Morgunblaðið - 26.06.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 26.06.2020, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 2020 ✝ Gyða Guð-mundsdóttir fæddist í Kambseli í Álftafirði 3. maí 1932. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði, Horna- firði, 19. júní 2020. Foreldrar henn- ar voru Marta Guð- mundsdóttir, f. 20. júlí 1895, d. 20. október 1985 og Guðmundur Eiríksson, f. 11. september 1890, d. 10. nóv- ember 1967. Systur Gyðu eru Lovísa, f. 26. desember 1933, og Sigríður, f. 23. september 1938. Þegar Gyða var þriggja ára fluttist hún með fjölskyldu sinni í Berufjörð en fyrir á bænum var móðurfjölskylda Gyðu. Þrátt fyrir að systurnar væru aðeins þrjár þá ólust þær upp með stórum hópi frændsystkina. Gyða var liðtæk við bústörfin með föður sínum, létt á fæti, bóngóð og iðin. Skólagöngu sína hóf Gyða í farskóla heima í Berufirði. Síðan lá leið hennar í Alþýðuskólann á Eiðum og var hún við nám í skólanum í þrjá vetur frá 1948 til 1951 og þar gegndi hún ýmsum trún- aðarstörfum. Gyða fór í vist í Vallanesi í Fljótsdal eitt sumar og á Selnesi Guðlaug, f. 20. september 1958, maður hennar er Holberg Más- son, synir þeirra eru Heiðar Ludwig, Guðni Már og Magnús Veigar. 4) Ingibjörg, f. 8. mars 1962, maður hennar er Jóhann Sævarsson. Börn Ingibjargar frá fyrra hjónabandi eru Gyða Rós, Gunnþóra Rut, Gígja Re- bekka og Gunnar Valur. Börn Jóhanns frá fyrra hjónabandi eru Hanna Karen og Atli Viðar. 5) Ragnar Birkir, f. 18. febrúar 1964, kona hans er Sigrún Ein- arsdóttir, börn þeirra eru Einir Björn og Fjóla Björg. Fyrir átti Ragnar dótturina Elísabetu Maríu. Dóttir Sigrúnar frá fyrra hjónabandi er Lovísa Elísabet. 6) Guðmundur, f. 19. nóvember 1967, d. í nóvember 1987. 7) Steinþór, f. 1. október 1974, kona hans er Auðbjörg Elísa Stefánsdóttir, börn þeirra eru Stefán Valur og Karólína Björt, Gunnur Margrét og Guðmundur Hálfdán. Dætur Steinþórs frá fyrra hjónabandi eru Ína Kat- hinka og uppeldisdóttirin Guðný Þóra. Dætur Auðbjargar frá fyrra hjónabandi eru Guðrún Lilja og Anna Jóna. Auk þess á Gyða nú 32 barnabörn, 41 lang- ömmubarn og 2 langalang- ömmubörn. Útför Gyðu fer fram frá Djúpavogskirkju í dag, 26. júní 2020, kl. 13. Útförinni verður streymt á facebooksíðu Djúpavogskirkju. Stytt slóð á streymi: https:// tinyurl.com/yd6y2zpv Slóðina má einnig nálgast á www.mbl.is/andlat í Breiðdal um tíma. Eftir námið á Eiða- skóla fór Gyða að vinna á skrifstofu Kaupfélags Beru- fjarðar á Djúpavogi en þar kynntist hún Birni Aðal- steinssyni sjó- manni, f. 13. janúar 1931. Eftir að Gyða og Björn giftu sig hófu þau að byggja sér nýbýlið Hvannabrekku með foreldrum Gyðu og fluttu þangað 1956. Marta og Guðmundur bjuggu með ungu hjónunum til ársins 1959 en þá fluttu þau aftur í Berufjörð. Gyða og Björn bjuggu í Hvannabrekku allt til ársins 1999 þegar Steinþór son- ur þeirra tók við búinu. Gyða og Björn eignuðust sjö börn sem eru: 1) Aðalsteinn, f. 6. janúar 1953, kona hans er Mar- grét Sigurðardóttir, börn þeirra eru Sigurður, Katrín, Freydís og Birna Marín. 