Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2020, Qupperneq 30
Jeju, Suður-Kóreu. AFP | Á litlum
vinnustað í Suður-Kóreu sem hýsir
bæði skrifstofu og vel búið verk-
stæði vinna um 20 manns hörðum
höndum að því að smíða sína eigin
sjálfakandi bifreið og hyggjast bjóða
risunum Uber, Tesla og Alphabet,
dótturfyrirtæki Google, byrginn.
Í sprotafyrirtækinu RideFlux
starfa verkfræðingar sem hættu í
vel launuðum störfum hjá nokkrum
af virtustu fyrirtækjum Suður-
Kóreu í því skyni að setja upp leigu-
bílafyrirtæki með sjálfakandi bílum
og vonast til að fá hljómgrunn í landi
sem er þekkt fyrir að gleypa í sig
tækninýjungar.
Fyrsta sjálfakandi bifreiðin frá
þeim er komin á göturnar útbúin
myndavélum og skynjurum. Bíllinn
er af gerðinni Hyundai Ioniq og hef-
ur verið í akstri með viðskiptavini í
rúmar tvær vikur á milli flugvall-
arins og miðstöðvar bílaleigunnar
SoCar á ferðamannaeynni Jeju.
Vegalengdin er 5 km og á leiðinni
þarf að taka u-beygju og fara
framhjá 11 gangbrautarljósum í
þungri umferð við flugvöllinn. Park
Jung-hee, stofnandi fyrirtækisins og
framkvæmdastjóri, sem er með
doktorsgráðu frá háskólanum MIT í
vélaverkfræði, segir að fyrir vikið sé
þessi leið upplögð til þess að þróa og
bæta gervigreindarbúnaðinn í bíln-
um.
Útsendari AFP fór í reynsluakst-
ur í bílnum. Á leiðinni lá pirraður
leigubílstjóri á flautinni vegna þess
að bíllinn, sem að öllu leyti er
rafknúinn, hélt sig við hámarks-
hraða, skipti um akreinar og fór
fram úr öðrum bíl til að hafa örugg-
lega nægilegt svigrúm til að taka
hægri beygju. Á risaskjá á verk-
stæðinu mátti fylgjast með ferðinni
á rauntíma og sjá um leið bifreiðar
og aðra hluti í kringum bílinn og um-
ferðarskilti.
Lögum samkvæmt þarf til öryggis
að vera bílstjóri undir stýri, tilbúinn
að grípa inn í ef þörf krefur. Það
gerist um einu sinni á dag. Þá er eft-
ir pláss fyrir tvo farþega.
Park hefur hug á að auka umsvifin
og stefnir á að bjóða upp á þjónustu
þriggja sjálfakandi bifreiða á helstu
akvegum Jeju, alls um 400 km, áður
en árið er á enda. Áfram yrði þó bíl-
stjóri í þeim tilbúinn að grípa inn í.
„Markmið okkar er að sjálfakandi
bílar án öryggisbílstjóra verði komn-
ir í gagnið alls staðar á Jeju á næstu
fimm árum,“ segir hann.
Keppinautar nýliðanna hafa tals-
vert forskot. Talið er að 50 millj-
örðum dollara hafi verið varið í þró-
un sjálfaksturstækni á undanförnum
fimm árum. Lengst eru menn komn-
ir í Kísildal. Bílar frá framleiðand-
anum Waymo, sem tilheyrir Alpa-
bet, hafa ekið rúmlega 32 milljónir
km á vegum og götum í 25 borgum í
Bandaríkjunum.
Í Suður-Kóreu er hins vegar lögð
áhersla á tækni og hyggjast stjórn-
völd ná fram vexti með því að ýta
undir sjálfakandi bifreiðar. Setja á
upp snjalltæknibúnað við allar hrað-
brautir landsins fyrir 2024, 5.400 km
alls, til þess að greiða fyrir sam-
skiptum við ökutæki. Landið varð
fyrst til þess að setja upp 5G-kerfi,
sem mun greiða fyrir þessari þróun.
„Við þurfum að safna og ná í eins
miklar upplýsingar og hægt er,“ segir
Park og bætir við að gáleysisakstur
kosti rúmlega milljón manns lífið í
umferðinni á hverju ári. „Við þurfum
að geta sýnt fólki fram á uppsafnaðan
slysalausan akstur á löngu tímabili.
Aðeins þannig mun fólki finnast það
vera öruggt í raun í sjálfakandi bíl.
Galdrar gerast ekki af sjálfu sér.“
AFP
Sjálfakandi bíll frá fyrir-
tækinu RideFlux við
flugvöllinn á eynni Jeju.
