Morgunblaðið - 26.06.2020, Side 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2020
✝ Stefanía BjörgEinarsdóttir
fæddist í Reykjavík
19. október 1950.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urnesja 31. mars
2020.
Foreldrar Bjarg-
ar voru Petra Guð-
rún Stefánsdóttir, f.
27.1. 1922, d. 28.1.
2017 og Einar Páls-
son, f. 25.10. 1920, d. 19.9. 1994.
Stjúpfaðir Bjargar var Hjalti
Magnússon, f. 6.4. 1923, d. 15.7.
2001, sem gekk henni í föð-
urstað.
Björg vann m.a. í sláturhúsi,
skar utan af netum, saltaði síld, í
Kaupfélagi Suðurnesja og
Landsbankanum á Suðurnesj-
unum. Henni var síðan boðið
starf á skrifstofunni í Þorbirni
hans af fyrri hjónaböndum eru
Stefanía Björg, maki Jón Egill
Jónsson og eiga þau tvö börn,
Matthildur Dögg, maki Elvar
Már Stefánsson og eiga þau 2
börn, Hjalti Þór, sambýliskona
Arna Halldórsdóttir, Einar Ólaf-
ur, sambýliskona Natalia Sylwia
Oliwia Szcepanska, Jónína
Freyja, Dagbjört Nótt og Berg-
steinn Jökull. Barn þeirra er
Ingibergur Þór og fóstursonur
Egill Máni.
Ragnheiður Þóra, f. 24.4.
1973, maki Rúnar Sigurður Sig-
urjónsson. Börn þeirra eru Ant-
on Ingi, Sigurjón, unnusta hans
María Sól, og Eysteinn.
Petra Rós, f. 3.4. 1980, maki
Unnar Ástbjörn Magnússon.
Börn þeirra eru Ólafur Þór, Una
Rós, Rakel Rós og Birta Rós.
Hálfbræður Bjargar voru
Þórarinn Einarsson, f. 20.7.
1947, Magnús Andri Hjaltason, f.
23.7. 1958, d. 23.10. 2017 og
stjúpbróðir Hjalti Már Hjalta-
son, f. 18.5. 1949.
Útförin fer fram frá Grinda-
víkurkirkju í dag, 26. júní 2020,
klukkan 14.
hf. í eina vertíð sem
varð svo á end-
anum að 42 árum
eða allt frá árinu
1976 og þar til hún
fór á eftirlaun árið
2018. Hún starfaði
lengi í Slysavarna-
deildinni Þórkötlu
og var þar m.a.
gjaldkeri í mörg ár.
Hún var mikil
hannyrðakona og
prjónaði hvert listaverkið á fæt-
ur öðru sem afkomendur henn-
ar og fleiri fengu að njóta góðs
af.
Björg giftist Ólafi Þór Þor-
geirssyni, f. 23.2. 1950, þann
25.7. 1971. Börn þeirra eru:
Hjalti Pálmason, f. 12.12. 1966,
d. 14.1. 1986. Jón Þór Dagbjarts-
son, f. 2.10. 1968, sambýliskona
Hafdís Bára Óskarsdóttir. Börn
Þótt móðir mín
sé nú aðeins minningin ein
mun ég ávallt minnast hennar
með glöðu geði
og dýpstu virðingu,
hugheilu þakklæti
og hjartans hlýju,
fyrir allt og allt.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
31. mars stoppaði tíminn og
stórt gat kom á hjarta mitt.
31. mars fer ekki úr minni mér
því
31. mars er dagurinn sem
mamma mín kvaddi þetta líf.
Síðustu ár hafa verið okkur
fjölskyldunni erfið þar sem
margir okkur nákomnir hafa
kvatt, og það á besta aldri. Svo ég
trúi því að móttökunefndin hafi
verið fjölmenn þarna uppi þegar
mamma mætti þangað, vonandi
upp á sitt besta og með enga
garðslöngu eins og Birta Rós mín
kallaði súrefnisslönguna.
Mamma mín var sönn baráttu-
kona. Með þrjóskuna sína að
vopni sem kom henni langt, mun
lengra en margir höfðu reiknað
með. Þar á meðal læknarnir sem
önnuðust hana síðustu árin. Hún
var hörð í horn að taka og fylgdi
baráttan henni allt fram á síðasta
andardrátt. Mamma var hrein og
bein kona sem stóð við það sem
hún sagði.
Mamma var alltaf til taks fyrir
mig og okkur fjölskylduna þegar
á þurfti að halda. Get ég fullseint
þakkað þeim pabba stuðninginn
sem ég fékk eftir að Ólafur Þór
fæddist eftir heldur stuttan
undirbúning.
