Morgunblaðið - 02.07.2020, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2020
Í byrjun sumars var í fyrsta skipti hér á
landi boðið upp á sérvalið skagfirskt nauta-
kjöt af galloway- og limosin-kyni. Við-
brögðin létu ekki á sér standa og muna for-
svarsmenn Hagkaups, þar sem kjötið var
selt, ekki eftir viðlíka viðtökum.
Von er á nýrri sendingu innan skamms og
að sögn Sigurðar Reynaldssonar, fram-
kvæmdastjóra Hagkaups, hangir kjötið núna
til að það verði meyrt og mjúkt. Hins vegar
hafi verið ákveðið að nota hluta afurðanna í
hakk.
„Það er yfirleitt ákveðinn hluti sem fer í
hakk en við ákváðum að setja stærri hluta
og bjóða upp á hakk í gæðum sem hefur
ekki áður verið boðið upp á hérlendis. Kjötið
hefur aldrei verið fryst en fólk áttar sig
kannski ekki á því en algengt er að kjöt-
afurðir hafi þurft að þola frost. Þetta er því
dálítið sögulegt verður að segjast,“ segir
Sigurður en boðið verður upp á hakkið nú
um helgina í verslunum Hagkaups og verður
bæði hægt að fá hakkið í ferskt í 500 gr.
pakkningum og hins vegar í tilbúnum 120
gr. Smash Style-hamborgurum.
Að sögn Sigurðar er mikil eftirvænting
hjá Hagkaup með kjötið enda breytir það
töluvert miklu fyrir íslenska nautgriparækt
að geta boðið upp á afurðir í þessum gæða-
flokki.
Hamborgarar af gallo-
way- og limosin-kyni
Hvalreki fyrir matgæðinga Það er ekki oft sem ófryst úrvalskjöt er fáanlegt í verslunum.
Þó að við séum í tjaldútilegu eða gönguferð
með allt á bakinu er óþarfi að borða bara flat-
kökur með hangikjöti þótt þær séu vissulega
góðar. Það getur verið gaman að takast á við
matreiðslu í útilegunni. Þá er mikilvægt að
undirbúa sig vel, taka með rétta hráefnið, eiga
uppskrift og góðan ferðaeldunarbúnað.
1-2 tsk. ólífuolía
1 pakki steikt hrísgrjón fyrir örbylgju
1 egg
1 bolli foreldaður kjúklingur
1 bolli stir fry-sósa
1 bolli þurrkað grænmeti
¼ bolli vatn
Aðferð:
Hitið olíuna á ferðapönnunni
Bætið við hrísgrjónunum og brúnið í 3-5
mín.
Gerið holu í miðja hrísgrjónahrúguna
Brjótið egg og eldið saman við hrísgrjónin
Bætið á pönnuna kjúklingi, sósu og græn-
meti
Sjóðið niður meðan hrært er í blöndunni
Bætið vatninu við og sjóðið þar til græn-
metið er mjúkt
Saltið og piprið eftir smekk.
Njótið
Ljósmynd/Jetboil
Eldum alls staðar Eldunarbúnaður í útilegur er góð fjárfesting fyrir útivistargarpa enda
enginn sem segir að maður geti ekki eldað hvar sem er. Hér má sjá ferðapönnur frá Jetboil.
Tjaldbúðasteikt hrís-
grjón með kjúklingi
Væntanleg er í verslanir ný íslensk
vara sem kallast „fish & chips“ og er
tilbrigði við einn vinsælasta rétt
heims. Um er að ræða þurrkaðan fisk
og kartöfluflögur þar sem hollustan
er sett í fyrirrúm en hver poki inni-
heldur 100 grömm, þar af 27 grömm
af próteini.
Það er íslenska matvælafyrirtækið
Bifröst Foods sem stendur að baki
vörunni sem hefur verið að fá af-
bragðsviðtökur hjá prufuhópum og
sögð er henta vel sem heilsusnakk í
útileguna, í nesti fyrir krakka, í bak-
pokann fyrir göngu eða hjólaferðir.
„Harðfiskurinn er sannkölluð of-
urfæða, það vita Íslendingar og As-
íubúar best. Hann inniheldur stein-
efni, vítamín og Omega-3-fitusýrur en
auðvitað er það staðreyndin að hann
er 84% prótein sem gerir hann eft-
irsóknarverðan í svona skyndimáltíð.
Kartöflurnar gefa svo kolvetni á móti
fisknum, auk þess að innihalda mikið
af vítamínum. Fiskur og kartöflur er
einfaldlega frábær máltíð, og það að
geta sett saman svona mikla nær-
ingu, heila máltíð, sem vegur aðeins
100 grömm er kjörið fyrir svo marga
á ólíkum forsendum,“ segir meðal
annars í tilkynningu frá Bifröst
Foods.
Heilsusnakkið er væntanlegt í
verslanir í sumar.
Spennandi nýjung Ef marka má viðtökur þeirra sem hafa prófað vöruna er
um að ræða spennandi nýjan valkost fyrir neytendur.
Nýtt íslenskt
heilsusnakk
www.danco.is
Heildsöludreifing
yrirtæki og verslanir
Sumarleikföng í úrvali
Kynntu þér málið og pantaðu
á vefverslun okkar www.danco.is
Kútar
S ndlau Sundboltar
120x120x87 cm
Fótbolta-
æfingasett
Vatnsblöðrur
Hoppubolt
50 cm
Fötusett