Skessuhorn - 22.01.2020, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 22. jANúAR 20208
Eftirlit með
ökuhraða
VESTURLAND: Lögreglan
á Vesturlandi var við eftirlit á
hraðamyndavélabíl embættis-
ins á Vesturlandsvegi skammt
frá Fiskilæk milli kl. 9 og 10 á
miðvikudagsmorgun. Alls fóru
160 bílar um svæðið og sá sem
hraðast ók var á 104 km/klst.,
en hámarkshraði er 90 km/klst.
Daginn eftir var myndavéla-
bíllinn á Garðagrund á Akra-
nesi milli kl. 13:00 og 14:00.
103 ökutæki fóru um svæðið
þessa klukkustund og enginn
var kærður fyrir of hraðan akst-
ur. Meðalhraði ökutækja var
38 km/klst., en leyfilegur há-
markshraði er 50 km/klst. -kgk
Útrunnin
erlend númer
BORGARBYGGÐ: Lögregla
hafði afskipti af ökumanni mik-
ið breyttrar jeppabifreiðar við
almennt vegaeftirlit miðviku-
daginn 15. janúar síðastlið-
inn. Bíllinn var á bráðabirgða-
númerum frá Þýskalandi sem
runnu út daginn áður, 14. janú-
ar. Númerið voru því klippt af
bílnum og honum fylgt á skoð-
unarstöð Frumherja í Borgar-
nesi, þar sem númerin voru
lögð inn. -kgk
Ekki innbrot
AKRANES: Tilkynnt var um
hugsanlega yfirstandandi inn-
brot í húsi við Esjubraut á
Akranesi síðastliðinn miðviku-
dag. Tilkynnandi hafði orðið
var við mannaferðir við hús-
ið sem honum þóttu óeðli-
legar. Lögregla fór á staðinn
og kannaði málið. Kom þá í
ljós að ekki var um innbrot að
ræða, heldur var þar á ferðinni
maður sem leigir íbúð í bílskúr
hússins. -kgk
Ekið á hund
AKRANES: Ekið var á hund á
Akranesi föstudaginn 17. janú-
ar, með þeim afleiðingum að
hann drapst. Hundurinn fannst
dauður við gamla Landsbanka-
húsið við Akratorg. Ekki er
vitað hver ók á dýrið því eng-
in vitni voru að atvikinu og sá
sem ók á hundinn lét ekki vita
sjálfur heldur stakk af frá vett-
vangi. -kgk
Undir áhrifum
BORGARBYGGÐ: Lög-
regla stöðvaði ökumann á
Vesturlandsvegi, skammt frá
Baulu, seint á föstudagskvöld.
Var hann grunaður um akst-
ur undir áhrifum. Kannabis-
lykt fannst úr bílnum og öku-
maðurinn viðurkenndi neyslu.
Hann var handtekinn og færð-
ur á lögreglustöð þar sem hon-
um var gert að gefa blóðsýni.
Annar ökumaður var stöðvaður
stuttu síðar, eða um kl. 1:00 að-
fararnótt laugardags, á Borgar-
braut í Borgarnesi. Reyndist
hann ekki vera með gild öku-
réttindi og er grunaður um
akstur undir áhrifum ólöglegra
ávana- og fíkniefna. Strokpróf
sem framkvæmt var á vettvangi
gaf jákvæða svörun við neyslu
amfetamíns. Var ökumaðurinn
sömuleiðis handtekinn og gert
að gefa sýni. -kgk
Of hratt og í sím-
anum
BORGARNES: Ökumaður var
stöðvaður fyrir of hraðan akst-
ur á Vesturlandsvegi til móts við
Kvíaholt í Borgarnesi að kvöldi
föstudags. Var hann kærður fyrir
að aka á 68 km/klst., en leyfileg-
ur hámarkshraði er 50 km/klst.
