Skessuhorn


Skessuhorn - 22.01.2020, Síða 22

Skessuhorn - 22.01.2020, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 22. jANúAR 202022 Hryllingsmyndahátíðin Frostbi- ter verður haldin á Akranesi nú um mánaðamótin. Hátíðin hefst föstudaginn 31. janúar næstkom- andi og lýkur sunnudaginn 2. febrúar. Að hátíðinni standa sem fyrr hjónin Ársæll Rafn Erlings- son og Lovísa Lára Halldórs- dóttir á Akranesi. Verður þetta í fjórða sinn sem þau gangast við hátíðarhöldunum, en nú í fyrsta sinn á þessum tíma árs. Undanfar- in skipti hefur hátíðin farið fram í nóvember, en Ársæll segir að sú tímasetning hafi ekki hentað nægi- lega vel og því hafi þau ákveðið að færa hana að mánaðamótum janú- ar og febrúar. Hátíðin hefur vaxið jafnt og þétt milli ára og komandi hátíð verður sú stærsta hingað til. „Núna verða sýndar um 25 mynd- ir frá tólf löndum á hátíðinni, allt frá stuttmyndum sem eru tvær mínútur upp í hryllingsmyndir í fullri lengd,“ segir Ársæll í sam- tali við Skessuhorn. „Gaman er að segja frá því að frítt er á alla við- burði hátíðarinnar, en þó verðum við með varning til sölu á hátíð- inni, s.s. peysur og húfur og fleira slíkt til styrktar hátíðinni svo hún geti haldið áfram að vaxa og orð- ið stærri og betri,“ segir Ársæll, en hátíðin hefur einnig notið styrkts úr Uppbyggingarsjóði Vestur- lands. Heimsfrumsýnt á hátíðinni Von er á fjölmörgum erlendum gestum á hátíðina að þessu sinni, auk margra innlendra sem er- lendra leikstjóra sem fylgja sínum myndum. Sýnt verður í Tónbergi og í keilusal íþróttahússins við Vesturgötu. „Sérstök partísýning verður á myndinni Frostbiter frá árinu 1996 í keilusalnum. Kjöt- súpa verður til sölu og leikstjóri myndarinnar, Tom Chaney, mætir á svæðið og tekur þátt í gleðinni,“ segir Ársæll, en hátíðin heitir ein- mitt eftir þeirri kvikmynd. „Þetta er mynd sem festist vel í minninu hjá Lovísu, en ég verð að viður- kenna að ég hef aldrei séð hana. En ég er bara mjög spenntur að sjá hana loksins,“ segir hann létt- ur í bragði. „Tom kemur jafn- framt með nýjustu myndina sína á hátíðina. Hún heitir The Wind Walker og verður alheimsfrum- sýning á henni í Tónbergi,“ bætir hann við. „Auk þess má geta þess að önnur mynd í fullri lengd verð- ur frumsýnd á hátíðinni, en það er myndin Ísabella eftir Sigurð Ant- on Friðþjófsson,“ segir Ársæll. Afar góð viðbrögð Frostbiter lýkur á sunnudegi með verðlaunaafhendingu. Þar verða veittar viðurkenningar fyrir bestu íslensku stuttmyndina og bestu erlendu stuttmyndina, auk þess sem vinningsmyndirnar verða sýndar. Það er auðheyrt á Ársæli að hann er fullur eftirvænting- ar fyrir hátíðinni, sem hann segir afar ánægjulegt að standa fyrir ár hvert. „Þetta er eitt það skemmti- legasta sem maður gerir. Það er mikil vinna á bakvið þetta en alltaf þess virði þegar maður er búinn- að skila af sér og nær að leggja sig í smá stund eftir hátíðina,“ segir hann. „Viðbrögðin hafa líka ver- ið afar góð, fólk er virkilega ánægt með þetta framtak og það er það sem heldur manni gangandi,“ seg- ir Ársæll að endingu. Ítarleg dagskrá hryllingsmyn- dahátíðarinnar Frostbiter verð- ur birt á heimasíðu hátíðarinnar, www.frostbiter.is og á Facebook- síðu hátíðarinnar á næstu dögum. kgk/ Ljósm. aðsendar. Bræðurnir Styrmir Már og Elf- ar Már Ólafssynir hafa tekið yfir rekstur Bókhalds- og rekstrarþjón- ustu Ólafs Helgasonar í Borgarnesi. „Pabbi hafði rekið þessa bókhalds- stofu