Morgunblaðið - 24.07.2020, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2020
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga www.innlifun.is
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Vísindamenn á jörðu niðri hafa
greint og nefnt samtals 37 eldfjöll á
reikistjörnunni Venusi sem virðast
hafa gosið nýlega og eru sennilega
virk enn þann dag í dag. Ræða þeir
um reikistjörnuna sem jarðfræði-
lega atkvæðamikla en ekki útdauða
veröld eins og löngum hefur verið
talið að hún væri. Ný gögn renni
stoðum undir þá kenningu að
Venus sé sjóðheit innra.
Rannsóknirnar beindust einkum
að hringlaga fyrirbærum, coronae,
sem munu hafa myndast við það að
heit kvika vall upp á yfirborðið
lengst innan úr plánetunni. Fyrir
liggja vísbendingar um víðtækt
jarðhnik og kvikuhreyfingar á yfir-
borði Venusar, sagði rannsóknar-
hópurinn í vikunni.
Fjöldi vísindamanna hafði lengi
talið Venus skorta skorpuhreyfing-
ar á borð við þær sem jafnt og þétt
mótuðu yfirborð jarðarinnar. Að
reikistjarnan hafi í raun verið jarð-
fræðilega óvirk undanfarinn hálfan
milljarð ára. Nýja rannsóknin
storkar þessum hugmyndum.
Skimuðu ratsjármyndir
„Rannsóknir okkar leiða í ljós að
hluti iðrahitans er enn þess megn-
ugur að ná upp til yfirborðsins,
jafnvel í dag. Venus er klárlega
ekki jarðfræðilega útkulnuð eða
óvirk eins og áður var haldið,“ sagði
Anna Gülcher, jarðvísindafræðing-
ur við Þjóðarjarðeðlisfræði-
stofnunina í Zürich í Sviss, um
rannsóknir sérfræðinga stofnunar-
innar og vísindamanna við Mary-
land-háskólann í Bandaríkjunum.
Hún er aðalhöfundur greinar um
rannsóknirnar á Venus sem birtist í
nýjasta hefti tímaritsins Nature
Geoscience.
Leidd voru í ljós jarðfræðileg
sérkenni sem einungis gætu hafa
verið fyrir hendi að þar hafi nýlega
verið virk eldkóróna, nokkurs kon-
ar renna er umlukt hefur svæðið.
Skimuðu þeir síðan ratsjármyndir
af Venusi sem Magellan-geimfarið
tók á árunum 1900 til 1995 til að
finna kórónur sem gætu passað við.
Með hjálp þrívíddarhermilíkana var
leitt í ljós hvernig kórónurnar
mynduðust.
37 virk eldfjöll
Af 133 kórónum sem rannsak-
aðar voru reyndust 37 hafa verið
virkar á síðustu tveimur til þremur
milljónum ára, tímalengd sem í
jarðsögunni er ekki lengri en
augnablik. Þvermál þeirra að með-
altali reyndist 200 kílómetrar.
„Að mínu viti eru margar þessara
formgerða í raun og sann virkar í
dag,“ sagði jarðeðlisfræðingurinn
Laurent Montesi við Maryland-há-
skóla í Bandaríkjunum en hann er
meðhöfundur fyrrnefndrar greinar.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við get-
um bent á sérstakar yfirborðsform-
gerðir og sagt: „Sjáið til, þetta er
ekki forsögulegt og útbrunnið eld-
fjall heldur fjall sem er virkt í dag,
í dvala kannski en ekki útbrunnið.“
Gjörbreytir kenningum
Montesari bætti því við að nýja
rannsóknin myndi gjörbreyta hug-
myndum manna um Venus. „Frá
því að halda að hún sé útdauð plá-
neta í eina með ólgandi iður er get-
ur fóðrað mörg eldfjöll.“
Kórónurnar eru aðallega runnið
hraun og mikið misgengi er spann-
ar stór hringlaga svæði. Margar
hinna 37 liggja innan tröllaukins
hrings í syðra hálfhveli Venusar,
þar á meðal er hin risastóra kóróna
Artemis, sem er um 2.100 kíló-
metrar í þvermál. Þykir staðsetn-
ingin í nágrenni miðbaugs Venusar
geta bent til að umhverfis hana
liggi „eldhringur“.
Margt er það sem vísindamenn-
irnir hafa ekki enn svör við, eins og
til dæmis hversu langt er síðan eld-
fjöll Venusar voru virk. „Það gæti
verið frá einum degi upp í eins og
tvær milljónir ára,“ sagði Montesi.
Besta leiðin til að svara því er að
senda rannsóknarfar til ástarstjörn-
unnar heitu.
Venus er næst jörðu af reiki-
stjörnunum og ögn minni. Hún er
hulin eitruðum skýjum úr brenni-
steinssýru og er það heit við yfir-
borðið að hitinn dygði til að bræða
blý.
