Morgunblaðið - 24.06.2020, Side 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020
„ÉG VEIT AÐ ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ SNARA
ÞÉR Í VERKIÐ EN ÞETTA ER FULL LANGT
GENGIÐ.”
„HVENIG ÆTLI STANDI Á ÞVÍ AÐ ÞEIR
GERI FINGRAPLÁSTRANA SVONA LANGA?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fara í útilegu
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HALLAÐU STJÖRNUNNI AÐEINS
TIL HÆGRI! GRÆNU KÚLURNAR
ERU OF KLESSTAR! EKKI FLÆKJA
SKRAUTBORÐANN!
OOOJ! HVAÐ ER
ÞETTA EIGINLEGA? ÞETTA ER
LEYNI-
UPPSKRIFT
ÚR FJÖL-
SKYLDUNNI!
FRÁ HVERJUM?
ÚTFARARSTJÓRANUM?
Fjölskylda
Samferðakona og vinkona Vil-
hjálms er Kristín Auður Sophusdóttir,
f. 22.3. 1952, hjúkrunarfræðingur, bú-
sett í Reykjavík.
Synir Vilhjálms og fyrrverandi eig-
inkonu, Fríðu S. Kristinsdóttir text-
ílkennara eru 1) Vilhjálmur Hans Vil-
hjálmsson, f. 20.10. 1971, hæsta-
réttarlögmaður, búsettur í Garðabæ.
Sonur hans er Vilhjálmur Hans, f.
2010; 2) Finnur Þór Vilhjálmsson, f.
12.5. 1979, saksóknari hjá héraðs-
saksóknara, búsettur í Reykjavík.
Eiginkona hans er Jóhanna Magnús-
dóttir, lögfræðingur hjá Valitor. Börn
þeirra eru Alda, f. 2012, Ægir, f. 2014,
og Freyja, f. 2020; 3) Ingi Freyr Vil-
hjálmsson, f. 27.9. 1980, blaðamaður á
Stundinni, búsettur í Stokkhólmi.
Eiginkona hans er Sigrún Hallgríms-
dóttir, læknir á Karolinska sjúkrahús-
inu í Stokkhólmi. Börn þeirra eru
Hallgrímur, f. 2011, Fríða Bryndís, f.
2012, Áslaug Helga, f. 2016, og Stein-
unn Ragna, f. 2017.
Alsystkini Vilhjálms eru Geir Vil-
hjálmsson, f. 12.1. 1942, sálfræðingur,
búsettur á Raufarhöfn; Ingi Hermann
Vilhjálmsson, f. 17.2. 1952, verslunar-
maður, búsettur í Reykjavík; Guðrún
Brynja Vilhjálmsdóttir, f. 1.9. 1958,
verslunarmaður, búsett á Seltjarnar-
nesi. Hálfsystkini samfeðra eru Ásgeir
Vilhjálmsson, f. 17.7. 1938, d. 19.7. 1999,
kaupsýslumaður og bjó í Svíþjóð og
Bandaríkjunum; Þorsteinn Joð Vil-
hjálmsson, f. 2.3. 1964, kvikmynda-
gerðarmaður, búsettur í Reykjavík;
Guðrún Sigríður Vilhjálmsdóttir, f. 2.3.
1964, garðyrkjufræðingur, búsett í
Mosfellsbæ; Thomas Kristmar Vil-
hjálmsson, f. 5.11. 1965, stjórnmála-
fræðingur, búsettur í Kaupmannahöfn.
Foreldrar Vilhjálms voru hjónin
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, f. 12.7.
1914, d. 30.4. 1999, heildsali og Mar-
grét Aðalheiður Sigurgeirsdóttir, f.
5.11. 1921, d. 30.1. 1974, húsfreyja.
Þau voru búsett á Seltjarnarnesi.
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
húsfreyja á Hamri
Guðjón Nikulásson
bóndi á Hamri í Flóa
Halldóra Guðjónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sigurgeir Halldórsson
sjómaður og vaktmaður í Rvík
Aðalheiður Sigurgeirsdóttir
húsfreyja á Seltjarnarnesi
Margrét Jónsdóttir
húsfreyja á Gegnishólaparti
og í Reykjavík
Halldór Oddur Sigurðsson
bóndi á Gegnishólaparti í
Flóa og verkstjóri í Reykjavík
Guðrún Finnbjarnardóttir
húsfreyja á Læk í Aðalvík
Hermann Sigurðsson
bóndi á Læk
Ingibjörg Katrín Hermannsdóttir
húsfreyja á Sæbóli
Vilhjálmur Hans Magnússon
útvegsbóndi á Sæbóli í Aðalvík
Oddída Jónsdóttir
húsfreyja á Sæbóli
Magnús Finnbjarnarson
útvegsbóndi á Sæbóli
Úr frændgarði Vilhjálms H. Vilhjálmssonar
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson
heildsali á Seltjarnarnesi
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir„svona í tilefni af því að sum-
arsólstöður eru nýliðnar“:
Bjartar nætur
Ég þrái bjartar vorsins vökunætur
er víkur kuldinn eflist líf og kraftur.
Í vetrardrunga er dregst ég varla á fætur
mig dreymir að þær hafi snúið aftur.
Ég elska langar ljósar sumarnætur
er lífið varpar af sér byrðum þungum,
vil vaka meðan sólin fer á fætur
og fuglar rumska að sinna smáum ungum.
Og húm sem fyllir haustsins ljúfu nætur
er hlýlegt þótt þá læðist að mér kvíði;
því litlar hef á vetrarmyrkri mætur
og mest mig langar þá að vera í híði.
En fyrir dimmar drungalegar nætur
mun dásemd vorsins greiða fullar bætur.
Hörður Þorleifsson skrifaði mér
og sagði, að jarðskjálftatörnin við
Siglufjörð minnti sig á vísuna sem
hann gerði í heimsókn í Genis þar
fyrir þremur árum.
Fórum inn í Genis gátt,
gengum um með ró.
Hátt og lágt með bundið blátt
um búk, hár, nef og skó.
Á Boðnarmiði yrkir Gunnar J.
Straumland „Dróttkveðinn
skjálfta“:
Norðan djúpin Njarðar
næra öfl sem færa
björg og svörð á bergi,
bifa grund sem lifir.
Hristur, ekki hrærður,
hrammur skjálfta rammur
lemur jörð og lamar
líf og sálu hrífur.
Björn Ingólfsson yrkir og kallar
„Eldsneytisskort í neðra“:
Eyja-, Siglu- og Ólafsfjörð
átök skekja, stríð og hörð,
undir niðri, oní jörð
en andskotinn að taka svörð.
Kristján H. Theodórsson skrifar
og yrkir: „Hávar var stundum not-
að fyrir hávær til forna. Gjögrar
eða Gjögur … þar er vafinn? Virð-
ist hvorttveggja til“:
Skelfur fyrir Skögum,
skríða niður, hlíðar.
Drynur í giljadrögum,
duna grundir víðar.
Und botni svellur sjávar,
svarrar á mótum fleka.
Atgangur harður og hávar,
hornin er saman reka.
Við Gríðartök Gjögur nötra,
grjóti og klungrum bylta.
Slit þeirra firnsterku fjötra,
fer nú um okkur pilta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sumarsólstöður og
af jarðskjálftum
FALLEG GLÖS FYRIR
SUMARVEISLURNAR
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is