Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2020, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 27.05.2020, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 22. tbl. 23. árg. 27. maí 2020 - kr. 950 í lausasölu Ert Þú í áskrift? Sími 433 5500 www.skessuhorn.is Tilboð gildir út maí 2020 Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes: Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með Bérnaise burger meal 1.890 kr. MáltíðEyjan Birgisklettur sem er skammt vestur af Stykkishólmi er í eigu bænda á Þingvöllum í Helgafellssveit. Ábúendur hafa nýtt eyjuna til eggjatínslu svo langt sem menn muna. Í gamla daga voru að jafnaði farnar tvær eggjatínsluferðir að sumri en í seinni tíð er farin ein ferð svona aðallega til að menn fái bragðið og haldi hefðinni við. Í þessari ferð, sem farin var um helgina, voru tekin um sextíu egg. Að sögn Sumarliða Ásgeirssonar ljósmyndara sem var með í för eru rituegg ekki ósvipuð og kríuegg á bragðið, en stærri. Á myndinni eru þeir Kári Hilmarsson og Björn Ásgeir Sumarliðason að ausa eggjum, eins og það er kallað. Ljósm. sá. Síðasti upplýsingafundur þríeykis- ins sem stýrt hefur aðgerðum hér á landi vegna Covid-19 faraldursins var á mánudaginn. Nú hefur ver- ið ákveðið í samráði við sóttvarna- lækni að lækka almannavarnastig frá neyðarstigi, sem lýst var yfir 6. mars síðastliðinn, niður á hættustig vegna faraldursins. Fram kom hjá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni á þessum síðasta formlega upplýsingafundi að svo virtist sem líklega væri mesti þrótt- urinn að fara úr veirunni. Veikind- in hafi verið að minnka eftir því sem liðið hefur á tímann frá 28. febrúar. Sagði hann það gefa vís- bendingar um að veiran sé nú ekki eins ágeng og slæm og hún var, en tíminn verði þó að leiða það í ljós. Í ljósi þess að einungis hafa sex ný tilfelli veirunnar verið greind í maí þá hefur nú verið ákveðið að létta á samkomutakmörkunum. Nú mega tvö hundruð koma saman í stað fimmtíu, ýmis starfsemi er leyfð og tveggja metra reglan nú sögð val- kvæð. Áfram er þó brýnt fyrir fólki að sýna eðlilega varkárni áfram, því veiran sé ekki horfin úr samfélaginu þó dregið hafi úr þrótti hennar og útbreiðslu. Áfram er stefnt að því að opna landið fyrir komu erlendra ferðamanna 15. júní næstkomandi, en öllum sem koma gert að gangast undir strokpróf. mm Það var létt yfir mannskapnum að loknum síðasta upplýsingafundi þríeykisins, sem meðal annars tók lagið í porti við höfuðstöðvarnar í Skógarhlíð. Ráðherrarnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Svandís Svavars- dóttir færðu þeim Víði, Þórólfi og Ölmu blóm sem þakklætisvott fyrir þeirra framlag síðustu mánuði. Ljósm. aðsend. Síðasti upplýsingafundur þríeykisins DOMINOS.IS | DOMINO’S APP 1.790 KR. AÐEINS EF ÞÚ PANTAR Á NETINU EÐA MEÐ APPINU, GREIÐIR FYRIRFRAM OG SÆKIR PIZZUR MÁNAÐARINS EIN STÓR PIZZA Með því að bóka tíma losnar þú við biðina í útibúinu, hvort sem erindið snýst um ráðgjöf eða aðra þjónustu. Þú byrjar á að fara á arionbanki.is/bokafund og panta símtal. Við hringjum svo í þig og �innum tíma sem hentar. Markmiðið er alltaf að bankaþjónustan sé eins þægileg og hægt er. arionbanki.is Bókaðu þægilegri bankaþjónustu

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.