Morgunblaðið - 26.06.2020, Page 19

Morgunblaðið - 26.06.2020, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2020 ✝ SigríðurSteindórs- dóttir, húsmóðir og verkakona, var fædd í Ytri-Haga á Árskógsströnd 9. desember 1928. Hún lést á dvalar- heimilinu Hlíð á Akureyri 14. júní 2020. Foreldrar Sig- ríðar voru þau Stefanía Lára Ólafsdóttir, f. 1.8. 1897, d. 15.12. 1972 og Steindór Rósinantsson, f. 15.10. 1890, d. 27.9. 1969. Sig- ríður var þriðja af fimm dætr- um þeirra hjóna. Þær eru: Nanna Gerður, f . 1923 (látin), Eva Gerður, f .1925 (látin), Sigríður, Helga Ingibjörg, f .1934 og Ólína Gunnlaug, f. 1939. Sigríður giftist þann 28. maí 1955 Jóni Þorsteins Hjaltasyni (Glóa), matsveini og sjómanni, f. 16.5. 1929, d. 29.8. 2009. Börn Sigríðar og Jóns eru 1965. Eiginmaður hennar er Ólafur Guðmundsson, f. 27.3. 1966. Börn þeirra eru: 1) Guð- mundur Andri, f. 22.5. 1993. 2) Stefanía Lára, f. 26.4. 1995. Sambýlismaður: Guillermo Ju- an Martinez Castilla, f. 23.6. 1993. 3) Glódís Erla, f. 11.9. 1998. 4) Elísabet Helga, f. 11.6. 2009. Sigríður fæddist í Ytri-Haga og bjó þar þangað til hún fluttist að heiman. Hún var snemma dugleg og sam- viskusöm og fengin í verk á næstu bæi, oft til að sjá um börn sveitunganna. Þegar hún flutti inn á Akureyri vann hún til dæmis á Hótel KEA og á Sjúkrahúsinu. Hún vann á Sambandsverksmiðjunum af og til þegar hún var að ala upp börnin en eftir að þau voru farin að heiman vann hún við heimaþjónustu hjá Akureyrarbæ. Hún var sjó- mannskona og rak heimilið af miklum myndarskap. Hún var þekkt fyrir gestrisni og marg- ir gistu á heimilinu til lengri eða skemmri tíma. Ættingjar og vinir voru ávallt velkomnir. Hún var fordómalaus og ein- staklega hlýleg og hjálpsöm. Sigríður verður jarðsungin frá Höfðakapellu í dag, 26. júní 2020, klukkan 13.30. þrjú og þau eru: a) Steindór Jóns- son, f. 27.2. 1955. Eiginkona hans var Sigríður Frið- riksdóttir, f. 18.2. 1949, d. 13.4. 2004. Börn þeirra eru: 1) Þórunn, f. 14.4. 1974. Maki: Sveinbjörn Hilm- arsson, f. 11.2. 1973. Þau eiga þrjú börn: Júlíus Hafstein, Jón Kristján og Sigríði Rós. 2) Jón Elvar, f. 1.9. 1976. Maki Anna Guðmundsdóttir, f. 29.5. 1978. Þau eiga þrjú börn; Bjarka Hafliða, Alexander Orra og Kristjönu Bríeti. Eiginkona Steindórs er Anna Þórný Jóns- dóttir, f. 21.8. 1957. Dóttir hennar er Hulda Rós, f. 6.11. 1991. Sambýlismaður: Daníel Róbertsson, f. 2.10. 1991. b) Helgi Vigfús Jónsson, f. 3.8. 1956, d. 7.9. 2013. Eiginkona hans var Ingibjörg Jónas- dóttir, f. 27.6. 1954. c) Lára Magnea Jónsdóttir, f. 17.9. Elsku amma, við kveðjum þig með miklum söknuði en jafnframt með gleði í hjarta yfir öllum minn- ingunum. Öll sumrin á Akureyri sem ég átti með ykkur afa þegar ég var að alast upp og það var al- veg sama hvaða skandal maður gerði, þú skammaðir aldrei. Hins vegar reyndir þú að leiðbeina mér í rétta átt. Þú varst einn af mínum bestu vinum og alltaf hægt að tala við þig um allt milli himins og jarð- ar. Þegar ég kynnti þig fyrir Önnu, hvað þú tókst henni vel og hvað þið urðuð góðar vinkonur og seinna þegar börnin fæddust, hvað þú varst þeim góð amma. Við erum öll betri manneskjur vegna þín. Takk fyrir uppeldið á mér. Takk fyrir uppeldið á börnun- um okkar. Takk fyrir allar stundirnar. Takk fyrir allt. Hvíldu í friði, elsku amma. Jón Elvar og Anna. Þá höfum við kvaðst í hinsta sinn, elsku amma og langamma. Afi, Viggi og mamma hafa eflaust tekið vel á móti þér. Eftir stöndum við með ótal góðar minningar um