Morgunblaðið - 26.06.2020, Side 12
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ferðaskrifstofan Heimsferðir hyggst
byrja aftur að fljúga til áfangastaða
sinna í september nk., eftir að hafa af-
lýst öllum ferðum síðustu vikur og
mánuði vegna kórónuveirufaraldurs-
ins. Tómas J. Gestsson framkvæmda-
stjóri félagsins segir í samtali við
Morgunblaðið að Heimsferðir vilji
hafa vaðið fyrir neðan sig og fara var-
lega í sakirnar. Því hafi verið ákveðið
að fara ekki af
stað strax nú í júlí.
„Við ákváðum að
„hlýða Víði“. Við
mátum stöðuna
þannig að þó að
Evrópulönd séu
að opna landa-
mæri sín 1. júlí nk.
þá ráðleggja sótt-
varnalæknar í
löndunum fólki að
fara varlega í sakirnar. Því ætlum við
ekki að byrja að fljúga fyrr en í sept-
ember,“ segir Tómas.
Heimsferðir hafa annan háttinn á
en ferðaskrifstofur eins og Úrval-Út-
sýn, en hún mun hefja ferðir til Alic-
ante og Tenerife í næsta mánuði, eins
og sagt hefur verið frá í Morgun-
blaðinu.
Tómas segir að mörg hótel á
áfangastöðunum séu enn lokuð, og
einnig sé stór spurning með hversu
mörg veitingahús verði opin. Það
sama megi segja um aðra afþreyingu
á stöðunum.
Heimsferðir munu í haust bjóða
upp á sólarlandaferðir til Krítar, Alic-
ante, Costa del Sol, Gran Canaria og
Tenerife. Þá býður félagið upp á
borgarferðir til m.a. Prag, Bratislava,
Ljúbliana, Porto, Lissabon, Rómar og
Zagreb. „Einnig erum við með borg-
arferð frá Akureyri til Edinborgar.“
Enn grímur á almannafæri
Tómas segist vonast til að ástandið
muni nú batna dag frá degi á þeim
stöðum sem Heimsferðir fljúga til, en
eins og hann bendir á hefur kórónu-
veiran verið í rénun í Evrópu.
Hann segist vera í góðu sambandi
við umboðsskrifstofur í löndunum
sem félagið flýgur til, og þær ráðleggi
Heimsferðum að tefla ekki of djarft,
og bíða átekta. „Það eru enn miklar
takmarkanir í gangi í löndunum, og
fólki er enn gert til dæmis að vera
með grímur á almannafæri.“
Sem dæmi nefnir Tómas eyjuna
Krít í Miðjarðarhafinu, en í samtölum
við umboðsmenn þar síðustu daga
hafi komið í ljós að hótelin væru að
meta vandlega hve margir farþegar
gætu verið væntanlegir á næstunni,
til að ákveða svo í kjölfarið hvort þau
opni dyr sínar fyrir gestum. „Við
sjáum svo betur eftir opnun landanna
1. júlí hvernig hlutirnir þróast. Það er
stutt fram í september, og því engin
ástæða að flýta sér, eins og sakir
standa.“
Þó að Heimsferðir hefji sig ekki
formlega til flugs aftur fyrr en í sept-
ember eru ferðir nú þegar komnar í
sölu. „Við erum búnir að loka á sölu á
ferðum í júlí og ágúst, en bókanir fyr-
ir september eru byrjaðar að streyma
inn.“
Spurður að því hvort fólk þurfi að
borga staðfestingargjald þegar bókað
er segir Tómas að boðið sé upp á
ákveðinn sveigjanleika í þeim efnum,
en eðlilega þurfi hugur að fylgja máli
hjá þeim sem bóka. Erlendu hótelin
séu í erfiðri stöðu og þurfi að fá stað-
festar bókanir til að geta ráðið til sín
starfsfólk, með þeim skuldbindingum
sem því fylgi.
„Þessar hótelkeðjur eru stundum
bara að opna eitt af fjórum til fimm
hótelum sem þær reka, bara til geta
látið hjólin fara að snúast á ný. Það
borgar sig að fara af varkárni inn í
þetta umhverfi.“
En finnur Tómas fyrir miklum
áhuga Íslenga á utanlandsferðum í
ár?
„Fólk ætlar sér greinilega að
ferðast innanlands í sumar, en þegar
horft er fram á haustið sé ég að það er
mikið skoðað af ferðum á netinu. Al-
menningur er líka var um sig eins og
við, og vill fara sér hægt í ákvarð-
anatökum.“
Flugfélagið sem sér um að ferja
farþega Heimsferða til útlanda í
haust heitir Neos. „Þetta er sama
flugfélag og flaug fyrir okkur frá
mars og fram í nóvember í fyrra. Þeir
eru væntanlegir hingað í lok ágúst.
