Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2020, Qupperneq 24
Greipur, sem er á þrettánda ári, er
mikill skíðamaður. Hann hefur verið
á skíðum frá blautu barnsbeini.
Greipur, Harpa og Ásmundur sjást hér fyrir framan Heli ski-þyrlu á Trölla-
skaga. Þeir sem ekki vilja ganga upp geta keypt sér ferð á toppinn með þyrlu.
að stunda fjallaskíði, allt sumarið,“
segir hann.
„Þetta lengir skíðatímabilið. Það
er hægt að fara á fjallaskíði allan
veturinn en margir byrja að fara í
mars/apríl og svo fram á sumar. Við
erum búin að fara allar helgar í maí
og nú á að fara að opna í Kerlingar-
fjöllum. Það verður opið í allt sumar
og við stefnum þangað. Svo er alltaf
hægt að fara á Snæfellsjökul,“ segir
Harpa.
Niðurferðin skemmtilegust
Harpa og Ásmundur gista oft í tjöld-
um yfir sumarið í fjallaskíðaferðum,
en á hótelum þegar ekki er hægt að
tjalda. Þau segja að nú sé tilvalið að
panta sér hótelgistingu því víða sé
hægt að fá hótelherbergi á mjög
góðu verði. Og ekki eru hótelin leng-
ur full af erlendum ferðamönnum.
„Í dag er hægt að fá gistingu á
staðnum fyrir lítinn pening,“ segir
Harpa en bendir á að ekki þurfi allt-
af gistingu því tilvalið sé að fara í
dagsferðir.
„Það er fínt að fara á Bláfell en
þangað er bara tveggja tíma akstur.
Og eins með Snæfellsjökul, það er
hægt að gera úr því dagsferð,“ segir
hún.
Hjónin segja að vissulega þurfi
fólk að vera í ágætis formi til þess að
arka upp fjall á skíð-
um. Þau viðurkenna
bæði að skemmti-
legsti hlutinn sé að
renna sér niður eftir
allt erfiðið.
„Það er alveg sér-
stök tilfinning þegar
maður stendur efst á
fjalli og er með fjöll og breiðuna fyr-
ir framan sig. Maður fyllist orku og
manni finnst maður hafa áorkað ein-
hverju,“ segir Harpa.
„Það er oft sagt á ensku „earning
your turns“, eða að vinna sér inn fyr-
ir beygjunum, og það hefur maður
gert þegar maður skíðar niður eftir
að hafa gengið upp,“ segir Ásmund-
ur.
Með skíðin á toppnum
Sonurinn Greipur er mikill skíða-
maður, keppir mikið og fer gjarnan
með foreldrum sínum á fjöll.
„Þetta er svo mikið fjölskyldu-
sport,“ segir Harpa.
„Og nú á Covid-tímum leiddist
okkur sko ekki! Við vorum allar
helgar á fjallaskíðum, á fjöllunum í
kring, á Snæfellsjökli og svo fórum
við fjórum sinnum norður,“ segir
Harpa.
„Það er rosalega mikill snjór á
Tröllaskaga, alveg niður að vegi,“
segir Ásmundur.
„Það er svo mikil fjallamennska
þarna fyrir norðan og gaman að vera
þarna, enda ekki lengur hægt að
fara í Bláfjöll. Svo er alltaf hægt að
fara á alla jökla,“ segir Harpa.
Þau segjast ekki vera búin að
plana allt sumarið en skíðaferðir eru
á dagskrá.
„Við höfum oft planað sumarfríið
með skíðin á toppnum, og það er
rosa gaman að vera í tjaldi og taka
skíðin með. Þá er til dæmis hægt að
fara í Kerlingarfjöll eða á Snæfells-
jökul og stefnum við á það í júlí. En
við förum líka bara um helgar; vökn-
um snemma og drífum okkur af
stað,“ segir Harpa.
Þarft að kunna að skíða
Hjónin segja að fólk þurfi ekki endi-
lega að eiga allar græjur til þess að
prófa fjallaskíði því hægt sé að leigja
útbúnað. Einnig er í boði að fara í
þyrlu upp á topp og renna sér niður
en mörg fyrirtæki bjóða upp á slíkar
ferðir, til dæmis á Tröllaskaga.
„Fólk hefur spurt mig hvort það
geti farið á fjallaskíði ef það er óvant
skíðamennsku og það er ekki góð
hugmynd. Þú þarft
að kunna að skíða,“
segir Ásmundur og
bendir á að á fjöllum
lendir fólk í alls kon-
ar færi.
„Þú þarft ekki að
vera snillingur á
skíðum, en mikil-
vægt að kunna grunnatriðin,“ segir
Harpa.
Þau segja greinilegt að Íslend-
ingar séu farnir að kunna vel að
meta fjallaskíðin. Ásmundur segir
að sprenging sé í sölu fjallaskíða í
Fjallakofanum í ár og segja þau oft
krökkt af fólki að renna sér á jöklum
og fjöllum. Um daginn fóru þau á
Snæfellsjökul og voru þá um tvö
hundruð manns á jöklinum. „Við
fengum varla stæði!“ segir Harpa.
„En svo eru staðir eins og Trölla-
skaginn; þar er nóg af fjöllum og nóg
pláss.“
Við sláum botn í samtalið en ekki
er úr vegi að spyrja hvar eigi að
skíða um helgina.
„Það er spurning hvort við veljum
Heklu, Kerlingarfjöll eða Tindfjöll.“
Harpa segir fátt
betra en að renna
sér niður fjall eftir
að hafa gengið upp.
Hjónin Harpa og
Ásmundur hafa
bæði stundað
skíðamennsku síð-
an þau voru börn.
’ Það er alveg sér-stök tilfinningþegar maður stend-ur efst á fjalli og er
með fjöll og breiðuna
fyrir framan sig.
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.6. 2020
LÍFSSTÍLL
SVALALOKANIR
Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar
og falla vel að straumum og stefnum
nútímahönnunar.
Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við.
Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er.
Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur
hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun.
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU