Fréttablaðið - 09.01.2021, Blaðsíða 84

Fréttablaðið - 09.01.2021, Blaðsíða 84
Lífið í vikunni 03.01.21- 09.01.21 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@ frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is HRINGEKJA NEYSLUHYGGJUNNAR Hjónin Davíð Örn og Jana Maren misstu bæði vinnuna í fyrstu bylgju COVID, ákváðu í kjöl- farið að gera eitthvað skemmtilegt saman og hafa nú opnað loppubúðina Hring- ekjuna í Þórunnar- túni. Þar getur fólk selt notaðar vörur og þannig gefið þeim framhaldslíf. BLESSAÐ BARNALÁN Þáttaröðin Líf dafnar hóf göngu sína á Stöð 2 en þar leitar Andrea Eyland svara við þeirri eilífu spurningu af hverju við eignumst börn. Segja má að líf og starf Andreu hverfist um barnsfæðingar og barnafjölskyldur en þættirnir eru óbeint framhald þáttanna Líf kviknar sem hún aftur byggði á bók sinni Kviknar. SVÖRT OG GUL BELTI Alþingismaðurinn Karl Gauti Hjaltason stofnaði Karatefélagið Þórshamar og varð síðar formaður Karatesambands Íslands. Hann hætti á toppnum með svarta beltið og sneri sér að skákinni en segist aðeins vera með gult belti þar. Hann telur Netflix- þættina Cobra Kai geta aukið áhuga á karate eins og Queen’s Gambit hefur gert í skákinni. JAPANSKUR BRÚÐUGEIMUR Agnes Wild leikstýrir sýningunni Geim-mér-ei sem verður frum- sýnd í Þjóðleikhúsinu í næstu viku. Stór hluti sýningarinnar er í hinum japanska Bunraku-stíl auk þess sem hún byggir fyrst og fremst á fal- legum tónverkum en ekki orðum. Jú, jú. Maður hefur alltaf í raun og veru verið maður-inn á bak við tjöldin,“ segir píanóleikarinn og upptöku-stjórinn Þórir Úlfarsson sem sendi frá sér sína fyrstu plötu á gamlársdag, þrátt fyrir að hafa verið á fullu og komið víða við í íslensku tónlistarlífi síð- ustu 30 ár eða svo. Platan heitir Cold Fusion og er á Spotify þar sem hann kallar sig Thor Wolf en er einnig væntanleg í 20. aldar umbúðum. „Þetta verður vínyll og geislaplata sem fylgir með fyrir þá sem eiga ekki plötuspilara en eru kannski með geislaspilara,“ segir Þórir sem heldur í hefðirnar. Hægeldaður bræðingur „Þetta er fyrsta sólóverkefnið mitt,“ heldur Þórir áfram og stað- festir aðspurður að platan hafi verið nokkuð lengi í vinnslu. „Ég samdi náttúrlega mikið af þessum lögum bara svona á unglingsárunum og þegar ég var um tvítugt. Síðan lá þetta bara í skúffunni í einhver ár og svo byrjaði ég að vinna í þessu 2013 og ákvað að kýla á þetta.“ Eins og nafn plötunnar bendir til er um að ræða bræðing sem Þórir lýsir sem einhvers konar blöndu af popptónlist og djass. „Þetta er popp- músík með smá djasshljómum.“ Bræðingurinn var ekki soðinn þótt í pottinn væri kominn enda allnokkur ár síðan Þórir byrjaði að vinna í plötunni. „Síðan þurfti ég nú að taka mér hlé inni á milli vegna annara starfa. Ég er náttúrlega alltaf að taka upp eitthvað fyrir aðra og það fer svo- lítil orka í það og maður er kannski ekki alveg til í að fara að vinna í sínu þegar maður á loksins frí. En með því að einbeita mér bara að þessu náði ég að klára þetta núna.“ Hógvær snillingur „Hann hefur starfað sem upptöku- stjóri, hljómsveitarstjóri, píanó- leikari og lagahöfundur með öllum okkar helstu tónlistarmönnum síðustu 30 ár og eins og með marga aðra hógværa snillinga hefur hann kunnað best við sig bak við lista- mennina,“ segir Ólafur Kristjáns- son, skólastjóri í Tónsölum í Kópa- vogi og vinur Þóris. „Sem dæmi um einstakan feril Þóris var hann byrjaður að spila með Mannakornum sextán ára gamall,“ heldur Ólafur áfram og telur upp nokkur þekkt nöfn auk þeirra Mannakornsmanna Magn- úsar Eiríkssonar og Pálma Gunn- arssonar. „Svo nokkrir séu nefndir skal telja Stefán Hilmarsson, Björgvin Hall- dórsson, Gunnar Þórðarson, Pál Rósinkrans, Bjarna Arason ásamt fjölda annarra sem allt of langt væri að telja upp hér. Þannig að ég fullyrði að það eru fáir tónlistarmenn hér á landi sem eiga jafn víðtækan tónlistarferil og Þórir. Því er eftirtektarvert að fyrst núna gefur listamaðurinn út sitt eigið efni og tími til kominn, segja margir.“ Topp gæjar Í ljósi langrar sögu Þóris kemur vart á óvart að fjöldi reyndra tón- listarmanna leggur honum lið á plötunni. „Maður er náttúrlega búinn að mynda mikil sambönd í gegnum tíðina og ég var með góða hugmynd um hverjir myndu passa í þetta,“ segir Þórir og bætir við að fyrst hann hafi loks drifið í þessu hafi verið ástæðulaust annað en að hóa í öflugan mannskap. „Þetta eru allt saman topp gæjar þarna. Ég er með fjóra trommara; Gulla Briem, Jóhann Hjörleifsson, Magga Magg og Einar Val Scheving. Síðan eru fimm blástursgaurar, meðal annars Philip Doyle á saxó- fón,“ segir Þórir þegar hann telur upp nokkra úr einvala liði sínu. Þórir hefur fengið góð viðbrögð við plötunni og fyrst hann er kom- inn af stað ætlar hann sér ekki að taka jafn langan tíma í þá næstu. „Það er ýmislegt sem mig langar til að gera og þótt það sé ekkert víst þá finnst mér líklegt að ég geri aðra fusion-plötu. Ég geri allavegana eina í viðbót og sé svona til hvað þetta færir manni. Það er aldrei að vita nema þetta færi manni Asíutúr ein- hvern tímann.“ toti@frettabladid.is Poppaður bræðingur Þórir Úlfarsson steig á gamlárskvöld fram sem Thor Wolf með djassaðan poppbræðing á sinni fyrstu sólóplötu á löngum ferli. Þórir Úlfarsson hefur útsett ótal plötur en gefur loks út sitt eigið efni á plötunni Cold Fusion. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Tónlistin er blanda úr ýmsum áttum og Þórir nefnir Mezzoforte, Yellow- jackets og Steely Dan til dæmis. Boston 180 x 200 cm heilsurúm – Fullt verð: 299.900 kr. Aðeins 199.900 kr. Dýna, botn, fætur og gafl 100.000 krónur ÚTSÖLU AFSLÁTTUR DALBY hægindastóll með skemli Nettur og fallegur hægindastóll úr svortu PU-leðri ásamt skammeli á frábæru verði. Fáanlegur bæði með krómuðum fæti eða svörtum. Stærð: 125 x 72 H: 108 cm. Fullt verð: 59.900 kr. Aðeins 29.950 kr. 50% AFSLÁTTUR ÚTSALA Janúar útsala ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN Ótrúleg útsala í fjórum búðum og á dorma.is Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði BOSTON heilsurúm Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði 9 . J A N Ú A R 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R48 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.