Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2020, Side 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.7. 2020
Guðrún Matthildur
Sigurbergsdóttir
Stykkishólmur.
SPURNING
DAGSINS
Hver er
uppáhalds-
staðurinn
þinn á
landinu?
Steinn Ólafsson
Heima hjá okkur.
Lilja Jakobsdóttir
Selfoss.
Jón Valur Guðmundsson
Haukadalur.
Ljósmynd/Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir
Veislan
á heima
í Hörpu
Rými sem henta fyrir hverskyns tilefni
Nánar á harpa.is/veislur
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðan er samsett úr myndum frá
nokkrum minnistæðum atburðum.
Á hverju á fólk sem mætir á uppistandið von?
Það á von á skemmtilegu flippi með almennilegu fólki. Skemmti-
legt grín bara.
Hvernig myndirðu lýsa VHS, grínist
þið allir á mismunandi hátt?
Við erum allir nokkuð mismunandi, sem er dálítið
skemmtilegt. Mér finnst til dæmis gaman að leika í
uppistandinu. Hákon minnir mig stundum á ungan
Seinfeld. Svo talar Stefán Ingvar mikið um reynslu
sína af alkóhólisma en gerir auðvitað meira en það.
Hvernig kom það til að þið setjið upp sýningu saman?
Ég var fenginn til að vera með uppistand með Fyndnustu mín-
um sem er uppistandsandshópur sem samanstendur af Re-
beccu Scott Lord, Lóu Björk og Sölku Gullbrá. Það gekk bara
merkilega vel með þeim en það voru þær, ég og Stefán Ingv-
ar; Fyndnustu mínar + 2 gaurar. Svo ákváðum við Stefán að
setja upp sýningu saman sem hét Endurmenntun og fengum
Hákon til að kynna fyrir okkur. Hákon var svo ógeðslega
fyndinn og góður kynnir að við gátum ekki annað en fengið
hann með okkur í lið núna. Við fengum þá hugmynd að búa til
VHS sem er „Villi, Hákon, Stefán“. Ég var helvíti sáttur með
þetta nafn.
Hvernig gekk að finna nýtt efni?
Við fórum að prófa nýtt grín eftir áramót. Svo vorum við mikið að
hittast og skrifa og vissum að við vildum setja upp aðra alvöru-
sýningu. Þá er maður kominn í annan brandaragír, kasta fram
hugmyndum fram og til baka. Sjá hvað er fyndið og hvað ekki.
Stundum eru hlutirnir bara ekki fyndnir og það þarf að taka þá út.
Þú ert í tökum um þessar mundir, ekki satt?
Jú, þetta er sjónvarpssería sem heitir Hver drap Friðrik Dór? Ég get ekki
sagt mikið en þetta verður einstök sería. Ótrúlega skemmtileg og fyndin. Fram-
leiðslufyrirtækið SNARK vinnur að þessu með mér.
Skemmtilegt flipp
VILHELM NETO
SITUR FYRIR SVÖRUM
Uppistandshópurinn VHS sýnir sýningu sína, VHS biðst forláts, í Tjarnarbíói
í sumar. Fyrsta sýning var fyrr í sumar en næst er sýnt 25. júlí og síðan 15.
ágúst. Vilhelm Neto, Hákon Örn Helgason og Stefán Ingvar Vigfússon
skipa hópinn. Miðar fást á Tix.is.
Ég var spjaldaður fyrir það á dögunum að tala um hjúkrunarkonur ogspurður hvort ég væri að koma þráðbeint á fyrsta farrými aftan úrgrárri forneskju ásamt Birgittu Haukdal. Hjúkrunarkonur væru ekki
lengur til, aðeins hjúkrunarfræðingar. Baðst ég að vonum auðmjúklega af-
sökunar, eins og uppeldi mitt býður mér.
Síðan fór ég að hugsa málið aðeins betur. Þetta voru konur sem vinna við
hjúkrun. Hvað er þá móðgandi við það að kalla þær hjúkrunarkonur? Varla
móðgast konur yfir því að vera kallaðar konur! Nei, það eru karlarnir sem
gætu móðgast, þeir eru nefnilega
ekki konur. Sú var tíðin að hjúkrun
var kvennastétt en svo er ekki leng-
ur, fjölmargir karlar hafa haslað sér
þar völl. Og þess vegna þurfti að
breyta starfsheitinu. Ekki
vegna kvennanna, heldur
vegna karlanna. Svo þeir
móðgist ekki.
Það leiðir hugann að
öðru virðulegu
starfsheiti, ráð-
herra. Hvers vegna
í ósköpunum hefur
því ekki verið breytt líka? Hvers
vegna gilda önnur lögmál um ráð-
herra en hjúkrunarkonur? Er þetta á einhvern hátt frábrugðið? Einu sinni
var það karlastétt en er það ekki lengur; langt er síðan konur fóru að gegna
embætti ráðherra. Hvers vegna sætta Katrín, Svandís, Áslaug Arna, Þórdís
Kolbrún og Lilja Dögg sig við að vera herrar? Og bændur þeirra ráðherra-
herrar? Hvers vegna er í lagi að móðga konu sem er ráðherra en ekki karl
sem er hjúkrunarkona? Vinsamlega réttið upp hönd ef þið sjáið muninn?
Eini lærdómurinn sem maður getur dregið af þessu er sá að það sé alvar-
legra mál að móðga karla í þessu landi en konur. Eru það skilaboðin sem við
viljum í raun og veru senda út í þjóðfélagið? Einhver gæti bent á að ráðherra
sé rótgróið starfsheiti og fyrir vikið erfitt að breyta því með einu pennastriki.
Gott og vel. En var hjúkrunarkona það ekki líka?
Fyrst ég er búinn að taka lokið af þessari ormagryfju hlýt ég að þurfa að
koma með valkost. Ef ekki ráðherra, hvað þá? Ráðfrú blasir við. Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðfrú. Hljómar kannski aðeins undarlega eins og svo
mörg önnur orð sem koma í stað eldri orða. Það venst. Mögulega væri samt
ennþá betra að sneiða bara herra og frú aftan af. Tala einfaldlega um ráð, s.s.
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráð og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráð. Þetta er rótgróið í íslenskri málhefð, sbr. konferensráð. Steinliggur.
Pistill
Orri Páll Orm-
arsson orri@mbl.is
’Hvers vegna er í lagiað móðga konu sem erráðherra en ekki karl semer hjúkrunarkona? Vin-
samlega réttið upp hönd
ef þið sjáið muninn?
Sitt er hvort ráðherra
eða hjúkrunarkona