Skessuhorn


Skessuhorn - 05.02.2020, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 05.02.2020, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRúAR 202020 Árlegri talningu vetrarfugla er nú nýlokið á Snæfellsnesi. Talið var á 15 mismunandi stöðum. Að þessu sinni sáust 44 fuglategundir en áður höfðu mest sést 39 tegundir í árs- lok 2011 og 2018. Heildarfjöldi fugla var ríflega 16 þúsund. Langal- gengasti fuglinn með vetursetu við Snæfellsnes er æðarfugl, en þvínæst tjaldur, snjótittlingur og sendling- ur. Á vef Náttúrustofu Vesturlands er greint frá talningunni. Þar segir að ef teknar eru saman niðurstöð- ur þeirra ellefu svæða sem talin hafa verið samfellt frá því um áramótin 2009/2010 sést vel að fjöldinn var í hámarki á árunum 2011-2014, þegar síldargöngur inn á svæðið voru sem mestar, en hefur minnkað verulega eftir það. „Með því að telja reglulega sömu svæðin í mörg ár fást dýrmæt- ar vísbendingar um langtímaþró- un fuglastofna. Ástæður sveiflna í niðurstöðum talninga á afmörk- uðum svæðum geta þó verið marg- víslegar. Ein er raunveruleg breyt- ing á stofnstærð en einnig getur t.d. verið um að ræða breyting- ar á farmynstri fæðutegunda, sbr. síldina. Flestar tegundir svæðisins virðast vera í einhvers konar jafn- vægi, þ.e. ekki er um greinilega fjölgun eða fækkun að ræða. Það á þó ekki við um allar tegundir, því sumum þeirra hefur fjölgað á svæðinu. Dæmi um það eru tjald- ur, sem hefur í auknum mæli vetur- setu við Breiðafjörð, og teista, sem átti mjög erfitt uppdráttar í mörg ár en er vonandi eitthvað að rétta úr kútnum. Þá fjölgar svartþröstum í görðum en útbreiðsla þeirra hefur aukist nokkuð ört hér á landi. Ein- hverjum tegundum hefur fækkað nokkuð og munar þar mestu um svartbak og hvítmáf, sem hópuðust inn á svæðið þegar mikið æti var í boði á „síldarárunum“ en líklegt er að stór hluti þeirra hafi leitað ann- að eftir æti. Báðar tegundirnar eru á válista eftir mikla fækkun á lands- vísu á síðustu áratugum. Um helm- ingur stofna beggja tegundanna verpir við Breiðafjörð.“ Þá segir í frétt Náttúrustofu Vesturlands að mikið og fjölbreytt fuglalíf sé við norðurströnd Snæ- fellsness. Á fallegum vetrardög- um er því tilvalið að fá sér göngu- túr með ströndinni og hafa góðan sjónauka með í för. „Talning vetrar- fugla á Snæfellsnesi er framkvæmd af fuglaáhugafólki, þar á meðal starfsmönnum Náttúrustofu Vest- urlands. Yfirumsjón vetrarfugla- talninga á landsvísu er hjá Náttúru- fræðistofnun Íslands. Um talning- arnar og niðurstöður þeirra má lesa á vef Náttúrufræðistofnunar mm Alþjóðadagur gegn krabbamein- um er haldinn um heim allan í gær, þriðjudaginn 4. febrúar. Að því til- efni hefur Kraftur og Krabba- meinsfélagið hrundið af stað vit- undarvakningu um mikilvægi jafn- ingjastuðnings undir slagorðinu: „Ég skil þig“. Félögin starfrækja Stuðningsnetið þar sem einstak- lingar með reynslu veita öðrum faglegan jafningjastuðning. Stuðn- ingsnetið er fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstand- endur. Krabbameinsfélagið hef- ur tekið viðtöl við 25 einstaklinga sem deila sinni reynslu. Verða við- tölin birt á næstu dögum á vefsíð- unni krabb.is og kraftur.org og þá verður sögunum sömuleiðis dreift á samfélagsmiðlum. „Það getur verið hjálplegt að ræða við einhvern sem hefur geng- ið í gegnum svipaða reynslu og þú ert að ganga í gegnum, einhvern sem hefur þann skilning sem ein- ungis fæst með því að upplifa hlut- ina sjálfur. Þess vegna fór Kraftur á sínum tíma í að búa til vettvang fyrir jafningja til að miðla reynslu sinni á faglegan máta. Ég sjálfur þjálfa alla þá sem vilja vera stuðn- ingsfulltrúar í Stuðningsnetinu og met hvort að þeir séu í stakk bún- ir til að veita jafningjastuðninginn á faglegan máta því það skiptir vissu- lega máli hvernig jafningjastuðn- ingur er veittur,” segir Þorri Snæ- björnsson, sálfræðingur Krabba- meinsfélagsins og Krafts. Ég skil þig herferðin fer að mestu fram á samfélagsmiðlum þar sem birtar eru sögur fólks sem hefur þegið og veitt jafningjastuðning í gegnum Stuðningsnetið. Mark- miðið er að opna umræðuna og kynna Stuðningsnetið