Morgunblaðið - 03.06.2020, Side 22

Morgunblaðið - 03.06.2020, Side 22
HANDBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is ÍBV tilkynnti á annan í hvítasunnu að félagið hefði nælt í Selfyssinginn og landsliðskonuna í handknattleik Hrafnhildi Hönnu Þrastardóttur. Hrafnhildur lék síðasta vetur með Bourg-de-Péage í Frakklandi og gekk vel. Hún þarf hins vegar að hnýta lausa enda hér heima næsta vetur ef þannig má að orði komast. „Ég á ekki mikið eftir af masters- námi mínu í sjúkraþjálfun í háskól- anum og er það aðalástæða þess að ég ákvað að koma heim til Íslands. Ég á fyrst og fremst eftir verknám sem ekki er einfalt að gera utan Ís- lands. Ég verð því alla vega í eitt ár á Íslandi,“ sagði Hrafnhildur þegar Morgunblaðið hafði samband við hana. „Ég hef hugsað út í þetta nokkuð lengi en ég stóð frammi fyrir því að velja á milli þess að koma heim og klára námið eða að halda áfram að spila úti og láta námið bíða.“ Hrafnhildur segir Vestmannaeyjar hafa togað í sig í þetta skiptið en hún á rætur að rekja þangað. Spurð hvort mörg lið hérlendis hafi sett sig í sam- band við hana getur hún ekki neitað því. Deildin verður hörkugóð „Já, þau voru nokkur. Ég get alveg sagt það, en Eyjar heilluðu mig mest af ýmsum ástæðum. Til dæmis er uppgangur í liði ÍBV en svo er þetta svo geggjaður staður. Ég er ættuð úr Eyjum og ber taugar til staðarins. Einnig hjálpaði til að ég get haldið náminu áfram úr Eyjum,“ sagði Hrafnhildur og hún er spennt fyrir Íslandsmótinu næsta vetur. Auk hennar er Birna Berg Haraldsdóttir einnig komin heim úr atvinnu- mennsku til að spila með ÍBV. Hel- ena Rut Örvarsdóttir og Erna Björk Davíðsdóttir eru komnar í Stjörnuna og Rut Jónsdóttir gekk í raðir KA/ Þórs. „Já, þetta er mjög spennandi. Við erum að dreifast í ýmis lið og deildin verður væntanlega hörkugóð sem er mjög skemmtilegt. Ég hef fulla trú á því að deildin verði sterkari en hún hefur lengi verið. Einnig er gott að við séum ekki allar að fara í sama liðið og þá verður þetta fyrir vikið jafnara og skemmtilegra. Fleiri lið verða væntanlega í baráttunni í efri hlut- anum en síðustu ár.“ Lærdómsrík Frakklandsdvöl Hrafnhildur Hanna var mjög marksækin með Selfyssingum áður en hún fór í atvinnumennsku og var markahæsti leikmaður Olís-deildar- innar. Hún aðlagaðist fljótt efstu deild í Frakklandi og skoraði meira en 80 mörk á sínu fyrsta tímabili er- lendis áður en mótinu var aflýst vegna kórónuveirunnar. „Ég var ánægð með spilamennsk- una í Frakklandi enda gekk þetta í rauninni vonum framar. Ég lærði virkilega mikið þótt þetta hafi bara verið tæpt ár eftir að klippt var á tímabilið. Franska deildin er þvílíkt sterk og maður kynntist nýju um- hverfi hvað æfingar varðar. Þar er maður á hörkuæfingum á hverjum degi og ég mun alltaf búa að því,“ sagði Hrafnhildur og dregur ekki úr því að leikmaður sem fer úr íslensku deildinni í þá frönsku þarf í flestum tilfellum að bæta sig í mörgum þátt- um íþróttarinnar til að eiga mögu- leika. „Ég bætti mig í ýmsum þáttum enda þurfti ég að vera betri í flestum atriðum til að mæta þessum bestu lið- um og komast framhjá leikmönnum. Ég þurfti að bæta mig hér og þar, til dæmis í sóknaraðgerðum. Í frönsku deildinni eru heimsklassaleikmenn og heiður að fá að spila í hverri viku á þeim vettvangi.“ Gæti átt eftir að reyna aftur fyrir sér í atvinnumennskunni Þegar náminu lýkur og í ljós kem- ur hvernig Evrópuþjóðum reiðir af í glímunni við heimsfaraldurinn telur Hrafnhildur ekki ósennilegt að hún reyni aftur fyrir sér erlendis. „Nú einbeiti ég mér að því að fara í skólann en eftir það tekur maður stöðuna. Ef spennandi tækifæri bjóð- ast í handboltanum hoppa ég ábyggi- lega á það í framtíðinni. Ástandið í heiminum spilar einnig inn í. Maður veit ekkert hvernig handboltaheim- urinn verður og sem stendur geta at- vinnumannalið ekki gert allt sem þau vilja gera. Þá er gott að vera heima og vera búin að taka þá ákvörðun þótt það hafi ekki verið stærsta ástæða þess að ég sný heim á þessum tíma- punkti,“ sagði Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir ennfremur í samtali við Morgunblaðið. Ánægð í Frakklandi en ætlar að ljúka verknámi  Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir ber taugar til Vestmannaeyja Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gegnumbrot Hrafnhildur í landsleik gegn Frökkum. Hún segist hafa þurft að bæta sig í ýmsum þáttum handboltans til að standa sig í Frakklandi. 