða
endurskoðunarsviði og/eða meistarapróf í
reikningsskilum er skilyrði
• Þekking á lögum og reglum um bókhald og
reikningsskil sveitarfélaga ásamt lögum um
virðisaukaskatt og reglum um undanþágur
fyrir sveitarfélög
• Þekking og reynsla á færslu, skipulagningu og
uppgjöri bókhalds er skilyrði
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Gerð verkferla og samþætting Dynamics BC
(NAV) við önnur kerfi
• Samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og
lausnamiðuð hugsun
• Nákvæmni í vinnubrögðum og talnagleggni
• Frumkvæði sjálfstæði og skipulagshæfni
• Mjög góð tölvukunnátta og færni í Excel
• Mjög góð þekking og reynsla af Dynamics BC
(NAV) er kostur
• Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
GILDI VISTOR ERU ÁREIÐANLEIKI, HREINSKIPTNI OG FRAMSÆKNI
Viðskiptastjóri
Vistor leitar að metnaðarfullum liðsmanni í sterka heild til að sinna krefjandi starfi
viðskiptastjóra í einum af lyfjaklösum fyrirtækisins.
Vistor hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar á lyfjum, heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum á Íslandi.
Fyrirtækið er samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og veitir þeim þjónustu við skráningar, sölu- og
markaðsmál, klínískar rannsóknir, auk þess að hafa milligöngu um innflutnings- og dreifingarstarfsemi.
Vistor er hluti af fyrirtækjasamstæðu Veritas ásamt Artasan, Distica, MEDOR og Stoð.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 17. JANÚAR 2021
Tekið er við umsóknum í gegnum heimasíðu Vistor, www.vistor.is.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram koma ástæður þess að sótt er
um starfið og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar veita Dagmar Ýr Sigurjónsdóttir, markaðsstjóri, dagmar@vistor.is og
Pétur Veigar Pétursson, starfsmannastjóri, petur@veritas.is.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun af heilbrigðissviði
• Reynsla af sölu- og markaðsmálum
æskileg
• Framhaldsmenntun á sviði viðskipta,
hagfræði eða lýðheilsufræða er kostur
• Mjög góð hæfni í samskiptum og
framsögutækni
• Sjálfstæð vinnubrögð en jafnframt
framúrskarandi hæfni í teymisvinnu
• Mjög góð enskukunnátta nauðsynleg og
kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg
• Góð almenn tölvukunnátta
Helstu verkefni
• Sala- og markaðssetning lyfja
• Greina og miðla upplýsingum um klínískar
rannsóknir í tengslum við þróun og verkun
lyfja á breiðu meðferðarsviði
• Fylgja ströngum gæðakröfum í allri
starfsemi
• Skipulagning á fræðslufundum innanlands
og erlendis fyrir heilbrigðisstéttir
• Áætlunargerð og eftirfylgni
• Samstarf við erlenda birgja
• Þátttaka í þjálfun og ráðstefnum erlendis