Morgunblaðið - 24.07.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 2020
Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is
Ljósaskilti
fyrir þitt fyrirtæki
LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og
smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum
60 ára Elín ólst upp í
Reykjavík og á Hallgils-
stöðum í Hvítársíðu en
býr í Reykjavík. Hún er
heilbrigðisgagnafræð-
ingur á gjörgæslunni á
Landspítalanum í Foss-
vogi. Elín situr í stjórn
stéttarfélagsins Sameyki.
Maki: Hallbjörn Þráinn Ágústsson, f.
1954, vélvirki hjá Icelandair.
Börn: Jóhanna, f. 1980, og Benjamín, f.
1982. Barnabörnin eru tvö.
Foreldrar: Jóhannes Halldór Benjamíns-
son, f. 1933, d. 2008, verkamaður, og
Ása Jóhanna Sanko, f. 1940, fv. hótel-
stjóri á Hótel Eddu og matráður í Haga-
skóla, búsett í Reykjavík.
Elín Helga Jóhannes-
dóttir Sanko
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú er þér óhætt að setja markið
hátt ef þú gætir þess aðeins að ganga ekki
fram af þér. Klappaðu þér á bakið fyrir að
reyna svona á þig og slakaðu svo á í kvöld.
20. apríl - 20. maí
Naut Eitthvað er að brjótast um í þér og
nauðsyn að þú fáir málin á hreint sem fyrst.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt það sé mikið að gera hjá þér
þessa dagana þarftu að gefa þér tíma til að
slappa af og skemmta þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er allt í lagi að baða sig í að-
dáun annarra ef henni er tekið með réttu
hugarfari. Næstu fjórar vikur verður þú
lukkunnar pamfíll.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér er ekki hlátur í hug í dag og glens
og gaman á ekki upp á pallborðið. Haltu
þínu striki en mundu að ekki er allt gull
sem glóir. Taktu þeim fagnandi því allt er
breytingum háð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert fullur af krafti og iðar í skinn-
inu eftir að koma öllu því í verk sem hefur
verið á biðlistanum. Rómantíkin blómstrar.
Hafðu hugfast að flest dæmum við foreldra
okkar óþarflega hart.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú getur hagnast á því að taka á þig
nýjar skyldur. Njóttu þess en vertu ekki að
slá um þig að óþörfu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að huga að framtíð-
inni og tryggja stöðu þína sem best. Sættið
ykkur við það að stundum getur maður
ekki gert nema eitt í einu. Láttu aðra ekki
tefja þig að tilefnislausu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Aðrir geta ekki hjálpað þér
nema þú leyfir þeim það. Settu skýr mörk
svo þú getir haldið þig á áætlun.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er hollt að hafa í huga að allt
sem þú gerir opinberlega setur sitt mark á
það hvert mat aðrir gera sér um þig. Gættu
þess að blandast ekki persónulega í málið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Yfirmaður þinn eða annar
áhrifamikill einstaklingur mun hugsanlega
koma þér ánægjulega á óvart í dag. Hér er
greinilega þörf á málamiðlunum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er eins og allt sleppi fyrir horn
hjá þér í dag. Gefðu þér bara tíma til að sjá
aðstæður út og sigrast á þeim.
Sigurði Magnúsi Finnssyni og Guð-
rúnu Benónýsdóttur. Fólk var að
gefa út bókverk en það vantaði vett-
vang fyrir þau og við ákváðum að
vera sá vettvangur. Svo hef ég setið í
nánast öllum nefndum sem hægt er
að hugsa sér. Ég fór aldrei út í mast-
ersnám heldur tók vesenismaster hér
heima í íslenskri myndlistarsenu. Ég
fór til Seyðisfjarðar og var fram-
kvæmdastjóri Skaftfells í eitt ár í af-
leysingum, svo var ég í stjórn Ný-
listasafnsins og SÍM og KÍM
[Samband íslenskra myndlistar-
manna og Kynningarmiðstöð ís-
lenskrar myndlistar] og kenni bæði í
Listaháskólanum og Myndlistaskóla
Reykjavíkur, en ég er búin að taka
mér góða pásu frá nefndum í mörg
ár.“
H
ildigunnur Birgisdóttir
fæddist 24. júlí 1980 í
Reykjavík og ólst upp
í Kleppsholti. Hildi-
gunnur segist hafa
verið frekar skrítið barn og sveim-
hugi. „Ég var frekar einræn og
gleymdi að mæta á æfingar en ég
æfði badminton og á fiðlu, en gleymdi
stund og stað og týndi öllu sem ég
átti. Ég var dýrasjúk og það var
borgað undir mig til að fara í sveit í
nokkrar vikur þegar ég var tíu ára.
Reyndar stóð ég mig svo vel að ég
fékk að vera lengur og gæta kúnna
þegar stelpan sem átti að gæta þeirra
fór á verslunarmannahelgardjamm,“
en bærinn var Vorsabær í Flóa.
Hildigunnur gekk í Ísaksskóla, þá
Laugarnesskóla. Fjölskyldan bjó síð-
an eitt ár í Danmörku og þar gekk
Hildigunnur í Skolen ved Bullowsvej
á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn.
Hún sneri aftur til Íslands og lauk
grunnskólamenntun í Laugalækjar-
skóla. Þá lá leiðin upp í Breiðholt þar
sem Hildigunnur stundaði nám á eðl-
isfræði- og myndlistarbraut og varð
stúdent 2000. Hún fór þaðan í
Listaháskóla Íslands og útskrifaðist
árið 2003.
