Morgunblaðið - 24.06.2020, Page 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020
Nauðungarsala
Lausafjáruppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Uppboð mun byrja á Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi á
eftirfarandi eignum, sem hér segir:
Renault, Megane, Árgerð 2006, fnr. MR945 , þingl. eig. Gallerí AMA
ehf., gerðarbeiðandi Strikamerki - Gagnastýring hf., fimmtudaginn
2. júlí nk. kl. 13:00.
Toyota, Avensis, Árgerð 2007, fnr. VD802 , þingl. eig. Guðjón Ingi Sig-
urðsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves, fimmtu-
daginn 2. júlí nk. kl. 13:00.
Ford, Focus, Árgerð 2005, fnr. RD015 , þingl. eig. Ingvar Lúðvík
Guðbjörnsson, gerðarbeiðandi Bílastæðasjóður Reykjavíkurborg,
fimmtudaginn 2. júlí nk. kl. 13:00.
Skoda, Fabia, Árgerð 2018, fnr. NXU08 , þingl. eig. Axel Rafn Bene-
diktsson, gerðarbeiðandi Lykill fjármögnun hf., fimmtudaginn 2. júlí
nk. kl. 13:00.
Land Rover, Discovery, Árgerð 2018, fnr. BTS65 , þingl. eig. 310 ehf.,
gerðarbeiðandi Lykill fjármögnun hf., fimmtudaginn 2. júlí nk. kl.
13:00.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
23. júní 2020
Tilkynningar
Yfirkjörstjórn Suður-
kjördæmis tilkynnir:
Á meðan kosning til embættis Forseta
Íslands fer fram, laugardaginn 27. júní
2020, verður aðsetur yfirkjörstjórnar
Suðurkjördæmis í Fjölbrautaskóla
Suðrlands á Selfossi þar sem talning
fer einnig fram að loknum kjörfundi.
Símanúmer yfirkjörstjórnar Suður-
kjördæmis eru 664 1890 og 692 5900,
sími á talningarstað verður 664 2313.
Yfirkjörstjórn Suðurkjördæmis,
22. júní 2020.
Þórir Haraldsson, oddviti,
Sigrún G. Bates,
Unnar Steinn Bjarndal,
Jóhanna Njálsdóttir,
Magnús Matthíasson
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Stólajóga kl. 10-10:45. Félagsfundur / Menningarklúbbur kl.
11. Spænskukennsla kl. 13:30. Hádegismatur kl. 11:30 – 13. Kaffisala kl.
14:45 – 15:30. Allir velkomnir í Félagsstarfið s: 411-2600.
Borgir Lagt af stað í ferð á slóðir Skálda Rósu kl. 09:00 í dag frá
Borgum. Áætluð heimkoma kl. 19:30 Góða ferð. Ganga kl. 10:00 frá
Borgum. Minnum á sumardagskrána, skráningar í Borgum.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8:50.
Púttvöllurinn og Hæðarvellir opnir öllum allan daginn. Hádegismatur
kl. 11:30. Tæknilæsinámskeið kl. 13-16. Tálgun með Valdóri kl. 13.
Síðdegiskaffi kl. 14:30. Við vinnum eftir Samfélagssáttmálanum, og
þannig tryggjum góðan árangur áfram. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í síma 411-2790
Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501.Opið í Jónshúsi
og heitt á könnunni alla virka daga frá 08:30-16:00. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá 13:45 -15:15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Stólajóga í
Jónshúsi kl. 11:00. Bingó í Jónshúsi kl. 13:00.
Gerðuberg kl. 08:30-16:00 Opin handavinnustofa kl. 09:00-12:00
Útskurður kl. 11:00-11:30 Leikfimi Helgu Ben kl 12:30-15:00 Döff Félag
heyrnalausra kl. 13:00-16:00 Útskurður kl. 13:00 Ganga um hverfið
Hraunsel Ganga í Kaplakrika kl. 08.00 Billjard kl. 08.00 Bingó kl. 13.00
Spjallhópur/handavinna kl. 13.00
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Framhaldssaga kl. 10:30. Handavinnuhópur
13:00-16:00.
Seltjarnarnes Dagskráin í dag miðvikudag 24.júní er svona. Kl. 10:30
er kaffispjall í króknum á Skólabraut. Kl. 11:00 er tækninámskeið í
salnum á Skólabraut. Kl. 13:30 er botsía á Skólabraut. Kl. 18:30 er
vatnsleikfimi í sundlaug Seltjarnarness. Hlökkum til að sjá ykkur.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
með
morgun-
nu
Smá- og raðauglýsingar
✝ Jón Logi fædd-ist á Landspít-
alanum 3. nóvem-
ber 1965. Hann lést
14. mars 2020 á
Landspítalanum.