SMÁFYRIRTÆKI BÝÐUR RISUM BYRGINN
Setja sjálfakandi
bíl á göturnar
AFP
Öryggisbílstjóri situr aðgerðalaus undir stýri í sjálfakandi bifreið á eynni Jeju í
Suður-Kóreu. Slíkar bifreiðar eru í akstri milli flugvallar og bílaleigu á eynni.
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.6. 2020
08.00 Strumparnir
08.20 Blíða og Blær
08.45 Dóra og vinir
09.05 Mæja býfluga
09.20 Adda klóka
09.45 Zigby
09.55 Mia og ég
10.20 Lína langsokkur
10.45 Latibær
11.05 Lukku láki
11.30 Ævintýri Tinna
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.05 Nágrannar
13.25 Friends
13.45 Friends
14.10 Áttavillt
14.40 McMillions
15.35 BBQ kóngurinn
16.05 60 Minutes
17.40 Víglínan
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.50 Sportpakkinn
19.00 The Greatest Dancer
20.15 Samkoma
20.55 Between Us
21.40 Killing Eve
22.25 Prodigal Son
23.10 Manifest
23.55 I Know This Much Is
True
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Sjómannadagurinn
20.30 Eitt og annað af sjón-
um
21.00 Sjómannadagurinn
21.30 Sjómannadagurinn
22.00 Sjómannadagurinn
22.30 Sjómannadagurinn
23.00 Sjómannadagurinn
23.30 Sjómannadagurinn
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
20.00 Mannamál (e)
20.30 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.00 Helgarviðtalið
21.30 Bærinn minn (e)
Endurt. allan sólarhr.
11.30 The Voice US
13.00 The Bachelorette
14.25 The Good Place
14.50 Gordon Ramsay’s 24
Hours to Hell and Back
16.05 Malcolm in the Middle
16.25 How I Met Your Mother
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves Ray-
mond
17.35 A Million Little Things
18.20 This Is us
19.05 Með Loga
20.00 The Block
21.20 Madam Secretary
22.10 Godfather of Harlem
23.10 The Walking Dead
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Dóm-
kirkjunni.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Og allir komu þeir aftur.
15.00 Glans.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Raunir, víti og happ.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Síðustu kvöldin á jörð-
inni.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.19 Molang
07.23 Húrra fyrir Kela
07.47 Hæ Sámur – 51. þáttur
07.54 Hrúturinn Hreinn
08.01 Bréfabær
08.12 Með afa í vasanum
08.24 Stuðboltarnir
08.35 Konráð og Baldur
08.48 Nellý og Nóra
08.55 Múmínálfarnir
09.18 Ronja ræningjadóttir
10.00 Herra Bean
10.25 Sögur, verðlaunahátíð
barnanna 2020
11.35 Skólahreysti
12.45 Treystið lækninum
13.40 Menningin – sam-
antekt
14.05 Sjómannslíf
14.25 Sundkennsla í stofunni
14.40 Músíkmolar
14.55 Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í beinni útsend-
ingu
15.55 Dóra – ein af strákun-
um
16.45 Soð
17.05 Manstu gamla daga?
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.30 Lífsins lystisemdir
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.40 Jarðtengdur
20.20 Músíkmolar
20.35 Viktoría
21.25 Framúrskarandi vin-
kona: Saga af nýju
ættarnafni
22.30 Brim
24.00 Kafbáturinn
13 til 16 Pétur Guðjóns Góð tónlist og létt spjall á
sunnudegi.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 með DJ Dóru Júlíu
Einn vinsælasti plötusnúður landsins kynnir vinsæl-
ustu lög landsins á K100. Tónlistinn er eini opinberi
vinsældalisti landsins, unninn upp úr gögnum frá Fé-
lagi hljómplötuframleiðanda.
18 til 00 K100 tónlist Besta blandan af tónlist á
K100 í allt kvöld.
Magnús Þór Sigmundsson,
tónlistarmaður og lagahöf-
undur, var einn gesta morg-
unþáttarins Ísland vaknar í
Hveragerði á föstudag en
hann er búsettur þar. Sagði
hann að ákvörðunin um að
flytja í bæinn hefði verið ein
sú besta sem hann hefði
tekið og opnaði sig um það
hvernig eitt hans þekktasta
lag, Ísland er land þitt, kom til sögunnar.
„Ég var að vinna á geðdeild. Ég samdi þrjú lög þetta
kvöld; Ísland er land þitt, Draumur aldamótabarnsins
og Reynitréð. Þetta er allt eftir hana [Margréti Jóns-
dóttur],“ sagði Magnús aðspurður um tilurð lagsins vin-
sæla.
Viðtalið við Magnús má í heild sinni finna á fréttavef
K100, K100.is.
„Ísland er land þitt“
varð til á geðdeild
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI
Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn
og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda.