Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2020, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 27.05.2020, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020 23 Pennagrein Til sveitarstjórnar Dalabyggðar. Efni: Samskipti við sveitarstjórn um lagnir ljósleiðara í landi Tjalda- ness II, framkvæmdaleyfi til skóg- ræktar á Ósi í Saurbæ og fleira. Hér með tilkynni ég sveitarstjórn að ég hef ákveðið f.h. eigenda að samþykkja lögn ljósleiðara um landareign Tjaldaness II á Tjalda- neshlíð. Ég tek þessa ákvörðun fyrst og fremst vegna hagsmuna minna gömlu og góðu nágranna á Skarðs- strönd þar sem ég veit að andstaða mín og þrjóska bitnar annars á þeim en ekki ykkur, rollubændum sem ráðið ferðinni í Dalabyggð um þessar mundir. Að þessu tilefni finnst mér rétt að fara yfir samskipti mín við ykk- ur, sveitarsjórn sauðfjárbænda, en annarri eins óstjórn og valdníðslu hef ég aldrei kynnst. Í júlímánuði 2017 óskaði ég eft- ir að hefja, í samstarfi við Skógrækt ríkisins, skógrækt á 25 ha landi á jörðinni Ósi í Saurbæ. Sumarið 2018 sótti ég námskeið um verk- efnið og landið var tekið út af full- trúa Skógræktarinnar þann 19. ágúst 2018. Tveimur dögum síðar sendi ég sveitastjóra Dalabyggð- ar umsókn um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar á lögbýlum. Þann 10.08.2018 greiddi ég staðfestingargjald til Dalabyggð- ar vegna ljósleiðara til Ljósavíkur. Þann 23. okt. 2018 fékk ég í tölvu- pósti teikningar og blað til sam- þykktar frá Dalaveitum um lögn ljósleiðara í landi Tjaldaness II. Sama dag hringdi til mín starfsmað- ur Dalaveitna vegna þessa máls. Ég var staddur erlendis og sagðist ekki samþykkja framkvæmdir fyrr en ég kæmi heim og væri væntanlegur innan viku. Þann 27.10.2018 sendi ég eftirfarandi bréf til starfsmanns Dalaveitna: „Sæll NN Ég átt ekki von á því að sett- ar yrðu stórvirkar vinnuvélar um og yfir landareign okkar án þess að samþykki lægi fyrir. Ég sagð- ist í samtali við þig verða komin heim til landsins í dag sem og varð og þá gæti ég tekið afstöðu til til- lögu ykkar, fyrr ekki. Svo renndi ég í Saurbæinn í morgun og sá um- gengnina um þá arfavitlausu leið að mínu mati sem þið fóruð. Ég bið þig að stöðva þessar framkvæmdir strax á landi Tjaldaness II og hefja þær ekki aftur fyrr en samþykki okkar liggur skriflega fyrir. Ég mun vafalaust gera frekari athugasemdir við það sem þegar hefur verið fram- kvæmt á landi Tjaldaness II. Bestu kveðjur KS.“ En framkvæmdir voru ekki stöðv- aðar og verkinu lokið án samþykkt- ar okkar, landeigenda. Í nóvember 2018 fjallaði skipu- lagsnefnd Dalabyggðar um um- sókn mína um skógrækt á Ósi og í framhaldi fékk ég þær fréttir frá nefndarmanni að umsókn mín um skógrækt væri samþykkt. Á vor- mánuðum 2019 lá fyrir samþykki Skógræktar ríkisins um ræktun skóglendis á Ósi, en nú aðeins 10 ha í stað 25 ha áður og loforð um plöntur um haustið, að fengnu framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar Dalabyggðar. Ráðinn var maður til að girða landið og samningurinn við skógræktina sendur sveitarstjóra til samþykktar þann 29.05.2019. Þá kom í ljós að um misskilning var að ræða varðandi fundinn í nóvember 2018. Þar var samþykkt um fram- kvæmdir á Ósi á Skógarströnd, EKKI á Ós í Saurbæ. Ég póstlagði þá bréf til oddvita Dalabyggðar þann 15.06.2019 þar sem ég fór yfir stöðu mála frá mínu sjónarhorni og óskaði eftir skriflegu svari sveita- stjórnar um framkvæmdaleyfið. Svarið sendi sveitastjóri í tölvu- pósti: „Borist hefur erindi frá eiganda Ós þar sem óskað er eftir svari um hvort skógrækt