Foreldrar: Þor-
steinn Þorsteins-
son, f. 9.9. 1944, d.
3.1. 1999, og Sjöfn
Halldóra Jóns-
dóttir, f. 20.3. 1939.
Þau bjuggu á Sel-
fossi.
Jón Logi lætur eftir sig fjögur
börn sem eru: a) Sóley Alex-
andra, f. 7.6. 2004, b) Sjöfn
Lovísa, f. 10.3. 2006, c) Emma
Guðrún, f. 26.11. 2010, d) Þor-
steinn Leó, f. 27.7. 2012. Móðir
þeirra og fyrrverandi eiginkona
hans er Christiane L. Bahner, f.
4.4. 1974.
Bróðir hans er Þorsteinn
Garðar Þorsteinsson, f. 14.10.
1968. Sonur hans er Þorsteinn
Jakob Freyr, f. 2.1. 2006.
Logi ólst upp á Selfossi og
gekk þar í skóla og útskrifaðist
sem stúdent árið 1985, gekk í
Bændaskólann á Hvanneyri og
útskrifaðist þaðan árið 1987,
sótti sér meiri
menntun í há-
skólann í Dingle í
Svíþjóð í lífrænni
ræktun og einnig í
nautgriparækt í
Wales.
Hann var bóndi í
Vestri-Garðsauka
en var jafnframt til
sjós á togurum og
vann einnig sem
leiðsögumaður og
naut þá tungumálahæfileika
sinna. Hafði mikinn áhuga á
flugi, flugsögu og allri sagn-
fræði. Hann stundaði jarðrækt
og gerði tilraunir við kolefn-
isbindingu í jörð sem gengu vel.
Sveitin átti hug hans allan
enda fór hann ungur að aldri til
afa og ömmu að Vestri-Garðs-
auka og var þar flest sumur.
Einnig dvaldi hann í starfsnámi
í Fagranesi í Aðaldal og hafði
mjög sterkar taugar þangað.
Þeim sem vilja minnast hans
er bent á björgunarsveitirnar.
Útför fór fram frá Selfoss-
kirkju 2. apríl 2020 og jarðsett
var í nýja kirkjugarðinum í
Stórólfshvolssókn.
Jón Logi Þorsteinsson, bóndi
í Vestri-Garðsauka, lést á gjör-
gæsludeild Landspítalans 14.
mars 2020. Fór útförin fram í
kyrrþey. Foreldrar hans eru
Þorsteinn Þorsteinsson raf-
virki, d. 9. janúar 1999, og
Sjöfn Halldóra Jónsdóttir. Jón
Logi átti einn bróður sem hann
kallaði Brósa, Þorstein Garðar.
Við Jón Logi vorum vinir og
leikfélagar frá því við vorum
nokkurra ára gamlir og lékum
okkur oft saman þegar hann
var í sveit hjá afa sínum og
ömmu, Jóni og Sóleyju á Garðs-
auka.
Íbúðarhúsið sem tilheyrði
Garðsauka var inni í þorpi, ekki
langt frá húsi foreldra minna.
Logi eins og ég kallaði hann
fæddist á Selfossi 3. nóvember
1965 og var hann jafnaldri
minn, aðeins hálfur mánuður á
milli okkar.
Móðir mín vann með Sjöfn
móður Loga á símstöðinni á
Selfossi þangað til foreldrar
mínir fluttu á Hvolsvöll 1968.
Þær voru og eru enn vinkonur
og hittust stundum með börnin
sín áður en ég man fyrst eftir
mér.
Jón Logi var í sveit hjá
ömmu sinni og afa frá unga
aldri og tók þar við búi til-
tölulega ungur maður en hann
hafði þá lokið námi í Bænda-
skólanum á Hvanneyri. Lærði
hann einnig í Slysavarnaskóla
sjómanna og var á sjó um tíma
sem matsveinn.
Logi var góður og hug-
myndaríkur vinur. Sagði hann
mér nýlega frá því að hann
hefði verið mjög bókhneigður
strax frá unga aldri. Minnist ég
þess að hann gat sökkt sér nið-
ur í lestur góðra bóka eins og
Tinnabókanna sem við bróðir
minn áttum. Við töluðum mikið
um sameiginlegt áhugamál
okkar, flug, en hann hafði sér-
staklega mikinn áhuga á Spit-
fire-orrustuflugvélum og man
ég eftir að við smíðuðum einu
sinni saman litla tréflugvél sem
átti að líkjast Spitfire. Sagði
hann mér að hann ætti frænda
sem flaug Spitfire fyrir breska
flugherinn í seinni heimsstyrj-
öldinni.
Mun það hafa verið Þor-
steinn heitinn flugkappi. Vorum
við leikfélagar til ellefu ára ald-
urs en á síðari árum hittumst
við stundum og var umræðu-
efnið þá alltaf það sama; Spit-
fire, flug og bækur. Líkaði hon-
um einnig að segja frá
börnunum sínum sem hann var
mjög stoltur af. Fór ég fyrir
mörgum árum með unga dóttur
mína í Garðsauka til að sýna
henni fjósið, beljurnar og kálf-
ana.
Ég sakna mjög Loga æsku-
vinar míns. Ég votta fjölskyldu
hans mína dýpstu samúð.
Steindór Sigursteinsson.
Jón Logi Þorsteinsson lést
langt um aldur fram 14. mars
síðastliðinn. Leiðir okkar lágu
saman á skólaárunum á Sel-
fossi og lukum við saman stúd-
entsprófi frá FSU vorið 1985.
Skólaárin í FSU eru eftirminni-
leg og nutum við þar leiðsagnar
margra frábærra kennara.
Honum gekk mjög vel í skóla
og hefði hann getað farið í
hvaða háskólanám sem var en
hugur hans stóð til búskapar og
ræktunar en án efa hafa sumr-
in í sveitinni í Garðsauka haft
þar áhrif.
Eftir að hafa lokið námi sem
búfræðingur frá Hvanneyri tók
hann svo við búrekstri í Garðs-
auka eftir fráfall afa síns. Það
var ekki auðvelt fyrir ungan
mann að hefja búrekstur á
þessum tíma en Jón Logi sýndi
á þessum tíma mikinn dugnað
og elju við erfið skilyrði og
líkamlega erfiða vinnu.
Hann var einnig einstaklega
natinn við mjólkurframleiðslu
og þótt hann byggi við frum-
stæð skilyrði á nútímamæli-
kvarða fékk hann jafnvel verð-
laun frá Mjólkurbúi Flóamanna
fyrir gæði mjólkur. Hann hafði
einnig mikinn áhuga á korn-
rækt sem hann og stundaði í
mörg ár.
Jón Logi sótti sér einnig
frekari menntun erlendis í
landbúnaðarfræðum. Seinna
reyndi hann fyrir sér í ferða-
þjónustu og kom þá góð mála-
kunnátta hans í góðar þarfir.
Jón Logi var mikill grúskari
og víðlesinn. Þó að búskapur
væri hans ær og kýr hafði hann
ýmis önnur áhugamál, var hann
t.d. mikill áhugamaður um sögu
og hafði lesið ótal bækur um
ýmis tímabil mannkynssögunn-
ar sem hann kunni næstum ut-
an að. Einnig var hann mikill
áhugamaður um flug og sér-
staklega gamlar herflugvélar.
Jón Logi hafði oft tækifæri til
að fljúga með Ómari Ragnars-
syni yfir Eyjafjallajökul á tím-
um gossins auk þess sem Jón
Karl Snorrason tók hann oft
með í flugtúra og talaði hann
oft um þau ævintýri sem veittu
honum mikla ánægju.
Við Jón Logi brölluðum ým-
islegt skemmtilegt saman á
okkar yngri árum, fórum t.d. í
mjög eftirminnilega Interrail-
ferð um þvera og endilanga
Evrópu saman ásamt fleirum,
og var hann ávallt hrókur alls
fagnaðar og góður ferðafélagi.
Eins og sjálfsagt gerist og
gengur með gamla æskufélaga
var samgangurinn ekki eins
mikill síðustu árin eins og áður
fyrr, en þó töluðum við reglu-
lega saman í síma og þau sím-
töl gátu varað lengi enda mál-
efni líðandi stundar brotin til
mergjar og lífsgátan leyst.
Árið 2003 kvæntist Jón Logi
Christiane Leonor Bahner og
áttu þau saman fjögur mjög
myndarleg og efnileg börn, þau
byggðu sér hús í Garðsauka.
Christiane og Jón Logi slitu
samvistum. Jón Logi hélt þó
ávallt góðu sambandi við börnin
sín sem honum þótti mjög vænt
um.
Síðustu árin voru Jóni Loga
erfið en hann glímdi við marg-
víslegan heilsufarsvanda sem
ekki skal tíundaður hér, en í
síðasta skipti sem við hittumst
skömmu áður en hann lést virt-
ist hann þó horfa bjartsýnn
fram á veginn og vongóður um
að ná heilsu.
Móðir hans Sjöfn Halldóra
Jónsdóttir sýndi honum mikla
alúð og hjálpsemi allt til hins
síðasta og votta ég henni og
öðrum hans nánustu mína inni-
legustu samúð.
Megi Jón Logi Þorsteinsson
hvíla í friði.
Halldór Björnsson Jensen.
Jón Logi
Þorsteinsson
„Komdu norður.
Ég keyri þig um
kjördæmið á bílnum
mínum með merkt-
um húsvagni, þar
sem við getum hvílt okkur. Þú
talar, ég skipulegg og auglýsi.“
Þannig hófust kynni okkar
Péturs í símtali fyrir tæpum
þremur árum. Kynni sem urðu
mér meiri í guðfræði en pólitík,
meiri í þroska og ögun en fljót-
ræði, meiri í djúphygli en sýndar-
mennsku.
Við sváfum nær ekkert í fimm
daga, því hann var svo frjór í frá-
sögn um ævintýrin sín, einkum
andleg ferðalög erlendis í leit að
skilningi á lífinu og dauðanum,
sem væri lífið sjálft í innsta
kjarna sköpunarinnar.
Nokkrar bækur hans voru mér
síðar gefnar: Learning to Die,
Dying to Learn og þrír Leiðar-
vísar um beitingu lífsorku, um
reynslusporin tólf og um ræktun
skapgerðar, sem var þýðing á
bók vinar hans, Sundar frá Ind-
landi.
20.9. 2019 sendi hann mér
Pétur Einarsson
✝ Pétur Einars-son fæddist 4.
nóvember 1947.
Hann lést 20. maí
2020.
Útför hefur farið
fram.
tölvupóst þar sem
eftirfarandi kom
m.a. fram: „Nú er
ég að rannsaka við-
brögð mín við
dauðanum, því ég
greindist með
ólæknanlegt merg-
krabbamein í mars
síðastliðnum. Sú
rannsókn er at-
hyglisverð fyrir
mig, því ég finn
ekki fyrir ótta – en hvað veit mað-
ur þegar kemur að skapa-
dægrum? Jafnvel Jesús efaðist á
krossinum. Ég er að láta reyna á
fullvissu mína og biðja þess að ég
bugist ekki af efa.“
Hann bugaðist ekki. Hann
opnaði dagbók krabbameins-
sjúklings á Facebook. Þar lagði
hann grunn að sigri gagnvart
missi ástvina sinna og byggði
brýr til sátta frammi fyrir því
sem menn kviðu, þannig að
sorgarferli eftir kveðjustund
varð að sigurstund, þegar hann
var kvaddur við upphaf ferðar
með nýrri fæðingu.
Með drottningu sinni Svanfríði
Ingvadóttur hafði hann byggt
upp eyðibýli síðustu ár að Selá og
breytt því í orkustöð hleðslu til
hjálpar svo mörgum með lýsandi
heiti: Rannsóknarstofnun
hugans.
Prédikun hans þar var það
sem hann hafði lært í lífsins skóla
með ósigrum og sigri. Að rann-
saka sjálfan sig, hugsunina um
hvað skipti máli núna, hvað væri
að baki og hvað væri fram undan
til sáttar og fyrirgefningar með
endurnýjun til sigurs.
Þjáðir og einmana ættu að
geta sótt þangað styrk með nám-
skeiðahaldi umvafðir ljósum
Svanfríðar og kærleika í náttúru-
fegurð landsins.
Megi sú stofnun starfa áfram
með anda hans og hugsjónum.
Ég svaraði tölvupóstinum dag-
inn eftir, þar sem ég skrifaði m.a.:
„Mikið þakka ég þér bréf þitt.
Bréfið ert þú sjálfur eins og ég
hef kynnst þér. Alltaf eitthvað
nýtt í skóla lífsins, sem reynir á
til þroska með gjöfum og hand-
leiðslu Drottins. Þú með þínar
gjafir, hæfileikana, börn og
barnabörn og konuna þína, sem
ber veikindi þín meira en þú.
Það er skiljanlegt, því gleðin
og sorgin eru eins og systur, en
ástin er þar æðri, því hún tengist
þeim tilfinningum, sem Drottinn
gefur tækifæri til lífs að eilífu.
Það tækifæri getur verið brot-
hætt, en það brotnar ekki hjá
ykkur tveimur.
Drottinn Guð styrki og blessi
konu þína, börn og ástvini, gagn-
vart þeirri vegferð sem þú glaður
tekst á við að fara. Megi þau
frammi fyrir þeim krossi brott-
farar þinnar til nýrrar fæðingar
skilja kross Krists og sigur
hans.“
Halldór Gunnarsson
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota innsendi-
kerfi blaðsins. Smellt á Morgun-
blaðslógóið í hægra horninu efst
og viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjónarmenn
minningargreina vita.
Minningargreinar