Morgunblaðið - 24.06.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020
Fornleifauppgreftrinum sem staðið
hefur síðustu vikur í Ólafsdal lýkur í
dag en þráðurinn verður tekinn upp
að nýju næsta sumar. Að sögn Birnu
Lárusdóttur fornleifafræðings er
byggingin, sem uppgötvaðist óvænt
við fornleifaskráningu sumarið 2017
og hefur síðan verið grafin upp, ansi
flókin. Elstu rústirnar hafa verið ald-
ursgreindar til 9. eða 10. aldar, þ.e.
frá landnámstíma, en svo virðist sem
staðurinn hafi síðan verið yfirgefinn
sem heilsársbústaður en notaður
áfram árstíðabundið fyrir einhverja
atvinnustarfsemi.
„Á eldri stigum eru meira sannfær-
andi merki um heilsársbúsetu, þéttari
gólflög og langeldur, sem reyndar
hefur verið grafinn burt að hluta við
seinni tíma bras,“ segir Birna. Yngri
notkunarskeið hússins virðist ekki til
marks um heilsársbúsetu, fremur
árstíðabundna notkun. Óvíst sé hvort
það er eitthvað í ætt við sel eða frem-
ur að fólk sé að brasa eitthvað annað
líka, svo sem við framleiðslu, sem
stórar leirfóðraðar skálar, sem komið
hafa í ljós, gætu verið til marks um.
„Svo erum við búin að vera að bora
í aðrar rústir í kring og þar eru mjög
áhugaverðar niðurstöður. Það og ný-
fundna byggingin fast vestan við
skálann kalla á frekari rannsóknir og
geta áreiðanlega hjálpað okkur að
skilja staðinn betur,“ segir hún. Ýms-
ir lausamunir hafa fundist á staðnum
í sumar eins og fyrri sumur upp-
graftarins, 2018 og 2019, þar á meðal
snældusnúðar, kljásteinar og skraut-
munir eins og perlur sem gætu verið
komnar langt að. gudmundur@mbl.is
Flóknar rústir
í Ólafsdal
Fornleifauppgreftri að ljúka í bili
Ljósmynd/Fornleifastofnun Íslands
Ólafsdalur Loftmynd af rústunum. A) Nýtt íveruhús sem fannst í sumar, sambyggt skálanum. B) Langeldur undir
yngri eldstæðum, hefur verið allt að 4 m langur. C) Tvær hringlaga gryfjur, báðar fóðraðar að innan með þykku
lagi af bláleitum jökulleir sem finnst í jarðlögum á svæðinu. Hlutverk gryfjanna er óþekkt en leirinn bendir til að
þær hafi átt að halda vökva. D) L-laga veggur hefur verið reistur í krika milli bygginga suðvestast á svæðinu og til-
heyrir hann yngsta byggingarskeiði skálans.
Ljósmynd/Fornleifastofnun Íslands
Glerperla Fannst í Ólafsdal í sumar.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur
samþykkt fyrir sitt leyti að auglýsa
breytingar á aðalskipulagi í þágu
tveggja vindorkuvera í sveitar-
félaginu. Jafnframt er sveitarfélagið
að undirbúa viðhorfskönnun meðal
íbúa um nýtingu vindorku til raf-
orkuframleiðslu í sveitarfélaginu.
Breyta þarf skipulagi
Unnið er að undirbúningi tveggja
vindorkuvera í Dalabyggð, annars
vegar á Hróðnýjarstöðum við
Hvammsförð og hins vegar í Sól-
heimum í Laxárdal. Til þess að hægt
sé að halda áfram með verkefnin
þarf að taka spildur úr jörðunum úr
landbúnaðarnotum og gera að iðn-
aðarlóðum. Unnið hefur verið að því
lengi í samvinnu við sveitarfélagið.
Sveitarstjórn Dalabyggðar sam-
þykkti í fyrradag að auglýsa fyrir-
hugaða aðalskipulagsbreytingu.
Eyjólfur Ingvi Bjarnason, oddviti
Dalabyggðar, segir að málið hafi
verið unnið samkvæmt lögum og fari
nú til Skipulagsstofnunar sem
ákveði hvort tillagan verði auglýst.
Verði það gert fá allir tækifæri í sex
vikur til að skila inn umsögnum.