þig og okkar samverustundir. Þú varst okkur alltaf svo góð, manni leið alltaf svo vel í nærveru þinni, enda streymdi einhver hlýja frá þér og þú tókst öllum svo opnum örmum. Þær eru ófáar minning- arnar sem ég á af heimsóknum mínum til ykkar afa þegar ég var lítil stelpa. Ég minnist svo margs, t.d. bakstursins og eldamennsk- unnar, bílferðanna sem á haust- önn enduðu oft út í móa að tína ber. Svo fengum við systkin líka að koma með ykkur í nokkrar sumarbústaðaferðir og þá lentum við þá oft í ævintýrum. Fyrsta árið mitt í framhaldsskóla fékk ég að búa hjá ykkur og var það yndis- legur vetur. Eftir að eiginmaður- inn kom til sögunnar þá var ekki síður gaman að heimsækja ykkur og eiga með ykkur afa yndislegar stundir, enda tókust með ykkur afskaplega sterk tengsl og veit ég að hann átti sérstakan stað í hjarta þínu og honum þótti af- skaplega vænt um þig. Við gátum spjallað saman um allt milli himins og jarðar, en þó var einna skemmtilegast að hlusta á þig rifja upp gamla tíma. Þú gafst okkur svo skemmtilega innsýn í löngu liðna tíma. Síðan komu lang- ömmubörnin til sögunnar og ekki var síður tekið vel á móti manni þá. Börnin okkar minnast þessara heimsókna með hlýhug og þegar ég bað þau um að nefna eitthvað sem þau vildu minnast þá voru þetta minningar um gestrisni og hlýleika, um snitsel með rabarbar- asultu, hafragraut, pönnukökur og alls konar kræsingar, að leika sér með gamla dótið í pokanum og sérstöku lyktina sem fylgdi heim- ilinu. Þegar þú fluttir suður þá gátum við hitt þig mun oftar, en alltaf tókstu á móti manni af sama rausnarskap og hlýju. Syrgi allar stjörnur heimsins, þá björtu norðansól. Er næturslæða ljósið slekkur, farsæl sál sem okkur ól. En ei í myrkrið missir leiðir, því nýrri braut þú býrð nú á. Sameinast um himingeiminn, þær sálir sem hafa fallið frá. Fyrir 46 árum varðstu amma í fyrsta skipti þegar ég kom í þenn- an heim, þá varstu einmitt á 46. aldursári og því er gaman til þess að hugsa að nú stend ég í sömu sporum og þú þá á sama aldri og fagna þeim titli að verða amma í fyrsta skipti. Ég mun reyna af bestu getu að reynast eins góð amma og þú hefur verið mér. Takk, elsku amma og langamma. Þórunn, Júlíus Hafsteinn, Jón Kristján og Sigríður Rós. Með þakklæti í huga ætla ég að minnast hennar Siggu með nokkr- um orðum. Það er svo margt sem hægt er að minnast á eftir næst- um 30 ára samfylgd eða síðan haustið 1991 þegar við Þórunn byrjuðum að vera saman. Sigga og Glói tóku frá fyrsta degi vel á móti þessum unga manni sem var byrjaður að hitta barnabarn þeirra, hana Þórunni. Það var eins og að fá aukasett af ömmu og afa. Það er varla hægt að hugsa um Akureyri án þess að hugsa til þeirra líka. Það eru svo margar minningar sem rifjast upp á svona stundum, allt frá því hvernig þau tóku á móti okkur sem unglingum á ferðalagi norður og biðu með kvöldmatinn langt fram á kvöld ef þau áttu von á okkur. Síðar þegar langömmu- og langafabörnin komu til sögunnar þá var ekki síð- ur tekið rausnarlega á móti stækkandi fjölskyldu. Eftir fráfall Glóa bjó hún áfram á Akureyri en flutti svo suður til Reykjavíkur í nokkur ár. Í gegnum tíðina hafði maður reynt að vera henni og Glóa innan handar með ýmislegt sem þurfti að gera en það var stundum erfitt vegna fjarlægðar en eftir að hún flutti til Reykjavíkur var hægara um vik að geta aðstoðað hana með ýmislegt. Ég tók þátt í flutningunum þegar hún flutti til Reykjavíkur og var hún samferða mér í síðustu flutningsferðinni. Það tók