22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 2020 3. júní 1960 Morgunblaðið greinir frá því að ÍR-ingnum Valbirni Þorlákssyni hafi tekist að upp- fylla lágmarks- kröfur ólympíu- nefndarinnar vegna Ólympíu- leikanna í Róm. Valbjörn stekkur 4,40 metra í stangarstökki og er það besti árangur hans í greininni á mót- um hér heima til þessa. Í blaðinu er þess getið að Íslandsmet Val- björns sé 4,45 metrar en því stökki náði hann á móti í Leip- zig. 3. júní 1984 Íris Grönfeldt setur Íslandsmet í spjótkasti og sigrar á banda- ríska háskólameistaramótinu, NCAA, í frjálsum íþróttum í Oregon. Íris kastar 56,14 metra og hefur nú bætt metið þrívegis á skömmum tíma. Einar Vilhjálms- son sigrar annað árið í röð í spjótkasti á mótinu en hann kastar 89,62 metra, rúmum þremur metrum lengra en næsti maður. Þórdís Gísla- dóttir hlýtur silfurverðlaun í há- stökki en hún stekkur 1,84 metra. 3. júní 1987 Karlalandsliðið í knattspyrnu fær hrikalegan 6:0-skell gegn Austur-Þýskalandi í undan- keppni EM á Laugardalsvell- inum. Vonbrigðin eru mikil þar sem Ísland hafði náð góðum úr- slitum á heimavelli fyrr í keppn- inni. „Þetta er óafsakanlegt,“ segir fyrirliðinn Atli Eðvaldsson við Morgunblaðið. 3. júní 1992 Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu vinnur óvæntan sigur á Ungverjum í Búdapest, 2:1, í undankeppni heimsmeistara- mótsins. Ungverjar komust yfir en Þorvaldur Örlygsson og Hörður Magnússon tryggja ís- lenska liðinu sigur. 3. júní 2001 Ísland vinnur öruggan útisigur á Hvít-Rússum, 30:23, í fyrri umspilsleik þjóð- anna um sæti á EM 2002 í hand- knattleik, í fyrsta mótsleiknum und- ir stjórn Guð- mundar Þ. Guð- mundssonar. Sigfús Sigurðsson skorar níu mörk í leiknum. 3. júní 2015 Íslensku fimleikakonurnar næla í öll gullverðlaun sem í boði eru fyrir þær í keppni í áhaldafim- leikum þegar Smáþjóðaleik- arnir eru haldnir hérlendis. Dominiqua Alma Belányi sigrar í fjölþrautinni og á tvíslá. Norma Dögg Róbertsdóttir á jafnvægisslá og í stökki og Thelma Rut Hermannsdóttir í gólfæfingum. Saman unnu þær til gullverðlauna í liðakeppni. Á ÞESSUM DEGI Íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik verður í fyrsta styrk- leikaflokki þegar dregið verður til undankeppni Evrópumeistaramóts- ins 2022 þann 16. júní. Ísland getur því ekki mætt Alfreð Gíslasyni og hans mönnum í Þýska- landi, ekki frekar en Dönum, Norð- mönnum, Svíum, Frökkum, Slóven- um eða Tékkum sem einnig eru í efsta flokki. Holland, undir stjórn Erlings Richardssonar, er í öðrum styrkleikaflokki. Nánar um styrkleikjaflokkana má lesa á mbl.is/sport. Ísland í fyrsta styrkleikaflokki Morgunblaðið/Hari Reyndur Aron Pálmarsson er marg- reyndur og á mörg stórmót að baki. Sandra María Jessen og stöllur í Leverkusen eru komnar í undan- úrslit í þýska bikarnum í knatt- spyrnu eftir 3:2 sigur gegn Hoffen- heim í framlengdum leik í gær- kvöldi. Sandra spilaði allar 120 mínúturnar fyrir heimakonur en hún sjálf kom liðinu í fjórðungs- úrslitin með sigurmarki sínu gegn Frankfurt í 16-liða úrslitunum í vetur. Leverkusen gæti mætti bikarmeisturunum Wolfsburg, sem Sara Björk Gunnarsdóttir leikur með, í úrslitum en liðið mætir Gütersloh í 8-liða úrslitum í kvöld. Sandra áfram í undanúrslit Ljósmynd/Leverkusen Undanúrslit Sandra María Jessen er komin langt í þýska bikarnum. Þýskaland Bikarkeppni, 8-liða úrslit: Leverkusen – Hoffenheim...................... 3:2  Eftir framlengingu.  Sandra María Jessen lék allan tímann með Leverkusen. Danmörk Bröndby – SönderjyskE.......................... 1:0  Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn með Bröndby.  Eggert Gunnþór Jónsson var í leikbanni hjá SönderjyskE og Ísak Óli Ólafsson var ekki í leikmannahópnum. 

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.