Mamma var nú ekki þekkt fyr-
ir að fara alltaf auðveldustu leið-
ina að settu marki ef svo má að
orði komast. Hún átti bræður
mína tvo ung að aldri og svo var
hún einungis 35 ára þegar Hjalti
bróðir deyr af slysförum sem var
mikið áfall og markaði hennar
spor. En það er mikil huggun í
því að hugsa að nú séu þau sam-
einuð á ný og að mamma verði
jarðsett á leiðinu hans.
Ég er ótrúlega tóm og finnst
svo ótrúlega ósanngjarnt að
mamma hafi ekki fengið lengri
tíma með okkur öllum. Mér finnst
ég bara aftur orðin litla barnið
hennar og vil hafa mömmu mína
hjá mér. Ég vildi að ég gæti sagt
einu sinni enn við hana að ég elski
hana alla leið út í geim og aftur til
baka, eins og þegar við lágum
saman uppi í rúmi þegar ég var
yngri. Ég vildi geta heyrt hana
syngja einu sinni enn fyrir mig
lagið Sofðu unga ástin mín. Ég
vildi að ég gæti bara einu sinni
enn gefið henni faðmlag og þakk-
að fyrir allt sem hún hefur gert
fyrir mig. Það skiptir engu máli
hversu gamall maður er þegar
mamma manns deyr, það er alltaf
jafn sárt. Það kemur enginn í
staðinn fyrir mömmu.
Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun best að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
Meðan hallar degi skjótt,
Að mennirnir elska, missa, gráta og
sakna.
(Jóhann Sigurjónsson)
Það er svo sárt að sakna. Lífið
er núna.
Þinn litli gullmoli,
Petra Rós.
Elsku amma mín og nafna.
Þú kvaddir í faðmi fjölskyld-
unnar 31. mars 2020 á afmælis-
daginn minn. Í hádeginu fékk ég
símtal um að þú ættir stutt eftir.
Ég var ekki lengi að hoppa upp í
bíl og keyra suður frá Búðardal
til Keflavíkur því ég vildi ekki
missa af því að kyssa þig og
knúsa í hinsta sinn.
Mér finnst enn þá undarlegt að
þú sért búin að kveðja okkur. Ég
hef staðið mig að því að vera
komin með símann í höndina og
hugsa með mér: „Best að heyra í
ömmu og fá ráð“ en áttað mig á
því að þú ert ekki við.
Alveg sama hvað mig vantaði
þá varstu aðeins einu símtali frá
mér. Þú studdir mig í öllu því sem
ég tók mér fyrir hendur, alveg
sama hvað það var. Nú styður þú
mig að handan og ert mér í
hjarta.
Þú varst alltaf boðin og búin að
hjálpa okkur öllum. Þú vildir allt
fyrir alla gera. Enda sagðir þú oft
við mig: „Það skiptir öllu máli að
hjálpast að, þannig eiga fjöl-
skyldur að vera.“
Við áttum góðan tíma saman,
þó við hefðum viljað meiri tíma
með þér, elsku amma. Mér hlýn-
ar við allar þær minningar sem
ég á um þig. Ég hef alla tíð verið
með annan fótinn heima hjá ykk-
ur afa. Það mátti margt hjá
ömmu og afa, ekki voru reglurnar
margar. Það mátti bara borða
matinn inni í eldhúsi. Þú og afi
minntust þess þegar ég skamm-
aði Möttu systur þegar hún
reyndi að fara með mat inn í stofu
og sagði: „Heima hjá ömmu og
afa á að borða inni í eldhúsi, veit
Matta ekki neitt?“
Svo má ekki gleyma ferðalög-
unum sem ég fór í með ykkur afa,
þið kennduð mér svo margt. Já,
margar minningar á ég með ykk-
ur í „afahúsi“ eins og ég var gjörn
á að kalla ferðahýsin ykkar afa.
Ástríðu mína fyrir ferðalögum á
ég alfarið ykkur að þakka.
Það var alltaf gott að heim-
sækja ykkur afa. Við gátum
spjallað um daginn og veginn.
Það var eins og tíminn flygi frá
okkur þegar ég mætti suður. Já,
amma, nú ertu sofnuð svefninum
langa. Þú ert sameinuð Hjalta
frænda, Hjalta langafa, Pettu
langömmu, Magga, Hjöddu
ásamt fleiri ástvinum okkar. Nú
sitjið þið í Sumarlandinu góða,
rifjið upp góðar minningar og
bíðið okkar sem eftir erum.
