Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2020, Síða 20
Ljósmynd/Colourbox
landsbanka, sem er að mínu mati
eitt af skemmtilegustu verkefnunum
og er stærsta samfélagsverkefni
bankans.“
Hvað elskar þú mest við lífið?
„Son minn sem er tíu ára, fjöl-
skylduna og vini. Þar á eftir koma
sólríkir dagar. Það að ferðast um
heiminn og upplifa nýja staði og
ólíka menningu.“
Ertu mikið fyrir að kaupa þér
fallega hluti?
„Já, ég get ekki sagt annað. Bæði
þegar kemur að heimilinu, fatnaði og
fylgihlutum.“
Hver er fallegasta flíkin í fata-
skápnum þínum?
„Það er án efa handsaumaður
pallíettukjóll frá íslenska fatamerk-
inu Freebird. Algjör klassík sem
gengur alltaf við fínni tilefni.“
Er eitthvað sem þig dreymir um
að eignast sem þú ert að safna þér
fyrir?
„Mig dreymir um heitan pott. Það
er ekki spurning. En ég þyrfti helst
stærri garð áður en ég keypti hann.“
Hvernig skóm ertu alltaf í?
„Yfirleitt eru það hælar, annars
oft hvítir strigaskór.“
Hvaða máli skiptir falleg hand-
taska?
Hver eru helstu áhugamálþín?„Ég er mikið fyrir að
ferðast erlendis. Eins er ég áhuga-
manneskja um góðan mat og fer
mikið á góða veitingastaði. Ég elska
að kafa og reyni að stunda reglulega
líkamsrækt. Ég er mikil félagsvera
og elska fátt meira en útiveru á sól-
ríkum dögum.“
Hvernig er starf þitt hjá Íslands-
banka?
„Ég hef verið í mjög fjölbreyttum
verkefnum í bankanum og hef
kynnst mörgu frábæru fólki í gegn-
um starfið. Fyrir utan verkefni sem
snúa beint að bankanum er ég svo
heppin að fá að verkefnastýra mark-
aðsmálum Reykjavíkurmaraþons Ís-
Katrín Petersen, verkefnastjóri á Markaðs- og samskiptasviði Íslands-
banka, elskar fátt meira en útiveru á sólríkum dögum.
Elínrós Líndal elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Falleg handtaska skiptir miklu
máli. Það er alltaf gaman að eiga fal-
legar töskur sem setja punktinn yfir
i-ð þegar maður hefur klætt sig upp
á.“
Hvað keyptir þú þér síðast inn í
fataskápinn?
„Ég held það hafi verið pels sem
ég keypti í Kaupmannahöfn korter
í Covid-19-ástandið. Síðan þá hefur
verið lítið um endurnýjun enda
hefur jogginggalinn verið ofnot-
aður í samkomubanninu.“
Áttu gott fegurðarráð sem þú
gætir deilt með lesendum?
„Ég er hrikalega léleg í svona feg-
urðarpælingum og hlýði því bara
sem vinkonurnar ráðleggja mér að
kaupa og gera. Annars treysti ég á
góðan svefn, hreyfingu og tek
reyndar góða ólífuolíu í matskeið á
hverjum degi.“
Hvers gætir þú ekki verið án
sem er í handtöskunni þinni dag-
lega?
„Síminn, því miður.“
Hvert er fallegasta húsgagnið
að þínu mati?
„Ég er alltaf voða skotin í butter-
fly-stólnum mínum, fátt betra en að
kúra í honum með góðan kaffi-
bolla.“
Katrínu dreymir
um góðan heitan
pott.
Ljósmynd/Colourbox
Góður kaffibolli í
butterfly-stólnum
slær flestu öðru við.
Hún gæti
ekki verið
án símans í
töskunni.
Katrín ferðaðist til Kaup-
mannahafnar rétt fyrir ferða-
bann og keypti sér pels þar.
Katrín Petersen, verkefna-
stjóri á markaðs- og sam-
skiptasviði Íslandsbanka.
Katrín er mikið
fyrir að kafa.
Elskar að ferðast um heim-
inn og upplifa nýja staði
Hún treystir á góðan
svefn, hreyfingu og
tekur eina matskeið
af ólífuolíu á dag.
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.6. 2020
LÍFSSTÍLL
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.