2) Marta Karen, f. 16. mars 1956, maður hennar var Sigurður Brynjar Torfason (látinn), börn þeirra eru Ragn- hildur Guðbjörg, Nanna Hall- dóra, Torfi Þorsteinn, Gyða Sig- rún og Guðmundur Davíð. Synir Mörtu frá fyrra sambandi eru Erlingur Ingi og Björn Þór. 3) Við systkinin áttum góða æsku í faðmi foreldra okkar þar sem við lærðum til verka við hlið þeirra en það er nokkuð sem við búum að alla tíð. Ég var mömmustelpa og á margar góðar minningar frá æsku minni, t.d. um að mamma sé að tala í símann og ég standandi hjá henni og hún klappaði á koll- inn á mér um leið. Þá er mér minnisstætt þegar hún var að sauma föt á okkur, þá stóð ég gjarnan á stól fyrir aftan hana og greiddi henni. Síðar hef ég oft hugsað til þolinmæði hennar í minn garð. Mamma var vön að greiða sér við eldhúsvaskinn og setja hár- spennur í hárið. Eitt sinn þegar við vorum að fara til útiverka var mamma að greiða sér og lagði frá sér spennurnar. Þegar hún ætlaði að taka þær fundust þær ekki. Við krakkarnir leituðum og fundum þær ekki heldur. Þegar við kom- um aftur inn voru spennurnar þar sem mamma hafði látið þær. Við höfðum þá skýringu að álf- kona sem bjó í nágrenni okkar hefði fengið þær lánaðar. Mamma lagði mikla áherslu á að við systkinin værum sjálf- bjarga. Eitt sinn er gest bar að garði var ungur bróðir minn að baka pönnukökur, sem gestinum fannst undarlegt, en mamma hafði þá sýn að strákar jafnt sem stelpur ættu að kunna að elda enda sagði hún oft að það eina sem hún kunni að elda þegar hún hóf búskap var hafragrautur. Sorgin kvaddi dyra hjá okkur 1987 er Guðmundur bróðir minn hvarf. Áhrif þess hafa sett mark sitt á fjölskylduna. Mamma hafði mikinn áhuga á skógrækt og tóku þau pabbi til við að rækta skóg áður en bú- skapartíð þeirra lauk og hefur Steinþór bróðir tekið við keflinu. Afrakstur af skógrækt þeirra er sá að Hvannabrekka er nú lang- skógmesta jörð sveitarinnar. Þessum áhuga hefur hún einnig komið yfir til okkar hinna og flest börn hennar stunda ýmiskonar ræktun. Síðan pabbi féll frá hefur mamma búið á Hornafirði. Hún keypti sér íbúð sem hún bjó í þar til heilsan fór að gefa sig og hún flutti á hjúkrunarheimilið Skjól- garð. Þar naut hún góðrar umönnunar og átti þar marga góða vini bæði meðal starfs- manna og íbúa enda var hún allt- af glöð og jákvæð. Ef hún var spurð um líðan þá var svarið oft- ast: „Mér líður bara vel og það er ekkert að mér.“ Þrátt fyrir sjúkdóm þann sem hrjáði mömmu síðustu árin gát- um við tekið í spil þegar ég heim- sótti hana, nú síðast í febrúar. Svo kom hlé á heimsóknum vegna COVID. Þegar við hittum hana aftur var getan til að spila horfin. Síðasta ferð mín til mömmu var farin þann 17. júní, en þá hafði orðið mikil breyting á heilsu hennar og dvaldi ég hjá henni þar til yfir lauk. Þegar ég var að kveðja hjúkr- unarfræðing Skjólgarðs sagði hún mér frá atviki sem átti sér stað þegar þær voru að þvo og klæða mömmu fyrir hennar hinstu för, en þá var það sem þurfti að nota á bakka á náttborð- inu. Hugsunin var að setja rúllur í hárið á henni. Allt í einu féll bakk- inn í gólfið, án sýnilegrar ástæðu. Þær túlkuðu það þannig að mamma vildi ekki rúllurnar og var hætt við að gera það. Var þarna kannski álfkonan úr sveit- inni að verki? Minningar um mömmu munu gleðja fjölskyldu mína um ókomin ár. Blessuð sé minning hennar. Guðlaug Björnsdóttir. Með örfáum orðum langar mig til að minnast elskulegrar tengda- móður minnar sem nú hefur feng- ið sína hinstu hvíld frá amstri þessa heims. Hún var mér alltaf hlý og góð og ég þekkti hana aldrei að öðru en hreinskilni og góðsemi. Fjölskylda hennar var stór og oft gestkvæmt á heimilinu en það virtist henni leikur einn að baka og töfra fram alls kyns kökur og góðgæti með kaffinu fyrir allt þetta fólk. Í upphafi sambands okkar Ragnars leitaði ég því stundum til hennar eftir uppskriftum og brosi ennþá þegar ég fletti í matreiðslu- bókinni minni og sé fyrstu upp- skriftina sem endar á þessa leið: „Hrært á venjulegan hátt.