Sveitarfélagið verði að skoða allar
athugasemdir og svara þeim og síð-
an verði tillaga um breytingu send
til endanlegrar staðfestingar Skipu-
lagsstofnunar ásamt öllum gögnum.
Margt er eftir
Margt er eftir þótt skipulags-
breyting verði að veruleika, áður en
hægt verður að hefjast handa við
uppbyggingu vindorkuvera. Eyjólf-
ur bendir á að gera þurfi umhverfis-
mat og umhverfisráðherra telji að
öll vindorkuver eigi að fara til mats
hjá verkefnisstjórn um ramma-
áætlun. Vindorkuverkefnið í Sól-
heimum var tilkynnt þangað en þeir
sem standa að verinu á Hróðnýjar-
stöðum telja að lög standi ekki til
þess að verkefnisstjórnin fjalli um
verkefnið.
„Við ætlum að láta vinna könnun á
viðhorfi íbúanna og munum hafa
niðurstöðurnar að leiðarljósi við
endanlega afgreiðslu á breytingum á
aðalskipulagi,“ segir Eyjólfur um
framhaldið og bætir því við að einnig
sé mögulegt að vísa skipulagsbreyt-
ingunni í íbúakosningu.
Næstu nágrannar vindorkuvers-
ins á Hróðnýjarstöðum eru andvígir
framkvæmdinni og hafa haft sig
mikið í frammi. Eyjólfur Ingvi segist
hafa skilning á því. Hann leggur
áherslu á að sveitarfélagið vinni eftir
þeim lögum sem í gildi eru en bendir
jafnframt á að löggjafinn hafi ekki
gert það upp við sig hvernig skuli
skipuleggja nýtingu vindorkunnar.
Fjárhæðir sem munar um
Spurður um hag sveitarfélagsins
af uppbyggingu vindorku í Dölum
segir Eyjólfur að deilt sé um það
hversu mörg störf verði til á rekstr-
artíma vindorkuveranna en fyrir
liggi að störf muni skapast á upp-
byggingatíma. Þá muni verða greidd
fasteignagjöld af mannvirkjunum, ef
þau komast upp, og það sé fjárhæð
sem munar um.
Morgunblaðið/Arnaldur
Í Búðardal Annað vindorkuverið á að vera ofan við strönd Hvammsfjarðar, innan við Búðardal.
Kanna viðhorf íbúa
til nýtingar vindorku
Sveitarstjórn Dalabyggðar gefur grænt ljós á skipulag
Tónleikar – Fríkirkjan í Reykjavík
Fimmtudaginn 25. júní kl. 20
Fimmtudaginn 25. júní kl. 20 fagnar Sönghópurinn við Tjörnina
sumri og sól ásamt hljómsveitinni Möntru.
Flutt verður fjölbreytt tónlist eftir KK, Pétur Ben, Egil Ólafsson, Sigurð
Flosason og Tómas R. Einarsson við ljóð Aðalsteins Ásberg,
Halldórs Laxness og Vilborgar Dagbjartsdóttur.
Aðgangur ókeypis.
Greint var frá því í gær að einn hefði
reynst smitaður af kórónuveirunni,
en það tilfelli greindist við skimun
farþega sem komu til landsins í
fyrradag.
Alls hafa nú verið tekin 6.335 sýni
úr farþegum á leið til landsins, þar af
843 í fyrradag. Þá voru tíu sýni tekin
hjá Íslenskri erfðagreiningu og 34 á
sýkla- og veirufræðideild Landspít-
ala í fyrradag en ekkert þeirra
reyndist jákvætt.
Af þeim 6.335 sýnum sem hafa
verið tekin af farþegum við komu til
landsins hafa tólf reynst jákvæð.
Níu þeirra reyndust gömul, óvirk
smit og þurftu þeir sem greindust
því ekki að fara í sóttkví. Ekki liggur
hins vegar fyrir hvort sá sem greind-
ist í fyrradag er með virkt eða óvirkt
smit.
Eitt smit greindist
hjá komufarþega
Níu af tólf smitum hafa reynst óvirk
Morgunblaðið/Íris
Skimunin Eitt nýtt smit greindist
í fyrradag á Keflavíkurflugvelli.