á jörðinni þurfi framkvæmdaleyfi og hvort sveitar- stjórn veit það leyfi. Þar sem umhverfis- og skipulags- nefnd kom til fundar með byggð- arráði var umræða um þennan lið tekin sameiginlega. Vísað er í svæðisskipulag varðandi ákvæði um skógrækt. Byggðarráð telur verk- efnið vera framkvæmdaleyfisskylt. Vinnu við þennan þátt skipulags verður flýtt. Samþykkt samhljóða af fulltrúum í byggðarráði í umboði sveitarstjórnar. Byggðarráð fer með valdheim- ildir sveitarstjórnar í orlofi henn- ar. Í afgreiðslunni felst að sú nið- urstaða sveitarstjórnar að verkefnið sé framkvæmdaleyfisskylt og að leyfi verði ekki veitt fyrr en niður- staða vinnu við aðalskipulag varð- andi skilgreiningu á landnýtingu liggur fyrir. Með góðri kveðju.“ Við eftirgrennslan kom fram að sveitastjóri gerði ráð fyrir að af- greiðslu umsóknarinnar yrði lokið á haustmánuðum 2019. Nú var aftur komin fram- kvæmdahugur í Dalaveitur og ákveðið að leggja ljósleiðara um Tjaldaneshlíð. Hér mættu í júlí og ágúst 2019, tveir starfsmenn á vegum Dalaveitna til að óska eft- ir lagnaleyfi á Tjaldaneshlíð og var annar jafnframt einn sveita- stjórnarmanna. Ég fór yfir þessi mál með honum, umsókn mína um skógrækt á Ósi og lögn ljósleiðara um Tjaldanes II, og sagðist tilbú- inn til að samþykkja lagnaleiðina strax og mín umsókn um skógrækt yrði samþykkt af sveitarstjórn. Ef dráttur yrði á afgreiðslu umsókn- ar minnar yrði sami dráttur á sam- þykki mínu um umbeðna lagnaleið um Tjaldaneshlíð. Sveitarstjórnar- maðurinn var samstarfsfús og sagði lítið mál að fá samþykki sveita- stjórnar fyrir leyfisveitingu fyrir 10 ha skógrækt á Ósi, enda væru sveitastjórnarmenn sammála um að 10 ha skógrækt væri undanþeg- in framkvæmdaleyfi. Sjö mánuðum seinna, þann 6. mars, síðastliðinn samþykkti sveit- arstjórn loksins leyfi fyrir skógrækt á Ósi, - en með fyrirvara, skilyrt: „Sótt er um skógrækt að Ósi í Saurbæ. Nefndin samþykkir er- indið með tilliti til nýrrar flokk- unar á landbúnaðarlandi í drög- um að endurskoðun á Aðalskipu- lagi Dalabyggðar, en landið fell- ur undir flokk II samkvæmt þeirri skilgreiningu. Einnig þarf að liggja fyrir samþykki eigenda aðliggjandi jarða og umsögn Minjastofnunar.“ Þann dag komst ég að því að sveitarstjórnin hefur haft sama háttinn á gagnvart mér og nokkr- um fjölda jarðeigenda í Dalabyggð, þ.e. að draga mánuðum saman, og í mínu tilfelli árum saman, að af- greiða umsókn um leyfi fyrir land- nýtingu, þar sem hún byggir ekki á búfjárbeit eða öðrum 19. aldar bú- skaparháttum. Frá þeim tíma til dagsins í dag hef ég verið af og til í sambandi við Þórð Má skipulagsfulltrúa um skógræktina og Kristján Inga um ljósleiðara að Ljósavík. Einnig hef ég fengið SMS frá Skúla varðandi lagnaleiðina. Í gærdag, 22. maí, hitti ég loks á Kristján Inga á ferð minni í Búðardal, og skrifaði und- ir samning um ljósleiðaratengingu að Ljósavík. Hann var á hlaupum, en afhenti mér samninginn undir- ritaðan á ganginum í húsi sveitar- stjórnar og spurði hvort ég hefði ekki verið í sambandi við Skúla, sem ekki var, og hvort ekki mætti fara með ljósleiðara um Tjaldanes- hlíð. Nú lægi á að leggja strenginn því verktakinn væri að ljúka vinnu á Skarðsströndinni. Ég sagðist ekki vera tilbúinn til að svara því á þess- ari stund og stað. Mér finnst enda kurteislegra að setjast niður og ræða svona mál, jafnvel hefði ég átt von á afsökunarbeiðni á yfirgangi og tillitsleysi verktaka og stjórn- anda Dalaveitna. Þrátt fyrir ríka áherslu núverandi ríkisstjórnar Íslands á að auka skóg- rækt sem skilvirka kolefnisjöfnun gegn loftslagsvá, teljið