Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2020, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.6. 2020
LESBÓK
Fjarþjónusta
fyrir betri heyrn
ReSound Smart3D
Afgreiðslutími 9:00-16:30 • Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Við bendum þeim á sem komast ekki í heyrnarþjónustu til okkar
að nýta sér forritið ReSound Smart3D í snjalltækjum
og fá þar heyrnartækin sín fínstillt og uppfærð.
Með fjarþjónustunni er snjalltæki notað til að senda
heyrnarfræðingum beiðni um að breyta stillingu ReSound Linx 3D
og Quattro heyrnartækjanna.
Við svörum eins fljótt og auðið er.
Nánari upplýsingar er á finna á www.heyrn.is eða í síma 534 9600.
MÓTMÆLI Fjöldi leikstjóra í Hollywood hefur stigið fram
og segist gjarnan vilja vinna með leikaranum John Boyega
sem tekið hefur virkann þátt í mótmælum gegn kerfis-
bundnu kynþáttamisrétti á síðustu dögum. Boyega hélt ræðu
á mótmælum sem fram fóru undir yfirskriftinni BlackLives-
Matter á miðvikudag. „Ég veit ekki hvort ég muni eiga
starfsferil eftir þetta en skítt með það,“ sagði Boyega en
mótmælin fóru fram í Hyde Park í Lundúnum. Síðan þá hafa
leikstjórar á borð við Jordan Peele, Phil Lord, Duncan Jones,
Cathy Yan og fleiri lýst yfir stuðningi sínum við Boyega og
vilja til að vinna með honum í framtíðinni. Þá gaf Lucasfilm,
sem framleiðir Star Wars-myndirnar sem Boyega er þekkt-
astur fyrir, út stuðningsyfirlýsingu á Twitter-reikningi sín-
um og kallaði hann meðal annars „hetjuna okkar“.
Styðja Boyega í baráttunni
Boyega á mótmæl-
unum á miðvikudag.
AFP
MÓTMÆLI Öldungadeildarþingmaðurinn Cory
Booker sagðist óttast að klæða sig í venjuleg föt þeg-
ar hann færi heim þessa dagana í fjarviðtali í spjall-
þætti Stephen Colbert á fimmtudag. Mótmæli hafa
sett svip sinn á Washington, D.C., síðustu daga. „Ég
er þingmaður og þegar ég fór héðan [úr vinnu] í
fyrrakvöld þurfti ég að hugsa mig tvisvar um áður
en ég skipti yfir í stuttbuxur og bol,“ sagði Booker
sem gaf kost á sér sem forsetaefni Demókrataflokks-
ins í forkosningunum í ár. Hann sagði að þegar hann
hefði verið 12 eða 13 ára hefðu karlmenn í hans fjöl-
skyldu sagt honum að hann þyrfti að fara að huga að
því að hann vekti ótta hjá ókunnugu fólki einungis
vegna húðlitar síns og þyrfti að passa sig.
Hræddur við að skipta um föt
Cory Booker situr á þingi í Bandaríkjunum.
AFP
Tom Cruise er hvergi banginn..
Aftur af stað
KVIKMYNDIR Tökur á kvikmynd-
inni Mission: Impossible 7 munu
hefjast í september en það er Para-
mount sem framleiðir myndina.
Eins og þeir sem þekkja til vita leik-
ur Tom Cruise aðalhlutverkið í
myndinni. Tökur áttu að hefjast á
Ítalíu í lok febrúar en var frestað
rétt áður en byrjað var vegna kór-
ónuveirufaraldursins.
Myndirnar um hin ómögulegu
verkefni sem leyniþjónustumað-
urinn Ethan Hunt og föruneyti taka
að sér hafa fyrir löngu skapað sér
stóran fylgjendahóp. Þeir geta því
aftur farið að hlakka til sjöundu
myndarinnar en ráðgert er að hún
komi út í nóvember á næsta ári og
sú áttunda stuttu síðar.