í fjölmörg ár áður en hann féll frá í nóvember á síðasta ári. Hann bað okkur bræður að koma inn í fyrirtækið í fyrra en það stóð alltaf til að við myndum taka við rekstr- inum á endanum. Í júlí eða ágúst í fyrra var pabbi orðinn of veikur til að sinna þessu og þá tókum við al- veg við öllu,“ segir Styrmir Már í samtali við Skessuhorn. Þeir bræður vildu ekki að rekst- ur Bókhalds- og rekstrarþjónustu Ólafs Helgasonar myndi hætta eftir öll þessi ár. „Pabbi var með marga góða viðskiptavini sem höfðu verið hjá honum í mörg ár og taldi hann þá sem vini sína. Við vildum endi- lega halda þessu gangandi áfram,“ segir Styrmir. Styrmir lauk BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskól- anum á Bifröst árið 2015 og sam- hliða því námi vann hann á bók- haldsstofu föður síns. Þá hefur hann lokið mastersnámi í mark- aðsfræðum og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands og á síðasta ári lauk hann prófi sem viðurkenndur bókari. Elfar er húsasmíðameist- ari að mennt og samhliða vinnu er hann í skóla að læra byggingafræði. Þeir bræður gera ráð fyrir að allir viðskiptavinir föðurs þeirra haldi áfram í viðskiptum hjá þeim nema þeir láti sérstaklega vita af öðru. „Svo erum við alltaf með dyrnar opnar fyrir nýjum viðskiptavinum sem leita til okkar,“ segir Styrmir. Hægt er að hafa samband við þá bræður í tölvupósti á bokrek@bok- rek.is eða í síma 437-1009. arg Bóndadagurinn er á föstudaginn en þá gengur þorrinn í garð. Framund- an eru fjölmörg þorrablót í lands- hlutanum þar sem fólk kemur sam- an, borðar góðan mat, skemmtir sér og öðrum og á góða stund í leik og dansi. Á Vesturlandi verða allmörg þorrablót haldin næstu vikurnar og því ekki úr vegi fyrri Vestlendinga að fara að skipuleggja næstu helg- ar. Sérstök athygli er vakin á því að meðfylgjandi upptalning er ekki tæmandi, einungis byggt á þeim upplýsingum sem blaðamaður fann í fljótu bragði á veraldarvefnum. Laugardaginn 25. janúar verða þorrablót haldin í Dalabúð í Búðar- dal, í Brún í Bæjarsveit, í íþróttahú- sinu á Reykhólum og þorrablót Ska- gamanna verður í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Föstudaginn 31. janúar verður árlegt þorrablót Mýraman- na og -kvenna haldið í félagsheimi- linu Lyngbrekku. Laugardaginn 1. febrúar fara fram þorrablót í Fan- nahlíð í Hvalfjarðarsveit, á Varm- landi í Stafholtstungum, í Tjarnar- lundi í Saurbæ, íþróttamiðstöðinni í Stykkishólmi og Klifi í Ólafsvík. Næsta laugardag á eftir, þann 8. fe- brúar, verða þorrablót í félagshei- milinu Logalandi í Reykholtsdal, á Kaffi 59 í Grundarfirði og í Árbliki í Suðurdölum. Laugardaginn 15. fe- brúar verður þorrablót Körfuknatt- leiksdeildar Skallagríms haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi. arg Þorrablót framundan Bræðurnir Elfar Már og Styrmir Már Ólafssynir hafa nú tekið við rekstri Bókhalds- og rekstrarþjónustu Ólafs Helgasonar í Borgarnesi. Ljósm. aðsend. Taka við rekstri bókhaldsstof- unnar eftir fráfall föðurs þeirra Frostbiter í fjórða skipti um mánaðamótin Hryllingsmyndahátíðin hefur vaxið ár frá ári Ársæll Rafn Erlingsson í hlutverki sínu í mynd sem sýnd var á fyrstu Frostbiter hátíðinni. Ljósm. úr safni. Lovísa Lára Halldórsdóttir stendur að hátíðinni ásamt Ársæli Rafni.Frostbiter hefur fest sig í sessi í menningarlífi Akurnesinga og hátíðin stækkað að umfangi ár frá ári.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.