Morgunblaðið - 17.08.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.08.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST 2020 Hvalaskoðun Forvitnir ferðamenn og farþegar voru samviskusamlega grímuklæddir í einmuna veðurblíðu á Húsavík á föstudag í fanginu á Ömmu Helgu, RIB-báti fyrirtækisins Gentle Giants. Hafþór Hreiðarsson Undanfarna daga hafa farið fram áhuga- verðar umræður um efnahagslega þætti, sem tengjast við- brögðum stjórnvalda við veirufaraldrinum. Ýmsir hagfræðingar og fulltrúar atvinnu- lífsins hafa sett fram sjónarmið um efna- hagsleg áhrif mismunandi sóttvarna- ráðstafana og er sú umræða mikil- væg þótt hún leiði ekki til einhlítrar niðurstöðu. Við núverandi aðstæður er engin leið að segja til um áhrif ein- stakra aðgerða með fullri vissu en miklu skiptir að ákvarðanir byggi á eins góðum upplýsingum og kostur er. En það er ekki bara á efnahags- lega sviðinu sem óvissa ríkir. Þrátt fyrir að við vitum miklu meira um veiruna, áhrif hennar og útbreiðslu í dag en fyrir hálfu ári er erfitt, jafnvel fyrir færustu sérfræðinga, að segja nákvæmlega til um ávinning af ein- stökum aðgerðum út frá sóttvarna- sjónarmiðum. Þar verður líka að byggja á bestu upplýsingum og rök- um en um leið að horfast í augu við að óvissuþættirnir eru margir. Skerðing borg- aralegra réttinda Heilsufarsleg og efn- hagsleg sjónarmið eru þó ekki einu atriðin, sem taka þarf tillit til í sam- bandi við ákvarðanir á sviði sóttvarnarmála. Margvíslegar sóttvarn- aráðstafanir fela í sér skerðingu á frelsi borg- aranna. Með sóttvarna- reglum eru settar ýmsar skorður við persónu- frelsi, atvinnu- og athafnafrelsi, ferðafrelsi, fundafrelsi og svo fram- vegis. Þessar takmarkanir geta verið misjafnlega íþyngjandi fyrir ólíka hópa við mismunandi aðstæður, en fela þó allar í sér skerðingu á frelsis- réttindum, sem teljast til grundvallarréttinda í öllum þeim ríkjum, sem byggja á lýðræði, mann- réttindavernd og grundvallarreglum réttarríkisins. Þennan þátt mála má því ekki nálgast af neinni léttúð. Lögmæti ákvarðana Það er viðurkennt í vestrænum lýðræðisríkjum að undir ákveðnum kringumstæðum geti verið heimilt að skerða borgaraleg réttindi. Þetta birtist skýrt í mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar og alþjóðlegum mannréttindasáttmálum. Þetta er orðað með mismunandi hætti í ýms- um ákvæðum en jafnan er gerð sú krafa að skerðingin eða takmark- anirnar styðjist við heimild í lögum og yfirleitt vísað til þess að lagaheim- ildin verði að byggjast á nauðsyn, al- mannahagsmunum eða réttindum annarra. Við túlkun ákvæða af þessu tagi er viðtekið viðhorf að lagaheim- ild verði að vera til staðar, hún þurfi að vera skýr og uppfylla þau efn- islegu skilyrði sem tilgreind eru. Skerðing borgaralegra réttinda verð- ur því að standast skoðun bæði út frá formlegum og efnislegum mæli- kvörðum. Heimildir íslenskra stjórnvalda til að beita takmörkunum á grundvelli sóttvarnarsjónarmiða byggja einkum á ákvæðum IV. kafla sóttvarnalaga. Þar eru stjórnvöldum færðar marg- víslegar og nokkuð víðtækar heim- ildir til að setja reglur og taka ákvarðanir á þessu sviði. Lagaheim- ild er því til staðar á þessu sviði en í ákveðnum tilvikum getur verið álita- mál hvort um nægilega skýra heimild sé að ræða. Það er með öðrum orðum hugsanlegt að opin og almennt orðuð lagaheimild dugi ekki þegar um er að ræða tilteknar íþyngjandi ákvarð- anir. Það þarf einfaldlega að meta í hverju tilviki fyrir sig og endurmeta með reglulegum hætti eftir því sem aðstæður breytast og nýjar upplýs- ingar koma fram. Reynist lagaheim- ildir óljósar eða ófullnægjandi kann svo að reyna á aðkomu löggjafar- valdsins. Meðalhóf En eins og sjá má hér að framan er ekki nægilegt að formleg lagaheimild sé til staðar og ekki einu sinni þótt hún geti talist skýr. Takmarkanir á borgaralegum réttindum verða líka að standast skoðun út frá fleiri sjón- armiðum. Þannig verða að vera fyrir hendi almannahagsmunir af ein- hverju tagi eða brýn réttindi annarra til að skerðing teljist réttlætanleg. Og jafnvel það er ekki nóg, því það verður að vera skýrt samhengi milli þeirra íþyngjandi ráðstafana sem um er að ræða og þeirra almannahags- muna sem á að vernda. Það er með öðrum orðum ekki nóg að lagaheim- ild sé til staðar til að grípa til sótt- varnaráðstafana og að sýnt sé fram á hættu vegna farsóttar, það verður líka að vera hægt að sýna fram á að ráðstafanirnar séu í hverju tilviki raunverulega til þess fallnar að vinna gegn hættunni. Orsakasamhengið verður að vera fyrir hendi. Um leið verður svo að gæta þess að ekki sé gengið lengra í takmörkunum eða íþyngjandi ráðstöfunum hverju sinni heldur en nauðsynlegt er. Það á líka við um gildistíma aðgerða; þær mega ekki standa lengur en nauðynlegt er. Með öðrum orðum verður að gæta fyllsta meðalhófs þegar settar eru reglur eða ákvarðanir teknar, sem fela í sér einhvers konar skerðingu borgaralegra réttinda. Mat og endurmat Almennt talað tel ég að íslensk stjórnvöld hafi farið vel með vald- heimildir sínar frá því farsóttin gerði vart við sig. Í stórum dráttum hafa þau reynt að feta meðalveg milli var- færni og frjálsræðis og hefur að mínu mati tekist betur upp í þeim efnum en flestum nágrannaríkjum okkar. Einstakar nýlegar ráðstafanir kunna þó að orka tvímælis – þær eru ekki hafnar yfir gagnrýni – og nauðsyn- legt er að stöðugt eigi sér stað endur- mat á stöðu mála, meðal annars út frá þeim sjónarmiðum sem ég hef rakið hér að framan. Eftir Birgi Ármannsson » Það verður að gæta fyllsta meðalhófs þegar settar eru reglur eða ákvarðanir teknar, sem fela í sér einhvers konar skerðingu borg- aralegra réttinda. Birgir Ármannsson Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Lögmæti, meðalhóf og viðbrögð við faraldri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.