Morgunblaðið - 22.08.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2020
AUÐVELT, FLJÓTLEGT OG ÖFLUGT
BYGGINGAKERFI
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
Bestu undirstöðurnar fyrir:
SÓLPALLINN
SUMARHÚSIÐ
GIRÐINGUNA
NÝ VEFVERSLUNdvergarnir.is
Fáðu
Dvergana
senda heim
að dyrum
DVERGARNIR R
Stjórnarráðið birti á vef sínum ígær fréttatilkynningu undir
fyrirsögninni Ferðakostnaður rík-
isins lækkaði um 2,7 milljarða á
fyrstu sex mánuðum ársins. Telja
má víst að þessi frétt brjóti blað því
að ríkið hefur hingað til ekki vakið
sérstaka athygli á þróun ferða-
kostnaðar eða umfangi hans og má
af því ráða að nú fari í hönd tímar
ráðdeildar og sparnaðar.
Einhverjir sem lesa tilkynn-inguna hnjóta þó sennilega um
að ríkisstarfsmenn hafi þrátt fyrir
þennan góða sparnað náð að ferðast
fyrir 4 milljarða króna á fyrri hluta
ársins, þegar enginn ferðaðist nema
þeir sem létu ekkert stöðva sig og
fóru einbeittir í heilnæma loftið í
Ischgl og nágrenni.
En ferðakostnaður getur líkafallið til innanlands og ef til vill
voru ríkisstarfsmenn venju fremur
duglegir að hlíta ráðleggingum um
að ferðast innanlands og þá er það
auðvitað fagnaðarefni.
Þessi tilkynning ríkisins, jafnánægjuleg og hún er, verður
vonandi ekki aðeins til að gleðja
landsmenn við lestur hennar heldur
einnig til þess að ríkið endurskoði
ýmislegt í rekstri sínum nú þegar
kreppir að og þörf er á hagræðingu.
Ólíklegt er að nokkur maður hafisaknað þeirra ferða sem féllu
niður og spöruðu skattgreiðendum
2,7 milljarða. Vonandi endurspegl-
ast þessi sparnaður í fjárlögum
næsta árs og þá ekki aðeins á sviði
ferðakostnaðar.
Fréttatilkynning
um ferðabrest
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Gamla Gullborg úr Vestmanna-
eyjum fær í kvöld nýtt hlutverk
sem tónleikasvið. Skipið hefur síð-
ustu ár staðið við gömlu höfnina í
miðbæ Reykjavíkur, í bakgarði
barsins Barion-Bryggjan og í kvöld
verður þar haldið bryggjuball.
Þemað er aldamótin og munu tón-
listarmennirnir Hreimur, Jónsi,
Birgitta Haukdal, Ragnheiður
Gísladóttir, Gunni Óla, Valur og Ír-
is koma fram á tónleikapalli sem
hefur verið komið fyrir á dekki
skipsins.
Sigmar Vilhjálmsson, eigandi
Bryggjunnar, segir í samtali við
Morgunblaðið að vegna sóttvarna-
reglna hafi aðeins hundrað sæti
verið í boði og eru þau öll orðin frá-
tekin, en frítt var inn á viðburðinn.
Tónleikarnir verða einnig í beinni
útsendingu á Stöð 2.
Gullborg í nýju hlut-
verki á Bryggjunni
Morgunblaðið/sisi
Gullborg Aflaklóin Binni í Gröf átti skipið um árabil en það komst í eigu
Faxaflóahafna árið 2008. Nú verður það nýtt sem tónleikapallur.
Franska skemmtiferðaskipið Le
Bellot tók á móti 250 farþegum frá
Frakklandi á miðvikudaginn var en
skipið hefur verið við Íslands-
strendur síðan 12. júlí.
Farþegar skipsins komu með flugi
til landsins og ferðuðust frá Kefla-
víkurflugvelli að Miðbakka, þar sem
skipið hefur fest landfestar á 7 til 8
daga fresti frá júlíbyrjun. Áhöfn
skipsins skipa 180 manns.
„Farþegar fara ekki í land heldur
eru fluttir beint í skipið frá Keflavík-
urflugvelli,“ segir Karl Lárus
Hjaltested, starfsmaður Faxaflóa-
hafna.
Farþegar gangast undir skimun
eins og aðrir við komuna til landsins.
Laugardaginn 11. júlí kom fyrsta
farþegaskip sumarsins, Le Boreal,
til Reykjavíkur en þá hafði ekkert
skip komið til Faxaflóahafna frá því í
byrjun mars.
Skipin áttu í fyrstu að fara til
Hafnarfjarðar en þar sem höfnin er
ekki skilgreind sem sóttvarnahöfn
voru skipakomur fluttar til Reykja-
víkur. veronika@mbl.is
Skemmtiferðaskip
í Reykjavíkurhöfn
250 farþegar og 180 manna áhöfn
Morgunblaðið/Eggert
Skemmtiferðaskip Le Belliot siglir um þessar mundir við Íslandsstrendur.