Amma mín, þú varst sú allra
besta, betri ömmu er erfitt að
finna. Minninguna um þig mun
ég halda á lofti fyrir börnin mín.
Vil ég þakka þér kærlega fyrir
allt það sem þú hefur gefið mér.
Guð gefi þér góða nótt.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlést okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Þín sonardóttir og nafna,
Stefanía Björg Jónsdóttir.
Ég hef verið lánsamur með
mína vinnuveitendur og vinnu-
félaga. Það er ekki sjálfgefið að
fólk starfi á sama vinnustað í tæp
40 ár.
Mig langar að minnast góðs
vinnufélaga, vinar míns og
frænku minnar, Stefaníu Bjargar
Einarsdóttur, sem hóf störf á
skrifstofu Þorbjarnar hf. 1977 og
ég 4 árum síðar, 1981. Við Björg
erum þremenningar, afar okkar
voru bræður, Páll Einarsson og
afi minn Gísli Einarsson ættaðir
frá Hólkoti í Sandgerði. Faðir
Bjargar var Einar Pálsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu, og
spilaði með Víkingi í Reykjavík. Í
dag eru dætur Bjargar og Óla
ásamt barnabörnum lykilfólk í
starfsemi knattspyrnudeildar
UMFG. Það var mikið lán að
starfa með Björgu á skrifstofu
Þorbjarnar hf., við gátum karpað
um ýmis mál en það var stutt í
kærleika og væntumþykju hvors
til annars.
Björg gerði miklar kröfur til
sjálfrar sín og vinnufélaga sinna
og þoldi illa óstundvísi. Ég fékk
oft að heyra frá henni þegar ég
kom seint úr mat, eftir fundi
tengda fótbolta í Gulahúsinu. Þá
spurði hún mig hvort ég hefði
fengið gott að borða. Við vorum
alla tíð góðir vinir þrátt fyrir að
kappið hafi verið mikið hjá okkur
báðum. Það var ekki farið úr
vinnu fyrr en verkefnin voru
kláruð, oft unnið fram að mið-
nætti og mætt í vinnu aftur
klukkan sjö daginn eftir. Við átt-
um það sameiginlegt að hugsa
um fyrirtækið sem okkar eigið
fyrirtæki.
Þetta voru skemmtileg ár og
krefjandi. Þegar við byrjuðum að
vinna saman vorum við fimm á
skrifstofunni, fljótlega stækkaði
Þorbjörn hf. og er í dag eitt
stærsta fyrirtæki í sjávarútvegi á
Íslandi. Björg var félagslynd og
var gjaldkeri í starfsmannafélagi
Þorbjarnar hf. í mörg ár og hélt
utan um frábærar árshátíðir sem
haldnar voru á Hótel Sögu frá
1986.
Það þótti sérstakt á þessum
árum að halda árshátíð viku fyrir
jól, en það gerðum við í mörg ár
þannig að sjómenn og landfólk
gætu skemmt sér saman.
Að leiðarlokum vil ég þakka
Björgu fyrir samstarfið og votta
fjölskyldu hennar mína dýpstu
samúð.
Jónas Karl Þórhallsson.
Það er með miklum trega sem
við systur minnumst hér elsku-
legrar frænku okkar, Stefaníu
Bjargar Einarsdóttur, sem lést
31. mars sl. Björg eins og við köll-
uðum hana alltaf var dóttir Petru
Guðrúnar Stefánsdóttur systur
föður okkar, Halldórs Gunnars
Stefánssonar, en hún lést 95 ára
gömul 28. janúar 2017.
Einungis eru um tvö og hálft
ár síðan við kvöddum elskulegan
bróður hennar, Magnús Andra,
sem varð bráðkvaddur 23. októ-
ber 2017. Ekkja Magga, Hjört-
fríður Jónsdóttir, lést 27. október
2019 réttum tveimur árum á eftir
manni sínum eftir erfið veikindi.
Björg hefur sjálf lifað með
lungnasjúkdóm sem lagði miklar
byrðar á daglegt líf hennar og
fjölskyldunnar, sem þau unnu
með af dugnaði, samheldni og
væntumþykju.
Mikið hefur verið lagt á kæra
ættingja í Grindavík undanfarin
ár.
Það hefur verið vel tekið á
móti Björgu í sumarlandinu af
öllum hennar nánustu sem á und-
an eru gengnir. Þar með er frum-
burður Bjargar, Hjalti Pálmason,
sem lést af slysförum 1986 þá á
tvítugsaldri.