Lífleg eldvirkni á Venusi
Ástarstjarnan reyndist heit innra og jarðfræðilega atkvæðamikil en ekki ísköld eins og talið hefur verið
Vísindamenn hafa nefnt 37 eldfjöll sem virðast hafa gosið nýlega og eru sennilega virk enn í dag
Heit Á yfirborði Venusar er að finna 37 virk eldfjöll. Á myndinni sést kórónan Aramaiti, sem var virk nýverið, sem og er nálægt miðbaug reikistjörnunnar.
Nýr veruleiki blasir við verði landa-
mærum norrænu landanna lokað.
Um það mál fjallaði norska blaðið
Stavanger Aftenblad í gær og sagði
norræna krísu blasa við. Varar blað-
ið í forustugrein við því að norrænt
samstarf verði látið fjara út og tor-
tryggni leysi það af hólmi.
Blaðið vitnar til þess að norrænu
Evrópusambandslöndin hafi fækkað
í norrænum sendinefndum sínum
samhliða því að styrkja og byggja
upp Evrópuskrifstofur sínar í ýms-
um ráðuneytum.
„Utanríkisverslunarráðherra Sví-
þjóðar og sem fer með málefni nor-
rænnar samvinnu í sænsku stjórn-
inni, Anne Hallberg, bendir á í
samtali við fréttastofuna NTB, að
„lokuð landamæri og yfirlýsinga-
árásir“ geti átt eftir að valda árekstr-
um milli norrænu bræðraþjóðanna,“
segir Stavanger Aftenblad.
Nefnir það, að Johan Strang, sér-
fræðingur í norrænum málefnum við
háskólann í Helsinki, segi það alveg
nýtt að Norðurlöndin skuli bregðast
við kreppu með því að loka landa-
mærum. Fyrir tveimur áratugum
hefðu löndin sest niður saman til að
finna sameiginlega lausn. Þegar
flóttamannakreppan þjakaði Evrópu
árið 2015 hafi einmitt þannig verið
brugðist við af hálfu Norður-
landanna.
Blaðið segir svekkelsi í samstarf-
inu hafa verið lengi við lýði. Með af-
námi vegabréfaeftirlits milli Norður-
landanna á sínum tíma og
viðurkenningu þeirra á ólíkri upp-
byggingu opinberrar þjónustu land-
anna hafi verið komist eins langt og
unnt var. Enn dýpra samstarf gæti
leitt til hagsmunaárekstra vegna
ólíkrar forgangsröðunar norrænu
landanna vegna ESB-aðildarinnar.
„Löndin öll verða að viðurkenna
að þegar Svíar og Finnar völdu aðild
eins og Danir áður byrjaði norræna
samstarfið að gliðna,“ segir Stav-
anger Aftenblad.
Norðmenn og Íslendingar hafa
sem aðilar að Evrópska efnahags-
svæðinu (EES) einnig valið ESB
sem mikilvægari tengil. „Við höfum
tekið stöðugleika norrænnar sam-
vinnu sem gefinn,“ hefur blaðið eftir
Önnu Hallberg. Blaðið segir loks að
norræna samstarfið sé eitt af bestu
dæmum heims um vel heppnað fjöl-
þjóðlegt samstarf. Tími sé kominn til
að norrænu löndin öll beiti sér af
krafti til að koma samstarfinu aftur á
rétt spor.
Krísa sögð í norrænu samstarfi
„Höfum tekið stöðugleika norrænnar samvinnu sem gefinn“
Gríska þingið samþykkti í gær að
hafin skyldi sakardómsrannsókn á
hendur fyrrverandi aðstoðar-
ráðherra, vinstrimanninum
Dimitris Papangelopoulos.
Hann er sakaður um að hafa
misbeitt ráðuneytismönnum í máli
sem snýst um meiriháttar mútu-
starfsemi. Kemur svissneska lyfja-
fyrirtækið Novartis við sögu máls-
ins. Tillöguna samþykktu 177
þingmenn hægri- og miðflokka, en
á þinginu í Aþenu sitja 300 menn.
Papangelopoulos var aðstoðar-
ráðherra í dómsmálaráðuneytinu
2015 til 2019. Ákæruliðirnir í þing-
tillögunni voru átta, m.a. um mis-
notkun valds og brot á ráðherra-
skyldum. Eftir er að ákveða hvort
hann verði dreginn fyrir sérstakan
rétt.
Alexis Tsipras, fyrrverandi for-
sætisráðherra, og samflokksmenn
hans gengu út úr þingsalnum við
atkvæðagreiðsluna, ásamt þing-
mönnum fjögurra smáflokka.
Viðriðinn spillingarmál Pap-
angelopoulos er fjöldi stjórnmála-
manna, um 100 læknar og um 30
háttsettir embættismenn. Málið
kom upp eftir að hægristjórn
Kyriakos Mitsotakis tók við völd-
um í fyrra af stjórn Tsipras. Olli
það pólitísku gjörningaveðri eftir
að í ljós kom að hlífa ætti mönnum
sem í upphafi vitnuðu um að hátt-
settir embættismenn hefðu hjálpað
Novartis til að komast í einok-
unarstöðu á gríska lyfjamarkað-
inum.
GRIKKLAND
Aþena Pólitísk mótmæli í borginni.
Sóttur til saka