Morgunblaðið - 22.08.2020, Page 4

Morgunblaðið - 22.08.2020, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020 Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is Sérfræðingar í sölu fyrirtækja Investis er ein öflugasta fyrirtækjaráðgjöf landsins og hefur á liðnum árum annast mikinn fjölda samninga um sölur, sameiningar og kaup á fyrirtækjum af öllum stærðum og gerum. Dæmi um verkefni þar sem Investis hefur annast ráðgjöf við sölu, sameiningar eða aðkomu fjárfesta. Ákveðið var í gær að ráðherrar rík- isstjórnarinnar færu í tvöfalda skimun og viðhefðu smitgát þar á milli, eftir að nokkur smit kórónuveiru greindust í gær hjá einstaklingum sem dvöldu á Hótel Rangá. Ríkisstjórnin snæddi kvöldverð á hótelinu þriðjudaginn 18. ágúst. Fór fyrri skimunin fram í gær og er sú síðari fyrirhuguð á mánudag. Tveir ráðherrar snæddu ekki á hót- elinu, heilbrigðisráðherra og félags- málaráðherra, og þurfa því ekki að undirgangast þessar sérstöku ráðstaf- anir, sem einkum eru gerðar þegar um er að ræða heilbrigðisstarfsfólk, lög- reglu, framlínufólk í orkufyrirtækjum, lykilstarfsfólk í fjölmiðlum og í stjórn- kerfinu. „Búin að aflýsa öllu“ „Þetta er sem sagt verklag sem er viðhaft fyrir framlínufólk. Þá er þetta bara þannig að við förum í skimun, síð- an förum við í smitgát sem felst í því að við hittum bara sem fæsta. Ég er bara farin heim til mín núna. Og förum svo í aðra skimun á mánudag,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í sam- tali við mbl.is í gær. „Það þýðir til dæmis að ég er ekki að fara norður í land á morgun [í dag] að opna veg, svo dæmi sé tekið,“ bætti Katrín við. „Ég er búin að aflýsa öllu og ég reikna nú með því að allir ráð- herrar séu með hlaðna dagskrá. Þetta er bara partur af prógramminu.“ Átta smit tengd Hótel Rangá Tíu kórónuveirusmit greindust á sýkla- og veirufræðideild Landspítal- ans í fyrradag og er það mesti fjöldi smita sem greinst hefur á einum degi í tvær vikur. Átta þessara tíu smita tengjast smiti hjá starfsmanni á Hótel Rangá, en frá því greindi Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við mbl.is í gær. Sagðist hann um leið búast við því að fleiri smit sem hópsýkingunni tengjast eigi eftir að koma í ljós. „Ég býst alveg við því að smitin eigi eftir að verða fleiri. Það er mikill fjöldi sem tengist þessum einstaklingum sem er hér í bænum líka og víða,“ sagði Þórólfur. Þrjú smit greindust á landamærun- um en beðið er eftir niðurstöðum mót- efnamælinga vegna tveggja þeirra. Það þriðja reyndist gamalt. Faraldri ljúki í lok næsta árs Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskr- ar erfðagreiningar, hefur mikla trú á sænsk-breska bóluefnaframleiðand- anum sem lítur út fyrir að muni útvega Íslendingum bóluefni með milligöngu Svía. Segist hann telja að bóluefni verði tilbúið í lok þessa árs eða byrjun þess næsta, og að faraldrinum ljúki í lok næsta árs. Yfirleitt tekur það vísindamenn fimm til sjö ár að þróa bóluefni en Kári segir að vegna samstarfs lyfjafyrir- tækja og viðbragða lyfjaeftirlitsstofn- ana virðist sem mögulegt verði að þróa bóluefni við kórónuveirunni á mun skemmri tíma. Kári segist þekkja vel til framleið- andans, AstraZeneca, og segir að þró- un bóluefnis hjá fyrirtækinu sé komin vel á veg. „Þeir eru að vinna í samvinnu við Oxfordháskólann. Þeirra bóluefni er það bóluefni sem ég bind kannski hvað mestar vonir við þótt ég bindi vonir við fleiri. Ég þekki vel til þeirra vísinda- manna sem standa að þessu og veit hvers þeir eru megnugir en ég er býsna vongóður þegar kemur að þessu.