Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2020, Blaðsíða 29
mitt þetta efni árið 2011, sem báðar
gengu álíka vel.)
Sögurnar virðast ferðast hratt í
Hollywood og eygja því margir
framleiðendur von um koma sinni
mynd út á undan samkeppnisaðil-
anum, þrátt fyrir að hafa verið
seinni til að velja myndina. Liggur
það í augum uppi að þeim sem kem-
ur mynd sinni fyrst út muni ganga
betur í tekjuöfluninni. Það gerist þó
alls ekki alltaf.
Drengir sem verða menn
Undir lok 9. áratugarins urðu
stjórnendur stúdíóanna í Hollywood
gjörsamlega helteknir af kvikmynd-
um þar sem meðvitund drengs fær-
ist yfir í eða skiptir um líkama við
fullorðinn mann. Horki meira né
minna en fjórar slíkar myndir (og
ein sjónvarpsmynd) komu út frá því í
október 1987 fram í júní 1988. Fjór-
ar myndir á rétt rúmum átta mán-
uðum. Aumingjans fólkið.
Síðust þessara mynda var Big
með Tom Hanks í aðalhlutverki.
Hún gekk hins vegar best og varð
Penny Marshall þar með fyrsti
kvenkyns leikstjórinn til að stýra
mynd sem þénar yfir 100 milljónir
dala í kvikmyndahúsum vestanhafs.
Samkvæmt mjög lauslegri út-
tekt sunnudagsblaðsins virðist sú
mynd sem fyrr kemur út yfirleitt
ganga betur. Hvort það er vegna
tímasetningarinnar eða einfald-
lega að stúdíóið sem fyrr tekur af
skarið geti tekið sér meiri tíma í
framleiðsluna, valið betra handrit,
betri leikara, leikstjóra o.s.frv.
skal ósagt látið, enda margt sem
spilar inn í árangur kvikmynda.
Eins og sést hér að ofan eru til
dæmi um að tvíburamyndir hafi
gengið jafn vel, sú fyrri miklu betur
og sú seinni miklu betur. Óvíst er því
hvað stjórnendum stúdíóanna geng-
ur til. Líklega vilja þeir ekki missa af
lestinni um leið og keppinauturinn
ákveður að framleiða tiltekna mynd.
Mögulega á mikilmennskubrjálæði
þar í hlut, þar sem menn vilja jú ekki
líta illa út ef samkeppnisaðilanum
gengur vel.
Latir maurar
Árið 1998 voru gefnar út tvær
teiknimyndir um skordýr, Antz og A
Bug’s Life (Pöddulíf). Báðar voru
þær tölvuteiknaðar og fjölluðu um
maur sem er ekki sáttur við hlut-
skipti sitt í lífinu og verður ástfang-
inn af mauraprinsessunni áður en
hann heldur af stað í ævintýraferð.
Dreamworks, undir stjórn David
Katzenberg, gaf í október þetta ár
út myndina Antz, og Pixar, undir
stjórn Steve Jobs og David Lasse-
ter, fylgdi á eftir mánuði seinna með
Pöddulíf. Katzenberg hafði nýlega
yfirgefið Disney, sem dreifði mynd-
inni, og sökuðu Jobs og Lasseter
hann um að stela hugmyndinni. Til
að vera á undan Pixar með útgáfuna
flýtti Katzenberg framleiðslu mynd-
arinnar um sex mánuði.
Það gekk þó ekki sem skyldi og
öfugt við það sem gerðist í tilfelli
Douglas McGrath og handrits hans
um Truman Capote, þénaði Pöddulíf
meira en tvöfalt meira en Antz og
varð vinsælasta teikimyndin það
árið.
Philip Seymour Hoffman fékk
Óskarsverðlaun fyrir leik
sinn sem Truman Capote í
samnefndri mynd. Myndin
Infamous gekk ekki eins vel.
Metro-Goldwyn-Mayer Studios
7.6. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
FYLKI Leikstjórinn Lilly Wachowski segir
að frægasta mynd hennar, The Matrix eða
Fylkið, hafi fæðst út frá reiði. Wachowski
og systir hennar, Lana, skrifuðu og leik-
stýrðu þessari áhrifamiklu mynd sem
kom út árið 1999. Á þeim tíma lifðu
systurnar báðar sem karlar en komu
seinna út úr skápnum sem trans-
konur. Í viðtali við The Hollywood
Reporter segir Wachowski að hún
hafi verið reið út í sjálfa sig fyrir
að neyða sig til að vera enn inni í
skápnum en einnig út í kapítal-
ismann sem stuðlaði að því.
Fylkið varð til út frá reiði
AFP
BÓKSALA Í MAÍ
Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda
1 Þess vegna sofum við Matthew Walker
2
Hryllilega stuttar
hrollvekjur
Ævar Þór Benediktsson
3
Dagbók Kidda klaufa 12
– flóttinn í sólina
Jeff Kinney
4 Morðin í Háskólabíó Stella Blómkvist
5 Sumarbókin Tove Jansson
6 Milljarðastrákurinn David Walliams
7 Fólk í angist Fredrik Backman
8 Í vondum félagsskap Viveca Sten
9 Elskuleg eiginkona mín Samantha Downing
10
Afnám haftanna –
samningar aldarinnar?
