Skessuhorn - 22.01.2020, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 22. jANúAR 2020 15
Mannamót landshlutanna
með í þrjú ár. Ég hef það mottó að
það kostar ekkert að koma og það
hefur heldur enginn neinu að tapa,“
segir Liston léttur í bragði. „Ég legg
mikið upp úr persónulegu viðmóti
og tek jafnt á móti hópum sem ein-
staklingum. Svo bara sinni ég þeim
eins og þeir vilja. Sumir vilja spjalla,
aðrir vilja bara skoða og líta á þetta
sem safn og enn aðrir vilja bara fá
að fylgjast með mér vinna,“ segir
hann. „Svo kemur orðið ansi mik-
ið af ljósmyndurum til að glíma við
mig sem karakter. Það hefur ver-
ið að spyrjast svolítið út, þannig að
ég er að verða fyrirsæta líka,“ segir
hann og brosir. „Þeim finnst rosa-
lega gaman að taka myndir af mér
og ég er alltaf til í að gera það sem
þeir biðja um, stilla mér upp, skipta
um föt og hvaðeina. Við vitum það
bara að ein ljósmynd, ef hún ratar
eitthvert, þá getur hún haft mik-
ið að segja,“ segir listamaðurinn
og bætir því við að það hafi komið
mjög vel út að opna vinnustofuna.
Hann var með vinnustofu á Eyrar-
bakka, þar sem er mikið af ferða-
mönnum, og er með útivinnustofu
austur í Flóa, skammt frá þjóðveg-
inum þar sem ferðamenn stoppa
iðulega hjá honum. „En ég hafði
aldrei haft neitt að selja þeim, fyrr
en ég kom í Grundarfjörðinn. Þá
var ég iðulega spurður hvort ég ætti
ekki minni muni og fór þá að vinna
í litla steina líka. Þetta kemur bara
mjög vel út saman,“ segir hann og
bætir því við að aðsóknin hafi ver-
ið afar góð. „Þetta er búið að vera
langt umfram það sem ég gerði ráð
fyrir. Það er lítið yfir þetta dimm-
asta tímabil en á sumrin er nánast
ráp út og inn allan daginn,“ segir
listamaðurinn.
Hann vinnur mest í stein og kann
því vel. „Ég vinn mest í grjót. Það
er það sem hefur selst mest hjá mér
og ég er mest beðinn um að vinna
í grjót. Þess vegna er það aðallinn,
en mér finnst líka skemmtilegast
að vinna í grjótið,“ segir hann, en
af hverju er það? „Mér finnst bara
gaman að vera skítugur,“ segir Li-
ston að endingu og hlær við.
„Einstök upplifun“
Giljaböðin í Húsafelli eru nýjung
í ferðaþjónustu á Vesturlandi. Þau
voru tekin í notkun í vetur, eins og
áður hefur verið sagt frá í Skessu-
horni. Olga Zoega hefur umsjón
með Giljaböðunum og annast leið-
sögn í þau. „Ég er búin að vera á
Hótel Húsafelli frá 2015 en er búin
að færa mig yfir í Giljaböðin,“ seg-
ir Olga í samtali við Skessuhorn
á Mannamóti. Hún segir ferða-
þjónustuna á Húsafelli hafa geng-
ið ágætlega upp á síðkastið. „Þetta
Hilmar Sigvaldason, vitavörður í Akranesvita, var ánægður með sitt fyrsta Mannamót.
Rögnvaldur Guðmundsson, ferðamálafræðingur og formaður Ólafsdalsfélagsins.
Listamaðurinn Liston kynnti opna vinnustofu sína í Grundarfirði. Hann hefur
einkum fengist við að vinna listaverk úr grjóti.
Ragnhildur Helga Jónsdóttir, safnstjóri Landbúnaðarsafnsins á Hvanneyri, og
Kristín Gunnarsdóttir í Ullarselinu.
Hörður Míó Ólafsson frá The Cave í Fljótstungu (t.v.) á tali við félaga sinn.
Fulltrúar Krauma á Mannamóti. Jónas Friðrik Hjartarson framkvæmdastjóri til vinstri og Narfi Jónsson.
Olga Zoega hefur umsjón með Giljaböðunum á Húsafelli og annast leiðsögn
þangað.
Framhald á næstu síðu