Morgunblaðið - 24.06.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.06.2020, Blaðsíða 28
Hljómsveitin Árstíðir snýr í kvöld aftur og heldur tón- leika kl. 20 á hinum kunna tónleikastað Café Rosen- berg, sem er kominn á nýjan stað á Vesturgötu 3 en hann var síðast til húsa á Klapparstíg 27. Saga Árstíða og Rosenberg hefur verið samofin allt frá árinu 2008 þegar sveitin steig þar sín fyrstu skref og hún hélt áfram að koma þar reglulega fram þangað til staðnum var lokað við Klapparstíg árið 2017. Í kvöld ætla Árs- tíðamenn að líta um öxl og halda tríótónleika eins og þeir gerðu í upphafi, er þrír félagar voru í sveitinni. Árstíðir troða að nýju upp á Café Rosenberg en nú á nýjum stað Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Reynir Pétur Steinunnarson gekk hringveginn fyrstur manna, fór um 1.400 km á einum mánuði fyrir 35 árum. Hann kom til baka á Sólheima 25. júní 1985 og á morgun, 25. júní, kemur hann heim eftir að hafa ekið hringveginn með Ingólfi Stefánssyni, eiganda safaris.is og starfsmanni í hlutastarfi á Sólheimum, á einni viku. „Ferðin hefur verið mjög skemmti- leg og ég er sérstaklega þakklátur fyrir hana enda hef ég ekki farið hringveginn síðan ég gekk hann,“ segir Reynir Pétur. Þeir hafi farið af leið og ekið um botnlanga til þess að sjá meira en á göngunni um árið. „Það er gaman að sjá landið aftur og þess vegna tók ég boðinu þegar Ingó land- könnuður bauð mér í ferðina. En eins og þú veist sérðu alltaf meira þegar þú ert á gangi heldur en í bíl. Samt er gaman að fara aftur um slóðirnar sem ég gekk á sínum tíma, þótt margt hafi breyst, meira malbikað og svona. Þetta vermir innstu tilfinningar mín- ar og ég hef tekið margar myndir.“ Ferðalangarnir fengu lánaðan Jagúar-rafmagnsbíl hjá BL til far- arinnar. „Þetta er mjúkur og fínn bíll og það er ekki amalegt að vera far- þegi á ferð um landið og upplifa for- tíðina. Það er svakalega kitlandi en um leið finn ég til söknuðar. Upplif- unin er sérstök.“ Greip boltann aftur Þegar Reynir Pétur gekk hring- veginn safnaði hann áheitum til bygg- ingar íþróttahúss á Sólheimum. „Á föstudegi í desember 1984 vorum við þrír í heita pottinum og þá var ég fyrst spurður hvort ég vildi ekki ganga hringinn næsta vor. Þeir mess- uðu yfir mér, sögðu að ég yrði þjóð- þekktur bla, bla, bla, yrði fyrstur til að ganga þjóðveginn bla, bla bla, og ég spurði hvort ég mætti hugsa málið. Á laugardeginum gekk ég Sólheima- hringinn og hugsaði að það kæmi að því að einhver yrði fyrstur til að ganga hringinn á þjóðvegi númer eitt. Það skyldi þó ekki verða ég, hugsaði ég með mér. Þá kom spurningin hvers vegna. Aðalatriðið var að vera fyrstur til að ganga hringinn. Í annað sætið setti ég að sjá landið mitt, í þriðja sæti að vekja athygli á stöðu fatlaðra og peningahliðin var í fjórða sæti. Ég greip boltann þá og aftur núna. Tilgangurinn nú átti að vera fjáröflun, en hann breyttist í heiðurs- ferð.“ Félagarnir gisti á Siglufirði í fyrri- nótt. Þar og í nágrenninu hefur verið jarðskjálftahrina en Reynir Pétur segist ekki hafa orðið var við stóra skjálfta. „Ef styrkurinn fer úr fjórum í fimm er það 30-földun og fari hann í sex er það aftur 30-földun eða 900- földun úr fjórum í sex. Það er mikill munur, en ég hef ekki fundið fyrir neinu.“ Reynir Pétur hefur hitt margt fólk á leiðinni og suma hefur hann sæmt gullnælum frá Sólheimum. „Ég hef hitt yndislegt fólk og fært því nælu sem þökk fyrir vingjarnleikann, en gallinn er sá að ég tók ekki nógu mörg merki með mér. Ég hef hitt fleiri en ég átti von á.“ Eftir heimkomuna á morgun ætlar Reynir Pétur að slappa af. „Við kom- um væntanlega heim um þrjúleytið, ég læt daginn rúlla og kannski fæ ég mér kaffi inni á Grænó, en ég hugsa að ég fari niður á stöð, þar sem ég vinn, á föstudag.“ Heiðursferð á hringvegi Í Ystafelli Sverrir Ingólfsson í Samgönguminjasafninu fær gullnælu.  Reynir Pétur göngugarpur á fornum slóðum í rafmagnsbíl Á Stöðvarfirði Þórkatla Jónsdóttir bauð Ingólfi Stefánssyni og Reyni Pétri Steinunnarsyni upp á kaffi í Steinasafni Petru. Það var vel þegið. Á hringveginum Áður fór Reynir Pétur gangandi, nú í rafmagnsbíl. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 176. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Stefán Númi Stefánsson hefur vakið athygli fyrir takta á ruðningsvellinum í Danmörku og á Spáni síðustu tvö ár. Var hann eftirsóttur af liðum í Evrópu, m.a. í efstu deild Þýskalands, þeirri sterkustu í Evrópu. Þá er NFL-deildin í Bandaríkjunum byrjuð að fylgj- ast með Íslendingnum sem lék körfubolta með Hetti á Egils- stöðum áður en leiðin lá út til Danmerkur. Stefán ætl- ar sér alla leið íþrótt- inni og er draumurinn að leika í NFL- deildinni í Bandaríkj- unum, þeirri sterk- ustu í heiminum. Stefán ræddi fer- ilinn til þessa við Morgunblaðið. »23 Ætlar sér alla leið í ruðningnum eftir góða byrjun á atvinnuferlinum ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.