Morgunblaðið - 24.06.2020, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það er dapur-legt að horfaupp á múg-
æsingarmenn í
Bandaríkjunum
taka yfir sjálf-
sprottin mótmæli,
sem brýnt er að verja með öllum
ráðum, enda þau hluti af tján-
ingarfrelsi almennings sem var-
ið er í stjórnarskrám flestra
ríkja. Þær gefa þó enga vís-
bendingu um að hluti af tjáning-
unni sé réttur til að brenna
eignir annarra til grunna og enn
síður að limlesta og drepa lög-
gæslumenn sem sendir eru á
vettvang til að hemja skemmd-
arverk.
Samtökin „Black Lives
Matter“ létu töluvert til sín taka
í forsetakosningunum vestra
haustið 2016. Og það var athygl-
isvert að þá beittu þau sér ekki
síst gegn frambjóðendum demó-
krata og vildu knýja þá með illu
undir sín merki. Framan af
reyndu ýmsir þessara frambjóð-
enda að segja hið augljósa að
„öll mannslíf“ skiptu máli, enda
hafa þeir sjálfsagt talið að þessi
samtök vildu knýja á um jafn-
rétti í þessum efnum sem öðr-
um. En engin viðbrögð önnur
fengu eins logandi haturs-
viðbrögð og þau að vitna til þess
að öll mannslíf skiptu máli. Létu
frambjóðendur demókrata slíkt
út úr sér var framboðsfundum
þeirra hleypt upp með ógnvekj-
andi yfirgangi og hávaða. For-
ystumenn demókrata hafa því
lyppast niður fyrir ógninni og
krjúpa nú opinberlega á annað
kné að kröfu samtakanna.
En ein skrítnasta
birtingarmyndin er
að risafyrirtæki á
borð við Amazon og
önnur lítið minni
hafa tekið þann
kost að dæla
óstjórnlegum fjárhæðum til
þessara samtaka, sem þó hafa
sýnt að kunna sér ekki hóf.
Samkvæmt fréttum hefur Black
Lives Matter fengið sem svarar
til þriggja milljarða íslenskra
króna frá Amazon og önnur
risafyrirtæki hafa ekki heldur
skorið fjárhæðir sínar við trog.
Það er sjálfsagt tilviljun að
skemmdarverkum hefur ekki
verið beitt gegn þessum fyrir-
tækjum.
Eigendur miðlungsstórra og
smárra fyrirtækja, sem varið
hafa lífi sínu í að byggja þau
upp, hafa sumir nú tapað því eða
heilsu sinni við að reyna að
verja þau, þegar þúsundir slíkra
hafa verið rændar og ruplaðar,
brotnar og skemmdar og ótrú-
lega oft brenndar til grunna.
Um leið og „málfrelsi“ þeirra
sem farið hafa þannig út fyrir öll
mörk þess er varið er málfrelsi
annarra í sinni einföldustu
mynd snúið niður þegar bent er
á hvar mannslíf bandarískra
blökkumanna eru í langmestri
hættu, svo að engan samanburð
stenst við neitt.
Hver maður sem eitthvað veit
og sér getur ekki verið í neinum
vafa um að verði löggæslan löm-
uð sjúkraliði lokaður aðgangur
munu engir fara verr frá þeirri
uppgjöf fyrir ofbeldinu en þeir
sem menn þykjast vera að verja.
Í öllum ofsanum
og tryllingnum
er erfitt að hugsa
mál til enda}
Ekki allt sem sýnist
Einn af kostumþess að fram-
leiða ál á Íslandi
umfram flesta
aðra staði á hnett-
inum er að hrein
orka er notuð til að knýja
framleiðsluna.
Nú er talið að útblástur
koltvírýsings á hvert tonn á
áli í heiminum nemi um 11,5
tonnum. Það er til mikils að
vinna að draga úr þeirri los-
un. Í fyrradag var ný íslensk
tækni í álframleiðslu kynnt í
Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Að baki þessari nýjung stend-
ur fyrirtækið Arctus Metals.
Gefur aðferðin vonir um að
draga megi alfarið úr koltví-
sýringsmengun við fram-
leiðslu áls. Álver myndu þess
í stað framleiða súrefni.
„Íslensk álver gefa frá sér
um 1,6 milljónir tonna af
koltvísýringi á ári,“ sagði Jón
Hjaltalín Magnússon, for-
stjóri Arctus Metals, við
mbl.is í fyrradag. „Ef öll ál-
verin okkar tækju upp þessa
nýju tækni myndum við
minnka losun
koltvísýrings á Ís-
landi um 30% og
uppfylla þannig
alþjóðlegar skuld-
bindingar okkar
og gott betur en það.“
Arctus Metals hefur gert
samkomulag við þýska fyrir-
tækið Trimet Aluminum um
þessa nýju tækni. Sagði Jón
Hjaltalín að fyrirtækið myndi
setja upp tilraunaker í einu af
sínum álverum í Þýskalandi
með það fyrir augum að
breyta yfir í þessa umhverfis-
vænu framleiðslu í öllum sín-
um álverum.