fyrir þeim sem gætu haft gagn af. Stuðnings- netið er fyrir einstaklinga á öllum aldri og getur nýst fólki hvar sem það býr á landinu. mm Næstkomandi laugardagskvöld verður frumsýnt nýtt verk á fjöl- um Sögulofts Landnámssetursins í Borgarnesi. Að þessu sinni er það Auður Jónsdóttir rithöfundur sem stígur á stokk. Auður talar við Auði Laxness, ömmu sína, um leið og hún segir söguna Ósjálfrátt. Nú á annan hátt en áður því skáldskap- urinn í lífinu breytir því hvernig við skynjum skáldskap. Auður seg- ir söguna af nöfnu sinni en einnig sögur um sögur, sögur um lífið á Gljúfrasteini, snjóðflóð á Flateyri, skrifandi konur og konur drifnar áfram af Breiðafjarðarillsku og ást- ríkri útsjónarsemi. Um leið miðlar hún aðferðum til að fanga sögurn- ar í lífinu. „Auður hefur vakið verðskuld- aða athygli og fjölda viðurkenninga fyrir skáldsögur sínar. Hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2004 fyrir skáldsögu sína Fólk- ið í kjallaranum, Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, fyrir Ósjálfrátt árið 2013 og fyrir Þján- ingarfrelsið óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla árið 2018, en þá bók skrifaði Auður í samvinnu við Báru Huldu Beck og Steinunni Stefánsdóttur. Stóri skjálfti var valin skáldsaga ársins af bóksölum og tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Tvær af bókum hennar hafa verið tilnefnd- ar til Bókmenntaverðlauna Norð- urlandaráðs: Fólkið í kjallaranum og Stóri skjálfti. Í sumum skáldsög- unum byggir Auður á eigin reynslu og er afar einlæg í skrifum sínum. Þó oft sé umfjöllunarefnið blákald- ur veruleiki er húmorinn aldrei langt undan eða eins og Freyr Eyj- ólfsson, einn af gagnrýnendum nýj- ustu bókar hennar Tilfinningabylt- inguna, sagði: „Auður er alltaf ein- læg og heiðarleg en svo er hún líka svo hræðilega fyndin.“ mm Þriðjudaginn 3. mars næstkom- andi verður fiskverslunin Skaga- fiskur ehf. opnuð við Kirkjubraut 40 á Akranesi. Það eru hjón- in Pétur Ingason og Jónheið- ur Gunnbjörnsdóttir sem ætla að opna verslunina. Pétur og Jón- heiður fluttu á Akranes fyrir rétt rúmu ári. Þau eru bæði frá Akur- eyri en höfðu búið í Hafnarfirði í rúmlega 21 ár áður en þau komu á Akranes. Pétur vann hjá fyrirtæk- inu Samhentir í Garðabæ en lang- aði að geta unnið nær heimilinu. „Okkur datt í hug að gera þetta til að þurfa ekki lengur að keyra suður til vinnu og svo borðum við mikinn fisk og söknuðum þess að fá ferskan fisk og ákváðum bara að gera eitthvað í því sjálf,“ seg- ir Pétur í samtali við Skessuhorn. Aðspurður segir hann þau hjón- in vera mjög ánægð á Akranesi. „Okkur hefur verið mjög vel tekið hér og líður það vel að við erum tilbúin að stofna hér eigin rekst- ur,“ segir Pétur. Í Skagafiski verður hægt að fá ferskan fisk alla virka daga auk þess sem hægt verður að kaupa ýmsa tilbúna fiskrétti og með- læti tilbúið í ofninn. Boðið verð- ur upp á breitt úrval fiskmetis og ferskur fiskur sóttur til Reykjavík- ur alla virka morgna. „Hugmynd- in er að fólk geti líka keypt fisk- inn tilbúinn í ofninn með með- læti og öllu. Þá þarf fólk ekki ann- að en að skella þessu í ofninn og bíða í svona hálftíma,“ segir Pét- ur og bætir því við að ekki verði alltaf sömu fiskréttirnir alla daga. „Við ætlum að láta réttina rúlla fyrir fjölbreytni. Það verður því ekki sami fiskréttur á þriðjudegi og svo aftur á fimmtudegi.“ Að- spurður segir hann þau hjónin vera mjög bartsýn fyrir opnun- inni. „Við höfum töluvert fengið að heyra að fólk sé spennt að fá loksins fiskverslun í bæinn svo við erum bara að leggja allt í þetta og erum vongóð að þetta muni ganga vel,“ segir Pétur. arg Pétur Ingason opnar fiskverslun við Kirkjubraut 40 á Akranesi ásamt eiginkonu sinni Jónheiði Gunnbjörnsdóttur. Opna fiskverslun á Akranesi Fuglategundir sem sáust í talningum við norðanvert Snæfellsnes í kringum áramótin 2019/2020 og fjöldi einstaklinga af hverri þeirra. 44 tegundir fugla í vetrartalningu á Snæfellsnesi Auður og Auður. Auður og Auður er ný frumsýning á Sögulofti Alþjóðlegur dagur gegn krabbameinum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.