Morgunblaðið - 24.06.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020
Páll V. skrifar: Veðurfar og lofts-lag eru flókin fyrirbæri.
Veðurspár gildaekki nema 5-7
daga fram í tímann.
Ef breytingar áloftslagi væru
einfaldar og skiljan-
legar væri hægt að
gera veðurspár til
vikna, mánaða og
ára. En það er ekki
hægt.
Heiðarlegir lofts-lagsvísindamenn, t.d. Judith
Curry, benda á að veðurkerfi eru
ósmættanleg, stærri en summa ein-
inganna sem þau eru gerð úr.
Þegar kerfi einkennist af óreiðuer ekki vinnandi vegur að spá
fyrir um hegðun þess. Annars væri
engin óreiða.
Loftslagsglópar reyna að teljaokkur trú um að ein eining,
koltvísýringur, stjórni ferðinni í
loftslagi jarðkringlunnar.
Það er trú, en ekki vísindi.
Katrín forsætis segir „útreikn-ingar sérfræðinga“ sýna fram
á árangur stjórnvalda í loftslags-
málum.
Útreikningarnir gætu komið úrhvaða deild Háskóla Íslands
sem er, t.d. deild kynjafræði, guð-
fræði eða raunvísinda, en yrðu allt-
af jafn marklausir um áhrif Íslend-
inga á loftslagsbreytingar.“
Mikil er trú þín, segir Páll.
Horft til veðurs
STAKSTEINAR
Páll
Vilhjálmsson
Katrín
Jakobsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Garðabær og Íslenskir aðalverktakar
(ÍAV) hafa gert með sér samkomulag
um úrlausn ágreinings og gerðar-
dómsmeðferð vegna fjölnota íþrótta-
húss sem er í byggingu í Vetrarmýri í
Garðabæ.
Bæjarráð Garðabæjar samþykkti
samkomulagið með fjórum atkvæð-
um gegn einu á fundi sínum í gær.
Undanfarna mánuði hafa verið við-
ræður og sáttaferli milli aðila til að
reyna að leysa úr ágreiningi sem hef-
ur verið uppi um kostnað við grundun
hússins, segir í tilkynningu.
Í samkomulaginu er gert ráð fyrir
að aðilar leggi fram 60 milljónir kr.
hvor, óháð því hvaða niðurstaða fæst í
gerðardómi. Með samkomulaginu er
gert ráð fyrir að undirbúningur að
grundun hússins haldi áfram og að
niðurrekstur staura verði hafinn eftir
6-10 vikur, eða eins fljótt og unnt er.
Ágreiningur um viðbótarkostnað fer
fyrir gerðardóm þar sem fjallað verð-
ur um ábyrgð á viðbótarkröfu verk-
taka sem nemur um 228 milljónum.
Gert er ráð fyrir að þegar búið
verði að skipa gerðardóm liggi niður-
staða fyrir um úrlausn málsins síðar í
haust. Í samkomulaginu er einnig
kveðið á um að framlengja verktíma
fram í desember 2021 án tafarbóta en
upphaflega stóð til að ljúka verkinu í
apríl 2021.
Leysa ágreining um fjölnota íþróttahús
Garðabær og Íslenskir aðalverktak-
ar gera samkomulag um Vetrarmýrina
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Garðabær Frá upphafi fram-
kvæmda við íþróttahúsið.
Félagsdómur kvað í gær upp þann úr-
skurð að kjarasamningur Félags ís-
lenskra náttúrufræðinga og samn-
inganefndar ríkisins sem undir-
ritaður var 2. apríl síðastliðinn hefði
verið samþykktur í atkvæðagreiðslu
meðal náttúrufræðinga.
51,2% sögðu nei og 48,8% já
Félag íslenskra náttúrufræðinga
(FÍN) túlkaði niðurstöður atkvæða-
greiðslunnar svo að samningurinn við
ríkið hefði verið felldur, en 51,2%
sögðu nei, 48,8% sögðu já og 21 skilaði
auðu.
Samninganefnd ríkisins hélt því
hins vegar fram að náttúrufræðingar
hafi í reynd samþykkt samninginn.
Þegar hlutfall þeirra er kusu gegn
samþykkt kjarasamningsins væri
vegið á móti heildarfjölda greiddra at-
kvæða hefði það einungis verið 49,3%
og því ekki náð því hlutfalli sem til-
skilið er í 3. mgr. 5. gr. laga nr. 80/
1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.
Samkomulagið telst skuldbind-
andi frá 2. apríl 2020
Ágreiningi ríkisins og FÍN um
hvort samningurinn var samþykktur
eða felldur var vísað til Félagsdóms.
Félagsdómur hefur enn ekki birt
niðurstöðu dómsins en í umfjöllun
FÍN um hana á vefsíðu félagsins í
gær er vitnað orðrétt í úrskurðarorð-
ið þar sem segir: „Viðurkennt er að
samkomulag fjármála- og efnahags-
ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og
stefnda, Félags íslenskra náttúru-
fræðinga, um breytingar og fram-
lengingu á kjarasamningi aðila, sem
undirritað var 2. apríl 2020, var sam-
þykkt í allsherjaratkvæðagreiðslu
meðal félagsmanna stefnda, sem laun
þann 17. apríl sama ár, telst því skuld-
bindandi frá undirritunardegi, 2. apríl
2020.“
Úrskurða að FÍN
felldi ekki samning
Leyst úr deilu um úrslit kosninga
Ágreiningur
» Þann 2. apríl greindi Félags
íslenskra náttúrufræðinga frá
því að nýgerður samningur við
ríkið hefði verið felldur í at-
kvæðagreiðslu.
» Fjármálaráðuneytið tilkynnti
FÍN að það teldi að samning-
urinn hefði verið samþykktur
skv. reglum vinnulöggjafar-
innar.
» Í maí stefndi ríkið félaginu
fyrir Félagsdóm.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |eirvik.is | Opið virka daga10-18
– 3 tæki í einu og mögulegt að breyta samsetningu ryksugu eftir þörfum
– Allt að 60 til120 mínútna samfelldur gangtími
– Breiður ryksuguhaus sem hentar fyrir allar gerðir gólfefna
Skaftryksuga frá Miele með Li-ion rafhlöðu