“ Kári nefnir að stór lyfjafyrirtæki eins og AstraZeneca hafi fram að þessu verið „erfið“ og verðlagt lyf sín mjög hátt. Nú sé staðan önnur. „Nú hafa þau snúið bökum saman og eru búin að heita því að þau ætli ekki að selja bóluefni eða lyf til þess að hafa af því gróða heldur til þess að taka þátt í því að berjast við þennan faraldur,“ segir Kári og bætir við: „Þau fyrirtæki sem hafa mest afl til þess að framleiða svona lagað hafa lýst sig reiðubúin til þess að taka við því að framleiða bóluefni sem önnur fyrir- tæki hafa búið til. Það er mikil og sterk samfélagsvitund í þessum iðnaði akk- úrat núna sem ég hef aldrei séð áður og er svolítið hissa á á þessu augna- bliki en mér finnst það ótrúlega flott.“ Ríkisstjórnin skimuð tvisvar  Allir ráðherrar nema tveir fara tvisvar í skimun  Smit kom upp á Hótel Rangá  Sóttvarnalæknir býst við fleiri tengdum smitum  Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segist bjartsýnn á nýtt bóluefni Ljósmynd/Stjórnarráðið Ríkisstjórnarfundur Ríkisstjórnin kom saman til fundarhalda á Hótel Læk, nærri Hellu á Rangárvöllum, á þriðjudag. Um kvöldið var snætt á Hótel Rangá. Innanlands Landamæraskimun: Virk smit Með mótefni Beðið eftir mótefnamælingu Kórónuveirusmit á Íslandi Fjöldi jákvæðra sýna frá 15. júní til 20. ágúst 535 einstaklingar eru í sóttkví 2.050 staðfest smit 120 er með virkt smit Heimild: covid.is Nýgengi smita innanlands: 15,3 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa 1 einstaklingur er á sjúkrahúsi, enginn á gjörgæslu júní júlí ágúst 194.963 sýni hafa verið tekin Þar af í landamæraskimun 110.868 sýni 20 15 10 5 0 Ný spá um þróun kórónuveirufarald- ursins hér á landi næstu vikur er heldur svartsýnni en síðasta spá sem birtist fyrir viku. Þannig er gert ráð fyrir að helmingslíkur séu á að fjöldi virkra smita á dag verði á bilinu 2-6, en til samanburðar var gert ráð fyrir helmingslíkum á 1-4 smitum í spánni fyrir viku. Samkvæmt spánni, sem nær til næstu þriggja vikna, er gert ráð fyr- ir að smit haldi áfram að greinast all- an þann tíma, en fari fækkandi hægt og bítandi, rétt eins og spáð var síð- ast. Í samtali við Morgunblaðið segir Thor Aspelund, prófessor í líftöl- fræði og ábyrgðarmaður líkansins, að þau tíu smit sem tilkynnt voru í gær hafi haft áhrif á líkanið, enda til- kynnt um þau stuttu fyrir birtingu. Hann segir þó að enn sé gert ráð fyr- ir að faraldurinn sé á hægri niðurleið hér á landi. alexander@mbl.is Svartsýnni spá en síðast Greind smit og spá fyrir næstu þrjár vikur Fjöldi daglegra smita innanlands frá 23. júlí og spá frá 21. ágúst 350 280 210 70 0 18 15 12 9 6 3 0 Heimild: Háskóli Íslands Uppsafnaður fjöldi smita innanlands frá 23. júlí og spá frá 21. ágúst júlí ágúst september júlí ágúst september Líklegasta útkoma Minni líkur skv. spálíkani Rauntölur til 20. ágúst Líklegasta útkoma Minni líkur skv. spálíkani Rauntölur til 20. ágúst 21. ágúst 21. ágúst  Helmingslíkur á 2-6 smitum á dag næstu daga ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.