Hlaut hann hraðasekt upp á 30
þús. krónur. Ekki nóg með það,
heldur var viðkomandi einnig í
símanum undir stýri og var sekt-
aður um 40 þús. krónur fyrir það
brot. Samtals mátti ökumaðurinn
því reiða fram 70 þúsund krónur
í sektir. -kgk
Ölvaður með barn
í bílnum
HVALFJSV: Lögregla hafði eft-
irlit með ástandi og réttindum
ökumanna við Hvalfjarðargöng
að morgni laugardags, frá því
um áttaleytið og til hálf tíu, eða
þar um bil. Einn ökumaður var
handtekinn, grunaður um ölv-
un við akstur. Reyndist hann enn
fremur vera með barn í bílnum,
sem var ekið heim og var barna-
vernd gert viðvart. Daginn eftir
var lögregla með eftirlit frá 10:00
til 12:00 á sama stað. Fram kem-
ur í dagbók lögreglu að allir öku-
menn hafi verið allsgáðir, fyrir
utan einn sem svaraði við blástur-
sprófi en mjög langt undir mörk-
um. Var honum ráðlagt að hætta
akstri, sem hann og gerði. -kgk
Grunsamlegar
ferðir
SKORRAD: Tilkynnt var um
grunsamlegar mannaferðir í
sumarhúsahverfi í Skorradal eftir
hádegi á laugardag. Sást til stórs
gamals sendibíls á akstri fram og
til baka. Hins vegar sáust hvorki
skóför né hjólför við neina sum-
arbústaði, að minnsta kosti svo
vitað sé og bifreiðin fannst ekki.
-kgk
Fullur á leið
í ríkið
AKRANES: Lögregla var við
eftirlit við verslun Vínbúðarinnar
við Kalmansvelli á Akranesi síð-
astliðinn laugardag, frá kl. 11:00
og fram yfir hádegi. Einn öku-
maður var handtekinn, grunaður
að hafa ekið ölvaður í Vínbúðina.
Þá var annar ökumaður stöðv-
aður fyrir að tala í símann undir
stýri. -kgk
Gat ekki sýnt fram
á réttindi
AKRANES: Lögregla sekt-
aði ökuman sem stöðvaður var á
Akranesi á laugardagskvöld um
40 þúsund krónur, þar sem hann
gat ekki sýnt fram á að hafa gild
ökuréttindi. Maðurinn, sem er
erlendur ríkisborgari búsettur á
Íslandi, kvaðst hafa gild ökurétt-
indi frá heimalandinu. Hann gat
hins vegar ekki sýnt fram á það
og var því sektaður. -kgk
Fjúkandi
trampólín
SNÆFELLSBÆR: Tilkynnt var
um fjúkandi trampólín við Ólafs-
braut í Ólafsvík seint á laugar-
dagskvöld. Björgunarsveitar-
menn úr Björgunarsveitinni Lífs-
björgu fóru á staðinn og bundu
trampólínið niður. -kgk
Héraðsdómur Vest-
urlands kvað í síðustu
viku upp dóm í máli
sem héraðssaksóknari
höfðaði gegn Eng-
ilbert Runólfssyni á
Akranesi fyrir; „meiri
háttar brot gegn
skattalögum og bók-
haldslögum í sjálf-
stæðri atvinnustarfs-
semi og fyrir pen-
ingaþvætti,“ eins og
segir í málsgögnum. Ákært er fyrir
að hafa staðið skil á efnislega rangri
virðisaukaskattsskýrslu vegna sjálf-
stæðrar atvinnustarfssemi í lok árs
2017 og fyrir að hafa ekki staðið
skil á virðisaukaskattsskýrslu fyr-
ir uppgjörstímabilið mars – apríl
rekstrarárið 2017 á lögboðnum ein-
daga. Einnig fyrir að hafa ekki stað-
ið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti
sem innheimtur var, eða innheimta
bar, í starfseminni uppgjörstímabil-
in mars –apríl og nóvember –des-
ember rekstrarárið 2017 og janúar
– febrúar rekstrarárið 2018, sam-
tals að fjárhæð tæpar 24 milljón-
ir króna. Einnig var hann ásakaður
um að hafa látið undir höfuð leggj-
ast að færa lögboðið bókhald vegna
sjálfstæðrar atvinnustarfssemi sinn-
ar í samræmi við lög, á tímabilinu
frá janúar 2017 til og með mars
2018. Sömuleiðis var hann ásak-
aður um að hafa nýtt ávinning af
meintum brotum í þágu atvinnu-
rekstrarins og eftir atvikum í eig-
in þágu.