Sigurður Már Jónsson
11 Skólaráðgátan Martin Widmark/Helena Willis
12 Eldum björn Mikael Niemi
13 Sögur úr Múmíndal Tove Jansson
14 Blokkin á heimsenda Arndís Þórarinsd./Hulda Sigrún
15 Heillaspor Gunnar Hersveinn
16
Stjáni og stríðnispúkarnir 5
– partýpúkar
Zanna Davidson
17 Framkoma Edda Hermannsdóttir
18 Iceland in Motion Olivier Grunewald
19 Depill á bókasafninu Eric Hill
20 Vísnabók Iðunnar Ýmsir – Halldór Pétursson
Allar bækur
Það mun aldrei líða mér úr
minni þegar ég var að passa eina
uppáhaldsfrænku mína og las fyrir
hana ljóð úr Svörtum fjöðrum eft-
ir Davíð Stefánsson
afabróður hennar.
Þegar ég ætlaði að
ljúka lestrinum og
bjóða góða nótt, þá
gall í litlu stúlkunni:
„Meiri ljóð!“
Stundum vill
gleymast hversu
áhrifamáttur ljóða er mikill. Ég
kynntist því á dögunum þegar ég
fór í göngu um miðborgina í góð-
um félagsskap að skoða styttur
bæjarins. Til að krydda upp á til-
veruna voru tvö valin af handahófi
við hvert listaverk til að flytja ást-
arljóð hvort til annars – og horfast
í augu. Þó að þetta væru aðeins
ferskeytlur, stuttar og gagnorðar,
mátti glöggt finna
hversu mjög þeim
brá þegar þau fóru
með síðustu hend-
inguna – svo sterk
voru orðin þegar
þau fengu að hljóma
undir þessum kring-
umstæðum. Þau
jafnvel roðnuðu ofan í tær. Eins og
í ljóðinu Við Lindargötu úr Mar-
arbárum eftir Elías Mar:
Í húsi handan við Skólann
bjó heimsins fegursta mær
Ég rétt þorði að renna auga
og roðnaði oní tær
hér bjó Hanna mín Þorgils.
Hún varð sjötug í gær.
Ég hef dundað mér við að lesa
ljóðabækur á þessu ári og glaðst
yfir því hversu gróskan er mikil hjá
ungum skáldum. Innræti Arndísar
Þórarinsdóttur varpar ljósi á
þroskaferli mannsins: „Það eru
engir vinir í Uno/ segir barnið og
horfir á mig/ svolítið ögrandi/ eins
og það vonist til þess/ að ég beri á
móti bitrum sann-
leikanum.“ Svo má
grípa niður í Jónasi
Reyni Gunnarssyni
– á Þvottadegi hans.
Leikur í orðum en
alvaran býr undir:
„… að fjarlægja fólk
úr lífi sínu/ er að
klippa það úr krömdum bílum.“
Þarna er líka gamall kunningi,
Jón Kalman Stefánsson, sem var í
uppáhaldi hjá móður minni – svo
mjög að ég sótti jafnan áritaða
bók til hans á aðfangadagsmorgun
í jólapakkann. Nú er nýútkomið
ljóðasafn frá árunum 1988-1994,
Þetta voru bestu ár ævi minnar,
enda man ég ekkert eftir þeim.
Jón Kalman hikar aldrei við að
ganga alla leið í líkingum – hjá
honum er ýmist himnaríki eða
helvíti. En húmorinn aldrei langt
undan. Í ljóðinu Ray Brown er ein-
föld mynd: „ég kemst ekki/ út úr
herberginu fyrir
bassa.“ Í eftirmála
rifjar hann upp nið-
urlag á fyrstu gagn-
rýninni sem hann
fékk á ljóðabókina
með byssuleyfi á ei-
lífðina: „Af hverju
þessi sóun á papp-
ír?“
Sá sem gefur sig að ljóðum á
ekki erfitt með að svara þeirri
spurningu.
PÉTUR BLÖNDAL ER AÐ LESA
Af hverju þessi sóun á pappír?
Pétur Blöndal er
framkvæmda-
stjóri Samáls.
Fyrir áhugasama má hér sjá
nokkrar þekktar tvíbura-
myndir.
The Amityville Horror
(1979) og The Shining (1980)
Top Gun (1980) og Iron
Eagle (1980)
Dante’s Peak (1997) og
Volcano (1997)
Prefontaine (1997) og
Without Limits (1998)
Deep Impact (1998) og
Armageddon (1998)
Madagaskar (2005) og The
Wild (2006)
The Prestige (2006) og The
Illusionist (2006)
Hercules (2014) og The
Legend of Hercules (2014)
Darkest Hour (2017) og
Dunkirk (2017)
Halda mætti þessari upptaln-
ingu lengi áfram en áhugavert
er að önnur myndin gleymist
oft fljótt, þrátt fyrir afburða-
leikara og mikinn tilkostnað.
Fjöldi tvíbura-
mynda
Wachowski var
reið við skrifin.