“ Samviskusamlega hafði ég skrif- að öll innihaldsefnin niður í gegn- um síma en svo reyndist mér þetta ekki auðvelt í framkvæmd, ég vissi ekki hvernig ég ætti að hræra á „venjulegan hátt“. Síðan eru liðnir áratugir, ég á margar góðar uppskriftir frá henni, og held að mér hafi farið eitthvað fram hvað bakstur varð- ar. Ég kann að minnsta kosti að hræra í kökur á venjulegan hátt. Gyða var búin að vera veik í nokkurn tíma og dvaldi á hjúkr- unarheimilinu Skjólgarði á Höfn í Hornafirði. Alltaf var hún einlæg og ljúf og mér þótti afar vænt um hana. Aldrei féll henni verk úr hendi og eftir að hún var komin á hjúkr- unarheimilið undi hún sér best þegar hún fékk að aðstoða við ein- hver verk. Í einni heimsókn okkar þangað sagði hún við mig: „Ég kann bara ekki að gera svona ekki neitt.“ Við Ragnar, Einir og Fjóla nut- um þeirra forréttinda að vera með henni yfir jólin síðustu tvö ár en það eru þau jól sem hún var á hjúkrunarheimilinu. Það sem stóð upp úr í þeim heimsóknum var þegar hún klæddist upphlutnum sínum fallega af stolti og ein- skærri gleði. Þótt minnið væri far- ið að svíkja hana mundi hún þó alltaf hvernig við Fjóla áttum að bera okkur að þegar við hjálpuð- um henni að klæðast þessum fal- lega skrúða. Að lokum vil ég heiðra minn- ingu Gyðu með völdum versum úr Orðskviðum Biblíunnar sem mér finnst eiga svo vel við hér: Væna konu, hver hlýtur hana? hún er miklu meira virði en perlur. Hún hefir augastað á akri og kaupir hann, af ávexti handa sinna plantar hún víngarð. Hún gyrðir lendar sínar krafti og tekur sterklega til armleggjunum. Hún finnur, að atvinna hennar er arðsöm, á lampa hennar slokknar eigi um nætur. Hún réttir út hendurnar eftir rokknum, og fingur hennar grípa snælduna. Hún breiðir út lófann móti hinum bágstadda og réttir út hendurnar móti hinum snauða. Hún opnar munninn með speki, og ástúðleg fræðsla er á tungu hennar. Hún vakir yfir því, sem fram fer á heimili hennar, og etur ekki letinnar brauð. Sú kona, sem óttast Drottin, á hrós skilið. Gefið henni af ávexti handa hennar, og verk hennar skulu lofa hana í borgarhliðunum. (Orðskviðirnir 31.10-31) Sigrún Einarsdóttir. Gyða Guðmundsdóttir ✝ Magnús IngiErlingsson fæddist í Reykja- vík 8. maí 1965. Hann lést 2. apríl 2020 á Skt. Maria- spítalanum í Lissa- bon, Portúgal. Foreldrar hans voru Ingibjörg S. Magnúsdóttir, f. 1932, d. 2009, og Erling S. Tóm- asson, f. 1933, d. 2017. Systkini Magnúsar eru: 1) Lára, f. 1954, maki Þorsteinn Á. Henrysson (d. 2015). 2) Ólöf, f. 1956, maki Þorsteinn Jóhannesson. 3) Björn, f. 1957, maki Bergþóra Vals- dóttir. 4) Már, f. 1969, maki Halla Gunnarsdóttir. 5) Heiða, f. 1971, maki Rúnar Sigtryggsson. Magnús átti fjögur börn: 1) Ástríður, f. 1983, maki Sölvi Signhildar Úlfsson. Dætur þeirra eru Hjördís, f. 2016, og Signhildur, f. 2018. Móðir Ástríðar er Hjördís Elísabet Gunnarsdóttir. 