Ætíð var mikill samgangur og
kærleikur milli foreldra okkar og
fjölskyldna og heimsóknir milli
Grindavíkur og Reykjavíkur tíð-
ar hér á árum áður. Minningar
margar og góðar sem tengjast
þeim á öllum árstímum.
Afkomendur ömmu okkar og
afa hafa haldið ættarmót fjórða
hvert ár frá síðasta tug síðustu
aldar.
Hafa þau mót verið vel heppn-
uð, tengt alla og kynnt þriðja og
fjórða ættlið. Björg og fjölskylda
hennar hafa verið sérlega virk í
þátttöku og undirbúningi þessara
ættarmóta. Í okkar fjölskyldum
hefur myndast gott og traust
samband á þessum ættarmótum í
þriðja ættlið sem er sérlega
ánægjulegt.
Björg átti góða fjölskyldu þar
sem er Óli maður hennar og börn
þeirra, Jón Þór, Ragnheiður
Þóra og Petra Rós og þeirra fjöl-
skyldur.
Það hefur verið eftirtektarvert
að sjá samheldni þeirra og vænt-
umþykju sem hefur lýst sér í að
skapa minningar á glöðum sam-
verustundum og á ferðalögum
bæði innanlands og erlendis. Við
vitum að þau munu halda þétt ut-
an um hvert annað eins og þau
hafa gert í gegnum árin og þar
með eru börn, tengdabörn og
barnabörn Magnúsar Andra og
Hjörtfríðar.
Þetta eru búnir að vera erfiðir
tímar undanfarið og erfitt að hafa
ekki getað tekið utan um ykkur í
sorginni.
Hugur okkar er búinn að vera
hjá ykkur, elsku fjölskylda, og
það styttist í knús.
Sigrún, Guðrún,
Bryndís og fjölskyldur.
Fagra sumarnótt í Keldu-
hverfi hitti ég fyrst svilkonu mína
Stefaníu Björgu Einarsdóttur, þá
nýgifta Ólafi Þór Þorgeirssyni.
Stundirnar sem við hjónin áttum
með Óla, Björgu og börnum okk-
ar á Grásíðu eru ógleymanlegar.
Einnig heimsóknir til þeirra á
fallega heimilið þeirra í Grinda-
vík.
Mikill gestagangur var alltaf á
heimilinu,enda gestrisni þar mik-
il. Björg og Óli fóru ekki varhluta
af sorginni þegar eldri drengur-
inn þeirra drukknaði. Var hann
harmdauði öllum sem til þekktu.
Það gerist margt á langri leið
um lífsins krókasveiga.
En okkur sýndist gatan greið,
svo gengum einbeitt þetta skeið,
sem öll við virtumst eiga.
Víða liggja vegamót,
vinir dreifast hér og hvar.
Allir leita að lífsins rót,
og ljúfri mund með kærleikshót
svo vonir allar vaka megi þar.
Árin líða allt of fljótt,
þau óðum renna brott frá mér,
er sérhver dagur, sérhver nótt
með sér tekur ofur hljótt,
vini, sem að voru kærir þér.
Það fækkar óðum flokknum í
er forðum gengu hrund og sveinn.
Þá brosti sólin björt og hlý,
þó bleik hún leynist nú við ský.
Því minningarnar á að lokum einn.
(S.Ó. Guðmundsdóttir)
Innilegar samúðarkveðjur til
Óla og barnanna.
Guðný Björg
Þorvaldsdóttir.
Látin er kær vinkona okkar
Rutar, hún Stefanía Björg Ein-
arsdóttir.
Þegar ég var barn og ungling-
ur þekkti ég vel til hennar. Mæð-
ur okkar voru vinkonur. Þegar
móðir mín var við nám í Héraðs-
skólanum í Reykholti kenndi
Petra móðir Bjargar handavinnu
við skólann.
Eitt atvik man ég vel þegar ég
sem unglingur þurfti að leita til
Bjargar um aðstoð fyrir hönd fót-
boltaliðsins í mínum flokki. Við
höfðum farið í keppnisferð til
Vestmannaeyja og tapað illa fyrir
Ásgeiri Sigurvins og hans fé-
lögum.
Fljótlega eftir heimkomuna
fréttist af hrakförunum og okkur
var strítt með því að Ungmenna-
félagið ætlaði ekki að greiða sinn
hluta af ferðakostnaðinum í refs-
ingarskyni, en við áttum hauk í
horni því að Björg var þá gjald-
keri félagsins og sagði það fjar-
stæðu og auðvitað greiddi félagið
kostnaðinn. Þarna sýndi Björg
það sem hún var alltaf þekkt fyr-
ir, hún var réttsýn, ákveðin og lét
til sín taka.
