Morgunblaðið - 24.07.2020, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2020
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
- Við erum hér til að aðstoða þig! -
• Sérsmíðaðir skór
• Skóbreytingar
• Göngugreiningar
• Innleggjasmíði
• Skóviðgerðir
Erum með samning við
sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir í síma 533 1314
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Ferðaþjónustufyrirtækið Arctic
Adventures hefur endurráðið 20%
af því starfsfólki sem áður vann
hjá fyrirtækinu. Arctic Adventures
sagði upp öllu starfsfólki sínu í lok
apríl sl. vegna þeirra áhrifa sem
kórónuveiran hafði á rekstur fyrir-
tækisins. Þetta kemur fram í máli
Styrmis Þórs
Bragasonar, for-
stjóra Arctic Ad-
ventures, í sam-
tali við Morgun-
blaðið. Hann
segir aðsóknina í
ferðir fyrir-
tækisins hafa
verið meiri en
von var á þegar
útlitið var hvað
svartast í
miðjum faraldrinum, en fyrirtækið
gerir nú ráð fyrir að veltan verði
rúmlega þriðjungur af því sem hún
var í fyrra, sem þá nam um sex
milljörðum króna.
„Þetta er betra en maður átti
von á. Þetta er allt að þróast í
rétta átt en auðvitað miklu minna
en áður. Ef maður horfir einn og
hálfan mánuð aftur í tímann þá er
þetta mun betra en búast mátti
við,“ segir Styrmir en hann til-
kynnti starfsfólki tíðindin í vik-
unni.
Þriðjungur af veltunni í fyrra
Að sögn Styrmis nemur fjöldi
farþega 26% nú í júlí í samanburði
við árið áður og hafa tekjurnar
fallið í takt við það. Áætlar Styrm-
ir að ársveltan verði 30-35% af því
sem hún var í fyrra. Fyrirtækið
stendur á móti ágætlega að hans
sögn og ætlar sér að komast í
gegnum þann skafl sem raunar öll
ferðaþjónustan stendur frammi
fyrir en nauðsynlegt sé að fleiri
fyrirtæki sameinist og stækki ein-
ingar sínar til að minnka yfir-
stjórnunarkostnað.
Arctic Adventures mun notast
við verktöku í meiri mæli á næstu
mánuðum að sögn Styrmis á með-
an mesta óvissan ríkir. „Við
munum vinna með verktaka í leið-
söginni en umfang skrifstofunnar
verður um 30% af því sem áður
var,“ segir Styrmir.
Íslensk eftirspurn skiptir máli
Að sögn Styrmis hafa Íslend-
ingar unnið á móti þeim samdrætti
í eftirspurn sem óhjákvæmilega
hlaust af minni straumi ferða-
manna hingað til lands. Þó hafi
Danir, Þjóðverjar og Norðmenn
ásamt slæðingi af öðrum Evrópu-
þjóðum verið duglegir að sækja
ferðir fyrirtækisins.
„Það sem við höfum lagt áherslu
á fyrir Íslendinga hefur verið að
skila sér. Íshellirinn á Langjökli
hefur meira og minna verið fullur í
allt sumar og það hefur verið upp-
selt alla laugardaga. Snorkl í
Silfru hefur einnig verið mjög vin-
sælt sem og flúðasiglingarnar (e.
rafting),“ segir Styrmir og bætir
því við að þótt um takmarkaðan
fjölda sé að ræða í stóra samheng-
inu skipti þessi íslenska eftirspurn
máli fyrir fyrirtækið.
Spurður hvort ekki sé furðulegt
að standa í ferðaþjónusturekstri á
tímum kórónuveirunnar segir
Styrmir:
„Þetta er eins og að lenda á
vegg. Það er ekkert öðruvísi og
auðvitað eru þetta mjög sérstakir
tímar. Næstu mánuðina mun þetta
ráðast af því sem er að gerast í
öðrum löndum,“ segir Styrmir.
„Ég veit t.d. að núna á Möltu eru
öll hótel full. Fyrst og fremst út af
meira framboði á þeirri flugleið en
þangað fljúga bæði Easy Jet og
Ryanair mikið. Landamærin opn-
uðust þar 15. júní og 15. júlí var
allt orðið fullt,“ segir Styrmir.
Hagnaður Arctic Adventures
nam tæpum 750 milljónum króna í
fyrra og var félagið metið á um 12
milljarða króna í ársreikningi Ice-
landic Tourist Fund í fyrra.
Arctic Adventures end-
urræður 20% starfsfólks
Nauðsynleg samþjöppun í greininni fram undan segir Styrmir Þór Bragason
Ljósmynd/Arctic Adventures
Ferðaþjónusta Íshellirinn í Langjökli hefur verið vel sóttur í sumar og er vinsæll á meðal Íslendinga.
Arctic Adventures
» Er eitt stærsta ferðaþjón-
ustufyrirtæki landsins og
nam velta þess um sex millj-
örðum króna í fyrra.
» Áætluð ársvelta í ár nem-
ur 30-35% af þeirri upphæð,
eða um 1,8 til 2,1 m.a. króna.
