Morgunblaðið - 24.06.2020, Side 24

Morgunblaðið - 24.06.2020, Side 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 2020 RIFF-hátíðin, sem verður haldin í 17. skipti í haust, hlýtur Creative Europe - Media-styrk og er jafn- framt meðal stofnenda nýrra sam- taka kvikmyndahátíða; Europa Film Festivals. Í tilkynningu frá RIFF segir að styrkurinn sé veittur framúrskar- andi kvikmyndahátíðum í Evrópu og nemi nærri átta milljónum króna. RIFF er ein af um 30 kvik- myndahátíðum sem hlutu styrkinn en umsóknir voru um 100. Styrk- urinn er sagður lyftistöng fyrir há- tíðina. „Það er góð viðurkenning á starfi okkar að fá Media-styrkinn sem sýnir að við erum á réttri braut. RIFF er á hinu alþjóðlega kvikmyndahátíðakorti, hún þykir hafa sérstöðu í evrópsku samhengi og fagaðilar fylgjast vel með því sem við erum að gera,“ er haft eftir Hrönn Marinósdóttur, stjórnanda RIFF. Þessa dagana er unnið að því að móta dagskrá hátíðarinnar í haust en hún verður að einhverju leyti óhefðbundin í kjölfar ástands- ins síðustu mánuða. Nýju samtökin eru sett á fót í samvinnu við um tíu aðrar hátíðir. Megintilgangurinn er að til verði vettvangur til að deila reynslu, hugmyndum og áætlunum. Einnig verður unnið að stefnumótun er varðar ákvarðanir um álitaefni og sameiginleg málefni og þróaðar leiðir til styðja við undirstöður kvikmyndageirans með ýmsu móti. Morgunblaðið/Eggert Sundlaugarbíó Frá RIFF árið 2018. RIFF-kvikmynda- hátíðin hlýtur styrk „Prentmyndamót – aðferðir og áhrif í byrjun 20. aldar – Íslensk myndmálssaga 1844-1944“ er heiti fyrirlesturs sem Guðmundur Oddur Magnússon - Goddur flytur í Lands- bókasafni Íslands - Háskólabóka- safni í dag, miðvikudag, kl. 12.10. Fyrstu myndamótagerð sína stofnaði Ólafur J. Hvanndal (1879- 1954) í Reykjavík árið 1919. Má segja að Ólafur hafi þá flutt nýja iðngrein inn í landið. Um 1930 voru flestallar myndir sem íslensk blöð og íslenskar bækur birtu gerðar hjá Ólafi Hvanndal. Hann fylgdi þeirri reglu frá byrjun að taka eitt eintak af hverri mynd sem hann gerði og festa inn í stórar spjaldskrár til geymslu og varð það með tímanum dýrmætt safn sem hann afhenti Landsbókasafninu 1949. Íslensk mynd- málssaga er heiti á yfirstandandi rannsókn Guð- mundar Odds Magnússonar á sögu grafískrar hönnunar á Ís- landi. Verkefnið hlaut styrk úr Rannsóknarsjóði og er unnið í samvinnu við Hönn- unarsafn Íslands, Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn og Listaháskóla Íslands. Um leið og færi gefst eftir samkomubann verður opnuð sýn- ing verkum frumherja í prent- myndagerð hér á landi og af því til- efni flytur Goddur nú fyrirlesturinn sem tengist Hönnunarmars 2020. Goddur fjallar um myndmálssöguna Goddur Magnús Guðmundsson magnusg@mbl.is „Þetta er frekar breið saga af stjórn- málum samtímans, svona síðustu 50 ár,“ segir Eiríkur Bergmann um ný- útkomna bók sína, Neo-Nationalism, The Rise of Nativist Populism. Ei- ríkur er prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst og hefur lengi fengist við rannsóknir m.a. á sviði þjóðernishyggju og popúlisma. Spurður hversu læsileg fræðabók sem þessi sé fyrir hinn almenna les- anda segir Eiríkur að í samstarfi við útgefanda hans, Pallgrave Macmill- an, hafi verið ákveðið að vera í þeirri hefð fræðanna sem opnar sig gagn- vart hinum almenna lesanda. „Þrátt fyrir að ég haldi mig innan hins þrönga ramma fræðanna á þetta að opna sig út til almennings.“ Frá jaðri í meginstraum Eiríkur segir að í bókinni leitist hann við að skoða þann sveig sem hefur verið tekinn frá hinu frjáls- lynda lýðræði sem festist í sessi á ár- unum eftir seinna stríð. „Sagan hefst þar sem popúlískir flokkar rísa í andstöðu við þetta kerfi og taka sér stöðu, bæði gegn innflytjendum sem höfðu leitað skjóls í Evrópu og einn- ig gegn innlendri elítu sem er sökuð um að hafa svikið þjóð sína. Bókin gengur svo út á að greina hvernig þessi stjórnmál koma fram í kjölfarið á olíukrísunni 1972 sem áskorendur á jaðri stjórnmálanna en færast svo hægt og bítandi inn í meginstraum. Mitt framlag til fræð- anna er að greina hvernig það gerist í bylgjum í kjölfarið á krísum.“ Til bjargar þjóðinni Eiríkur segir að nú sé svo komið að þessi tegund stjórnmála sem var alfarið hafnað á sínum tíma sé komin inn í meginstrauminn. „Nú er svo komið að í fjórum stærstu lýðræðis- ríkjum veraldar eru stjórnvöld sem ýmsir hafa flokkað sem popúlísk, þ.e.a.s. í Bandaríkjunum, Brasilíu, Indlandi og Indónesíu.