Seinna bjargaði hún okkur
hjónunum úr smá vandræðum
þegar við áttum von á okkar öðru
barni.
Rut tók sér leyfi um nokkurn
tíma, en hún vann á skrifstofu
Þorbjarnar hf. og þá fengu
mamma og pabbi þá góðu hug-
mynd að leita til Bjargar og fá
hana til að leysa af á skrifstof-
unni, sem hún gerði og var þetta
upphafið á áratugalöngu sam-
starfi okkar, því Björg hélt áfram
að vinna með okkur allt þar til
hún hætti störfum fyrir nokkrum
misserum eftir rúmlega 42 ára
starf.
Fyrstu árin þegar umsvif
fyrirtækisins voru minni tók hún
þátt í flestu því sem upp á kom á
skrifstofunni en eftir að fyrir-
tækið stækkaði sá hún aðallega
um launaútreikninga bæði til sjós
og lands og var í daglegum sam-
skiptum við starfsfólkið og
stjórnendur, sem oft getur verið
mjög erilsamt og alltaf tókst
henni að leiða málin farsællega til
lykta.
Björg var einstaklega sam-
viskusöm og hörð við sjálfa sig,
alltaf mætti hún til vinnu hvernig
sem á stóð hjá henni og nú síð-
ustu árin þegar heilsan fór að
gefa sig þá lét hún það ekki
stoppa sig.
Eiginmaður hennar, Ólafur
Þorgeirsson, vann líka með okk-
ur, m.a. sem verkstjóri og neta-
gerðarmaður í allmörg ár.
Okkar vinskapur var ekki ein-
göngu bundinn við vinnuna því
við fórum saman á ótalmargar
skemmtanir og í ferðalög um allt
land með vinum okkar og fé-
lögum.
Minnisstæðastar eru líklega
skemmtanirnar hjá björgunar-
sveitinni og ferðalögin um há-
lendi Íslands en Björg og Óli voru
dugleg að ferðast um landið og
nutu þess að vera í góðra vina
hópi.
Börnin okkar eru á svipum
aldri og við höfum hist í fjöl-
skylduboðum og veislum og tekið
þátt í gleði og sorgum hvert ann-
ars.
Nú á kveðjustundu viljum við
þakka fyrir góð kynni, vináttu og
trúmennsku og fyrir hönd sam-
starfsfólks og vina hjá Þorbirni
hf. sendum við Óla, börnum
þeirra og öllum aðstandendum
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Gunnar Tómasson
og Rut Óskarsdóttir.
Stefanía Björg
Einarsdóttir
Mig langar bara
að senda stutta
kveðju til tengda-
föður, sem ég var
svo heppinn að eignast.
Ég finn mikinn söknuð og sé
eftir að hafa ekki getað eytt
meiri tíma með honum. Hann
var sérstaklega hlýr og aðlað-
andi maður, uppfullur af reynslu
og visku.
Ég var svo heppinn að eiga
góðan tíma með honum er ég og
Ragnhildur vorum að gera upp
íbúð okkar og fengum að búa á
meðan heima hjá tengdó í
Brekkuseli. Við héldum að það
yrði mest mánuður, en það
teygðist í þrjá mánuði. Flestir
teldu að það væri erfitt, en svo
var ekki og ég held mikið upp á
Sigurjón Á.
Fjeldsted
✝ Sigurjón ÁgústFjeldsted
fæddist 12. mars
1942. Hann lést 30.
maí 2020.
Útför Sigurjóns
fór fram 12. júní
2020.
þennan tíma. Það
var tilhlökkun að
koma heim í
Brekkusel í lok
dags og spjalla við
þau hjónin. Alltaf
sýndu þau áhuga á
öllu sem var í gangi
hjá okkur og það
var yfirvegað og ró-
legt að spjalla. Það
var notalegt og
þægilegt að vera
með Sigurjóni og hann gaf góð
ráð, án þess að þykjast vita best.
Kærleikur og umhyggja
streymdu frá honum. Við deild-
um djassáhuganum og fórum
saman á tónleika. Það held ég
upp á.
Sigurjón var stór persóna án
þess að þurfa að láta mikið á sér
bera og hann smitaði út frá sér
öllum þessum jákvæðu eiginleik-
um sem hafa gefið mér mjög
mikið.
Takk Sigurjón.
Með sárum söknuði,
þinn tengdasonur,
Einar Sveinn.