Hagnaður félagsins nam
tæpum 750 milljónum króna
í fyrra.
» Var metið á um 12 millj-
arða króna í ársreikningni
Icelandic Tourism Fund í
fyrra.
» Sagði upp öllum starfs-
mönnum í lok apríl í kjölfar
kórónuveirunnar en endur-
ræður nú 20% þeirra.
Styrmir Þór
Bragason
Stoðtækjafyrirtækið Össur tapaði
tæplega átján milljónum bandaríkja-
dala á öðrum ársfjórðungi 2020, eða
tæplega 2,5 milljörðum íslenskra
króna. Það eru talsverð umskipti frá
sama tíma á síðasta ári, en þá var
fyrirtækið rekið með 22,6 milljóna
dala hagnaði, eða sem nemur rúm-
lega þremur milljörðum íslenskra
króna.
Eignir félagsins námu í lok tíma-
bilsins 1,2 milljörðum dala, eða um
161,5 milljörðum íslenskra króna.
Eignirnar aukast á milli ára, en á
sama tíma í fyrra voru þær 1,1 millj-
arður dala.
Eigið fé Össurar nam í lok fjórð-
ungsins 534 milljónum dala, eða 73
milljörðum króna. Eigið féð dregst
saman milli ára, en á sama tíma í
fyrra nam það 569 milljónum dala.
Eiginfjárhlutfall Össurar er 45%.
Tímabundin neikvæð áhrif
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar,
segir í fréttatilkynningu að kórónu-
veirufaraldurinn hafi leitt til tíma-
bundinna neikvæðra áhrifa á eftir-
spurn eftir stoðtækjum og spelkum
og stuðningsvörum hjá fyrirtækinu.
Þá segir Jón að sala Össurar hafi þó
farið batnandi á öllum helstu við-
skiptamörkuðum eftir krefjandi
aprílmánuð. „Til að mæta lækkun í
sölu tókst okkur að lækka rekstrar-
kostnað okkar í fjórðungnum með
aðhaldi á breytilegum kostnaði fé-
lagsins,“ segir Jón.
Össur tapaði 2,5 milljörð-
um kr. á öðrum fjórðungi
Sala hefur farið batnandi eftir krefjandi aprílmánuð
Morgunblaðið/Ómar
Uppgjör Tekjur voru 18,5 ma.kr.
● Netsala hjá leiðandi breskum stór-
markaðakeðjum, eins og Tesco og J
Sainsbury, hefur vaxið mikið í kórónu-
veirufaraldrinum, og það sama má
segja um keðjur á Ítalíu og í Þýskalandi.
Í grein um málið á vef The Financial
Times segir að þrátt fyrir næstum tvö-
földun á netsölu eigi keðjurnar erfitt
með að reka netverslunina réttum meg-
in við núllið. Ástæðan er hár kostnaður
við dreifingu. Einnig kemur fram í grein-
inni að eftir að faraldurinn hófst fór
hlutfall breskrar netsölu á mat úr 7% í
13%, á átta vikum. Þá sýni rannsóknir
Bain & Company að netsala í Þýska-
landi og á Ítaliu hafi tvöfaldast og sé nú
2,9% og 4,3% af heildarverslun.
Netsalan tvöfaldast
en hagnaður ekki
● Nokkrar svipt-
ingar urðu á ís-
lenska hlutabréfa-
markaðinum í gær.
Flest félög hækk-
uðu í verði, en önn-
ur lækkuðu mikið,
eins og Icelandair
sem lækkaði um
6,63%. Úrvals-
vísitala aðallista
Kauphallar Íslands
hækkaði um 3,36%.
Mest hækkaði verð hlutabréfa Arion
banka, eða um 7,18% í 812 milljóna
króna viðskiptum. Bankinn birti bráða-
birgðauppgjör sitt fyrr í vikunni, sem
var betra en búist hafði verið við. Gengi
bankans er nú 70,20 krónur fyrir hvern
hlut. Önnur mesta hækkun gærdagsins
varð á bréfum Sýnar, eða 3,4% í 23
milljóna króna viðskiptum. Verð bréfa
Sýnar er nú 24,3 krónur á hlut. Þriðja
mesta hækkunin í gær varð svo á bréf-
um fasteignafélagsins Eikar, en þau
hækkuðu um 3,12% í 25 milljóna króna
viðskiptum. Er gengi félagsins nú 7,6
krónur á hvern hlut.
Gengi Arion, Eik
og Sýn hækkuðu.
Arion banki hækkaði um
7,18% í kauphöllinni
STUTT
24. júlí 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 136.36
Sterlingspund 172.91
Kanadadalur 101.4
Dönsk króna 21.198
Norsk króna 14.943
Sænsk króna 15.386
Svissn. franki 146.25
Japanskt jen 1.2748
SDR 190.31
Evra 157.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 189.1548
Hrávöruverð
Gull 1851.0 ($/únsa)
Ál 1651.0 ($/tonn) LME
Hráolía 44.03 ($/fatið) Brent