2) Magnús Orri, f. 1988, maki Kristín hann lauk mastersprófi í lög- fræði árið 1999. Magnús fékkst við ýmis störf en öll tengdust þau lögfræðinni með einhverjum hætti. Hann var lögfræðingur á fasteigna- sölunni Gimli á árunum 1992- 1995 og hjá Vinnueftirliti rík- isins 1998-2000. Hann var hér- aðsdómslögmaður 2000-2010 og var dómari í Félagsdómi 2000-2008. Hann kenndi lög- fræði við Háskólann á Bifröst 2003-2004. Þá var hann fram- kvæmdastjóri Nýju Jórvíkur ehf. á árunum 2004-2009 og Faxa ehf. 2007-2009. Hann var lögfræðingur hjá Seðlabanka Íslands 2010-2011. Frá árinu 2011 og til loka árs 2019 starf- aði Magnús á lögfræðisviði skrifstofu eigna og at- vinnuþróunar hjá Reykjavíkur- borg. Áhugamál Magnúsar voru mörg og fjölbreytt. Magnús var alla tíð mikill áhugamaður um tónlist. Hann æfði skíði á ung- lingsárum og það áhugamál fylgdi honum út lífið. Í seinni tíð stundaði Magnús golf af miklum áhuga auk þess sem skákin, mótorhjólið og hesta- mennskan voru aldrei langt undan. Magnús Ingi Erlingsson verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni í dag, föstudaginn 26. júní 2020, kl. 13. Sigurðardóttir. 3) Emil Már, f. 1992. 4) Daníel Máni, f. 1997, maki Krist- ín Arna Árnadótt- ir. Móðir drengj- anna er Sunna Ólafsdóttir. Sunna og Magnús Ingi voru gift frá 1988 til 2002. Fyrstu spor ævinnar tók Magnús í Ljósheimum í Reykjavík, en 1971 flutti fjöl- skyldan í Fossvoginn. Í upp- vextinum var Magnús í sveit nokkur sumur hjá móð- urömmu og –afa í Dalasýslu en sveitin var honum alla tíð hjartfólgin. Magnús gekk í Fossvogs- og Réttarholtsskóla. Hann lauk verslunarprófi frá Versl- unarskóla Íslands en kláraði svo stúdentsprófið frá Menntaskólanum við Hamra- hlíð. Magnús lauk lögfræði- prófi frá Háskóla Íslands árið 1992. Nokkrum árum síðar flutti hann með fjölskylduna til Árósa í Danmörku þar sem Það tók okkur Magga eina tvo áratugi að verða vinir. Við vissum hvor af öðrum í Rétt- arholtsskóla og Menntaskólan- um við Hamrahlíð. Svo fórum við hvor sína leiðina í lífinu, en hittumst aftur á endurfundi eldri nemenda úr Réttarholts- skóla árið 2000. Þar voru allir farnir að vera nokkuð mýkri í samskiptum en hafði verið á unglingsárum og „klíku-landamæri“ farin að dofna. Það voru nú reyndar ekki margir aðrir en þau vin- irnir Maggi, Ísleifur og Hjördís sem gátu dansað línuna á milli „alka“- og „andra“-klíkanna í sínum tíma. Stuttu eftir þessa endur- fundi fórum við Magnús að hittast oftar í góðum fé- lagsskap. Sá vinahópur varð mikilvægur í lífi okkar, nokk- urra miðaldra „lífskúnstnera“ sem komu oftar en ekki saman á Vínbarnum við Kirkjutorg, sem varð okkar „Cheers“, þar sem Gunni Palli stóð vaktina sem okkar eigin „Sam Mal- one“. Það var Maggi sem kom þessum hópi saman. Inntöku- skilyrðin í þennan vinahóp voru einföld; að vilja vera með fólki sem kunni að njóta góðs matar og víns í félagsskap annarra „gleðipinna“ sem höfðu svipað lífsmarkmið: að njóta lífsins, þess og þeirra sem það bar með sér, dæma laust og hafa opinn hug fyrir því sem auðgað gæti tíma okk- ar. Oftar en ekki komum við saman á teiknistofu minni, til samkundu sem kallaðist „fridays @ five“. Eitt vín-glös í lok vinnuvikunnar, áður en við héldum inn í helgina. Þessi hópur blandaðist hinu ýmsa góða fólki í gegnum tíðina, margir fengu að koma í heim- sókn á fridays og oftar en ekki endaði hópurinn á Vínbarnum. Í þessum ágæta hóp urðu nokkuð fleiri konur en karlar, sem hafði áhrif á hvað hópurinn kallaðist. Við strákarnir: Gulli, Maggi og ég létum það fyrst yf- ir okkur ganga en bárum síðan nafngiftina með stolti: „Vínbars Dúllurnar“. Árið 2010 kynntist ég Erling, föður Magga, en ég hitti hann þó því miður aldrei. Við áttum ófá samtöl í síma og án efa hefði verið mér til hags að fá að kynnast honum betur og í per- sónu. Maggi bar stundum líðan sína utan á sér og þá var það Erling sem hann treysti mest og best. Nokkur áhugamál áttum við Maggi sameiginleg. Við vorum „Harley-karlar“, báðir meðlimir í HOG – Chapter Iceland. Maggi tók þó mótor- hjóla-ímyndarmálin lengra en ég, fór alla leið og klæddist jakka í anda Johnny (Marlon Brando) í myndinni „The Wild One“. Hann bar jakkann með stolti og kunni vel að meta frelsið sem fólst í því að þeytast um á mótorfák. Eftir að Magnús fór að starfa í miðborginni hittumst við mikið í hádeginu. Stundum þurftum við að ræða erfið mál- efni og flókin en í það heila verður að segjast að það var alltaf gaman að vera í kringum Magga. Stundum svolítið flókið en alltaf áhugavert! Það hefur auðgað líf mitt að kynnast Magnúsi Erlingssyni. Ég votta börnum hans og systkinum samúð mína. Hvíl í friði, kæri vinur. Ívar Örn Guðmundsson. Í dag kveð ég góðan vin, Magnús Inga. Við kynntumst fyrst í kring- um 1980 er við, nokkrir ung- lingar, æfðum skíði hjá skíða- deild Víkings. Síðan hittumst við ekki í mörg ár. Árið 2002 tókum við síðan kynni upp að nýju er við ,flækt- umst’ í skemmtilegan hóp fólks um fertugt og fimmtugt. Þessi hópur heldur enn samskiptum og kveður nú Magga með mikl- um söknuði. Við Maggi náðum alltaf sér- stökum tengslum, við vorum með svipaða kímnigáfu og stundum þurfti lítið að segja svo úr yrði mikill hlátur. Maggi hafði smitandi og skemmtilegan hlátur svo ekki varð undan því komist að hlæja dátt með hon- um. Ekki er langt síðan Maggi leit inn heima hjá mér í kaffi og pönnukökur. Hann var alltaf kurteis og sendi mér þakklætisskilaboð eftir heim- sóknina. Þetta voru síðustu skilaboðin frá honum og geymi ég þau í hjarta mínu um ókomna tíð. Takk fyrir samveruna, Maggi minn, takk fyrir að vera góður vinur. Ég sendi börnum Magga og fjölskyldu mínar dýpstu samúðarkveðjur. Edda Kristín Reynis. Á Mustang um himinhvolfið. Í dag er jarðsunginn kær vinur, Magnús Ingi Erlingsson lögfræðingur. Við kynntumst fyrir næstum tveimur áratug- um. Áttum á okkar fyrsta fundi eftirminnilegar samræður um samkeppnismál. Síðar snerust samtöl okkar um tónlist en einnig um fagleg málefni eins og eignarrétt, skipulagsmál og fasteignaþróun sem voru hugð- arefni Magnúsar Inga og ekki má gleyma mótorfákum. Við höfðum fyrir nokkru rætt um að fasteignir í heima- landi Vasco da Gama væru á hagstæðu verði. Líklega hefur hann ætlað sér að kanna mark- aðinn þar í þeirri lokavegferð sem hann tók sér einn fyrir hendur í miðjum faraldri. Þar sló hjarta hans út. Við áttum ógleymanlegar stundir þegar við lögðum land undir fót haustið 2016 og fórum til Ameríku. Gengum meðal stjarna í Hollywood og brun- uðum svo á Ford Mustang út úr borg Englanna inn í eyði- mörk sem kennd er við pálmatré til að hlýða á Rolling Stones flytja sönginn um Wol- and í Margarítumeistaranum. Þarna áttum við ótrúlegar minningar en á þessum tón- leikum stigu meðal annars The Who, Roger Waters og Paul McCartney á svið. Neil Young raulaði eins og honum einum er lagið um leit sína að hjarta úr gulli. Það átti vel við því Magnús Ingi var gull af manni. Til allr- ar hamingju heyrðum við einn- ig Dylan kveða um bankið á dyr himnasmiðsins. Þar hefur Magnús örugglega samið sig inn eins og kerlingin hans Jóns gerði þegar hún stóð andspæn- is Gullna hliðinu. Nú situr Magnús Ingi við fótskör skaparans og horfir blessunaraugum á okkur hin. Sérstaklega börnin sín sem voru honum svo kær. Ég votta þeim sem og öðrum aðstand- endum innilega samúð mína. Hvíl í friði. Magnús Árni Skúlason. Magnús Ingi Erlingsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.