„Ég ætlaði í eðlisfræði í háskóla en
svo var eitthvað svo spennandi að
fara í myndlistina og ég endaði þar.
Ég er alltaf að reyna að fá nýtt
sjónarhorn á heiminn í list minni,
svipað því sem eðlisfræðingar eru að
reyna að gera,“ segir Hildigunnur
þegar hún er spurð hvort eðlisfræðin
hafi nýst henni í myndlistinni „Ég tók
líka nokkrar annir í heimspeki og það
hefur nýst mér. Það er einhver for-
vitni sem er drifkrafturinn í listinni
minni sem er svipaður og þegar ég
var að sýsla við eðlisfræðina.“
Myndlistarferillinn
Hildigunnur hefur alla tíð starfað
af krafti í íslenskri myndlistarsenu,
allt frá listkennslu, bókaútgáfu,
nefndarstörfum til sýningarstjórn-
unar, nú síðast annar sýningarstjóri
Sequences 2019 ásamt kollega sínum
Ingólfi Arnarssyni. „Ég stofnaði
bókaútgáfuna Útúrdúr og verslun
ásamt Auði Jörundsdóttur, Pétri Má
Gunnarssyni, Þórunni Hafstað,
Hildigunnur hefur þó einkum lagt
áherslu á eigin listsköpun. Hún byrj-
aði að gera agnarsmáa skúlptúra sem
eru samsettir úr fundnum efnum og
fæst reyndar stundum enn við alls
kyns smælki. Í verkum sínum hefur
Hildigunnur rannsakað flókin kerfi
með notkun hrekklausra eða jafnvel
barnslegra tenginga. Hún leikur sér
með spennuna sem myndast getur
milli þarfar okkar til að útbúa óhlut-
bundin þekkingarkerfi og líkamlegra
þolmarka skynkerfa okkar.
Fyrsta einkasýning Hildigunnar
var Hring eftir hring og var sýnd í
Skaftfelli 2004. Síðan hefur hún hald-
ið í kringum 15 einkasýningar og tek-
ið þátt í fjölmörgum samsýningum.
Síðasta einkasýning hennar, Univer-
sal Sugar, sem hún vann með Lista-
safni ASÍ, var tilnefnd til íslensku
myndlistarverðlaunanna 2020 og var
sýningartvenna sem var haldin í
tveimur íbúðum, annars vegar í
Garðabæ og hins vegar í Vestmanna-
eyjum. Í tómum íbúðunum hafði
Hildigunnur komið fyrir, eftir per-
sónulegu kerfi, ýmsum fjölda-
framleiddum hlutum sem virkjuðu
rýmið með áhugaverðum og glettn-
islegum hætti þar sem áhorfandinn
fór um eins og gestur í leit að íbúð að
kaupa. Og það var markviss speglun
milli innsetninganna þar sem lista-
konan beitti „ómerkilegum efniviði“ –
svo sem pappaglösum, innkaupapok-
um, minnismiðum – til að skapa eftir-
minnilega tímabundna listupplifun í
íbúðunum, eins og sagði í umsögn
dómnefndar.
„Ég er núna að reka sýningar-
rýmið Open með Unu Margréti Árna-
dóttur, Erni Alexander Ámundasyni
og Arnari Ásgeirssyni. Þetta er
vinnustofan okkar sem við breytum í
sýningarrými og höfum staðið fyrir
nokkrum sýningum á ári og öðrum
viðburðum og það sem er fram undan
er að standa fyrir fleiri sýningum þar
og svo verður einkasýning bráðum í
i8 galleríi,“ en Hildigunnur er á mála
hjá i8. Svo er Hildigunnur að fara að
gefa út bók um verk sín.
Listin er svo skrítin að hún yfir-
tekur allt,“ segir Hildigunnur spurð
út í áhugamálin. „Ég vakna sem lista-
maður, sofna sem listamaður og ég er
Hildigunnur Birgisdóttir myndlistarkona – 40 ára
Myndlistarkonan Hildigunnur á sýningu sem hún hélt í i8 galleríi árið 2017.
Forvitni er drifkrafturinn
Fjölskyldan Í flugvél á leiðinni til
Hollands árið 2017.
50 ára Þórunn er
Hafnfirðingur, ólst upp
í Norðurbænum en
einnig í Keflavík á ung-
lingsárunum. Hún býr
á Völlunum í Hafnar-
firði. Þórunn er iðju-
þjálfi að mennt frá
Iðjuþjálfaskólanum í Kaupmannahöfn og
er iðjuþjálfi á Kleppi.
Synir: Ingvar Hermannsson, f. 2002, og
Friðrik Hermannsson, f. 2004.
Bróðir: Sigurður, 1967, líffræðingur, bú-
settur í Árbænum.
Foreldrar: Ingvar Friðriksson, f. 1944, fv.
skipstjóri, og Erla Fríður Sigurðardóttir, f.
1946, tækniteiknari. Þau eru búsett í
Garðabæ.
Þórunn Sif
Ingvarsdóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Ragnar Erik
Heimisson fæddist 17.
júlí 2019 kl. 14.41 í
Reykjavík. Hann vó
2.514 g og var 48 cm
að lengd. Foreldrar
hans eru Heimir Jóns-
son og Hörn Ragnars-
dóttir.
Nýr borgari