Það segir sína sögu að
fyrirtæki, sem rekur þrjú ál-
ver, skuli vera reiðubúið að
veðja á nýja tækni með þess-
um hætti. Það myndi ger-
breyta forsendum álfram-
leiðslu standi þessi tækni
undir væntingum. Þá kæmi
upp sú kynduga staða að ál-
framleiðsla á Íslandi myndi
vega upp á móti losun koltví-
sýrings á öðrum sviðum þjóð-
lífsins.
Losun koltvísýrings
við framleiðslu áls
yrði engin}
Ný tækni vekur vonir
V
ið í Samfylkingunni höfum lagst á
árarnar með stjórnvöldum í við-
brögðum við Covid-19-áfallinu.
Úrræðin hafa verið fjölmörg og
höfum við gert allt okkar til að
betrumbæta mál og flýta ferli þeirra eins og
frekast er unnt. En lagasetning ein og sér
dugar ekki þegar stjórnvöld klára ekki þá
vinnu sem þarf að fara í eftir lagasetningu. Nú
berast þær fregnir að fyrirtæki í vanda hafi
enn ekki fengið afgreidd nein brúarlán né hef-
ur verið opnað fyrir umsóknir um stuðnings-
lán, en hvort tveggja var samþykkt frá Al-
þingi fyrir vikum og mánuðum síðan.
Stuðningslán eru almenn aðgerð sem ætlað
er að koma minni rekstraraðilum til aðstoðar
sem hafa orðið fyrir drjúgu tekjufalli samhliða
breyttum aðstæðum í efnahagslífinu. Brúar-
lánin, sem kynnt voru fyrir fjórum mánuðum, eru svo úr-
ræði sem eru frekar fyrir stærri fyrirtæki og er þeim
ætlað að sporna gegn rekstrarvanda fyrirtækja með því
að gera bönkum kleift að veita fyrirtækjum lán með allt
að 70 prósenta ríkisábyrgð. Þetta voru aðgerðir sem rík-
isstjórnin kynnti með mörgum glærupökkum sem einar
af stærstu aðgerðunum til að koma til móts við fyrirtæki
í landinu. Það er því óboðlegt að það hafi tekið þennan
óratíma að semja og útfæra þessar aðgerðir meðan fyrir-
tækin bíða og bíða. Á mun skemmri tíma hefur ná-
grannalöndum okkar, með stærri vanda og fleiri fyrir-
tæki, tekist að afgreiða lán með ríkisábyrgðum og
styrkjum. Íslensk stjórnvöld verða að koma
þessum úrræðum, sem lofað var, í gagnið
strax. Fyrirtæki af öllum stærðum og gerð-
um bíða og má þessi hægagangur stjórnvalda
ekki leiða til þess að færri geti tekið við þess-
um bjargráðum og fari í gjaldþrot. Þessi litlu
og meðalstóru fyrirtæki eru hryggjarstykkið
í verðmætasköpun í landinu og stuðningur
við þau er forsenda aukinnar fjölbreytni í at-
vinnulífinu. Þetta eru oft fjölskyldufyrirtæki í
ferðaþjónustu eða í veitingageiranum sem nú
eru látin bíða eftir úrræði sem kynnt var fyrir
mánuðum síðan. Í niðursveiflum og kreppum
í hagkerfinu er mikilvægt að styðja vel og
fljótt við þessi fyrirtæki til þess að koma í veg
fyrir of mikla samþjöppun í atvinnulífinu,
fjöldagjaldþrot og atvinnuleysi. En þá þarf að
koma þessu af stað.
Mikilvægi brúarlána sést í orðum Ásgeirs Jónssonar
seðlabankastjóra sem sagði að lánin ættu „að gefa þjóð-
arskútunni einhvern byr í seglin á komandi misserum“.
Fjögurra mánaða bið er bara of mikil og óásættanleg í
ekki stærra hagkerfi. Margar aðgerðir ríkisstjórnar-
innar hafa heppnast vel líkt og hlutabótaleiðin sem við í
velferðarnefnd unnum og betrumbættum. Núna ríður á
að ríkisstjórnin klári það verk sem við á Alþingi höfum
afgreitt í þágu fyrirtækja og almennings en tefji ekki
fyrir á lokametrunum.
Helga Vala
Helgadóttir
Pistill
Úrræðin verða að virka
Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. helgavala@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Starfshópur um aðgerðirgegn matarsóun hefur skil-að skýrslu og tillögum sín-um til Guðmundar Inga
Guðbrandssonar, umhverfis- og auð-
lindaráðherra. Í skýrslu starfshóps-
ins eru meðal annars sett fram
markmið um að draga úr matarsóun
hér á landi um 50% fyrir árið 2030.