aðeins á hana en áður en hún lokaði og læsti útihurðinni að Dalsgerði í síðasta skiptið þakkaði hún fyrir sig, kvaddi og lokaði svo. Svo þegar við vorum að leggja af stað þá lagði hún til að í tilefni þess að hún væri að flytja þá yrðum við að fá okkur ís. Á suðurleiðinni fékk ég að heyra ýmsar sögur um staði og bæi frá liðinni tíð. Þær urðu nokkrar ferðirnar sem ég skutlaði henni norður eða sótti og aldrei leiddist henni allur þessi akstur, hafði alltaf yndi af því að sjá landið eins og hún sagði. Minn- ingarnar frá þessum samtölum okkar þá og yfir eldhúsborðið heima hjá henni munu seint renna mér úr minni. Með þessum orðum úr ljóði Valdimars Briems ætla að ég að kveðja hana ömmu Siggu og er þakklátur fyrir samfylgdina í gegnum tíðina. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Valdimar Briem) Sveinbjörn. Mig langar með örfáum orðum að minnast Siggu. Ég hef þekkt hana frá barnæsku, hún kom í kaupbæti inn í mitt líf þegar ég kynntist Láru dóttur hennar, þá vorum við fjögurra og fimm ára tátur og erum enn bestu vinkonur 49 árum síðar. Það er erfitt að minnast Siggu án þess að minningar um Jón skjóti líka upp kollinum. Sæmd- arhjón, velviljug og elskuleg. Glettin og kát. Alla tíð fann ég fyr- ir hlýju þeirra og umhyggju. Það voru ófá skiptin sem ég sat við eldhúsborðið í Þórunnarstræt- inu og raðaði í mig kræsingum. Símtöl heim til að spyrja hvort ég mætti borða hjá Láru. Önnur símtöl til að spyrja hvort ég mætti gista. Alltaf var ég velkomin og einn vetur samdi mamma við Siggu um að ég fengi hádegismat hjá henni alla virka daga. Það var ekkert mál og engin greiðsla innt af hendi fyrir þetta viðvik. Þeir voru einnig ófáir sunnudagsbíltúrarnir þar sem ég fékk að skottast með fjöl- skyldunni svo ekki sé minnst á þegar ég fékk einnig að fara með í sumarbústað í heila viku. Það þótti mér afskaplega skemmtilegt og mikil upphefð að fá að fara með. Eftir að ég varð fullorðin og flutt frá Akureyri hélt ég áfram að kíkja til Jóns og Siggu. Þangað var gott að koma og enn og aftur sest við kræsingar. Síðustu árin bjó Sigga í húsinu hjá Láru og fjölskyldu í Reykja- vík. Það var yndislegt að fylgjast með hvað hún geislaði og naut þess að vera í nánd við fjölskyld- una sína, börn, ömmubörn og langömmubörn sem öll virtu hana og elskuðu og voru svo góð við hana. Ég naut líka góðs af því að Sigga var flutt suður, hitti hana reglulega og naut þess að spjalla og finna hennar áhuga, hlýju og umhyggju fyrir mér og mínum. Að leiðarlokum vil ég þakka Siggu fyrir samverustundirnar. Líf mitt er miklu ríkara að hafa átt hana að. Síðast þegar við hittumst var hún komin til Akureyrar aftur og tilbúin til fararinnar. Fannst þetta orðið gott, búin að lifa löngu og farsælu lífi. Ég er þakklát fyrir hvað við kvöddumst fallega. Fjölskyldunni votta ég mína innilegustu samúð. Minning um mæta konu lifir í hugum okkar. Blessuð sé minning Siggu. Álfheiður Árdal. Eitt mesta lán sem hverjum manni hlotnast er að eignast trygga og góða vini á lífsins leið. Í tæpa hálfa öld höfum við mæðg- inin verið svo lánsöm að eiga vin- áttu Sigríðar Steindórsdóttur sem aldrei bar skugga á. Þegar for- eldrar mínir, Vilborg Friðriks- dóttir og Stefán Guðmundsson, fluttu aftur til Akureyrar 1974 hóf pabbi störf sem stýrimaður á Kaldbak – þar var Jón Hjaltason (Glói), eiginmaður Siggu, kokkur um borð. Með þeim tókst góð vin- átta. Ég ólst upp við hlýju og um- hyggju Siggu og Glóa, bæði fyrir mér og mínum nánustu. Þau voru