þið sveita- stjórnarmenn í Dalabyggð ykkar hlutverk að vinna öllum árum gegn þessháttar starfsemi hér í Dölum, enda hafi þið, að ykkar mati, með góðri aðstoð Minjastofnunar, lög- sögu yfir allri landnýtingu sem snýr að skógrækt í Dalabyggð. Og þeg- ar við, sem höfum áhuga á nútíma- legri landnýtingu sem m.a. felst í aukinni skógrækt, reynum hver í sínu horni að leita réttar okkar, teflir sveitastjórnin fram lögfræðiá- liti gegn hagsmunum okkar. Í þessu sveitarfélagi, Dalabyggð, þar sem íbúum fækkar stöðugt eins og víðar í sveitum, og sem stend- ur því greinilega mjög höllum fæti hvað varðar búskap og aðra at- vinnumöguleika virðist því miður aðal keppikefli ykkar, ráðamanna héraðsins, að berjast gegn breyt- ingum á 19. aldar búskaparháttum sem við erum tilbúnir til að fram- kvæma og telja afkomu ykkar helst ógnað af ræktunaráformum okkar skógarbænda. Hvað gengur ykkur til að setja hömlur á framkvæmdagleði manna eins og Eiríks Magnússonar, Hall- dórs Jóhannssonar, Sigursteins Hjartarsonar, Jakobs Kristjáns- sonar og undirritaðs, að ógleymdri Minjavernd í Ólafsdal? Er ykkur rollubændum, sem fáið fjárheldar girðingar um lönd ykkar á kostn- að Vegagerðarinnar (og beitið svo lambfénu á vegsvæðið, t.d. í Hvols- dal) kannski illa við girt skógrækt- arlönd sem ekki notast þá ykkar fé til beitar? Það eru ekki mörg sveitarfélög á landinu sem skarta jafn mörgum bæjarnöfnum sem vitna um skógi vaxið land og hér í Dalabyggð sem tekur m.a. yfir heilt sveitarfélag, nú sameinað Dalabyggð, Skógar- strönd. Þá má að auki nefna Kirkju- skóg, Miðskóg, Skógskot, Stóra- skóg, (Þykkvaskóg), Skógsmúla, Lækjarskóg, Hjarðarholt, Víg- holtsstaði, Ljárskógar, Glerárskóg- ar, Magnússkógar, Rauðbarðaholt, Skógar, Stórholt og Litlholt og kannski ekki öll talin. Finnst ykk- ur ekkert til um þessi bæjarnöfn? Samkvæmt ykkar stefnu eru þetta allt rangnefni. Hvað finnst ykkur um ákvarðan- ir ríkisvaldsins um þjóðlendur sem margir telja skerðingar á réttindum bænda og landeigenda? Finnst ykk- ur þær annars eðlis en þær hömlur sem þið beitið okkur um nýtingu okkar landareigna? Í dag er ekki ljóst hvenær þessari valdníðslu ykkar lýkur, eða hvort henni lýkur en vinnubrögð ykkar í þessum efnum eru ekki til eftir- breytni. Þar sem ég veit að ákvörðun mín og þrjóska bitnar fyrst og fremst á gömlum og góðum nágrönnum mínum á Skarðströnd, en ekki ykk- ur rollubændum sem ráðið ferðinni í Dalabyggð um þessar mundir, þá samþykki ég hér með f.h. landeig- enda, lögn ljósleiðara um landar- eign Tjaldaness II á Tjaldaneshlíð. Ég býst varla við, en vona samt, að í framhaldi þeirrar vinnu haf- ið þið rænu á að láta smala saman ljósleiðarakeflum sem liggja vítt og breitt með vegum og heimahúsum í Saurbænum og kannski víðar. Sagt var, að á sínum tíma hafi tveir ungir menn og upprenn- andi skáld, heimsótt Halldór Kilj- an Laxness að Gljúfrasteini. Þeg- ar þeir loksins bjuggust til brott- ferðar hafi skáldið sagt: ,,Sjáið þið þennan litla birkikvist? Næst þegar þið komið ætla ég að vona að hann verði orðinn að stóru og skuggsælu tré!“ Ég ætla að vona Dalanna vegna að næst, ef þið verðið valin til for- ystu í héraðinu, að þið verðið þá laus við valdahrokann og hafið tamið ykkur kurteisi og tillitssemi í garð allra sveitunga ykkar og jarð- eigenda í Dölum. Ljósavík, 23.05.2020 Kristjón Sigurðsson Ós er á svokölluðum Staðarhólsodda, milli Hvolsár og Flæðilæks að austan, og Staðarhólsár að vestan (nær á myndinni). Opið bréf til sveitarstjórnar Dalabyggðar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.