Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2020, Side 4
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.7. 2020
Liverpool mun taka við Eng-landsmeistarabikarnum ífyrsta sinn í 30 ár þegar liðið
fær hann afhentan á miðvikudag. Þá
leikur liðið sinn síðasta heimaleik á
tímabilinu, gegn Chelsea á Anfield.
Jürgen Klopp hefur gefið það út að
Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool
sem átt hefur frábært tímabil, muni
lyfta bikarnum þrátt fyrir að hann hafi
orðið fyrir meiðslum á dögunum og
geti ekki leikið með liðinu. Efst í huga
aðdáenda liðsins er auðvitað hvort
Henderson geti tiplað á tánum eins
og óður maður, þrátt fyrir meiðslin,
áður en hann lyftir bikarnum. Það
gerði hann einkar laglega í Madríd í
fyrra þegar Liverpool varð Evrópu-
meistari.
Fyrrnefdur Klopp, þjálfari liðsins, á
allt það hrós skilið sem hann hefur
fengið fyrir að rífa Liverpool upp úr
svaðinu sem það var í þegar hann tók
við liðinu í október 2015. Var liðið þá í
10. sæti eftir átta umferðir og hafði
endað í því sjötta tímabilið áður.
Fer ekki í viðtöl
Fyrir utan taktíska snilld Klopps og
samband hans við leikmenn og stuðn-
ingsmenn hefur árangurinn á leik-
mannamarkaðnum haft mikið að
segja. Liverpool hefur byggt upp eitt
besta, ef ekki besta, félagslið heims
síðan Klopp tók við og er þar valinn
maður í hverju rúmi.
Þennan árangur má þakka sam-
starfi Klopps og yfirmanni íþróttamála
hjá Liverpool, Michael Edwards.
Edwards þessi tók við stöðu sinni árið
2016 en hann hefur starfað hjá Liver-
pool síðan 2011. Fram að því vann
hann að ýmsum málum í sambandi við
frammistöðu og greiningar á leik-
mönnum.
Edwards kemur aldrei fram í við-
tölum og lætur því lítið á sér bera. En
hann vinnur náið með Klopp og hefur
unnið á bak við tjöldin að félags-
skiptum leikmanna á borð við
Mohamed Salah, Sadio Mané,
Roberto Firmino, Andy Robertson,
Georginio Wijnaldum, Fabinho,
Alisson og Virgil van Dijk. Ekki ama-
legt það.
Þegar Klopp framlengdi samning
sinn við Liverpool í fyrra lofaði hann
Edwards. „Ég verð líka að undir-
strika hlutverk yfirmanns íþrótta-
mála hjá okkur, Michaels Edwards, í
vegferð okkar hingað til,“ sagði
Klopp. „Framlag hans og samstarf
hefur verið jafn mikilvægt og hvers
annars í að koma okkur í stöðu til að
keppa um eftirsóttustu titla leiksins.“
Varð vinsæll meðal leikmanna
Edwards, sem er fertugur, reyndi
fyrst fyrir sér í fótboltanum sem leik-
maður. Hann ólst upp í Southampton
og var á mála hjá Peterborough í
nokkur ár og lék með unglingaliði fé-
lagsins en aldrei með aðalliði þess.
Hann hafði þó mikinn leikskilning
og var vinsæll meðal samherja sinna.
Hann sýndi áhuga á tölvunar- og töl-
fræði og útskrifaðist með gráðu í
stjórnun og upplýsingatækni frá Há-
skólanum í Sheffield. Stuttu seinna,
árið 2003, var hann ráðinn til grein-
ingarfyrirtækisins Prozone til að
starfa hjá knattspyrnuliðinu
Portsmouth.
Þar greindi hann myndbönd af
leikjum liðsins og varð hvert smáat-
riði að gagnapunktum sem síðan var
hægt að nota fyrir ýmsa tölfræði-
þætti liðsins og leikmanna. Á þessum
tíma var þetta byltingarkennd aðferð
en margir sem þrifist höfðu í fótbolt-
anum í mörg ár vildu lítið gefa fyrir
tölfræðigreiningu.
En hjá Portsmouth varð Edwards
vinsæll hjá leikmönnum liðsins sem
gerðu sér ferð á skrifstofu Edwards
til að fá upplýsingar frá honum
hvernig þeir gætu bætt leik sinn.
Skipti þar reynsla Edwards sem leik-
maður miklu og átti hann því auðvelt
með að ná til leikmannanna.
Edwards hélt til Tottenham árið
2008 en á meðan dvöl hans í Ports-
mouth stóð náði liðið frábærum ár-
angri, náði áttunda sæti í úrvalsdeild-
inni og varð bikarmeistari 2008. Þó
lítið sem ekkert hafi borið á Edwards
fyrir utan Portsmouth-liðið var hann
mikilvægur hlekkur í árangri liðsins,
að sögn Richard Hughes, þáverandi
leikmanns þess.
Samstarfið skilað árangri
Edwards var fenginn til Liverpool ár-
ið 2011, stuttu eftir að Fenway Sports
Group keypti liðið. Var ráðningin
hluti af þeirri áherslu sem nýir eig-
endur liðsins vildu setja á tölfræði-
greiningu líkt og þeir gerðu hjá Bost-
on Red Sox með góðum árangri.
Ekki gekk vel hjá Edwards fyrstu
árin hjá Liverpool og var hann bendl-
aður við misheppnuð kaup á leik-
mönnum eins og Iago Aspas, Lazar
Markovic og Christian Benteke. Þá
var Brendan Rodgers, sem þjálfaði
liðið á undan Klopp, lítið fyrir að
vinna með tölfræðinördunum, vissi
ekki einu sinni hver Edwards var.
Það veit Klopp hins vegar og hefur
samstarf þeirra Edwards skilað ótrú-
legum árangri. Evrópumeistaratitli,
þriðja besta árangri í sögu úrvals-
deildarinnar í fyrra og svo yfir-
burðasigri í deildinni í vetur. Þá hefur
liðinu gengið einkar vel að fá vel
greitt fyrir leikmennina sem það
sendir á brott. Þar má nefna Mama-
dou Sakho, Dominic Solanke, Danny
Ward, Danny Ings, Christian Ben-
teke, Jordon Ibe og síðast en ekki síst
Philippe Coutinho sem fór fyrir 142
milljónir punda til Barcelona en stóð
ekki undir væntingum þar.
„Það kemur þér á óvart hve gáfað-
ur hann er,“ sagði Damien Comolli,
fyrrverandi yfirmaður íþróttamála
hjá Liverpool, um Edwards í samtali
við Independent í fyrra. „Mér líkar að
hann mælir gegn hinni hefðbundnu
speki, líkt og Billy Bean [úr myndinni
Moneyball].“
Maðurinn á bak við tjöldin
Fáir þekkja til Michael Edwards enda lætur hann
lítið á sér bera. Hann á þó mikinn heiður skilinn
fyrir það starf sem unnið hefur verið hjá Liver-
pool síðan Jürgen Klopp mætti á svæðið. Eng-
landsmeistarabikarinn fer á loft á miðvikudag.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Jürgen Klopp heldur á treyju Liver-
pool í október 2015, nýbúinn að taka
við liðinu. Fáir áttu von á að árangur-
inn yrði eins og raun ber vitni.
AFP
AFP
Margir aðdáendur knatt-
spyrnuliðsins Liverpool bíða
spenntir eftir því að Englands-
meistarabikarinn fari á loft.
Uppgangur liðsins síðustu ár
hefur verið magnaður og á
Michael Edwards mikinn heiður
skilinn þó lítið beri á honum.