höfðingjar heim að sækja, vinir í raun í blíðu og stríðu – einstök gestrisni þeirra og umhyggja var okkur gulls ígildi. Við skilnað foreldra minna 1984 fluttumst við mæðginin til Dalvík- ur og vináttuböndin við Siggu og Glóa styrktust æ meir þó lengra væri á milli okkar – við skiptumst reglulega á matar- og kaffiboðum og við mamma áttum alltaf tryggt skjól í bæjarferðum okkar heima hjá þeim í Þórunnarstræti og síðar í Dalsgerði. Ég dvaldi einnig hjá þeim vetrarpart 1997 sem var mér alveg ómetanlegt – skynjaði aldrei kyn- slóðabil í samskiptum okkar og gat alltaf talað við þau um það sem mér lá á hjarta. Sigga og Glói samglöddust með okkur á gleðistundum, alltaf svo nálæg þegar þörf var á sannri vin- áttu. Alltaf hringdi Sigga á afmælis- dögunum okkar mömmu, ef hún komst ekki í heimsókn, og fylgdist vel með mér og mínum. Trygg- lyndi, umhyggja og kærleikur var henni í blóð borið. Þegar við mæðginin fluttum aft- ur til Akureyrar um aldamótin jukust samskiptin enn meir, hitt- umst reglulega og áttum með þeim hjónum yndislegar stundir oft í viku. Þegar Sigga flutti suður í nokk- ur ár eftir andlát Glóa varð síminn svo helsta samskiptaleið okkar, símtölin alltaf jafn einlæg og hlý – vináttan áfram sterk þó fjarlægðir skildu að. Við mæðginin mátum mikils að fá Siggu aftur norður fyrir þremur árum, fyrst í hvíldarinnlögn á dval- arheimilið Hlíð nokkrum sinnum og þegar hún loks flutti þangað – við fórum með henni oft í hádeg- ismat í mötuneytinu á sunnudög- um, fórum með hana heim í kaffi og í dagsferðir um fjörðinn, og í vöfflukaffi á miðvikudögum meðan heilsan var góð. Síðustu vikur, þegar Hlíð var lokuð vegna covid, töluðum við mæðginin við hana reglulega í síma. Það var okkur ómetanlegt að ná að hitta hana og kveðja að leiðar- lokum – eiga nokkrar góðar sam- verustundir, eftir að heimilið var opnað aftur í byrjun þessa mán- aðar, þegar heilsu hennar hrakaði. Við mæðginin kveðjum elsku Siggu með sorg í hjarta en um leið þakklæti fyrir trausta vináttu í gegnum árin, allar góðu stundirn- ar og samskiptin sem aldrei bar skugga á. Innilegar samúðarkveðjur til Steindórs, Láru og fjölskyldunnar. Blessuð sé minningin um Siggu vinkonu okkar. Stefán Friðrik Stefánsson. Sigríður Steindórsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku langamma, takk fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt saman. Þú varst einstök mann- eskja sem ég hef verið svo heppinn að kynnast. Ég á eftir að sakna þín óendan- lega mikið en ég veit að þú munt vaka yfir mér og ég á eftir að geyma þig í hjart- anu þangað til við hittumst aftur. Takk fyrir allan stuðninginn í gegnum árin. Hvíl í friði, elsku amma. Bjarki. Í dag kveðjum við elsku langömmu. Þú varst alltaf til staðar fyr- ir okkur og vildir allt fyr- ir okkur gera. Við mun- um sakna þín en eigum minningar sem við mun- um geyma í hjörtum okkar. Elsku amma, takk fyrir allt. Alexander og Kristjana. Elsku besta vin- kona mín er fallin frá. Við Gunnella kynntumst árið 1980 fyrsta veturinn okk- ar í Fjölbraut Garðabæjar. Kynni okkar áttu sér stað úti í blómabeði hjá vini okkar í gleðskap og höfum við því verið vinkonur í 40 ár. Eftir stúdentspróf fór Gunnella í nám til Bandaríkjanna og ég fór í nám til Þýskalands. Þá misstum við að- eins þráðinn enda einkenndust samskiptin þá af bréfaskriftum og stopulum símtölum sem maður var ekki að splæsa í á þessum tíma. Þegar við komum heim úr námi 1990 vorum við báðar einar og Gunnellu vantaði húsnæði. Þá