Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2020, Blaðsíða 18
Allskyns
grímur
Donald Trump bar loks
andlitsgrímu á dögunum
en hann vildi upphaflega
ekki gera það.
AFP
Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, með grímu með
merki þýska Evrópuráðsins.
Johnny Depp ber grímu
þegar hann mætir fyrir
dóm vegna ásakana um
að hann hafi verið of-
beldisfullur gagnvart
fyrrverndi konu sinni,
Amber Heard.
AFP
Þótt Íslendingar og aðrir Norðurlandabúar hafi blessunarlega sloppið viðað þurfa að bera andlitsgrímur á almannafæri er ekki sömu sögu aðsegja alls staðar. Víða er grímuskylda og annars staðar er fólk hvatt til
að bera grímu fyrir vitum sér til að koma í veg fyrir útbreiðslu kórónuveir-
unnar. Allir verða þó að bera grímur á meðan á millilandaferðalögum stendur.
Allur gangur er á því hvernig grímur menn bera. Einhverjir bera einfaldlega
skurðaðgerðargrímu, aðrir merktar grímur og enn aðrir nota grímurnar fyrir
listræna eða pólitíska tjáningu.
Af mörgu er að taka og tók Sunnudagsblað Morgunblaðsins saman nokkrar
myndir fyrir þá sem eru í grímuhugleiðingum, nú eða vilja skemmta sér við að
skoða ólíkar grímur.
Grímutískan er allsráðandi víða um heima þessa
dagana enda kórónuveirufaraldurinn í sífelldum
vexti. Hér má sjá nokkrar skemmtilegar grímur.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
AFP
Þátttakandi í Pride Ride 2020,
sem fór fram í byrjun mánaðarins
í Zagreb í tengslum við þingkosn-
ingar í Króatíu, hjólar með grímu
til stuðnings hinsegin fólki.
Veiðivefur
í samstarfi við
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.7. 2020
LÍFSSTÍLL