Ein af þeim tillögum sem
starfshópurinn leggur til er að útbú-
inn verði matarvagn sem keyrir milli
hverfa og selji mat sem gerður sé úr
matvælum sem annars yrði sóað.
Horft er til fyrirmyndar ísbílsins
sem flestir landsmenn þekkja af
heimsóknum hans á sumrin. Um-
ræddur matarvagn eigi að selja sam-
lokur, súpur og djús; hollan og góð-
an mat á viðráðanlegu verði. „Boðið
verði upp á að þeir sem ekki geti
greitt fyrir matinn fái hann ókeypis.
Bíllinn þarf að vera flottur og byggt
verði upp vörumerki sem allir vilja
versla við. Fjöldi fyrirmynda er til í
heiminum og er menning fyrir mat-
arvögnum á Íslandi,“ segir í skýrsl-
unni.
Þörf á samstilltu átaki
Í skýrslu starfshópsins er
áhersla lögð á að til að ná árangri í
að draga úr matarsóun þurfi sam-
stillt átak atvinnulífsins, almennings
og stjórnvalda, enda geti matarsóun
orðið hvenær sem er í ferlinu frá
ræktun til framleiðslu og neyslu.
Stjórnvöldum er uppálagt að auka
stuðning við nýsköpun, standa fyrir
átaki í menntun og fræðslu um mat-
arsóun, innleiða hagræna hvata til
að sporna við matarsóun, endur-
skoða regluverk og standa fyrir ár-
legum mælingum á umfangi mat-
arsóunar. Fyrirtæki setji á sama
tíma frumkvæði að aðgerðum innan
sinna vébanda, stuðli að upplýs-
ingaskiptum, fræðslu og hvatningu.
Alls eru tillögur starfshópsins
24 talsins. Annars vegar fjórtán að-
gerðir sem stjórnvöld bera ábyrgð á
að komist til framkvæmdar og hins
vegar tíu aðgerðir á ábyrgð atvinnu-
lífsins. Auk tillagna um að sett verði
markmið um að draga úr hvers kyns
matarsóun um 50% fyrir árið 2030 er
lagt til að setja markmið um 30%
samdrátt fyrir árið 2025.
Meðal annarra aðgerða sem
lagt er til að ráðist verði í er að hald-
ið verði á miðlægan hátt utan um
gögn og upplýsingar og þeim miðlað
til almennings, kennsla um mat-
arsóun verði aukin sem og fræðsla
fyrir almenning. Þá er lagt til að
matargjafir verði auknar og þær
gerðar meira aðlaðandi fyrir fyrir-
tæki. Umbunað verði fyrir matar-
gjafir. Auka á nýsköpun í mála-
flokknum og innleiða hagræna hvata
sem dragi úr matarsóun. Þá verði
stóreldhús undanþegin kröfu um
birtingu innihaldslýsingar og nær-
ingaryfirlýsingu svo þau geti nýtt að
fullu það hráefni sem til er hverju
sinni.
Matarsmiðjur um allt land
„Lagt er til að settir verði upp
matvælakjarnar (matarsmiðjur) á
nokkrum stöðum á landinu en það
eru vottuð vinnslurými sem frum-
kvöðlar og smærri aðilar geta leigt
aðstöðu í til að framleiða og þróa
vörur. Matvælafulltrúi er starfs-
maður sem heldur utan um starf-
semina auk þess að halda utan um
hver framleiðir hvað á viðkomandi
landsvæði. Horft er til góðrar
reynslu af sambærilegri aðstöðu
hjá Matís en þó með þeim mögu-
leika að fyrirtæki gætu
haldið áfram framleiðslu
þótt þau væru komin af
vöruþróunarstiginu,“
segir í skýrslunni.
Vilja matarvagn að
fyrirmynd ísbílsins
Ein af tillögum starfshópsins
lýtur að því að komið verði á
laggirnar matarbanka, miðstöð
sem auðveldi dreifingu á mat
frá matvælaiðnaðinum til
stofnana og annarra aðila sem
styðja við þá sem á matnum
þurfa að halda. Ábyrgð á þessu
verkefni er á höndum Rakelar
Garðarsdóttur og Vakandi.
„Matarbankinn tekur á móti
mat frá matvælaiðnaðinum
sem af ólíkum ástæðum selst
ekki en er öruggt að neyta. Í
matarbankanum er maturinn
flokkaður og sóttur af
þeirri stofnun eða
samtökum sem þurfa
á honum að halda.
Stofnunin eðasamtökin
koma matnum til þeirra
sem þurfa á honum að
halda. Fjöldi fyr-
irmynda að svona
fyrirkomulagi er
til í heiminum,
t.d. í Noregi.“
Vilja stofna
matarbanka
HORFT TIL NORÐMANNA
Rakel
Garðarsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sorp Talið er að hver landsmaður hendi um 25 kílóum af nýtanlegum mat-
vælum á hverju ári. Stefnt er að því að minnka matarsóun hér um 50%.