hafði ég fest kaup á íbúð á Flóka- götu og fannst okkur tilvalið að hún flytti til mín. Næsta ár ein- kenndist af miklu samkvæmislífi sem kallaði á nýtt dress nær viku- lega. Það var ekki vandamál því Gunnella átti saumavél og var snillingur í að sníða og sauma á okkur föt samkvæmt nýjustu tísku. Í staðinn sá ég um elda- mennsku og voru þau ófá matar- Guðrún Elín Jónsdóttir ✝ Guðrún ElínJónsdóttir (Gunnella) fæddist 24. mars 1964. Hún lést 8. júní 2020. Útför hennar fór fram 18. júní 2020. boðin sem við héld- um saman á Flókagötu. Sambúð- in gekk furðu vel enda vorum við sam- mála um flesta hluti. Síðan festum við báðar ráð okkar og Gunnella hóf sam- búð með Helga Helgasyni og eign- uðust þau svo Örnu Björk og bjuggu um tíma rétt hjá okkur Bigga í Garða- bænum. Við ferðuðumst mikið saman, fórum í margar útilegur og einnig saman til útlanda. Ferðin okkar saman til Parísar er ógleymanleg svo og margar aðrar ferðir sem við fórum saman í. Gunnella var frábær vinkona og alltaf til staðar fyrir mig. Það leið varla sá dagur að við töluðum ekki saman. Oft töluðum við sam- an í klukkutíma í síma, svo til- kynnti ég að ég þyrfti að skreppa til Gunnellu. Biggi spurði þá furðu lostinn: en voruð þið ekki að tala saman í klukkutíma? Gunnella var mjög vel upplýst og það var aldrei neitt sem hún hafði ekki skoðun á og hún gat alltaf hjálpað til við að leysa ýmis vandamál. Hún var einstaklega orðheppin og bráðskemmtileg. Ég viðurkenni að stundum öfundaði ég Gunnellu af öllum hennar hæfi- leikum. Hún var mjög listræn og smekkleg. Hún málaði myndir og það lék allt í höndunum á henni. Hún var mikið jólabarn eins og ég og þegar hún var í barneignarleyfi bjó hún til ótrúlega flott jóla- skraut. Í einhverju tiltektarkasti (þau voru ansi mörg hjá henni) gaf hún allt jólaskrautið í Góða hirð- inn. Þegar ég álpaðist þangað og sá allt fína dótið frá Gunnellu þá keypti ég það, það fannst henni mjög fyndið. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt svona frábæra vinkonu í öll þessi ár og á erfitt með að hugsa mér að geta ekki lengur hringt og spjallað um allt og ekkert. Ég mun alltaf bera minningu hennar í hjarta mínu og hugsa um allar góðu stundirnar okkar. Elsku Arna Björk, Unnur Arna, Edda Björk, Jón og fjöl- skyldur, innilegar samúðarkveðj- ur frá okkur Bigga. Sigrún Rósa. Elsku Gunnella okkar. Þá er komið að leiðarlokum að sinni. Við eigum bágt með að trúa því að þú sért farin, þú barðist eins og hetja en sjúkdómurinn sigraði að lok- um. Á þessari stundu er okkur efst í huga þakklæti, við þökkum fyrir allar stundirnar sem við Villi- jurtirnar höfum átt saman. Í saumó, í sumó, að njóta Ed Sheer- an í Varsjá og á Laugardalsvelli. Allar stundirnar með krökkunum og fjölskyldum okkar í jólaboðum Villijurtanna. Dýrmætar minning- ar sem við geymum í hjartanu, alltaf. Við hlökkum til að hitta ykkur Erlu og vitum að þið eigið eftir að skemmta ykkur konung- lega yfir Tarotspilunum þar sem Hringbjörn, riddari með lax í bik- ar og fleiri góðir koma við sögu. Njóttu vel í Sumarlandinu, sjáumst síðar. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku Arna okkar, Guð gefi þér styrk á þessum erfiðu stundum. Minningin um frábæra, fallega og góða mömmu lifir, alltaf. Elsku Edda, Unnur, Jón og fjölskyldan öll. Innilegar samúð- arkveðjur færum við ykkur öllum nú þegar Gunnella gullmoli er horfin á braut. Kærleikskveðjur, Svava, Stína og Erla Margrét.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.