Þeir eru á sömu blaðsíðu og við með
að fara ekki of geyst í hlutina.“
Fjórar ferðir á viku
Fyrst um sinn verða farnar fjórar
ferðir á viku að sögn Tómasar. „Svo
vex þetta smám saman. Í október
munum við fljúga daglega.“
Rekstur Heimsferða eins og ann-
arra fyrirtækja í ferðaþjónustu hefur
orðið fyrir miklum skakkaföllum í ár.
„Við erum að vinna úr þeim málum.
Við höfum verið að endurgreiða ferð-
ir, og munum nýta okkur ferða-
ábyrgðarsjóð stjórnvalda sem mun
lána ferðaskrifstofum fyrir endur-
greiðslum. Við fögnum því framtaki.“
Hann segir að inneignir sem fyrir-
tækið sjálft hefur þegið hjá erlendum
ferðaþjónustuaðilum, muni nýtast
síðar. „Við höfum samið við þessa að-
ila um að nýta þessar inneignir okkar
þegar allt fer í gang aftur. Til dæmis
getum við nýtt inneignir í Lissabon í
Portúgal í nóvember nk. vegna ferðar
sem átti að fara í apríl.“
„Hlýða Víði“ fram í september
Morgunblaðið/Eggert
Sólskin Sóldýrkendur flatmaga á La Misericordia-ströndinni á Malaga á Spáni fyrr í þessum mánuði.
Ferðaskrifstofan Heimsferðir vill hafa vaðið fyrir neðan sig og býður ekki ferðir
til áfangastaða sinna fyrr en í september Flugfélagið Neos sér áfram um flugið
Ferðalög
» Arion banki tók í júní 2019
yfir allt hlutafé í félaginu Tra-
velCo hf. sem rekur ferðaskrif-
stofuna Heimsferðir ásamt
TerraNova.
» Heimsferðir munu m.a.
bjóða upp á ferðir til Krítar,
Alicante, Costa del Sol og
Malaga. Þá býður félagið upp á
borgarferðir til Prag, Brat-
islava, Ljúbliana og Zagreb m.a.
Tómas J.
Gestsson
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2020
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Lífeyrissparnaður Íslendinga í formi
samtryggingar og séreignar lífeyr-
issjóða og annarra vörsluaðila nam
5.284 milljörðum króna í árslok 2019.
Þetta kemur fram í samanteknum
tölum Fjármálaeftirlits Seðlabanka
Íslands sem unnar eru upp úr árs-
reikningum þeirra sem með sparn-
aðinn höndla.
Jókst sparnaðurinn um 17% frá
fyrra ári. Sem hlutfall af vergri lands-
framleiðslu nemur hann 178%. Sam-
kvæmt bráðabirgðatölum OECD eru
það aðeins Danmörk og Holland sem
eru með hærra hlutfall en Ísland í
þessu tilliti, Danmörk með 219% og
Holland 191%.
Afborganir og vaxtagreiðslur
verða æ fyrirferðarmeiri í sjóð-
streymi hjá samtryggingar og sér-
eignardeildum lífeyrissjóðanna að því
er fram kemur í úttekt Seðlabankans.
Námu þær 304 milljörðum á liðnu ári.
Mismunur innstreymis iðgjalda og
útstreymis vegna lífeyris nam nærri
95 milljörðum. Innborgaðar tekjur af
eignarhlutum í félögum og sjóðum
(arðgreiðslur) voru einnig stór liður í
sjóðstreymi og námu nærri 29 millj-
örðum. Fjárfestingaþörf sjóðanna er
því 428 milljarðar króna.
130 milljarða viðsnúningur
Tryggingafræðileg staða sam-
tryggingardeilda almennra lífeyr-
issjóða batnaði á síðasta ári og var já-
kvæð um 75 milljarða í árslok,
samanborið við 55 milljarða halla árið
2018. Afgangurinn um nýliðin áramót
jafngilti 1,1% af tryggingafræðilegu
mati eigna sjóðanna.
Allar fjórar samtryggingardeildir
lífeyrissjóða ríkis og sveitarfélaga
með ábyrgð launagreiðenda hafa nei-
kvæða tryggingafræðilega stöðu.
Ófjármagnaðar skuldbindingar
þeirra nema 806 milljörðum króna.
Jafngildir það 68% halla á trygg-
ingafræðilegri stöðu.
Sparnaður-
inn jókst um
17% í fyrra
Morgunblaðið/Hari
Fjármagn Aðeins tvær þjóðir eiga
meiri lífeyrissparnað en sú íslenska.
5.284 milljarðar kr.
í lífeyrissparnaði