Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2020, Side 32
SUNNUDAGUR 7. JÚNÍ 2020
„Þetta er eina leiksýningin sem er í gangi í dag,“ segir
Sara Marti Guðmundsdóttir, sem leikstýrir Karíusi og
Baktusi ásamt Agnesi Wild. Sýningin, sem er í Kaldalóni
í Hörpu, hefur verið tilnefnd til Grímunnar sem barna-
sýning ársins.
Skemmtilegt að vera óþekkur
Sara segir þá félaga Karíus og Baktus alltaf heilla börn.
„Það er af því þeir eru svo óþekkir. Það er svo
skemmtilegt. Það langar alla að vera smá óþekkir. Svo
vilja auðvitað allir borða nammi. Þeir eru að lifa draum-
inn, draum okkar allra,“ segir hún og hlær.
„Boðskapurinn er alltaf sá sami en
við breyttum aðeins og settum aðeins
meiri ábyrgð á tannhirðu barna á for-
eldrana. Svo erum við búin að upp-
færa leikritið og erum með nútíma-
brandara. Áhorfendur fá líka í þetta
sinn að sjá hvaðan þeir koma og hvert
þeir fara,“ segir hún og segist nota
tæknina óspart.
„Þetta er mjög tæknileg sýning og
við notum mjög mikið vídeó.“
Allar upplýsingar og miða má finna á harpa.is og tix.is.
Ljósmynd/Daldrandi
Draumur okkra allra
Sara Marti
Guðmundsdóttir
Karíus og Baktus eru mættir á ný til að skemmta börnum, nú í Hörpu.
Þeir bræður, Karíus og
Baktus, elska nammi og
sætindi. Þeir hafa minni
áhyggjur af tann-
skemmdum í munni Jens.
Málfar íþróttablaðamanna og
orðanotkun hefur löngum verið
vinsælt umræðuefni. Anna Theo-
dóra Pálmadóttir fjallaði um
málfar í íþróttafréttum í Morg-
unblaðinu í júní 1990 og byggði
þar á BA-ritgerð sinni í íslensku
um viðfangsefnið.
Niðurstaða hennar var að eðli-
lega hefði „orðræða íþróttanna
þróast á því sjötíu ára tímabili
sem hér var til athugunar. Þó
sýnast breytingarnar óveruleg-
ar“.
Hún nefnir sem dæmi að 1928
hafi verið talað um prýðilega fal-
legt spark, en þegar hún skrifar,
1990, glæsilegt skot.
Þá var algengt að talað væri
um að setja mark fram á fimmta
áratuginn, svo hafi það orðalag
horfið og ekki birst aftur fyrr en á
áttunda áratugnum. Sögnin að
skora hefði fyrst verið notuð
1938.
Athygli hennar vekur einnig að
Fram hafi glatað beygingu sinni,
en 1918 hafi það verið gert og
talað um leik milli Vals og Frams.
Þá skaut orðið knattreki upp
kollinum yfir knattspyrnumann,
en varð ekki langlíft.
GAMLA FRÉTTIN
Knattreki
hvarf
Knattrekendur kljást um boltann. Orðið knattrekandi kom fram 1928 í
merkingunni „þeir sem reka knöttinn“, en náði ekki fótfestu.
Morgunblaðið/Arnaldur
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Tilda Swinton,
skosk leikkona
Margrét Pála Ólafsdóttir,
stofnandi Hjallastefnunar
Gwendoline Christie,
bresk leikkona