Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.07.2020, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.7. 2020
LÍFSSTÍLL
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.
Hvað eiga skákmaðurinnMagnus Carlsen, golfarinnRory McIlroy og tónskáldið
Hildur Guðnadóttir sameiginlegt? Jú,
þau hafa öll náð afburðaárangri á sínu
sviði eftir að hafa stundað markvissa
og fókuseraða þjálfun til lengri tíma,
þjálfun sem hefur að einhverju leyti
verið undir leiðgögn sérfræðinga á
sviðinu.
Sá fræðimaður sem hefur haft
hvað mest áhrif á hugmyndir okkar í
samtímanum um færni og færniþjálf-
un, eins og þeirra afburða ein-
staklinga sem nefndir eru hér að of-
an, er Svíinn K. Anders Ericsson.
Ericsson, sem starfaði lengst af sem
prófessor í sálfræði við Florida
State-háskólann í Bandaríkjunum,
setti fram kenninguna um markvissa
og fókuseraða þjálfun (e. deliberate
practice) sem hefur vakið gríðarlega
athygli frá því hún var fyrst sett
fram árið 1993. Fræðilegar tilvitn-
anir í fyrstu grein Ericsson um efnið
er orðnar yfir 11.000 (en það merkir
hve margar vísindagreinar hafa vitn-
að í rannsóknina), og samtals eru til-
vitnanir í verk Ericsson í kringum
84.000 – þegar þetta er skrifað. Ýms-
ir dægurvísindaskríbentar, eins og
Malcolm Gladwell, hafa svo gert
kenningar Ericsson aðgengilegri al-
menningi, en margir þekkja hug-
myndina um að til að einstaklingur
nái afburðafærni á ákveðnu sviði þá
þurfi hann að stunda markvissa
þjálfun í yfir 10.000 klukkustundir.
K. Anders Ericsson lést hinn 17.
júní síðastliðinn, 73 ára að aldri. Af því
tilefni er við hæfi að fara hér stuttlega
yfir framlag Ericsson til fræðanna og
er þessum pistli ætlað að varpa ljósi á
mikilvægi kenninga hans fyrir skilning
okkar á því hvernig einstaklingar
bæta færni sína í tilteknum athæfum.
Markviss og
fókuseruð þjálfun
Ævistarf Ericsson hefur hjálpað okk-
ur að átta okkur betur á því að til þess
að einstaklingar nái ákveðinni færni
og árangri á ákveðnu sviði þá sé það
með markvissri og fókuseraðri þjálf-
un. Slík þjálfun hefur skýr markmið
og krefst mikillar einbeitingar. Það er
því ekki nóg fyrir einstakling að mæta
bara á æfingu, til að hámarka framfar-
ir, heldur þarf hann að mæta á æfingu
til að æfa. Ericsson hefur einnig bent á
að eftirfylgni og mat eru mikilvægir
þættir til að hámarka árangur og því
þarf að mæla framfarir og árangur
reglulega og aðlaga áskoranir í þjálfun
við stöðuna hverju sinni – en sá þáttur
er einnig studdur af rannsóknum
Mihaly Csikszentmihalyi sem hefur
verið nefndur „faðir“ jákvæðrar sál-
fræði. Til þess að geta ákveðið hvað
þarf að þjálfa og með hvaða hætti þá
þarf því að liggja nákvæmlega fyrir
hvar einstaklingurinn stendur miðað
við þá færni/þekkingu sem unnið er
með hverju sinni. Það skiptir því miklu
máli í allri færniþjálfun að einstak-
lingar fái góða kennslu og leiðsögn og
er hlutverk kennara, þjálfara eða ann-
arra sérfræðinga því dýrmætt í þessu
samhengi. Kenning Ericsson gengur
jafnframt út á að til að einstaklingur
nái framúrskarandi árangri á ákveðnu
sviði þurfi hann að stunda markvissa
og fókuseraða þjálfun í athæfinu, eins
og hér hefur verið útlistað, til lengri
tíma – og hefur stundum verið talað
um 10.000 klukkustundir í því sam-
bandi. Það má því segja að kenning
Ericsson styðji hið fornkveðna; að
æfingin skapi meistarann.
Æfingin skapar meistarann
Í bókinni Peak: How to master almost
anything, tengir Ericsson kenningar
sínar um markvissa og fókuseraða
þjálfun saman við rannsóknir innan
taugavísinda. Þar sýnir hann fram á
að þegar einstaklingar þjálfa ákveðna
færni þá styrkjast taugabrautir í heil-
anum (e. brain plasticity) sem bæta
færni þeirra á tilteknu sviði við endur-
teknar æfingar í bland við sífellt vax-
andi áskoranir. Með öðrum orðum, þá
skapar þjálfun, nám og reynsla teng-
ingar á milli taugafruma – taugafræði-
leg net (e. neural networks) sem við
getum kallað snaga – sem eru undir-
staðan fyrir færni og hæfileika okkar á
ákveðnum sviðum. Þegar einstak-
lingar þjálfa ákveðna færni þá styrkj-
ast þær taugabrautir í heilanum sér-
staklega sem tengjast þessum
ákveðna snaga, en ekki endilega þær
taugabrautir og sú færni sem tengist
öðrum snögum. Þannig sýna rann-
sóknir til dæmis að þó að stórmeist-
arar í skák hafi þjálfað með sér mikla
færni í skák þá hafa þeir ekki endilega
mikla færni í stærðfræði, þó að stærð-
fræði byggi einnig á rökhugsun líkt og
skák, nema þeir hafi einnig þjálfað
stærðfræðilega færni sérstaklega.
