Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2020, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 27.05.2020, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2020 15 EB flutningar Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Akraness Ein ferð á dag Allir almennir vöruflutningar Get sótt pakka í búðir Símanúmer 788-8865 ebflutningar@gmail.com Sími: 511 3388Fákafeni 9 Síðastliðinn miðvikudag var Bláf- áninn dreginn að húni við Langa- sand á Akranesi. Bláfáninn er al- þjóðlegt umhverfismerki sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferða- mennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Tilgangur verk- efnisins er að stuðla að verndun á lífríki haf- og starndsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er þannig tákn um góða frammi- stöðu í umhverfismálum og bætir ímynd og ásýnd rekstraraðila þar sem hann blaktir við hún. Er þetta áttunda árið í röð sem Bláfáninn er dreginn að húni við Langasand, sem er kaldasta Bláf- ánaströnd landsins. Það var Sæv- ar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, sem dró fánann að húni. Naut hann við verkið dyggrar að- stoðar leikskólabarna á Akranesi. kgk Þessir fimm ungu drengir nýttu blíðviðrið á föstudaginn til að hoppa í sjóinn af bryggjunni í Grundarfirði. Þeir Kristján Freyr, Jón Björgvin, Gabríel Ómar, Mik- ael Máni og Alfreð Ragnar tóku eitt samhopp fyrir ljósmyndara Skessu- horns er hann rölti niður á höfn til að kanna með gusuganginn. tfk Bláfáninn blaktir við Langasand Leikskólabörnin fengu að virða Bláfánann vel fyrir sér áður en hann var dreginn að húni. Börnin aðstoða Sævar Frey Þráinsson bæjarstjóra við að koma fánanum á sinn stað. Margar hendur vinna létt verk. Sævar Freyr bæjarstjóri tekur við Bláfánavottuninni úr hendi Ragnars Þórðarsonar frá Vottunarstofunni Túni. Fylgst með gangi mála. Sjóhopp í blíðviðrinu á dögunum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.