Morgunblaðið - 01.07.2020, Page 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2020
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
GÆÐA VIFTUR FRÁ
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
MIAMI 40 cm
Verð 11.130,-
MIAMI 30 cm
Verð 8.980,-
LOUISIANA
Verð 17.980,-
UTAH
Verð 13.930,-
FLORIDA
Verð 15.980,-
Erum með þúsundir vörunúmera
inn á vefverslun okkar brynja.is
Frí heimsending út maí
„ÁHUGAVERT – EN ÞÚ SVARAÐIR
HENNI EKKI. ERTU AÐ HALDA FRAMHJÁ
MÖMMU?”
„KAUPIRÐU NOTAÐA KETTI?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skella í köku með
krílunum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ELSKA TÖFRA JÓLANNA Í HVERJU FELAST ÞEIR?
Í ÞVÍ AÐ
GRETTIR
HAGAR SÉR
EKKI
VENJAST
ÞESSU
ÖNNUR PYNGJA MEÐ
GULLPENINGUM!
HVERSU MIKLU GULLI
NÁÐUM VIÐ Í DAG?
ÉG VEIT
ÞAÐ EKKI
ENN …
SVENNI ER ENN AÐ TÍNA UPP
GULLTENNUR ÚR VALNUM!
Foreldrar Níels Árna voru Helga
Kristinsdóttir, 27.2. 1921, d. 1.6. 2007,
húsmóðir í Miðtúni og hannyrðakona,
og Árni Pétur Lund, f. 9.9. 1919, d.
1.3. 2002, búfræðingur og bóndi á
Raufarhöfn, síðar í Miðtúni. Deildar-
stjóri Kaupfélags Norður-Þing-
eyinga, refaskytta og rak bensín-
afgreiðslu. „Móðir mín var glaðvær
og gestrisin; ljóðelsk og söngvin og
faðir minn var harðduglegur og
snöggur til allra verka.“
Níels Árni Lund
Sveinbjörg Torfadóttir Laxdal
húsmóðir, flutti til Kanada,
frá N-Múl.
Grímur Laxdal
kaupmaður á Vopnafirði, Húsavík
og í Winnipeg, frá Akureyri
Rannveig Guðrún Laxdal Lund
húsmóðir í Lundshúsi og rak
þar gisti- og greiðasölu
Maríus Jóhann Lund
bóndi í Lundshúsi á Raufarhöfn
Árni Pétur Lund
búfræðingur og bóndi á
Raufarhöfn, síðar í Miðtúni
Þorbjörg Árnadóttir
húsmóðir í Lundshúsi, frá
Ásmundarstöðum á Sléttu
Kristján Pétur Gottfreð Lund
bóndi og verslunarstjóri á
Raufarhöfn, hálfdanskur
Guðrún Laxdal
kaupkona í Rvík
Þórleifur Jónsson
prófastur og fræðimaður á Skinnastað í Öxarfirði
Eyþór Arnalds
oddviti Sjálfstæðis-
flokksins í Rvík Jón Laxdal
tónskáld í RvíkRagnar Arnalds
rithöfundur og fv.
ráðherra
Helgi Kristjánsson
bóndi, bókbindari og rak
húfuverksmiðju í Leirhöfn
Jón Arnalds
ráðuneytisstjóri
og borgardómari
Svava Þórleifsdóttir
skólastjóri og kennari
Steinunn Jónsdóttir
húsfreyja í Akurseli í Öxarfirði, frá Arnarbæli á Fellsströnd, af Ormsætt
Benedikt Vigfússon
bóndi í Akurseli, frá Núpi í
Öxarfirði
Sesselja Benediktsdóttir
húsmóðir í Nýhöfn á Melrakkasléttu
Kristinn Kristjánsson
bóndi í Nýhöfn
Helga Sigríður Sæmundsdóttir
húsmóðir í Leirhöfn, frá
Valþjófsstöðum í Núpasveit
Kristján Þorgrímsson
bóndi í Leirhöfn á
Melrakkasléttu, af Hraunkotsætt
Úr frændgarði Níels Árna Lund
Helga Kristinsdóttir
húsmóðir í Miðtúni á
Melrakkasléttu
Pétur Stefánsson skrifar í Leir-inn: „Langafi minn (í beinan
karllegg) Björn Pétursson frá
Sléttu í Fljótum orti og sendi þessar
vísur heim til Íslands mannskaða-
vorið 1922, þá búsettur í Kanada“:
Týnast fley og farast menn
fjörs með grandi sínu.
Sár hefur slegið Ægir enn
ættarlandi mínu.
Höfug falla harmatár,
hjartans undir blæða.
Ó hve mörgum svíða sár
sem er hart að græða.
Þögull stynur þanki minn,
þó ei kvarti lengur.
Mörgum vinamissirinn
mjög að hjarta gengur.
Eitt sinn þegar hugur hvarflaði
heim orti hann þessar Íslandsvísur:
Björtu andans blysin þín
brenna á feðra gröfum.
Tigna fjalla foldin mín
fjærst í norðurhöfum.
Þó af gulli þyki snauð
– það um lítt ég hirði -
á hún sagna og sögu auð
sem er meira virði.
Þó hún sýnist beinaber
brjóstið fölt og kalið.
Þar hefur Drottinn sjálfur sér
sumarbústað valið.
Þegar mildust mar og sund
maí-sólin baðar.
Vekja líf af vetrarblund
vorsins raddir glaðar.
Býst á ról hver blómálfur.
Burt er njóla hrakin.
Glitrar fjóla grátfögur
geislum sólar vakin.
Mér finnst fara vel á því að rifja
upp vísur eftir Vestur-Íslendinga í
framhaldi af þessum snjöllu stök-
um, ekki var síður vel kveðið vestra
en hér heima. Kristinn Stefánsson
kvað og kallar „Nebúkadnesar“:
Þú skilur ei hvað ljómar loftsins blær
sem leikur þér um kinn.
Þín sjón og heyrn er þar sem grasið
grær,
góðurinn minn.
Síðan er „Afturför“:
Mælska hans var þarflegt þing
og þjónn hans eini trúi;
en nú er hún uppboðs-auglýsing
á andlegu þrotabúi.
Um Þorstein Erlingsson orti
Kristinn:
Dóminn horfði ekki í
eða venju-brotið,
en færði eld að öllu því,
sem ónýtt var og rotið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kippir í kynið og
vel kveðið vestra