Sumarið 2003 lauk handritshöf-undurinn Douglas McGrathvið handrit sitt að kvikmynd
um rithöfundinn Truman Capote.
Hann hringdi þá í vin sinn í kvik-
myndaiðnaðnum, Bingham Ray,
sem hann hafði unnið með að sinni
síðustu mynd.
„Góðar fréttir,“ sagði McGrath.
„Ég kláraði handritið!“
„Ég veit,“ svaraði Ray. „Ég er
með það á skrifborðinu mínu!“
Handritið á skrifborði Rays var
allt annað handrit, skrifað af Dan
Futterman. Það handrit varð að
myndinni Capote sem kom í kvik-
myndahúsin í upphafi ársins 2006.
Myndin var tilnefnd til Óskars-
verðlauna sem besta mynd það árið
og hlaut Philip Seymour Hoffman
Óskarinn fyrir besta leik í aðal-
hlutverki fyrir túlkun sína á Capote.
Handrit McGrath, sem varð að
myndinni Infamous og kom út
seinna sama ár, fjallar um sama tíma
í lífi Capote og handrit Futterman,
árin sem hann vann að einni af sín-
um þekktustu bókum, In Cold
Blood.
Ótrúleg tilviljun. Og, þar sem In-
famous gekk skelfilega í kvikmynda-
húsum, ótrúleg óheppni. Eða hvað?
Blindar ófreskjur
Í símaspjalli í hlaðvarpsþætti Snorra
Björnssonar varpaði Bergur Ebbi
Benediktsson þeirri kenningu fram
að frá Hollywood kæmu oft mjög
svipaðar kvikmyndir með mjög
stuttu millibili. Þetta gerðist svo oft
og söguþráðurinn svo líkur að ekki
gæti verið um tilviljun að ræða.
Raunar er kenningin ekki upp-
runalega Bergs eins og hann benti
sjálfur á í þættinum. Hún er ekki
einu sinni kenning, heldur vel þekkt
fyrirbæri í kvikmyndaheiminum
sem kallast tvíburamyndir (e. twin
films).
Spennutryllirinn The Quiet Place
kom út vorið 2018. Myndin fjallar
um fjölskyldu sem reynir að lifa af í
dystópískum heimi þar sem blindar
verur veiða sér fólk til matar með
hljóðinu einu. Um ári seinna kom út
myndin The Silence. Jú, þið gisk-
uðuð rétt. Myndin fjallar um ógn-
vænlegar verur sem reiða sig á hljóð
við mannaveiðar.
Vinir með fríðindum
„Ég þori að veðja að ef þú ferð út
núna gætirðu fundið tvö til þrjú
handrit að kvikmyndum um sama
efnið sem hafa ekki enn verið gerð-
ar,“ sagði Keith Simanton hjá IMDb
við BBC fyrir 2018.
Og þarna liggur hundurinn graf-
inn. Langur tími líður oft frá því að
handrit er klárað þar til kvikmynda-
stúdíó gefur grænt ljós á að fram-
leiða kvikmynd eftir handritinu.
Þegar eitt stúdíó ákveður að fram-
leiða mynd um vini sem sofa saman
án skuldbindinga er oft til handrit að
nákvæmlega eins mynd sem hægt er
að kaupa réttinn að. (Fyrir áhuga-
sama komu út tvær myndir um ein-
Hermikrákur
kvikmyndanna
Þó að sköpunargáfan í Hollywood sé ekki af
skornum skammti þá apa stúíóin oft hvert eftir
öðru. Svokallaðar tvíburamyndir, þ.e. myndir um
það sama, koma reglulega út með stuttu millibili.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Tom Hanks lék í einni af fjórum kvikmyndum um drengi sem verða skyndilega
menn á 9. áratugnum. Mynd Hanks, Big, gekk best af þeim í kvikmyndahúsum.
20th Century Fox