Morgunblaðið - 24.06.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
TILBOÐ
Sparaðu 10.000
Verð nú 55.000
www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi
Í JÚNÍ
kr.
kr.
LauraStar Lift Red
Létt og meðfærilegt Straujar – gufar – hreinsar
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Marktæk aukning varð á síðasta ári í
neyslu Íslendinga á gosdrykkjum og
bætti þjóðin Norðurlandametið sem
hún hefur lengi átt. Um 20% fullorð-
inna og barna í 5.-7. bekk drekka
gosdrykki daglega. Sviðsstjóri hjá
embætti landlæknis segir að það sé
áhyggjuefni og hvetur til að efna-
hagslegir hvatar séu notaðir til að
vinna gegn óhollustu.
Landlæknir birti í gær lýðheilsu-
vísa fyrir árið 2020 sem grundvallast
á upplýsingum frá síðasta ári. Það
var gert á kynningarfundi á Selfossi.
Jafnframt voru kynntir heilsuvísar
fyrir einstök heilbrigðisumdæmi þar
sem vakin er athygli á því sem víkur
frá meðaltalinu.
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,
sviðsstjóri lýðheilsusviðs hjá emb-
ætti landlæknis, sagði á fundinum að
Íslendingar væru almennt ham-
ingjusamir en rúmlega 60% lands-
manna telja sig mjög hamingju-
sama. Hlutfall þeirra sem upplifa oft
einmanaleika hefur aukist í sumum
heilbrigðisumdæmum en minnkað í
öðrum. Þannig upplifa tæp 15% íbúa
Austurlands oft einmanaleika sem
er 5 prósentustigum meira en í land-
inu almennt.
Líður ekki vel í skóla
Dóra vekur athygli á því hve háu
hlutfalli nemenda líður ekki vel í
skóla og hve hátt hlutfall drengja
hefur orðið fyrir ofbeldi í skóla. Um
14% nemenda í 5.-7. bekk langar að
hætta í skóla og á Austurlandi er
hlutfallið 21%. Þá hafa tæp 30%
drengja í 5.-7. bekk orðið fyrir of-
beldi í skóla og hlutfallið er enn
hærra á Austurlandi.
Dóra Guðrún gerir gosdrykkja-
neyslu Íslendinga að sérstöku um-
ræðuefni í samtali við Morgunblaðið
ljósi þess að Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunin hefur lagt áherslu á
að minnka neyslu gosdrykkja til að
draga úr ofþyngd og lífsstíls-
tengdum sjúkdómum. Það verði gert
með því að setja álögur á verð gos-
drykkja enda sé það vel þekkt for-
varnaraðgerð til að draga úr aðgengi
að óhollustu. Hér hafi það ekki verið
gert heldur hafi verð á gosdrykkjum
verið lækkað þegar virðisauka-
skattur á matvælum var lækkaður.
Hún segir að það komi fram í auk-
inni gosdrykkjaneyslu. 20% fullorð-
inna og barna í 5.-7 bekk drekka gos
daglega eða oftar. Segir Dóra að það
sé áhyggjuefni að börn venji sig
snemma á gos og þrói þar með óheil-
brigðan lífsstíl því erfitt geti verið að
venja sig af því síðar. Hún biðlar til
stjórnvalda að leiðrétta þau mistök
sem gerð hafi verið með því að
lækka álögur á gosdrykki á sínum
tíma.
Landinn eykur neyslu gosdrykkja
20% fullorðinna og barna í 5.-7. bekk drekka gosdrykki daglega Hvatt til að álögur á gos verði
hækkaðar 60% landsmanna telja sig hamingjusama Margir Austfirðingar segjast einmana
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í stórmarkaði Úrval gosdrykkja í löngum röðum í hillum verslana.
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Allt á milli himins og jarðar var rætt í
eldhúsdagsumræðum á Alþingi í gær-
kvöldi en margar af ræðunum áttu
það sammerkt að hefjast á stuttri til-
vísun til hins erfiða vetrar sem nú er
að baki, þar sem óveður, snjóflóð og
loks kórónuveirufaraldur komu við
sögu. Þrír þingmenn úr flestum
flokkum tóku til máls í þremur um-
ferðum, en úr Miðflokki tóku aðeins
tveir til máls og Andrés Ingi Jónsson
stendur utan flokka. Aðeins einn ráð-
herra flutti ræðu, Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-,
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Í
máli hennar kom fram að það hefði
unnið með Íslendingum að hafa ríkis-
stjórn skipaða flokkum sem endur-
spegluðu breitt svið pólitískrar hug-
myndafræði frá hægri til vinstri. „Það
hefur líka skipt máli við þessar að-
stæður að hafa við stjórnvölinn flokka
sem allir hafa ákveðna kjölfestu og
innri styrk og fara ekki á taugum þó
að gefi á bátinn,“ sagði ráðherra.
Njáll Trausti Friðfinnsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks, tók í sama
streng: „Okkur hefur tekist að klífa
ótrúlegustu fjöll. Þetta er einmitt
styrkur ríkisstjórnarsamstarfsins.
Það þarf lýðræðislegan þroska til að
vinna saman á breiðum grunni og ná
víðtækri sátt en það er trú mín að ein-
mitt þetta hafi reynst kletturinn í haf-
inu þegar það brast á með þeim ólgu-
sjó sem við erum nú í.“
Fólk „kjósi með hjartanu“
Stjórnarandstæðingar litu hins
vegar ríkisstjórnina öðrum augum.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, sagði ríkisstjórn-
ina gæta hagsmuna hinna fáu. „Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur aldrei farið
leynt með það. Framsókn er ánægð
með stöðnun og óbreytt ástand.
Vinstri græn eru íhaldssamur flokkur
en prinsippin virðast ekki þvælast
mikið fyrir þeim flokki enda fórna þau
öllu fyrir þrjá ráðherrastóla. Við þurf-
um því nýja ríkisstjórn sem hugsar
öðruvísi og starfar öðruvísi,“ sagði
Ágúst.
Taldi hann upp þá kosti sem ný
ríkisstjórn þyrfti að hafa og þær
breytingar sem sú stjórn þyrfti að
koma til leiðar. „Þetta er allt saman
hægt en þá þarf fólk að kjósa með
hjartanu, kjósa með velferðinni, kjósa
með frelsinu en ekki aðeins frelsi
markaðarins og hins stóra, heldur
einnig með frelsinu undan fátækt og
vanlíðan.“
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmað-
ur Miðflokksins, gagnrýndi í máli sínu
það sem hann sagði vera innihalds-
rýra blaðamannafundi ríkis-
stjórnarinnar. „Ríkisstjórn Katrínar
Jakobsdóttur boðaði ný vinnubrögð
og öflugra Alþingi en eins og margt af
því sem frá ríkisstjórninni hefur kom-
ið eru umbúðirnar flottar, blaða-
mannafundirnir glæsilegir, frasarnir
úr handbókum almannatengla gríp-
andi en innihaldið mjög lítið,“ sagði
Gunnar Bragi.
Við erum öll ríkissjóður
Efnahagsaðgerðir í kjölfar kórónu-
veirunnar voru einnig ofarlega á
baugi. Málaflokkarnir efnahagur og
sóttvarnir smullu saman í eftirminni-
legri endurnýjun Willums Þórs Will-
umssonar, þingmanns Framsóknar-
flokks og formanns fjárlaganefndar, á
einu af slagorðum sóttvarnaryfir-
valda í faraldrinum: „Sannarlega
erum við öll ríkissjóður.“
Þórdís Kolbrún vék einnig að efna-
hagnum og þeirri niðursveiflu sem
fylgdi heimsfaraldrinum. Sagði hún
að einstaklingsframtakið yrði að vera
leiðarljósið út úr komandi þrenging-
um. „Ekkert er betur til þess fallið að
auka tekjur þjóðarbúsins en athafna-
frelsi; frjálst einstaklingsframtak. Ör-
yggi, menntun og heilbrigði eru dæmi
um verðmæti sem við erum flest sam-
mála um að ríkið eigi að taka þátt í að
tryggja okkur. En þegar kemur að
tekjuöflun stenst enginn athafnafrelsi
og einstaklingsframtaki snúning.
Frelsi og framtak eru orkan sem knýr
gangverk tekjuöflunar þjóðarbúsins,“
sagði Þórdís.
Oddný Harðardóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, sagðist hins veg-
ar ósammála ríkisstjórninni um efna-
hagsaðgerðir. „Við viljum til dæmis
leggja meiri áherslu á að verja efna-
hag heimila fólks sem misst hefur
vinnuna, á hag barna og þeirra sem
standa veikir fyrir. Við viljum að bæði
heimili og fyrirtæki njóti stuðnings
ríkisins til að komast yfir erfiða
stöðu,“ sagði Oddný og vísaði einnig
til þess að Samfylkingin hefði talað
fyrir strangari skilyrðum fyrir ríkis-
aðstoð vegna veirunnar, svo sem
gagnvart fyrirtækjum sem notast
hefðu við skattaskjól.
Ný stjórnarskrá rædd
Þingmenn Viðreisnar, Pírata og
Samfylkingar gerðu sjávarútveginn
og stjórnarskrármál einnig að um-
talsefni. „Auðlindaákvæði í stjórnar-
skrá sem heldur er okkur nauðsyn og
það er skömm að því hvernig stjórn-
völd hafa hunsað tillögur stjórnlagar-
áðs að nýrri stjórnarskrá og þjóðar-
atkvæðagreiðsluna sem fram fór um
að leggja þær til grundvallar,“ sagði
Oddný Harðardóttir.
Hanna Katrín Friðriksson, þing-
maður Viðreisnar, sagði að ríkis-
stjórnin hefði varið sérhagsmuni á
þinginu. „Ríkisstjórnarflokkarnir
þrír verjast til dæmis fimlega þeirri
sjálfsögðu kröfu að veiðiréttur sé ekki
afhentur varanlega heldur með tíma-
bundnum samningum. Og það undir-
strikað þannig í stjórnarskrá að
sjávarauðlindin er eign íslenskrar
þjóðar,“ sagði hún.
24 ræður úr átta flokkum Erfiður vetur gerður upp „Sannarlega erum við öll ríkissjóður“
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Kreppa Þórdís Kolbrún ráðherra sagði einstaklingsframtakið þurfa að vera leiðarljósið framundan.Efnahagsaðgerðir Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingar gagnrýndi ríkisstjórnina.
Eldhúsdagur eftir heimsfaraldur