Morgunblaðið - 01.07.2020, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2020
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Tryggðu þér borð á
www.matarkjallarinn.is
fylgir hverri ferðagjöf sem innleyst
er hjá Matarkjallaranum
FORDRYKKUR
Þeir gerast vart sjaldgæfari farfugl-
arnir en þeir sem flugu yfir Eyjafirði
sl. laugardag. Tvær F-35 orustuþot-
ur ítalska flughersins flugu þar sam-
hliða og heiðruðu gesti á jörðu niðri.
Yfirflugið var hluti af dagskrá flug-
dags Flugsafns Íslands sem hefur
aðsetur á Akureyrarflugvelli.
Að sögn Harðar Geirssonar,
stjórnarformanns flugsafnsins, var
gestafjöldi um 480 manns þegar
mest lét og var gerður góður rómur
að sýningunni.
Á sýningunni var komið víða við í
íslenskri flugsögu. Nákvæmt módel
af AVRO 504K var afhjúpað af Guð-
jóni Ólafssyni yfirsmið, en vélin er
þeirrar tegundar sem fyrst flaug hér
á landi árið 1919 og markaði upphaf
Flugfélags Íslands hins fyrsta.
Landhelgisgæslan sýndi þyrlu-
björgun á TF-EIR og félagsskapur
er kallar sig „flugsveitina“sýndi
kúnstir sínar á listflugvélum af gerð-
unum Pitts Special og Van RV-4.
Flugmenn Norlandair voru á heima-
velli er þeir sýndu stuttbrautargetu
DHC-6 Twin Otter skrúfuþotu og
lentu henni nánast á „frímerki“.
Á safninu var opnuð sérsýning um
flugfélagið Cargolux sem á sér
sterkar rætur hér á landi, sem af-
sprengi Loftleiðaævintýrisins, enda
eiga margir Íslendingar minningar
og tengsl við það félag.
Loftrýmisgæsla á vegum Atlants-
hafsbandalagsins er í höndum Ítala
um þessar mundir. Flugvélakostur
þeirra er af nýjustu tegund sinnar
kynslóðar orustuþotna, F-35 og því
mikil upplifun fyrir sjón og hlustir
flugáhugamanna að fá að berja far-
kostinn augum í návígi og hlýða á.
Flugsafnið á Akureyrarvelli hýsir
margan góðan kostinn, s.s. C-47A,
betur þekkt sem „Þristurinn“ og
kennd við Pál Sveinsson, fyrrver-
andi landgræðslustjóra. Sú vél er
enn í lofthæfu ástandi þrátt fyrir há-
an aldur. sighvaturb@mbl.is
Eyfirskur
flugfögnuður
Hátt í 500 manns sóttu flug- og sögu-
sýningu á Akureyrarflugvelli
Ljósmynd/Höskuldur B. Erlingsson
Magnús Þór Ás-
mundsson, fv. for-
stjóri Alcoa-
Fjarðaáls í Reyð-
arfirði, hefur
verið ráðinn
hafnarstjóri
Faxaflóahafna.
Þetta var sam-
þykkt samhljóða í
stjórn Faxaflóa-
hafna og tekur
Magnús við starfinu af Gísla Gísla-
syni 5. ágúst næstkomandi.
Magnús Þór er rafmagnsverk-
fræðingur frá Háskóla Íslands og
lauk meistaragráðu í faginu frá DTU
í Danmörku árið 1990.
Hann starfaði frá árinu 1990 til
2009 hjá Marel, en þar var hann
framkvæmdastjóri framleiðslu, fyrst
á Íslandi og síðar með ábyrgð á
framleiðslueiningum Marels í Evr-
ópu. Árið 2009 hóf Magnús Þór störf
hjá Fjarðaáli, fyrst sem fram-
kvæmdastjóri framleiðsluþróunar,
en síðar sem forstjóri. Hjá Fjarðaáli
var Magnús ábyrgur fyrir allri starf-
semi félagsins á Íslandi, þ.m.t. inn-
leiðingu á öryggisstefnu, og sam-
vinnu við opinbera aðila. Þar átti
hann m.a. samstarf við sveitarstjórn
Fjarðabyggðar varðandi hafnamál
og umhverfismál, að því er fram
kemur í tilkynningu frá Faxaflóa-
höfnum. Alls sóttu 26 um starfið.
Frá Alcoa-Fjarðaáli
til Faxaflóahafna
Magnús Þór
Ásmundsson
Meðal atriða á flugdeginum var listflug þeirra Guðjóns
Jóhannessonar og Sigurðar Ásgeirssonar. Guðjón er á
efri vélinni á myndinni hér að ofan, af tegundinni Van
RV-4, skráð TF-RVA. Fyrir neðan hann og fjær er Sig-
urður á vélinni Pitts Special, skráð TF-BTH. Sú vél var
áður í eigu Björns Thoroddsen.
Þriðji meðlimur flugsveitarinnar er Kristján Þór
Kristjánsson, einnig á Pitts Special, skráð TF-TOP.
Hann var ekki með í för en saman æfa þeir samhæft
listflug og sýna við hvert tækifæri. Þeir félagar hafa
uppi áform um spennandi sýningu fyrir góðan málstað
en vilja ekkert láta uppi að svo stöddu.
Ásar í samhæfðu listflugi
Frumvarp heilbrigðisráðherra, sem
lýtur að vernd einstaklinga í
tengslum við vinnslu persónu-
upplýsinga og miðlun þeirra, var
meðal þeirra mála sem Alþingi
samþykkti í fyrrinótt.
Með frumvarpinu eru gerðar
breytingar á ýmsum lögum sem
heyra undir málefnasvið ráðherra.
Breytingar eru gerðar á lögum
um lífsýnasöfn og söfn heilbrigðis-
upplýsinga, lögum um landlækni og
lýðheilsu, sóttvarnalögum, lyfjalög-
um, lögum um sjúkratryggingar,
lögum um lækningatæki og lögum
um heilbrigðisþjónustu.
Lagabreytingarnar sem hér um
ræðir eru til komnar vegna nýrra
laga um persónuvernd og vinnslu
persónuupplýsinga, sem tóku gildi í
júlí 2018. Með þeim var lögfest
reglugerð Evrópuþingsins og -ráðs-
ins 2016/679 sem leysti af hólmi til-
skipun þess frá árinu 1995.
Lög um vinnslu persónuupplýsinga