“ Í bókinni setur Eiríkur fram mód- el til þess að greina þjóðernis- popúlista, sem er það sem hann er að skoða. Hann segir að fyrsta einkenni þeirra sé að framkalla einhvers kon- ar utanaðkomandi ógn sem geti líka verið innflytjendur sem eru þegar komnir til landsins. „Í öðru lagi er að skilgreina sviksama elítu sem hefur svikið þjóðina til hinnar utanaðkom- andi ógnar og í þriðja lagi að stilla sjálfum sér fram sem vörninni gegn hvoru tveggja þjóðinni til bjargar.“ Eiríkur segir að sumir popúlistar gangi svo langt að daðra við fasisma en þó sé rétt að taka fram að þeir séu ekki fasistar. „Þeir hafa þó tilhneig- ingu til þess að daðra við þá pólitík og jafnvel reyna að slétta út söguna. Þetta má sjá í Austurríki, á Ítalíu og í Rússlandi þar sem menn hafa verið að reyna að endurskrifa söguna.“ Erum í miðri krísu Eiríkur bendir jafnframt á að núna er veröldin í miðri krísu og að í henni geti myndast frjór jarðvegur fyrir popúlista. „Krísan er enn yfir- standandi og því vitum við ekki enn hvort þeir muni rísa í kjölfarið, það verður framtíðin að leiða í ljós, en þó er tvennt sem gerir þeim ögn erf- iðara fyrir en í fyrri krísum. Hið fyrra er að hér er um að ræða hnatt- rænt vandamál sem við blasir að verður ekki leyst nema hnattrænt og með fulltingi vísindanna. Pólitík popúlistanna er að hafna sérfræð- ingaveldinu, sem þeir kalla svo, enda oft boðberar þess að það sé ekki síðra að fylgja brjóstvitinu en bók- vitinu. Seinna atriðið er að núna eru þetta ekki lengur áskorendur á jaðri, heldur eru popúlistar komnir til valda svo víða að það er erfiðara að kenna valdhöfum um. Þá reyna þeir að skilgreina aðra sem hina raun- verulegu stjórnendur og þaðan kem- ur t.d. samsæriskenningin um djúp- ríkið.“ Morgunblaðið/Hari Fræðimaður „Mitt framlag til fræðanna er að greina hvernig popúlisminn rís í kjölfarið á krísum,“ segir Eiríkur. Popúlistar ekki lengur á jaðrinum  Eiríkur Bergmann sendir frá sér bók um þróun popúlisma Hræringarnar í Sænsku akademí- unni, sem veitir bókmenntaverðlaun Nóbels, hafa verið svo dramatískar síðustu misserin að í umfjöllun er iðulega talað um að þær minni helst á efni æsilegustu skáldsagna. Hneykslismálin höfðu mikil áhrif á Sænsku akademíuna, leiddu til að mynda til þess að margir liðsmanna hennar hættu og jafnframt til þess að engin verðlaun voru veitt árið 2018. Og nú er greint frá því í Da- gens Nyheter að kvikmynd verði gerð um málið sem lyktaði með því að Jean-Claude Arnault, eiginmaður eins af akademíunni, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Handrit kvikmyndarinar er skrif- að af hinni dönsku Maren Louise Käehne og er sagt byggja á bókinni Klubben eftir sænska blaðamanninn Matilda Voss Gustavsson en þar er saga hneykslismálanna rakin. Gustavsson birti upphaflegu grein- ina í Dagens Nyheter með samtölum við 18 konur sem sögðu Arnault ým- ist hafa níðst á sér eða áreitt og komu málin þá upp á yfirborðið. Fyrir umfjöllunina hlaut Gustavsson sænsku blaðmannaverðlaunin. Ekki hefur verið greint frá því hver muni leikstýra kvikmyndinni en handritshöfundurinn Käehne er margreynd í faginu og skrifaði með- al annars handrit Dronningen þar sem Trine Dyrholm fór með aðal- hlutverkið. Wikipedia/Frankie Fouganthin Dæmdur Jean-Claude Arnault mæt- ir fyrir dóm í Svíþjóð árið 2018. Hneykslismál akademíunnar í bíó  Kvikmynd gerð um mál Arnault Hljómsveitin Brek sendi í liðinni viku frá sér fjögur ný lög á streymisveitur og til að fagna út- gáfunni verða tónleikar í Hann- esarholti í kvöld, miðvikudag, og hefjast kl. 20.30. Brek skipa Sigmar Þór Matthías- son á kontrabassa, Harpa Þorvalds- dóttir syngur og leikur á píanó, Guðmundur Atli Pétursson leikur á mandólín og Jóhann Ingi Bene- diktsson leikur á gítar og syngur. Brek gaf út sín fyrstu lög í febr- úar í ár og stefnir hljómsveitin nú að útgáfu fyrstu breiðskífunnar í byrjun næsta árs. Hin órafmagnaða tónlist sveitarinnar sækir áhrif víða að, meðal annars úr íslenskum þjóðlagaarfi, skandinavískri og bandarískri folk-tónlist, djassi og fleiru. Í tilkynningu segir að áhersla sé lögð á vandaða íslenska texta en jafnframt að skapa stemn- ingu sem er grípandi og þægileg. Brek leikur í Hannesarholti í kvöld Hljómsveitin Brek var að gefa út ný lög og stefnir á breiðskífu. Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.