Með markvissri og fókuseraðri þjálfun
þá geta einstaklingar því náð mikilli
færni á tilteknu sviði en sú færni yfir-
færist ekki endilega yfir á önnur eða
svipuð svið.
Kenning Ericsson í bland við rann-
sóknir í taugavísindum er því undir-
staðan fyrir skilning okkar á almenn-
um forsendum færniþjálfunar og
varpa jafnframt ljósi á þróun afburða
einstaklinga. Til dæmis þá var
Magnus Carlsen heimsmeistari í skák
hvort í senn búinn að stunda yfir
10.000 klukkustundir af markvissri og
fókuseraðri þjálfun í skák þegar hann
var einungis 16 ára. Einnig naut Carl-
sen leiðsagnar skáksnillinga eins og
Simen Agdestein og Garry Kasparov
á leið sinni á toppinn.
Mikilvæg kenning
Kenning Ericsson er mikilvæg fyrir
alla sem vinna að því að bæta færni og
stuðla að þekkingarþróun fólks á öll-
um aldri; frá börnum til eldra fólks, frá
byrjendum til þeirra sem eru fram-
úrskarandi. Kostur kenningarinnar er
einnig að hún er jákvæð og hvetjandi
og ýtir hún undir gróskuhugarfar (e.
growth mindset), þ.e. að einstaklingar
hafa trú á að þeir geti bætt færni sína,
í stað fastmótaðs hugarfars (e. fixed
mindset), þar sem einstaklingar hafa
síður þá trú. Kenningin gefur þannig
til kynna að það hafa allir möguleika á
að bæta færni sína umtalsvert á því
sviði sem þeir kjósa sér, svo framar-
lega sem þeir eru tilbúnir til að leggja
á sig mikla vinnu og stunda markvissa
og fókuseraða þjálfun í athæfinu til
lengri tíma. Svigrúm einstaklinga til
að bæta færni sína er því jafnan meira
en þeir gera sér grein fyrir. Rann-
sóknir á færniþjálfun og árangri segja
þó ekki endilega að allir þeir sem
stundi yfir 10.000 klukkustundir af
markvissri og fókuseraðri þjálfun geti
komst í allra fremstu röð á sínu sviði,
eins og stundum er haldið fram, held-
ur ræðst afburðaárangur af flóknu
samspili mun fleiri þátta sem snúa að
erfðum, hugarfari og umhverfi ein-
staklinga. Rannsóknirnar segja okkur
öllu frekar að allir geta bætt færni sína
og árangur umtalsvert með mark-
vissri og fókuseraðri þjálfun og er slík
þjálfun grunnur að framförum ein-
staklinga á ólíkum sviðum, eins og í
íþróttum, listum og bóknámi, svo ein-
hver séu nefnd. Framlag Ericsson
fyrir aukinn skilning okkar á færni-
þjálfun og árangri hefur því reynst
veigamikið, bæði fyrir fræðasam-
félagið sem og fyrir allt það starf sem
fer fram á vettvangi á víð og dreif um
samfélagið.
Þess má að lokum geta að Ericsson
skrifaði bókarkafla í bók Hermundar
Sigmundssonar, Ekspertise. Utvikling
av kunnskap og ferdigheter, sem gefin
var út í Noregi fyrr á þessu ári þar
sem fjallað er um ýmsar hliðar færni-
þjálfunar og árangurs. Sá kafli kann
að vera síðasta birta framlag K. And-
ers Ericsson til fræðanna; lokapunkt-
urinn á veigamiklu ævistarfi hins
merka og áhrifamikla fræðimanns.
Framúrskarandi fræðimaður
K. Anders Ericsson er sá fræðimaður, sem haft hefur einna mest áhrif á hugmyndir okkar um færni
og færniþjálfun. Ericsson lést í júní og í tilefni af því er vert að fara yfir framlag hans til fræðanna.
K. Anders Ericsson við vinnu á skrifstofunni sinni í Florida State-háskólanum.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Vísindi og samfélag
Hermundur Sigmundsson, Prófessor í
lífeðlislegri sálfræði hermundur@ru.is
Vidar Halldórsson, Prófessor í félagsfræði
Jóhannes Kjarval umkringdur verkum í sölunum við Sigtún 7 sem hann hafði
sem vinnustofur um árabil. Að baki árangri liggur þrotlaus vinna.