Dómarinn í mál-
inu gerði Engilbert
að greiða 58,8 millj-
ónir króna í sekt til
ríkissjóðs innan fjög-
urra vikna frá birtingu
dómsins, ella sæta
fangelsi í 12 mánuði.
Við ákvörðun refsing-
ar mat dómari ákærða
til málsbóta að hann
játaði brot sín fyr-
ir dómi og þótti því
dómara að því virtu hæfileg refs-
ing 10 mánaða fangelsi. Fresta skal
fullnustu refsingarinnar, og hún
fellur niður, að liðnum þremur
árum frá uppkvaðningu dómsins að
telja haldi ákærði almennt skilorð
skv. 57. gr. almennra hegningarlaga
nr. 19/1940. Ákærða var jafnframt
gert að greiða sakarkostnað, þókn-
un og ferðakostnað verjanda síns á
rannsóknarstigi og fyrir dómi, að
meðtöldum virðisaukaskatti, svo
sem í dómsorði greinir. mm
Lögreglunni á Vesturlandi hafa bor-
ist nokkrar tilkynningar um grun-
samlegar mannaferðir í umdæm-
inu í janúarmánuði. Í einu tilviki
var um innbrot og skemmdarverk
að ræða. „Þetta var í Borgarnesi og
á Akranesi en rétt að allir sem einn
hafi vara á sér og muni að læsa dyr-
um, loka gluggum og muna einnig
eftir að læsa geymslum og bílskúr-
um,“ segir í tilkynningu Lögregl-
unnar á Vesturlandi.
Í síðustu viku bárust tilkynnin-
gar um grunsamlegar mannaferðir
frá íbúum við Bárugötu á Akrane-
si og Borgarvík í Borgarnesi, eins
og greint var frá í Skessuhorni á
miðvikudag. „Í þessari viku hafa
okkur borist tilkynningar um gr-
unsamlegar mannaferðir að nætur-
lagi á Akranesi,“ segir í tilkynningu
lögreglunnar. „Tekið var í hurðar-
hún á húsi við Höfðagrund og eins
við Grenigrund. Í öðru tilvikinu
var um tvo menn að ræða að sögn
tilkynnanda, annar sagður hafa ver-
ið hávaxinn í svartri hettupeysu en
hinn þybbinn í grárri hettupeysu.
Tilkynnandi sagði þá hafa verið að
taka í hurðarhún útidyrar og þegar
hann leit út um gluggann sá hann þá
við bílskúr hússins,“ segir lögregla
og bætir því við að svo virðist sem
þessir menn fari um stíga og garða
og athugi hvort hús séu opin eða
ólæst. „Sérstaklega þarf að passa
upp á innganga baka til svo sem frá
görðum og einnig passa glugga sem
mögulegt væri að komast inn um ef
þeir eru ekki vel lokaðir.“
Leit lögreglu að þessum mön-
num bar engan árangur og vill hún
því hvetja íbúa til að gera nauðsyn-
legar varúðarráðstafanir.
kgk
Mikið hefur verið að gera í snjó-
mokstri í Snæfellsbæ að undan-
förnu. Á það jafnt við innan þétt-
býlisstaða sem og í dreifbýli. Hafa
mokstursaðilar því haft mikið að
gera. Ljósmyndari Skessuhorns átti
leið upp á Fróðárheiði síðastlið-
inn fimmtudag en þá var farið í að
opna heiðina fyrir umferð, en hún
hafði þá verið lokuð dagana á und-
an vegna veðurs og ófærðar. Beitt
var öflugum snjóblásara frá Vega-
gerðinni.
þa
Opnað fyrir umferð yfir Fróðárheiði
Grunsamlegar mannaferðir
í landshlutanum
Dæmdur fyrir brot á skattalögum
og bókhaldslögum